Morgunblaðið - 13.06.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNt 1975
17
Norður leið-
beinir suðri
Tokyo 12. júní — AP
EMBÆTTISMAÐUR stjórnar
Norður-VIetnams sagði, að Hanoi-
stjórnin „leiðbeindi" Suður-
Víetnam og að herir landanna
hefðu verið sameinaðir.
Vy Quoc Uy, formaður utan-
rfkismenningarnefndarinnar I N-
Vietnam, sagði I viðtali við jap-
anska blaðið Ashai Shimbun á
miðvikudag, að bráðabirgðabylt-
ingarstjórnin í Saigon færi með
dagleg málefni S-Vietnam, þar til
löndin yrðu sameinuð. Þeim var
skipt árið 1954.
Hann sagði að sameiningin gæti
orðið þegar lifnaðarhættir Suður-
Vietnama hefðu verið samræmdir
lifnaðarháttum landa þeirra I
norðri.
Fínnska stjórn-
in fer frá í dag
Helsingfors 12. júní — NTB
RlKISSTJÖRN Kalevi Sorsa fer
frá völdum á morgun, föstudag,
og við tekur að öllum líkindum
embættismannastjórn með
nokkurri þátttöku stjórnmála-
manna þó. Sorsa afhenti Urho
Kekkonen forseta lausnarbeiðn-
ina á miðvikudagskvöld, og for-
setinn samþykkti hana í grund-
vallaratriðum. Forsætisráðherr-
Republica
á að koma út
á mánudaginn
Lissabon 12. júní
AP — Reuter.
REPUBLICA, málgagn portú-
galska Jafnaðarmannaflokksins,
mun skilyrðislaust hefja útkomu
á ný á mánudag, að þvi er Copcon,
öryggissveitir ríkisihs, skýrðu frá
í kvöld, en skrifstofur Republica
hafa verið innsiglaðar í þrjár
vikur vegna deilna kommúnískra
prentara og ritstjórnarinnar.
Upphaflega átti að taka innsiglin
af skrifstofum blaðsins í dag og
það síðan hefja útkomu á morgun,
föstudag, en talsmaður ritstjórn-
arinnar sagði i dag, að Copcon
hefði tilkynnt henni að blaðið
gæti ekki hafið starfsemi að nýju
þar eð Copcon gæti ekki ábyrgzt
öryggi ritstjórnarinnar. Bar Cop-
con við mannaflaskorti, en siðar
var sagt, að nauðsynlegur mann-
afli yrði til öryggisgæzlu á mánu-
dag. Ekki virðist þó enn ljóst
hvort deilur prentara og ritstjórn-
ar séu leystar og útgáfan geti haf-
izt með eðlilegum hætti.
ann sagði, að starfið á þinginu
gæti ekki lengur grundvallazt á
samvinnu stjórnarflokkanna. Á
miðvikudag gátu stjórnar-
flokkarnir fjórir ckki einu sinni
komið sér saman um þau Iaga-
frumvörp sem Ieggja skal áherzlu
á I þinginu áður en það verður
leyst upp. Þetta ósamkomulag er
fyrst og fremst milli tveggja
stærstu stjórnarflokkanna, Jafn-
aðarmannaflokksins og Mið-
flokksins, einkum er varðar efna-
hagsstefnuna.
Boðað er til nýrra þingkosninga
21. og 22. september. Föstudagur-
inn verður sennilega síðasti
starfsdagur þingsins, en ákvörð-
un um það verður ekki tekin fyrr
en samdægurs. Stjórn Sorsa
hefur setið í 1012 daga, eða
lengur en nokkur önnur stjórn í
Finnlandi frá stríðslokum.
ALÞÝÐUDÖMSTÓLL DÆMIR TIL DAUÐA — Þessi mynd sýnir Alþýðudómstól i Saigon hinna nýju
kommúnísku valdhafa dæma Nguyen Tu Sang til dauða fyrir að hafa varpað handsprengjum að
varðmönnum byltingarstjórnarinnar. Sang, sem er handjárnaður á myndinni, var tekinn af lífi stuttu
eftir að mynd þessi var tekin, 29. maí s.l.
EBE hjálpar Portúgal
Lissabon, Brússel
12. júní — AP. Reuter.
FASTANEFND Efnahagsbanda-
lags Evrópu bauðst í dag til að
leggja fram háa f járupphæð til að
hjálpa Portúgölum í efnahags-
örðuglcikum þeirra. Henry
Simonet, sem á sæti I nefndinni,
skýrði frá því á blaðamanna-
fundi, að ráðherranefnd EBE,
sem f fyrra mánuði var falið að
Grikkir senda
EBE umsókn
BrUssel 12. júní—AP
GRIKKLAND sótti á fimmtudag um fulla aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu. Sendiherra Grikkja hjá Efnahagsbandalaginu, Jason
Stathatos afhenti sendiherra íra hjá EBE, Brandan Dillon, umsóknar-
bréf frá Konstantine Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands. Grikk-
land hefur átt aukaaðild að bandalaginu síðan 1962 og sækist nú eftir
að verða 10. ríkið með fullri aðild. Jason Stathatos batt óskir Grikkja
um inngöngu ekki við neinn ákveðinn tíma, en talið er að Aþenustjórn-
in vilji að hún verði ekki seinna en 1978 eða 79. Griska stjórnin hefur
átt i samningaviðræðum við Efnahagsbandalagið en þeim viðræðum er
enn ekki lokið. Álitið er að EBE-ríkin séU jákvæð gagnvart umsókn
Grikkja, en hikandi vegna deilna Grikkja og Tyrkja, ea þeir siðar-
nefndu eru aukaaðilar og vilja fara sér hægar I sókn sinni að fullri
aðild.
gera áætlun um skjóta cfnahags-
aðstoð, hefði komizt að samkomu-
lagi um fyrirkomulag aðstoðar-
innar.
Simonet vildi ekki segja neitt
um hve mikið fé yrði veitt Portú-
gölum en heimildir segja það vera
i kringum 50 milljónir sterlings-
punda næstu fimm ár.
Að auki leggur fastanefndin til
að fríverzlunarsamningarnir við
Portúgal frá 1973 verði rýmkaðir
til að auðvelda útflutning frá
Portúgal til Efnahagsbandalags-
ins.
GEGN NÝLENDUSTEFNU
Portúgal lýsti í dag þeim ásetn-
ingi sínum að berjast gegn apart-
heid og gera and-nýlendustefnu
að hornsteini utanríkisstefnu
sinnar.
Það var forsætisráðherra lands-
ins, Vasco Goncalves, sem sagði
þetta í ræðu við opnun 24 þjóða
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
um nýlendustefnu, og sem nú
kemur i fyrsta sinn saman í
Evrópu.
Goncalves, herforingi, sagði að
sú ákvörðun ráðstefnunnar að
koma saman i Lissabon væri tákn
þess, að núverandi stjórn landsins
hefði tekizt að vinna Portúgal
sess meðal virtari landa með því
að snúa baki við nýlendustefnu
gömlu stjórnarinnar.
U.þ.b. 300 þúsund nianns, meira
en helmingur allra hvítra ibúa
Angóla, hafa óskað eftir að fá að
flytjast úr landi áður en landið
verður sjálfstætt í haust, sagði
talsmaður Portúgalsstjórnar á
fimmtudag. Sagði hann að stjörn-
in vonaði að sem flestir drægju
umsóknir sínar til baka eftir að
meiri ró kæmist á í Angóla, því
miklir brottflutningar hvitra
manna hefðu í för með sér mjög
alvarlegar afleiðingar fyrir efna-
hag beggja landa.
Þrátt fyrir þetta mun brott-
flutningi hvítra manna frá
Angóla til Portúgal verða haldið
áfram en til þessa hafa 500 manns
verið fluttir á hverjum degi.
Ætlunin er að halda á næstunni
fund Portúgalsstjórnar með
þremur frelsishreyfingum í
Angóla, en mjög róstusamt hefur
verið í landinu vegna bardaga
milli hreyfinganna þriggja. Alitið
er að um 1000 manns hafi látið
lífið í bardögunum.
I STUTTU MÁLI
INDIRA GANDHI: Leiðast
stjómmál — en lét til leiðast
Indira Gandhi
— lækkandi sól?
Nýju Delhi — AP
INDIRA Nehru Gandhi
kynntist stjórnmálum i gegn-
um föður sinn Jawaharlal
Nehru, fremsta stjórnmála-
manns Indlands og fyrsta for-
sætisráðherra.
„Mér leiðast stjórnmál og
mér likar ekki að vera f sviðs-
ljósinu," sagði hún eitt sinn.
Sem barn var hún oft ein-
mana, þvf báðir foreldrar henn-
ar voru önnum kafnir i sjálf-
stæðisbaráttu Indlands og sátu
margsinnis f fangelsum Breta.
Indira tók á námsárum sin-
um I Indlandi, Sviss og
Englandi mikinn þátt f sjálf-
stæðisbaráttunni. 1938 var hún
dæmd f 13 mánaða fangelsi fyr-
ir afskipti af stjórnmálum.
Árið 1942 giftist hún
verzlunarmanni, Feroze
Gandhi, og hveitibrauðsdögum
þeirra lauk saögglega þegar
þau voru bæði'fangelsuð fyrir
stjórnmálastarfsemi. Þau áttu
tvo syni, en maður Indiru dó
árið 1960.
Árið 1959 var Indira kosinn
formaður Kongressflokks föður
sfns. Hún gegndi því starfi
fremur af skyldu en löngun og
baðst undan endurkosningu ár<
sfðar.
Lal Bahadur Shastri bauðst
til að styðja Indiru sem
forsætisráðherra eftir lát föður
hennar 1964, en hún færðist
undan. Shastri varð þvf annar
forsætisráðherra landsins, en
frú Gandhi átti sæti f stjórn
hans.
Eftir lát Shastri 1966, vildu
leiðtogar Kongressflokksins fá
Indiru, sem þá var 48 ára, sem
forsætisráðherra, þar eð þeir
töldu hana leiðitama. Það kom
þó fljótt í Ijós að hún var sjálf-
stæðari og harðari í horn að
taka en þeir.
Sem einlægur sósfalisti átti
hún í baráttu við ihaldsama
Iciðtoga flokksins, og upp úr
sauð 1969 þegar hún studdi
Giri, sem var óháður, í forseta-
kosningunum gegn frambjóð-
anda flokkslciðtoganna. Giri
sigraði f kosningunum.
Flokksleiðtogarnir reyndu þá
að fá hana rekna úr sæti forsæt-
isráðherra, en þingið lýsti
trausti sfnu á lndiru með 75%
atkvæða og hún stofnaði nýjan
Kongressflokk.
Hún festi sig enn f sessi með
yfirgnæfandi kosningasigri
1971 og sigri f strfðinu við
Framhald á bls. 20
FORINGI FUNDINN
Angers 11. júní — Reuter
BEATE Klarsfeld, sem leitað hef-
ur uppi gamla nazistaforingja,
segist hafa fundið Hans Dietrich
Ernst, sem var Gestapoforingi í
Frakklandi, og bar ábyrgð á
'dauða fjölda manna úr and-
spyrnuhreyfingunni. Ernst starf-
ar sem lögfræðingur í Vystur-
Þýzkalandi.
SAS FLÝGUR Á NÝ
Kaupmannahöfn 12. júnf —
NTB.
FLUG SAS til og frá Kastrup-
flugvelli við Kaupmannahöfn
hófst samkvæmt áætlun á
fimmtudag, eftir að hafa stöðvazt
í 18 klst. vegna verkfalla. Sfðustu
10 daga hefur flug SAS frá og til
Kastrup verið stopult vegna verk-
fallsaðgerða ýmissa starfshðpa.
RÆNDUM LÍÐUR VEL
Nairobi 12. júní — AP
BANDARtSKUR prófessor sagði
á fimmtudag, að 2 bandarfskir
stúdcntar og 1 hollenzkur, sem
rænt vai' fyrir 3 vikum af skæru-
liðum og fluttir voru inn í frum-
skóga Zaire, væru á lífi og við
góða heflsu. Meira sagðist hann
ekki geta sagt, þar sem annars
gæti hann eyðilagt tilraunir, sem
gerðai' hafa verið til að fá
stúdcntana lausa. -