Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JUNl 1975
7
STAKSTEINAR
Stjórnmálaleiði
Stjórnmál snerta alla
þá þætti þjóSllfsins. sem
varSa hag og heill borg-
aranna I þjóSfélaginu,
bæSi sem heildar og ein-
staklinga. Vökull áhugi
hvers og eins ætti þvl aS
vera fyrir hendi á þess-
um vettvangi, jafnt um
sveitarstjórnar- og þjóS-
mál. Þessu er þó naum-
ast aS heilsa, þvl miSur.
f lýSræSisríki fylgir ský-
lausum rétti einstakl-
ingsins til afskipta og
áhrif á sameiginleg mál-
efni sú ábyrgS og
skylda, aS kynna sér
gaumgæf ilega og taka
afstöSu til málefna 115-
andi stundar og framtlS-
ar.
Sá stjórnmálaleiSi,
sem gert hefur vart viS
sig I rikum mæli, á sér
efalltiS margþættar or-
sakir. Glögg mörk milli
flokka og stefnumiSa
hafa eySzt eSa óskýrzt,
fastheldni stjórnmála-
manna viS orS og fyrir-
heit fariS úr böndum.
Viss sveigjanleiki I
stjórnmálum, sem vissu-
lega verSur aS vera fyrir
hendi, ekki slzt þar sem
samstarf meira og
minna óllkra flokka er
óhjákvæmilegt, hefur
valdiS þvi, aS fólk veit
sjaldnast fyrirfram meS
öruggri vissu, hvers kon-
ar framvindu þjóSmála
þaS stuSlar aS meS at-
kvæði slnu. Hreinar lín-
ur stjórnmálabaráttunn-
ar hafa þvl máðst út aS
nokkru og valdið af-
skiptaleysi almennings.
Dæmi hins
gagnstæða
Þó er grunnt á áhuga
Íslendingsins I þessu
efni. Þyki honum mikið
við liggja notar almenn-
ingur rétt sinn og áhrif.
Eitt gleggsta dæmi
þessa kom fram I undir-
skriftasöfnuninni Varið
land, þegar meirihluti is-
lenzkra kjósenda, óháð
stjórnmálaf lokkum,
myndaði fjöldahreyfingu
til að tryggja öryggi
þjóðarinnar og aðild
hennar aS samstarfi
vestrænna lýðræðis-
rlkja. Á nokkrum vikum
myndaðist varnarveggur
almenningsáhrifa, sem
náði til hvers byggSs
bóls I landinu, á hverjum
margra ára niSurrifsstarf
kommúnista og með-
reiðarsveina brotnaði I
spón. Þessi áhugi hafði
vissulega sln mótandi
áhrif, sem segja mun til
sln um allnokkra fram-
tiS, og hvetja til stefnu-
festi I öryggis- og sjálf-
stæðismálum þjóðarinn-
ar.
Á rústum tilrauna
sin.na hafa kommúnistar
gripið til þess lágkúru-
lega bragSs, einkum I
Þjóðviljanum, að
ófrægja forystumenn
Varins lands persónu-
lega. Sllk vinnubrögð
lýsa betur og bitna frek-
ar á þeim, er þeim beita
en hinum, sem þeim er
beint gegn. Þessi sorp-
tunnuskrif bera þvl öll-
um, sem sjá vilja, hvers
konar fyrirbæri Þjóðvilj-
inn er. Og það er gott og
blessað út af fyrir sig.
Unga fólkið
og Alþýðu-
bandalagið
Ungt fólk er oft opn-
ara og örara I stjórnmál-
um en hið eldra. Þetta
kemur fram I öflugu
starfi stjórnmálasam-
taka ungs íólks innan
allra islenzkra stjórn-
málaflokka — nema Al-
þýðubandalagsins. Ung-
herjahreyfing, sem starf-
aði I tengslum við Sósla-
listaflokkinn, sagði skil-
ið við Alþýðubandalagið
og kaus að starfa utan
vébanda þess. Engin
formleg samtök ungs
fólks, eru starfandi inn-
an Alþýðubandalagsins.
Það, sem á milli bar,
núverandi forystumanna
Alþýðubandalagsins og
„Fylkingarinnar", var
og er, að hinir yngri
vildu koma til dyra eins
og þeir voru klæddir,
ekki leyna slnu raun-
verulega pólitlska and-
liti. sem út af fyrir sig er
virðingarvert, hvað sem
stefnu þeirra llður. Þeir
vildu ekki fela sig á bak
við Alþýðubandalags-
grimuna.
Þetta róttæka vinstra
fólk er að vfsu margklof-
ið. Fylkingin er aðeins
eitt brotið. Kommúnista-
samtökin, Marxistar-
Leninistar, klofnuðu I
tvær fylkingar. Og enn
fleiri munu hóparnir
vera. Allir neita þó þátt-
töku I feluleik Alþýðu-
bandalagsins, eina Is-
lenzka stjórnmálaflokks-
ins, sem ekki getur
þróað æskulýðssamtök
innan sinna flokks-
marka. Það er tlmanna
tákn, sem vert er að
veita athygli, að unga
fólkið I landinu telur slzt
af öllu. að það geti
gengið sinn veg móti
framtlðinni innan raða
þessa forneskjulega
feluflokks, sem hefur
ekki meiri trú á sinum
raunverulega tilgangi en
svo, að hann sé bezt fal-
in fólki, og verði ekki
troðið inn á það nema á
fölskum forsendum.
Þetta er sjálfsagt rétt
mat og á-rökum byggt,
en nöturlegt engu að
slður.
J
Fréttabréf frá Stykkishólmi
Stykkishólmi 17. maí.
EINS OG mörg undanfarin ár
veröur á vegum St. Fransisku-
systra í Sykkishólmi starfrækt
barnaheimili fyrir börn víðs-
vegar að af landinu. Verður
börnunum skipt í tvo hópa.
Fyrri hópurinn frá 16. júní til
16. júli og hinn siðari frá 16.
júli til 17. ágúst. Teknir verða
drengir frá 5—10 ára og telpur
frá 5—11 ára. Heimili þetta er
mjög vinsælt enda alltaf nægir
þátttakendur, er hægt er að
taka um 40 börn i hvorn hóp-
inn.
0 0 0
1 gær bættist nýr bátur i flota
Stykkishólms. En þá kom m.b.
Þórsnes II S.H. 109, nýr stálbát-
ur smíðaður í Slippstöðinni á
Akureyri, til Stykkishólms.
Fjöldi fólks fagnaði komu
skipsins og bátar frá Stykkis-
hólmi fóru til móts við Þórsnes-
ið út fyrir höfnina.
Þórsnes er eigandi sam-
nefnds hlutafélags, en það á
annan bát fyrir og rekur hér
fiskverkunarstöð.
Þórsnes II er 150 lestir að
stærð. Búið öllum nýjustu fiski-
leitartækjum, vandað í alla
staði. Vél 760 ha Mannheim og
gengur skipið 13 mílur. Skip-
stjóri verður Kristinn Ö. Jóns-
son og mun skipið brátt fara á
togveiðar.
0 0 0
Nú er unnið að því að full-
gera félagsheimilið í Stykkis-
hólmi en það hefir undanfarin
ár verið i smíðum. Hefir tekist
samkomulag um að kennsla
verði þar á hausti komanda, en
eins og er hefir barna- og gagn-
fræðaskólinn verið í miklu hús-
næðishraki. Hefir samkomulag
tekist við menntamálaráðu-
neytið um leigu á húsnæði fé-
lagsheimilisins til kennsluhús-
rýmis á næsta vetri og er stefnt
að því a byggingunni verði lok-
ið þannig fyrir haustið að
kennsla geti hafist þar á réttum
tíma. Þess skal getið að bygging
félagsheimilisins hefir einnig
haft það markmið að hægt verði
að reka þar hótel eftir því sem
efni og ástæður leyfa hverju
sinni.
0 0 0
Hafnarbryggjan í Stykkis-
hólmi er nú orðin mjög léleg,
sérstaklega hefir þetta komið
fram á seinustu tímum og orðið
að loka hluta hennar fyrir allri
bílaumferð. Hefir verið mark-
visst unnið að þvi að endur-
byggja haus bryggjunnar, enda
er höfnin og aðstaðan þar lífæð
Stykkishólms. Nú er verið að
hefjast handa um endurbygg-
inguna og standa vonir til að
byrjað verði þegar I þessum
mánuði. Verður þetta mikið
verk, enda vandað til þess á
allan hátt. Stefnt er að því að
fullkomin aðstaða skipa verði
fyrir hendi í höfninni fyrir
haustið. 0 0 0
Ilundahald er bannað í
Stykkishólmi. Er þetta tekið
skýrt fram i lögreglusamþykkt
sýslunnar.
Samt hefir hundum fjölgað
ótt og titt og fjölgar enn. Eru
þeir hingað og þangað að, sumir
keyptir dýru verði. Svo er nú
komið að sýslumannsembættið
hefur séð sig knúið til að aug-
lýsa rækilega bannið og þar
með að ef hundaeigendur fjar-
lægi ekki gripi sína verði gerð-
ar sérstakar ráðstafanir. Síðan
eru nokkrir dagar. Hér er fjöl-
menn og kröftug lögregla og er
beðið eftir að henni verði beitt
gegnhundunumog biðamenn
spenntir eftir að vita hvorir
verða ofan á.
0 0 0
Hestamennska færist mjög i
vöxt hér í Hólminum og margir
eiga nú gæðinga og oft mætir
maður ríðandi fólki á vökrum
hestum á förnum vegi. Góð
hesthús og vegleg hafa risið hér
upp fyrir ofan bæinn og er að
þeim mikil prýði. Er af eigend-
um vel hugsað um hestana enda
má það sjá á þeim. A sumardag-
inn fyrsta átti að verða sérstak-
ur hestamannadagur hér þar
sem menn kæmu saman með
hesta sina og reyndu þá. Flug-
völlurinn gamli hefir nú verið
notaður sem hlaupabraut.
Vegna veðurs gat ekki af þessu
orðið á sumardaginn fyrsta, en
síðar var þessi dagur hátíðlegur
haldinn og þótti gefast það vel
að ábyggilega verður þetta end-
urtekið árlega.
0 0 0
Hér á Snæfellsnesi eru nú 5
prestaköll, en 2 læknishéruð.
Samgöngur hafa mjög batnað á
seinustu árum og fjarlægðir því
minnkað. Nú hefir Staðarstað-
ur verið í eyði í vetur og hefði
það einhverntimann þótt saga
til næsta bæjar, enda talinn
með betri brauðum.
Ekki hefir starfsvettvangur
þótt þar mikill þegar þess er
gætt að þjónandi prestur þar
hefir haft kennslustörf á hendi
suður í Kjós í vetur. Fer ekki
hjá því að mönnum kemur til
hugar hvort þetta sé ekki orðið
óþarft prestakall og hvort ekki
væri hægt að sameina það Söð-
ulholtsprestakalli. I þeim báð-
um myndu þá verða færri
sóknarbörn en i Setbergs-
prestakalli í Eyrarsveit. Það er
mikið talað um að rikið sé illa
stætt og því þörf á sparnaði i
rekstri og það skal munað að
margt smátt gerir eitt stórt.
0 0 0
Vorið hefir verið mjög kalt
og frost ekki enn farið hér úr
jörðu. Gróðri fer lítið fram og
snjór er mikill í fjöllum. Þó
hefir seinustu daga brugðið til
batnaðar og haldi svo áfram
sem horfir má treysta því að
vorið sé virkilega komið i raun.
0 0 0
Um þessar mundir eru 40 ár
liðin frá því að systurnar f St.
Fransiskusreglunni hófu störf I
Stykkishólmi. Tók sjúkrahúsið
þá til starfaoghefirveriðstarf-
rækt siðan af miklum myndar-
brag og aukið sinn vettvang í
ýmsum greinum. Er þetta starf
systranna ómetanlegt fyrir
ibúa þessa staðar. Ein systirin,
systir Maria, hefir starfað hér
frá byrjun. Var hún fyrsta
hjúkrunarkonan og þótt hún sé
nú komin á áttræðisaldurinn,
heldur hún áfram að þjóna og
starfa. Er hugað til þess að af-
mælisins verði minnst á ein-
hvern hátt. Verður nánar skýrt
frá því síðar.
0 0 0
Vetrarvertíð er nú senn að
ljúka og sumir bátarnir hér
hafa tekið upp net sín. Aðir
ætla að halda áfram eitthvað út
mánuðinn. Skelfiskvinnsla er
engin nú sem stendur enda
skelin ekki góð til vinnslu.
Skelfiskvinnsla Stykkishólms
h.f. hefir sagt upp mannafla
sínum og verður nú athugað um
breyttan rekstur þegar vinnsla
getur hafist á ný. Rækjuvinnsl-
an er hér komin í gang og hefir
aflast sæmilega seinustu daga.
Fréttariiari.
Tapað
Síðastliðinn laugardag 7/6 1975 glataðist brún taska
með ýmsum veiðitækjum við sunnanvert Meðalfells-
vatn í Kjós. —
Skilvís finnandi vinsamlegast hringi í síma 36663.
FLESTAR STÆRÐIR
HJÓLBARÐA
Vörubila-
Fólksbíla-
Vinnuvéla-
Jeppa-
Traktorsdekk
---------------------\
Vörubiladekk á
Tollvörugeymsluverði
gegn staðgreiðslu
\_____________________>
ALHLIOA HJÓLBAROAÞJÓNUSTA
OPIÐ 8 til 7
HJÓLBARDAR HÖFOATÚNI 8 Simi 16740
Véladeild Sambandsins Simi 38900
FJÁRFESTING -
ENDURMAT
Á bak við hverja SELKÓ hurð er 25 ára reynsla
i smíði spónlagðra innihurða. Skipulögð fram-
leiðsla SELKÓ innihurða hófst hjá Sigurði Elías-
syni h. f. fyrir 15 árum. í ár fögnum við því tvö-
földum áfanga í hurðasmíði.
Einkunnarorð framleiðslunnar hafa ætíð verið
hin sömu: Vönduð smíði, góður frágangur og
fallegt útlit. Enda hafa SELKÓ hurðir fyllilega
staðizt erlenda samkeppni um árabil.
Þess vegna er það mjög algengt að þeir, sem
vilja endurnýja útlit eldra húsnæðis með t. d.
tvöföldu gleri, nýjum húsgögnum, og fallegum
teppum, fjárfesti einnig í nýjum SELKÖ inni-
hurðum.
SELKÓ innihurðir gefa heimilinu traustan og
áferðarfallegan svip, samræma heildarútlit hús-
næðisins við nýja búslóð, og hækka verðmæti
íbúðarinnar, þegar meta þarf til skipta eða end-
ursölu.
Þér tryggið útlit og verðmæti íbúðarinnar með
SELKÓ innihurðum.
SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI í FYRfRRÚMI
^ SIGURÐUR
#| ELlASSON HF.
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380