Morgunblaðið - 13.06.1975, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNI 1975
List til lækninga:
Ráðstefnu og
sýningu að ljúka
GÓÐ aðsókn hefur verið að
sýringunni List tii lækninga 1
kjallara Norræna hússins. 1 kvöld
vcrða þar sérstakir kynningarfyr-
irlestrar. Thomas Bcrgmann,
ljósmyndari frá Svlþjóð, talar um
börn á sjúkrahúsum og aðstöðu
fjölfatlaðra barna, og kynnir
sýningar sínar. Þá talar Rafael
Wardi frá Finnlandi um list til
lækninga á geðsjúkrahúsum og
sýnir myndir.
Síðasti fyrirlesturinn verður á
morgun, laugardag, kl. 14.00 Þá
talar Lise Giödesen, iðjuþjálfi frá
Danmörku, um „Börn á sjúkra-
húsum". Hún sýnir einnig kvik-
myndir um þetta efni, sem vakið
hafa athygli og fengið góða dóma.
Fyrirlestur hennar verður í sam-
komusal Norræna hússins.
Sýningin í kjallara Norræna
hússins verður opin frá kl. 14—22
í dag, og frá kl. 14—19 á morgun.
Ekki verður hægt að hafa sýning-
una opna lengur, þar sem erlendu
gestirnir halda utan með sýning-
armunina á sunnudagsmorgun.
— Orðan
Framhald af bls. 36
henti onctndum islenzkum
aðila f sambandi við opinbcra
heimsókn sína hingað. Fékkst
kaupandi að orðunni sam-
dægurs og var kaupverðið 20
þúsund krónur.
Morgunblaðið ræddi f gær
við Guðmund Axelsson kaup-
mann í Klausturhólum. Hann
sagði, að þessi Islendingur sem
ekki væri hægt að nefna, hefði
haft samband við sig á mið-
vikudagskvöld og boðið orðuna
til sölu. Keypti Guðmundur
orðuna og hafði síðan samband
við mann sem var á „orðubið-
Iista“ hjá honum, en nokkuð
margir menn eru á biðlista
eftir orðum sem kunna að
koma á markaðinn, aðallega ís-
lenzkum fálkaorðum og stór-
krossum. Var sá ólmur í að fá
orðuna og var umsamið kaup-
verð 20 þúsund krónur.
„Miðað við þetta verð hef ég
liklega verðlagt íslenzku orð-
urnar heldur lágt, en þar hef
ég selt á 25 þúsund krónur,"
sagði Guðmundur Axelsson.
— Óbreytt
Framhald af bls. 36
Morgunblaðinu, að full niður-
greiðsla á öllum þáttum búvöru-
verðs hækkunarinnar kostaði
rlkið um 125 milljónir króna
á mánuði eða í kringum 875
milljónir króna. Hins vegar
hefði verið um það rætt,
að niðurgreiðslurnar nú næðu
fyrst og fremst til nýmjólk-
ur, smjörs og kindakjöts, sem
væru auðvitað lang veiga-
mestu neyzluvörur almennings en
næðu ekki t.d. til rjóma, osts og
kartaflna. sem minna máli skiptu.
— Samningarnir
F'ramhald af bls. 36
metur_ verkalýðsforystan pað að
minnsta kosti sem 3%. Með þvl
hefur ríkisstjórnin orðið við
meginóskum ASI.
Eins og að framan greinir þýðir
fyrri kauphækkun samninganna
11,6% kauphækkun miðað við 6.
taxta Dagsbrúnar og með kaup-
hækkuninni 1. október er kaup-
hækkunin á samningstímanum
15,9%. Þessir samningar munu
vera hinir hæstu í krónutölu, sem
gerðir hafa verið.
Verkalýðsfélög munu almennt
boða til félagsfunda árdegis í dag,
til að fjalla um samningana og ef
þau samþykkja þá mun verk-
föllunum sem komu til fram-
kvæmda á miðnætti s.I. verða
aflýst. Mbl. er kunnugt um að t.d.
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavik hafi þegar í gærkveldi
boðað til félagsfundar í Alþýðu-
hússkjallaranum við Hverfisgötu.
Fundurinn hefst klukkan 10.30.
Þá heldur verkamannafélagið
Dagsbrún fund I dag klukkan 10
.f.h. í Austurbæjarbíói.
I gærkvöldi fréttist, að einhver
félög hefðu frestað verkfallinu
um einn sólarhring og boðað til
félagsfunda I kvöld. Höfðu ein-
hver verkalýðsfélög á Suðurnesj-
um gefið út tilkynningu um slíkt,
þar á meðal Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavlkur. Verður
millilandaflug þvf með eðlilegum
hætti í dag.
Verkalýðsfélagið Eining á
Akureyri frestaði i gærkvöldi
boðaðri vinnustöðvun fram yfir
félagsfund, sem halda skal á
Akureyri á morgun, laugardag —
um samnintrana.
FLUGMENN og forráðamenn
Flugleiða sátu á fundi fram til kl.
5 I gærmorgun, og hefur annar
fundur vcrið boðaður hjá sátta-
scmjara I dag kl. 2.
Þá verður fundur I togara-
deilunni I dag kl. 4 eða 6.
— Afrýjanir
Framhald af bls. 1
Mohan Lal Sinha, dómara f
heimaborg hennar, Allahabad.
Akæruatriðin snerust um lög-
brot við þingkosningarnar árið
1971 en þá vann hún yfirburða
sigur. I heimafylki sínu sigraði
hún sósíalistaleiðtogann Raj
Naraian með 183.000 atkvæðum
gegn 71.000-Naraian bar brigður á
lögmæti sigursins og sagði, að hún
hefði misnotað embættismenn
stjórnarinnar I þágu baráttu sinn-
ar, varið meira fé til hennar en
hinum leyfilegu 35.000 rúpium og
notað trúmál tii að krækja í
atkvæði hindúa sem þarna eru í
meirihluta. Þessar ásakanir
Naraian urðu kveikja fjögurra
ára langra málaferla, sem
hámarki náðu er frú Gandhi bar
vitni síðust 97 vitna í marz s.l. Þar
lýsti hún sig saklausa af öllum
ákæruatriðum.
Dómurinn lýsir frúGandhi seka
um að hafa notað opinbera em-
bættismenn til að tryggja sigur i
kosningunum, og þ.á m. eru nafn-
greindir lögreglustjórinn og æðsti
stjórnmálaleiðtogi Utter Prades-
hylkis. Hins vegar var hún lýst
saklaus af ýmsum öðrum ákæru-
atriðum m.a. um notkun trúar-
tákna og of mikils fjármagns i
kosningabaráttunni.
Dómsúrskurðurinn var ekki
birtur í dag í heild og ekki var
vitað um önnur ákæruatriði. Hins
vegar nægir hvert sakarefni fyrir
áðurnefndu banni. Frú Gandhi
þarf einnig að greiða málskostn-
að.
Meðal þeirra sem fögnuðu úr-
skurði dómarans var Raj Naraian
og sagði hann að dómurinn hefði
viðhaldið háum kröfum indversks
réttarfars. Leiðtogi nýstofnaðs
hægri flokks, Piloo Moody, sagði,
að ákvörðun frú Gandhi um að
segja ^kki af sér staðfesti þá skoð-
un sína, að hún léti ekki af völd-
um á kyrrlátan hátt. Leiðtogi
kommúnistaflokksins, sem stutt
hefur Kongressflokkinn, flokk
forsætisráðherrans, sagöi hins
vegar, að úrskurðurinn „gleddi
hjörtu heimsvaldasinna og aftur-
haldssinna".
Staða forsætisráðherrans virtist
ekki sízt veik fyrir þá sök að
flokkur hennar virðist ætla að
gjalda mikið afhroð í kosningum I
fylkinu Gujarat. Er 100 af 181
sæti höfðu verið talin hafði
flokkur hennar fengið 28 en
fimmflokka kosningabandalag 65.
— Færeyjar
Framhald af bls. 1
en innganginum að skrifstofun-
um var lokað, afhentu fiskimenn-
irnir lögreglunni bréf þar sem
þeir sögðust hafa fulla stjórn á
hlutunum og þess var óskað að
lögreglan skipti sér ekki af þeim.
Yrði það gert, gæti það haft alvar-
legar afleiðingar. Lögreglan
svaraði bréfinu á þann veg, að
hún teldi aðgerðir fiskimannanna
ólöglegar. Eftir að þessi bréfa-
skipti höfðu verið rakin í fær-
eyska útvarpinu róuðust menn
heldur og sama kvöld hófust við-
ræður milli landsstjórnarinnar og
fiskimannanna sem I dag leiddu
til samkomulagáBátar eru byrjað-
ir veiðar og fiskvinnslustöðvar
hafa þegar hafið vinnslu afla.
Hins vegar er enn óljóst hvort
aðgerðir fiskimannanna munu
leiða til málssóknar gegn þeirn.
Það mál mun lögreglustjórinn i
Þórshöfn nú hafatil athugunar.
Samkomulagið milli deiluaðil-
anna er I því fólgið, að lands-
stjórnin mun leggja fram frum-
varp á Lögþinginu sem kemur
saman eftir hálfan mánuð, þar
sem tilskilin er aukagreiðsla fyrir
ákveðnar fisktegundir á tímabil-
inu 15. júní til 30. september. Þá
gaf landsstjórnin einnig vilyrði
fyrir því, að slík aukagreiðsla
kæmi á aðrar tegundir ef hlutföll
verðs á einstökum tegundum
breytast við næstu verðákvörðun
á fiski.
— CIA
Framhald af bls. 1
og varð að aflýsa yfirheyrslunni
um óákveðinn tlma þar eð reglur
kveða á um, að a.m.k. einn þing-
maður minnihlutans verði að
vera viðstaddur. Formaður undir-
nefndarinnar, demókratinn
James Stanton, segir I dag I blaða-
viðtali, að CIA hafi a.m.k. skipu-
lagt „velheppnað" morð á einum
erlendum þjóðarleiðtoga.
Stanton, sem Carl Albert forseti
fulltrúadeildarinnar sagði í kvöld
að kæmi til greina sem arftaki
Nedzis I formennsku rannsóknar-
nefndarinnar, segir þetta I viðtali
við blaðið Cleveland Plain Dealer.
I kvöld voru þessi ummæli borin
undir hann á ný, og hann staðfesti
að þau væru rétt eftir höfð en
neitaði hins vegar að skýra málið
frekar. Hann tilgreinir ekki
fórnarlamb leyniþjónustunnar í
viðtalinu, en blaðið segir að CIA
hafi staðið fyrir morðinu á annað-
hvort Patrice Lumumba, leiðtoga
Kóngómanna, Rafael Trujillo,
einræðisherra I Dóminikanska
lýðveldinu, eða chileanska herfor-
ingjanum Rene Schneider.
Þessi ummæli Stantons virtust
ganga skrefi lengra en ummæli
þingnefnarmanna rannsóknar-
nefndar hinnar deildar þingsins,
öldungadeildarinnar, ámorðfyrir-
ætlunum leyniþjónustunnar, en
formaður þeirra nefndur, Frank
Church, öldungadeildarþingmað-
ur, hefur ítrekað sagzt hafa undir
höndum ótvfræðar sannanir um
aðild CIA að morðtilræðum, en
hins vegar ekki viljað fara nánar
út í málið. Richard Schweiker,
repúblíkani, sem sæti á i nefnd
Church, sagði í sjónvarpi í gær-
kvöldi, að nefndarmenn hefðu
fengið „yfirþyrmandi, dapurlegar
og hryllilegar sannanir" um aðild
CIA að morðfyrirætlunum, bæði
beinar og óbeinar.
— Wilson
Framhald af bls. 1
bandið brezka mun leggja fyrir
félög sín.
Efnahagsútlitið varð enn
dekkra í dag vegna yfirvofandi
verkfalls 170.000 járnbrautar-
starfsmanna landsins eftir 11
daga, en það var ákveðið í dag er
stjórn félags þeirra hafnaði mála-
miðlunartilboði um 27,5% kaup-
hækkun. Krafa félagsins er hins
vegar 30%. I þinginu réðst
Margaret Thatcher, leiðtogi
Ihaldsflokksins, á „aðgerðaleysi"
Wilsons, og sagði að hann gæti
auðveldlega talað sig út úr vand-
ræðum á þinginu, en ekki út úr
efnahagsvandræðum. Wilson vís-
aði til ræðu Healys, og spurði
Thatcher hvort hún hefði ein-
hverjar úrbætur fram að færa, en
flokkur hennar hefur klofnað ný-
lega vegna mótunar efnahags-
stefnu.
Innanflokksmálin eru ekki
minna vandamál fyrir Wilson.
Vinstri armur Verkamanna-
flokksins er enn æíareiður yfir
uppstokkun Wilsons-á ríkisstjórn-
inni, sem m.a. færði Tony Benn,
helzta foringja vinstri manna, úr
valdamiklu embætti iðnaðarráð-
herra í orkumálaráðuneytið. Ött-
ast vihstri menn að þessi breyting
þýði að ríkisstjórnin kunni að láta
undan þrýstingi frá stórfyrirtækj-
unum og draga I land helztu þjóð-
nýtingarákvæði iðnaðarfrum-
varpsins sem nú liggur fyrir þing-
inu. I gærkvöldi skrifuðu t.d. 30
af 80 vinstri sinnuðum þingmönn-
Um f svonefndum Tribunehópi
innan þingflokks Verkamanna-
flokksins Wilson bréf þar sem
þeir segjast ætla að berjast hat-
rammlega gegn öllum slíkum til-
slökunum. Og í dag gengu vinstri
menn út af fundi þingnéfndar
sem ræðir frumvarp þetta.
— Vinsamleg
Framhald af bls. 5
Vestmannaeyjum. Samkvæmt
upplýsingum formanns Viðlaga-
sjóðs i umræddri grein minni
bendir einmitt fátt til þess sam-
kvæmt væntanlegu lokauppgjöri
og áætlun Viðlagasjóðs. Það er
ekki nóg að hugsa dæmið, það
verður að eiga sér stoð i veru-
leikanum. Verkfræðingurinn
efast um það að við Vestmann-
eyingar berum gæfu til að byggja
yfir okkur, „ný, fín hús eins snar-
lega og vel skipulega" og Viðlaga-
sjóðshúsin. Verkfræðingurinn
þarf ekki að bera neinn kvíðboga
fyrir Vestmanneyingum. Þeir
hafa -ávallt staðið fyllilega fyrir
sínu þótt þeir hafi ekki haft
áhuga á að krækja sér í eins
stóran og óeðlilegan hluta af fjár-
málakökunni og sumir. Enginn
efast um hlut Vestmanneyinga til
þjóðarbúsins og því eru þessar
dylgjur skammarlegar. Það er
engin spurning um þakklæti Vest-
manneyinga til þorra landsmanna
fyrir vinarhug í erfiðri stöðu, en
það er spurning um það hvort það
sé eðlilegt að meirihluti alls fjár-
magns Viðlagasjóðs skuli hafa
farið í hendur milliliðanna, en
minnihlutinn í hendur tjón-
þolanna, Vestmanneyinga, eins og
ég hef sýnt fram á í greinum
mínum.
Benedikt lýkur máli sínu á því
að óska mér til hamingju, ef Vest-
manneyingum reynist unnt að
hafa undirbúnings-, tækni- og eft-
irlitskostnað við nýbyggingar í
Eyjum ekki hærri en við grunn-
byggingar Viðlagasjóðshúsanna.
Það er verkfræðingur sem skrifar
og honum dettur samt i hug að
miða við sömu tölu og var fyrir
tveimur árum. Hvaða vit er í þvf?
Ég sé það á grunnfærnislegri
grein Benedikts að hann ætlar sér
ekki að verja það óeðlilega. Til
þess veður hann of mikinn reyk,
en ég vil benda honum vinsam-
legast á að kynna sér betur stað-
reyndir málsins áður en hann
„áminnir" mig aftur í þessu máli.
Ég held að ég sé ekki maður nr. I
sem hef þörf fyrir áminningu í
þessu máli — og ef til vill dygði
ekki áminning sumum. Benedikt
hefur grein sína á því að segja að
sér hafi verið „bent“ á grein mína
í Morgunblaðinu. — Hver skyldi
hafa benthonum?
— Almenna
bókafélagið
Framhald af bls. 3
þjóðin á yfir höfði sér menningar-
lega upplausn.
Á aðalfundinum lagði félags-
stjórnin fram tillögu að nýjum
lögum fyrir Almenna bókafélag-
ið, sem var samþykkt einróma.
Baldvin Tryggvason gerði grein
fyrir hinum nýju lögum, sem m.a.
gera ráð fyrir, að AB sé rekið sem
sjálfseignarstofnun. Ákvæðið úr
fyrri lögum um 42 manna full-
trúarráð, sem kýs stjórn félags-
ins, er fellt niður, en þess í stað er
gert ráð fyrir að fjölga i félaginu
til mikilla muna og geta menn
gerzt ævifélagar í AB gegn
greiðslu ævifélagagjalds með full-
um atkvæðisrétti og kjörgengi.
Aðild að félaginu er bundin við
nafn og háð samþykki félags-
stjórnar.
I stjórn félagsins voru kjörnir:
Karl Kristjánsson formaður,
Jóhann Hafstein,
Gylfi Þ Gíslason,
Halldór Halldórsson,
Eyjólfur K. Jónsson,
Erlendur Einarsson, >
Davíð Oddsson,
og í varastjórn
Davíð Ólafsson,
Geir Hallgrímsson,
Erna Ragnarsdóttir,
Formaður útgáfuráðs er Tómas
skáld Guðmundsson, og aðrir í
útgáfuráðieru:
Birgir Kjaran,
Guðmundur G. Hagalín,
Höskuldur Ólafsson,
Indriði G. Þorsteinsson,
Jóhannes Nordal, •
Kristján Albertssón,
Matthías Johannessen,
Sturla Friðriksson,
A aðalfundi Stuðla h.f. gerði
framkvæmdastjóri félagsins,
Eyjólfur K. Jónsson, grein fyór
reikningum félagsins og starf-
semi þess.
I stjórn Stuðla h.f. voru kosnir
til eins árs þeir
Geir Hallgrímsson, formaður,
Geir Zoéga,
Kristján Loftsson,
Magnús Víglund^son,
Sveinn Benediktsson.
— Ræsir
Framhald af bls. 2
samkomulagi aðila, til greiðslu að-
flutningsgjalda af bifreiðinni.
Hefur kaupandi síðan sýnt
veruleg vanskil og neitar jafn-
framt að greiða skuldina á grund-
velli skráningar vestur-þýzka
marksins.
Forstjóri fyrirtækisins hefur
lýst því yfir, að fyrirtækið hafi
talið sér heimilt að nota lán vegna
annarrar bifreiðar, sem kom sam-
tímis til landsins á sömu láns-
skjölum, en var greidd út í hönd.
Það hefur nú endurreiknað skuld-
ina út frá þeirri forsendu, að
skuldbinding kaupanda bifreiðar-
innar í vestur-þýzkum mörkum
hafi ekki numið hærri fjárhæð en
fyrirtækið bjó sjálft við gagnvart
hinum erlenda lánveitanda vegna
þeirrar bifreiðar sém um var að
ræða. Hinn hluti skuldarinnar
hafi því verið krónuskuldbinding
frá upphafi eða frá þeim tíma, er
hin erlenda skuldbinding var
greidd, enda semjist um endur-
greiðslu lánsins og vaxtakjör af
því.
Seðlabankinn telur nú mál
þetta upplýst og hefur afhent
niðurstöður sfnar og gögn málsins
saksóknara til athugunar, svo
hann geti fellt sinn úrskurð um,
hvort tilefni sé til frekari rann-
sóknar eða annarra aðgerða af
opinberri hálfu í málinu.
12. júni 1975,
— 60-80 millj.
Framhald af bls. 2
koma við svo nákvæmri stjórnun
að framleiðslan héldist í hendur
við eftirspurnina á innanlands-
markaði, en viðurkenndi að um-
deilanlegt væri hvort ekki væri
allt eins ráðlegt að nota þá fjár-
muni sem i útflutningsbætur
færu til að greiða niður einhverja
flokka nautakjöts á innan lands-
markaði til að örva neyzluna hér
innanlands.
— Indira
Framhald af bls. 17
Pakistan, sem leiddi til sjálf-
stæðis Bangladesh. Sfðan hefur
sól hennar farið lækkandi
vegna margra óleysanlegra
vandamála, eins og erfiðleika
indversks Iandbúnaðar ein-
angrunarstefnu ýmissa héraða
og spillingar innan stjórnar-
innar.
— Bandala^
Framhald af bls. 1
förnu borið á þrýstingi innan-
Iands f þeim tilgangi.
Fyrir nokkrum dögum gerði
t.d. Pio Cabanillas, fyrr-
um upplýsingamáiaráðherra
spænsku stjórnarinnar, það að til-
Iögu sinni í ræðu, að Franco ein-
ræðisherra afsalaðí völdum sín-
um i hendur útnefnds arftaka,
Juan Carlos prins. I yfirlýsingu
frá bandalagi mið- og vinstri-
flokkanna segir að stofnun þess
hafi verið ákveðin á fundi ýmissa
stjórnmála- og verkalýðssamtaka i
Madrid í gær.
— Eru þeir
að fá’ann
Framhald af bls. 2
ur og tyrir hádegi voru komnir
2 laxar á land, en hann vissi
ekki hvernig veiðimönnum
hefði gengið síðdegis. Þeir
höfðu þó séð mikið af fiski.
MIÐFJARÐARÁ
Þrjátfu og fimm laxar hafa
nú fengizt i Miðfjarðará og
flestir hafa veiðzt á maðk.
Laxinn, sem er nú i ánni, er
mjög vænn og meðalþyngd fisk-
anna, sem á land eru komnir, er
10—11 pund. 8 stengur eru
leyfðar í Miðfjarðará.