Morgunblaðið - 13.06.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNl 1975
3
Myndlistarmenn opna
nýjan sýningarsal
NOKKRIR félagsmcnn Félags
fslenzkra myndlistarmanna upna
f dag, 13 júní, sýningu f nýjum
sýningarsal Byggingaþjónustu
Arkitektafélags tslands að Grens-
ásvegi 11. Félagið vill med þess-
ari sýningu kynna þetta nýja
sýningarhúsnæði sem áætlað er
að verði notað t náinni framtíð
fyrir smærri sýningar félagsins
eftir þvf sem tækifæri gefst til.
Á blaðamannafundi með for-
ráðamönnum sýningarinnar kom
m.a. fram, að félagið hefur ekki
átt neinn samastað frá því að
Listamannaskálinn var rifinn. Og
Mynt- og frímerkja-
sýning opnuð í dag
I DAG klukkan 5 verður opnuð
sýning f Hagaskóla á mynt og
frímerkjum. Að sýningunni
standa félagar úr Myntsafn-
arafélagi tslands og Félagi ís-
lenzkra frímerkjasafnara.
Mynt, minnispeningar og frí-
merki verða sýnd í 12 púltum
og um 40 römmum.
Sýningin verður opin frá
klukkan 2 til 10, til sunnudags-
kvölds.
þegar Arkitektafélagið bauð
F.Í.M. þennan sýningarsal til sam-
eiginlegra afnota tók félagið því
fegins hendi. Auk þess að þarna
má sýna verða einnig haldnir
fundir og sinnt öðru félagsstarfi
innan F.Í.M. og ekki töldu þeir
myndlistarmenn, sem blaðið
ræddi við, minna um vert að
þarna fengist aðstaða til að undir-
búa sýningar. Sögðu þeir að þarna
væri að hluta komin sú aðstaða,
sem þeir vonuðust eftir á fá á
Kjarvalsstöðum en fengu ekki.
Þessi nýi sýningarsalur er um
100 fermetrar að stærð og verður
þar góð aðstaða fyrir smærri
sýningar en slíkar sýningar hafa
verið fremur fáar á vegum félags-
ins. Hvort þarna verða að meiri-
hluta einkasýningar eða sam-
sýningar er enn óráðið og sögðu
myndlistarmennirnir, að undir-
tektir þessarar sýningar kynnu að
ráða miklu um framtiðina.
Alls eiga 8 listamenn verk á
þessari sýningu en þeir eru:
Benedikt Gunnarsson, Björgvin
Sigureir Haraldsson, Elías B.
Halldórsson, Gylfi Gíslason, Hjör-
leifur Sigurðsson, Kjartan Guð-
jónsson, Matthea Jónsdóttir og
Sigurður Sigurðsson. Eins og
áður sagði verður sýningin opnuð
í dag kl. 17 og verður opin til kl.
22 í kvöld. Alla virka daga verður
hún opin frá kl. 10 til kl. 18 en
helga daga frá kl. 14 til 22.
Sýningin stendur í tvær vikur en
á henni eru 28 verk.
Listamennirnir Sigurður Sigurðsson, til vinstri, og Björgvin
Haraldsson setja upp eina af myndum Sigurðar.
Á NÆSTUNNI verður boðin út smíði nýs norsks sendiráðs, sem ætlunin er að risi á horni Fjóíugötu og
Bragagötu. Rúmmál hússins er um 2 þúsund metrar en i því verða bæði skrifstofur sendiráðsins og
íbúðir starfsfólks þess. Áformað er að smíði hússins hefjist strax og gengið hefur verið að tilboðum
verktaka. Svo sem sjá má er húsið í norskum stil en það eru arkitektarnir Ulrik Arthúrsson og Haukur
Viktorsson á teiknistofunni Arkir sem húsið teiknuðu.
Aðalfundur Almenna bókafélagsins:
Félagið gert að sjálfseignarstofnun
AÐALFUNDUR Almenna bóka-
félagsins og styrktarfélags þess,
Stuðla h.f., var hahlinn 3. júní
síðastliðinn, en í haust eru 20 ár
liðin frá stofnun félagsins, sent
gefið hefur út samtals 360 bækur
en á árinu 1974 gaf félagið út 14
nýjar bækur. A sfðastliðnu hausti
var stofnaður sérstakur bóka-
klúbbur AB. 1 fréttatilkynningu
um aðalfund AB, sem Mbl. hefur
borizt, segir m.a.:
Formaður Almenna bökafélags-
ins, Karl Kristjánsson, gerði grein
fyrir útgáfustarfi félagsins á s.l.
ári. 1 skýrslu hans kom fram, að á
árinu hafði útgáfubókum félags-
ins fækkaó nokkuð frá fyrri ár-
um. Alls. gaf félagið út 14 nýjar
bækur 1974 auk nokkurra endur-
prentaðra bóka. Þá skýrði Karl
Kristjánsson frá þeirri nýjung,
sem Bókafélagið tók upp á síðasta
hausti nteð stofnun Bókaklúbbs
AB. 1 byrjun gerðust um 2000
manns félagar í bókaklúbbnum,
en um þessar mundir eru þeir
orðnir um 3.500 talsins og fer
stöðugt fjölgandi. Þá gat Karl
Kristjánsson þess, að á árinu 1975
eru liðin 20 ár frá stofnun AB og
hefur félagið gefið út að jafnaði
eina og hálfa bók á mánuði hverj-
um frá öndverðu eða 360 bækur.
Framkvæmdastjóri AB, Balcí-
vin Tryggvason, gerði grein fyrir
reikningum félagsins og rekstri.
Þá ræddi hann um þann vanda,
sem bókaútgáfa heíur átt við að
stríða í æ vaxandi niæli undan-
farin þrjú ár. Síðasta ár var eink-
ar erfitt og framtíðarliorfur
ískyggilegar. Þótt félagið hafi
staðið erfiðleikana af sér fram til
þessa hljóti AB eins og aðrir
bókaútgefendur að draga saman
seglin um sinn nema úr rætist.
Helzta bjargráðið nú er afnám
söluskatts af bókum. Benti hann á
þá knýjandi nauðsyn, að menn-
ingarleg, sjálfstæð bókaútgáfa
gæti þrifizt með eðlilegum hætti.
Menningarstarf væri engin auka-
geta og síður en svo afteiðing af
góðum efnahag. Þvert á móti væri
réttara að segja, að þróttmikið
menningarstarf, reist á þjóðleg-
um grunni, væri forsenda göðra
og heilbrigðra lífskjara þjóðar-
innar allrar. Þá fyrst er efnahags-
legur vandi illviðráðanlegur. ef
Framhald á bls. 20
Konungi gefið mál-
verk afJökulsárlóni
á boðstólum og gerðu
allir því góð skil. Að borð-
haldi loknu, sem stóð frá
kl. 18.30 til kl. 21, afhenti
lögreglustjórinn á Höfn i
Hornafirði, Friðjón Guð-
röðarson, Svíakonungi að
gjöf málverk eftir Jó-
hannes Geir listmálara.
— Þetta var gjöf frá mér og
konu minni til konungsins,
sagði Friðjón þegar Mbl. spjall-
aði við hann. Myndin, sem er
pastelmynd, er frá Jökulsárlóni
á Breiðamerkursandi, en fyrr
um daginn hafði konungurinn
skoðað það, og var auðsjáanlega
hrifinn af umhverfinu.
Að loknu veizluhaldi í Skafta-
felli var haldið til Fagurhóls-
mýrar, þar sem flugvél Land-
helgisgæzlunnar, TF-Sýr, beið,
en með henni ferðuðust kon-
ungur og forsetahjónin, og
einnig Fokker frá Flugfélaginu
sem flutti aðragesti. Var lagt af
stað frá Fagurhólsmýri
skömmu fyrir kl. 22 og komið
til Reykjavíkur um kl. 22.30.
SKAFTFELLINGAR
héldu Karli XVI Gustav
kvöldverðarboð í skála
kaupfélagsins undir
Skaftafellshæðum í
fyrrakvöld. Kalt borð var
Ameðan dvalið var við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi birti
nokkuð til, þannig að konungur og fylgdarlið fékk jöklasýn. Hér
stendur Karl XVI Gústaf ásamt Sigurði Þórarinssyni fylgdarmanni
sfnum og virðir fyrir sér lónið.
Ljósm. Mhl.: IVniuifiirOlafsson.
Það getur orðið hált á jöklinum og hér vegur Svíakonungur sig
áfram með hjálp nærstadds manns.