Morgunblaðið - 13.06.1975, Blaðsíða 8
8
Sextugur:
Bjarni Vil-
hjálmsson
þjóð-
skjalavörður
I yfir þrjátíu ár hefir Bjarni
Vilhjálmsson staðið á mismun-
andi vígvöllum islenzks þjóðlífs.
Eitt er víst, að I hvaðastarfi sem
hann er viðriðinn, sýnir hann frá-
bæran dugnað og réttvísi, er vek-
ur ótakmarkað traust og tiltrú hjá
öllum þeim, er umgangast hann.
Islenzkum fræðum og íslenzk-
um þjóðlegum fróðleik hefir hann
unnið að af dæmafárri einlægni
og af ótakmörkuðum áhuga.
Hann er manna háttprúðastur í
framgöngu, hefur heillandi segul-
magn. I kennaraembætti var
Bjarni enginn hversdagsmaður,
og vandfyllt er það sæti. Allir
hlustuðu, nemendum sínum veitti
hann bæði fjölbreytt og óvænt
umhugsunarefni. Nemendum sín-
um var Bjarni andlegur vinur og
félagi vegna góðgirni, vitsmuna
og fróðleiks. Fljótastur að skilja
fyrir hvaða efni nemendur hans
höfðu mestan áhuga. Bjarni saddi
forvitni nemenda sinna með
skýrri, öruggri og skipulegri
framsetningu.
Að Hátúni á Nesi í Norðfirði
stóð vagga Bjarna Vilhjálms-
sonar, þar fæddist hann 12. júní,
1915, og þar bjuggu foreldrar
hans, hjónin Vilhjálmur útvegs-
bóndi Stefánsson og s.k.h. Kristín
Arnadóttir. Bæði voru þau af
bezta bergi brotin á Austfjörðum.
Hátindur hamingjusólar Bjarna
var, er hann gekk að eiga konu
sína, Kristínu Eiríksdóttur, 3. júlí
1943. Kristfn er flestum mann-
kostum búin. Hún er hispurslaus
og grandvör í allri framkomu.
Heimili þeirra er viðbrugðið fyrir
ljúfmennsku og gestrisni. Og
margur hefir lifað ógleymanlegar
ánægjustundir í samvistum við
þau hjón á ’sérstaklega fallegu
heimili þeirra.
Nú á þessum merku tima-
mótum, þakka ég honum bless-
unarrík áhrif og við sendum inni-
legar árnaðaróskir.
Helgi Vigfússon.
Beðið var um að birta kveðju þessa í
blaðinu í gær. Mistök, sem blaðið harmar,
ollu því að svo varð ekki.
AUGLÝSIIMG ATEIK NISTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 sími 25810
Endurgreiðsla
tannlæknareikninga.
Með vísun til laga nr. 62 1974 og nánari
upplýsinga í fréttum fjölmiðla 1 0. og 11. þ.m.,
um framkvæmd tannlæknaþjónustu á vegum
sjúkrasamlaga, ervakin athygli á:
1. Að sjúkrasamlög og sveitarfélög greiða
að fullu tannlæknaþjónustu fyrir börn
6—15 ára frá 1. sept. s.l., enda sé hún
framkvæmd hjá skólatannlæknum, þar
sem sú þjónusta er fyrir hendi.
2. Að frá 1. jan s.l. greiða sjúkrasamlög
að hálfu tannlæknaþjónustu fyrir 16
ára unglinga, örorkulífeyrisþega, van-
færar konur og þá, sem eldri eru en 67
ára. Þetta tekur þó ekki til gullfyllinga,
krónu- éða brúargerðar.
Sjúkrasamlög eru byrjuð að endurgreiða reikn-
inga fyrir þessa þjónustu. Það skal þó tekið
fram, að sérfræðingar í tannréttingum hafa ekki
gerst aðilar að samningi um þessa þjónustu og
verða reikningar frá þeim því ekki endurgreidd-
ir.
TRYGGIIMGASTOFIMUIM
RÍKISINS
nc ■ i cr\T
Range Rover
Bifreiðin X-400 sem er árg. 1972 og ekin
40.000 km. er til sölu. Upplýsingar í síma
99-1 1 57 eftir kl. 1 9 í kvöld og næstu kvöld.
Kippteljarar
(impúlsteljarar)
Til sölu eru notaðir kippteljarar, allt að 9000
stk.
talningar svið 0000-9999
viðnám spólu 100 Ohm
vinnustraumur 100mA
mál 3 X3 X 10 cm (breiddx hæð X lengd)
Gera má ráð fyrir að 10—20% teljaranna séu
gallaðir, þ.e. standi á sér.
Tilboðum skal gera í ákveðinni teljarafjölda,
sem skal vera heilt margfeldi af 50.
Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Tilboð merkt K-9815 söndist blaðinu fyrir
20.6. 1975.
SÍMAR 21150 - 21370
Til sölu meðal annars
Parhús á tveim hæðum
Við Hlíðarveg Kópavogi 70x2 fm. — 6 herb. glæsileg
íbúð á tveim hæðum. í kjallara er föndurherb., geymsla
og þvottahús. Falleg lóð. Útsýni.
Við Skólagerði 70x2 fm. 5 herb. glæsileg íbúð á tveim
hæðum. Nýtt bað, nýtt eldhús.
2ja herb. íbúð
í kjallara svið Skipasund. Stór og góð. Sérhitaveita, sér
inngangur. Ræktuð og skipt lóð.
Ennfremur nýjar og glæsilegar íbúðir 2ja herb. við
Dalsel, Dúfnahóla og Vesturberg (sér þvottahús)
3ja herb. góðar rishæðir
Við Vallargerði Kópavogi um 80 fm. góðir kvistir Góð
sameign. Útsýni. Mjög hagstæðir greiðsluskilmálar
Við Drápuhlíð um 80 fm. rúmgóð og sólrík íbúð. Kvistir
á öllum herb. Gott bað.
Útborgun aðeins kr. 3,5 millj.
4ra herb. mjög góð íbúð við Álftamýri. Vönduð harð-
viðarinnrétting í kjallara um 96 fm. Sér inngangur.
Ræktuð lóð, malbikuð bílastæði.
Við Ásbraut í Kópavogi mjög góð 4ra herb. íbúð á 1.
hæð um 100 fm. Góð sameign.
w
Raðhús við Asgarð
Stofa og eldhús og forstofa á 1. hæð. 3 herb. og bað á 2.
hæð Þvottahús og miklar geymslur í kjallara. Laust strax
og góð kjör.
4ra herb. góðar sérhæðir
Við Hlégerði í Kópavogi og Ásenda í Reykjavík. Úrvals
innréttingar. Mjög hagstætt verð.
í Vesturborginni
2ja herb. góð íbúð óskast. Skiptamöguleiki á góðri 4ra
herb. íbúð á Högunum.
Þurfum að útvega
2ja herb. íbúð Rvík. — Hafnarfjarðar
3ja herb. ibúð í R.vík. Mikil útborgun.
3ja—4ra herb. íbúð með bílskúr
Góða sérhæð með bilskúr
Ný söluskrá heimsend.
AIMENNA
FASTEIGNASALAW
LAUGAVEGI49 SÍMAR 21150-21370