Morgunblaðið - 13.06.1975, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JUNI 1975
(talirnir gera klárt
iPORÐAKÖST
PEGILFLUÐ
eftir Ingva
Hrafn Jónsson
a o ia ann
voru
son, Ingi Örnólfsson, Árni
Þorvaldsson og Jóhann Sigurðs-
son, en auk þeirra voru þarna
sonur Höskulds. Höskuldur yngri,
og tveir italskir iSjuhöldar, sem
hafa veitt i Laxð i mörg ár.
Þegar búiS var að gera klárt
komu veiðimennirnir sér fyrir á
hinum fjölmörgu veiðistöðum ár-
innar og i glampa morgunsólarinn-
ar sást silfra i lax á svifi um alla á.
Við gátum þvi fyrirfram vitað að
veiði yrði góð, en það kom ekkert
á óvart, þvi að Laxá i Kjós hefur
um áratugaskeið verið ein gjöful-
asta áin á landinu og þeir sem
hana þekkja segja að hún bregðist
aldrei. Eigendur hennar hafa lika
alltaf séð um að halda henni i
góðri ræktun og miklum seiða-
fjölda sleppt i hana á ári hverju. Á
undanförnum árum hefur sérstak-
lega verið vandað til stofnanna,
sem í hana hafa verið látnir og
hefur það borið góðan árangur,
þvi laxinn er vænn og algengasta
stærðin i kringum 10 pund.
Og það var eins og við manninn
mælt, nokkrum mínútum eftir að
byrjað var voru stangirnar þeirra
Árna og Inga orðnar kengbognar
og slagurinn hafinn. Nýgenginn lax
getur verið óhemju sterkur og erf-
iður viðfangs og menn þurfa að
sýna mikla aðgát, sérstaklega i
upphafi vertíðar, þegar menn eru
ekki búnir að fá tilfinninguna fyrir
fiskinum i sig. Ýmsum hættir þá
við að taka of sterkt á með miður
skemmtilegum afleiðingum. En
þeir Ingi og Ámi höfðu þetta
greinilega í huga og tóku sér góð-
an tlma i að þreyta fiskinn. Árni
varð aðeins fyrri til að landa, en
Ingi stuttu síðar. Árni var handan
árinnar, en ekki erum við alveg
grunlausir um að hann hafi verið
svolitið skjálfhentur, þegar hann
kveikti sér i vindlingi eftir að hafa
rotað fiskinn. Skömmu seinna sá
til Höskuldar, þar sem hann land-
aði fallegum fiski úr Kvlslarfossi.
Nú sáum við greinilega að það var
alit morandi af laxi i ánni og áður
en varði voru 10 laxar komnir á
land allt stórir og fallegir fiskar,
en nokkrir höfðu lika sloppið með
skrekkinn og gátu þakkað lif sitt
að menn voru aðeins of veiðibráð-
ir. En kannski er það líka taktík
hjá laxinum að þykjast vera orðinn
þreyttur og svo þegar menn ætla
að fara að landa. þá sýnir hann i
sér tennurnar og fer með sigur af
hólmi. Sjálfsagt er erfitt að sanna
þessa kenningu, en hver ætlar að
afsanna hana?
Þeir feðgar, Höskuldarnir, voru
nú komnir upp á breiðu eftir
að hafa þrautreynt Kvislarfossk
og þar sem sonurinn hafði
ekki bússur, og er það að auki
bara 11 ára, gerðu þeir feðgar
samning um að pabbinn væði
út i ána og setti í fiskinn
og kæmi siðan með stöng-
ina að landi og afhenti hana synin-
um, sem myndi sjá um hitt. Og
það var gaman að sjá eftirvænt-
inguna i svipnum á stráksa, þar
sem hann sat á bakkanum og
Þeir voru ekkert úrillir félagarn-
ir, sem við hittum uppi við Laxá í
Kjós á þriðjudagsmorgun. þótt
klukkan væri ekki nema 7. liklega
væri bezta lýsingin að segja að
þeir hefðu verið eins og kálfar,
sem verið er að hleypa úr fjósi i
fyrsta sinn að vori, enda búnir að
biða 9 mánuði, heilan meðgöngu-
tíma, eftir að laxveiðivertiðin byrj-
aði. Sama má nú segja um blaða
manninn, sem þeir Páll Pálsson og
félagar leyfðu góðfúslega að slást
i förina, og ekki laust við að hann
væri svolitið skjálfhentur er film-
an var sett i myndavélina og þess
beðið að fyrsti laxinn tæki. Félag-
arnir, sem opnuðu ára þennan
fyrsta morgun hafa haldið hópinn
nokkuð lengi. en þeir eru Páll
Pálsson, Jón H. Jónsson, Hall-
grimur Dalberg, Höskuldur Ólafs-
Fylgzt með veiði-
mönnum á opnunar-
daginn í Laxá í Kjós
fossinn, rétt fyrir eitt er hópurinn
var að fara i mat og þegar ég
var að draga inn i siðasta
sinn var hann á. Það er erfitt
að lýsa þeirri tilfinningu sem
um mann fer þegar maður
finnur titringinn á linunni og
höggin snöggu. sem aðeins
geta táknað að lax sé á færi. Ekki
varð það til að róa taugarnar að ég
var orðinn einn eftir og laxinn var
12—14 punda, feiknalega sterk-
ur, en leyndi þó á sér (ef einhver
heldur að það hafi verið út i blá-
inn, þegar ég var að tala um taktík
laxins, þá er það misskilningur).
Þegar leikurinn var búinn að
standa f um 15 mínútur og ég
búinn að koma mér á land og siga
nokkuð niður með ánni, fannst
né laxinn vera farinn að þreytast
það að ég gæti farið að taka hann
að landi og jók því átakið á stöng-
inni. Allt f einu var hann kominn
upp að bakkanum og ég seildist í
sporðinn á honum. Ég ætla ekki
að hafa söguna lengri, en engan
lax borðaði ég um kvöldið. og
einhvers staðar f Laxá f Kjós er
12—14 punda hængur með öngul
í kjaftinum og blaðamaður f bæn-
um með öngul í rassinum. Félög-
unum þakka ég mikla ánægju-
stund á fögrum sumarmorgni.
Hallgrímur Dalberg með fallegan 14
punda fisk.
Það er eins gott að vanda sig við að
rota'fiskinn, þegar hann er kominn á
land.
sleppti ekki augunum af pabba
sfnum. Hann var ekki nema fimm
ára þegar hann dró sinn fyrsta lax,
er þeir feðgar voru I heimsókn hjá
vinafólki ! sumarbústað við Langá.
Var Höskuldi fengin stöng f hend-
ur og hann settur á stein við
Stangarhyl og áður en menn vissu
var hann kominn með stærðarlax
á,sem hann náði eftir nokkur átök.
Og svo rennur stundin upp, stöng-
in hjá pabba er orðin kengbogin
og hann farinn að fikra sig hægt
og sfgandi að landi, þar sem út-
réttar hendur gripu stöngina og
það var ekki annað að sjá, en þar
væri þaulvanur veiðimaður á ferð-
inni, og mikil var gleðin og stoltið
er pabbinn tók þéttingsfast um
sporðinn á laxinum og gekk með
hann á land.
Undir hádegið voru komnir 19
laxar á land og létt yfir hópnum og
undirritaður þáði boð Páls um að
renna. Eftir að hafa reynt á ýms-
um stöðum endaði ég uppi við
Höskuldur yngri þreytir laxinn
og fær góð ráð hjá föður sínum,
Höskuldi Ólafssyni, sem landar
laxinum örugglega. Og svo sjá-
um við stoltan 1 1 ára veiðimann
með 1 1 punda hrygnu.
Ingi Örnólfsson með fyrsta fiskinn
Jón H Jónsson með 14 og 17
punda fiska Laxinn f Laxá í Kjós er
mjög vænn og aðeins fékkst þennan
morgun 1 fiskur undir 10 pundum