Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNl 1975 29 + Enska stúlkan Jane Birkin, sem er mjó eins og hrífuskaft og þekktust vard fyrir lagið „Je t’aime moi non plus“, hefur aft- ur komið umróti á Frakka. I beinni útsendingu á sjónvarps- þætti sagði hún að þegar hún var í skóla hefði hún sett tann- krem á brjóstin á sór til þess að þau yrðu stærri. „En eins og þið sjáið bar það engan árang- ur. Kannski var það vegna þess að ég notaði ranga tegund,“ sagði hún við hneykslaða áhorfendur í sjónvarpssalnum. Það hefur þó ekki komið f veg fyrir það að hún er nú ein eftir- sóttasta ieikkona Evrópu. Samt hefur hún tíma til að sinna eiginmanni sfnum Serge Gains- bourg og börnunum Charlotte þriggja ára og Kate sjö ára sem hún átti f fyrra hjónabandi. Drap föður sinn með búrhníf + Lögreglan f Japanska bæn- um Sukumo handtók síðastlið- inn föstudag tuttugu ára gamlan mann er hann kom út úr húsi föður sfns eftir að hafa skorið af föður sfnum höfuðið. Morðinginn, Shinya Horimoto, tjáði lögreglunni er hún yfir- heyrði hann að morðið hefði hann framið á þeim forsend- um að faðir hans hafði yfirgef- ið móður hans til þess að gift- ast annarri konu. Lögreglan handtók Shinya á tröppunum fyrir framan hús föður hans þar sem hann stóð með höfuð föður síns f fangi sér. Verknað- inn framdi Shinya með búr- hnff. Paulene Stone: Liz Taylor taladi eingöngu um dauðann + Allir þekkja leikkonuna Jane Fonda. Hins vegar eru þeir ekki eins margir sem vita hver eiginmaður hennar er. Hann heitir Tom Haydcn og var myndin af þeim hjónum tekin fyrir utan hótel eitt f Sacramento í Kalifornfu eftir að Tom hafði tilkynnt um framboð sitt í prófkosningum Demókrataflokksins árið 1976. Jane Fonda er ekki bara þekkt fyrir kvikmyndaleik, hún hefur einnig tekið mikinn þátt f að mðtmæla stefnu Banda- ríkjastjórnar í málefnum Indókfna. + Alvin Lee gítarleikari hljóm sveitarinnar THE YEARS AFTER hefur nú skýrt frá þvf, að sú hljómsveit starfi ekki lengur. Meðlimir hljómsveitar- innar hafi ekki komið saman f 10 mánuði og megi það heita ótvfræð sönnun þess að ekki verði um meira samstarf að ræða. Alvin sagði ennfremur, að nýja hljómsveit hans, Alvin Lee og Co, æfði af kappi og þar væri mikið um að vera. + Paulene Stone fer ekkert sérlega vinsamlegum orðum um leikkonuna Elizabeth Taylor f nýrri bók sinni „One tear is enough“, en Paulene var áður gift leikaranum Laurcnce Harvey sem lézt í desember ár- ið 1973 úr krabbameini. 1 bók- inni ræðir Paulene Stone um sjúkdóm hans og fólk það sem umgekkst hann mest sfðustu 18 mánuðina í Iffi hans. Og þar er Liz Taylor svo sannarlega ekki hælt. Hún kom eins oft og hún gat á hcimili Laurence Harveys f I.ondon. „En hún var svo sannarlega ekki upplffgandi fyrir Laurence. Það eina sem hún ræddi um var Iffið eftir dauðann og hvað það væri hræðilegt að hann væri svona veikur og ætti ekki annað eftir en að deyja,“ segir Paulene Stone. Hún segir líka að það Lourence Harvey hafi verið Laurence sem hafi boðið Liz að heimsækja sig. „Honum hcfur alltaf þótt vænt um Liz og var jafnvel svolftið skotinn í henni, en undir það sfðasta bað hann mig að skila til hennar að hann væri of sjúk- ur til að taka á móti henni. Hún hafði svo niðurdragandi áhrif á hann,“ skrifar Paulene. Það var einnig önnur leikkona sem Paulene Stone féll ekkert sér- lega vel við, Mia Farrow, en þau Laurence bjuggu um skeið saman. „Hún lfktist lítilli og saklausri skólastúlku, en inn- rætið var allt annað. Hún þoldi mig ekki, og þegar hún heim- sótti Laurence á sjúkrahúsið, bað hún hann að reka „þessa þarna" út svo að þau gætu rætt saman án þess að nokkur ónáð- aði þau.“ í óskilum í Kjalarneshreppi jörp hryssa. Verður seld á uppboði laugardaginn 21. júní n.k. kl. 2 eh. að Brautarholti hafi réttur eigandi ekki gefið sig fram. Hreppstjóri. Glæsilegt úrval af gallasettum á 1. ár — 7 ára frá Belgíu (Lee Cooper). Einnig stórglæsileg barnafötfrá Frakklandi Aldrei meira úrval. Sendum í póstkröfu um land allt. C hnömmu- 8ÖL MIÐBÆJARMARKADI ADALSTRÆTI9 sími 27340.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.