Morgunblaðið - 13.06.1975, Síða 36
JGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
FÖSTUDAGUR 13. JUNl 1975
Samningar undirritaðir í nótt?:
5300 kr. kauphækkun
strax — 2100 kr. 1. okt.
Launajöfnunarbætur nái til allra launþega —
„Rautt strik” við 477 vísitölustig
Ljósm. Mbl. Br. H.
SAMNINGARNIR —Þessir menn hafa ásamt sáttanefnd ríkisins verið í eldlínunni
að undanförnu. Að ofan er 9-manna nefnd Alþýðusambandsins og að neðan
samninganefnd Vinnuveitendasambandsins. Myndirnar voru teknar í gærkvöldi.
Yfirljjsing ríkisstjórnarinnar:
Óbreytt búvöruverð
á samningstímanum
ER MORGUNBLAÐIÐ fór I
prentun nokkru eftir miðnætti
höfðu nýir samningar enn ekki
verið undirritaðir f kjaradeilunni
en óhætt mun að fullyrða að sam-
komulag hafi þá tekizt f öllum
meginatriðum en aðeins verið eft-
ir að ganga frá ýmsum minnihátt-
ar atriðum samninganna. Um
miðnætti gerðu talsmenn beggja
aðila ráð fyrir að undirskrift
samninga gæti dregist eitthvað
fram eftir nóttu. Gildistfmi
þeirra samninga sem unnið hefur
verið að mun vera til næstu ára-
móta. Á tímabilinu, sem hefst við
undirritun samnings, verða
tvisvar sinnum kauphækkanir —
þegar f upphafi 11,6% kaup-
hækkun miðað við 6. taxta Dags-
brúnar og sfðan aftur 1. október,
ORÐAN — Þetta er sænska þjónustuoró-
an sem Klausturhólar seldu fyrír 20 þús-
undkrónur. Ljósm. Mbl. Sv.Þorm.
Ný sœnsk þjón-
ustuorða seld
á 20 þúsund kr.
LISTMUNAVERZLUNIN
Klausturhólar í Lækjargötu
fékk-á miðvikudaginn til sölu-
meðferðar þjónustuorðu sem
Karl Gústaf Svfakonungur af-
Framhald á bls. 20
kauphækkun sem nemur 4,3%
þannig að heildarkauphækkun
samningsins er 15,9% kaup-
hækkun á tfmabilinu.
Baknefndarfundur ASt var
haldinn í gær klukkan 18 og var
þá gefið hlé á samningaviðræðum
til klukkan 21. Á baknefndar-
fundinum var lýst stuðningi við
forseta ASl og honum þökkuð góð
samningsstörf. Efni samningsins
er i helztu atriðum, að svokölluðu
þaki er lyft, þannig að þeir starfs-
hópar, sem ekki hafa fengið
launajöfnunarbætur frá því í
fyrrahaust, 3.500 krónur og 4.900
krónur frá þvi í bráðabirgðasam-
komulaginu í vor, fá þær með
þessu samkomulagi. Þá verður
kaup nú hækkað um 5.300 krónur
og síðan hinn 1. október um 2.100
krónur. Þá er ákvæði, sem kemur
fram í sérstakri yfirlýsingu um að
ef hækkun vísitölu framfærslu-
kostnaðar fari fram yfir 477 stig--
hinn 1. nóvember verði mælt og
bætt í kaupgjaldi sem umfram er
þá stigatölu.
Með samningunum fylgir
sérstök yfirlýsing frá ríkisstjórn-
inni, þar sem hún gefur fyrirheit
um að verð landbúnaðarvöru
muni eigi hækka á tímabilinu og
Framhald á bls. 20
Verkföll
í Sigöldu
STÉTTARFÉLÖGIN I Rangár
vallasýslu tilkynntu f gærkvöldi
að boðuð vinnustöðvun félaganna
myndi koma til framkvæmda frá
og með miðnætti sl nótt. Stéttar-
félögin gáfu 9-manna nefnd ASl
ekki umboð til að fara með
samningagerð fyrir sig og eiga
þau þar af leiðandi ekki aðild að
þvf samkomulagi sem unnið
hefur verið að. t tilkynningu
stéttarfélaganna kom fram að
sáttasemjari hefur engan fund
haldið með deiluaðilum þar
eystra. Verkfallið nær m.a. til
allrar vinnu við Sigöldu.
RtKISSTJÓRNIN lýsti því yfir f
gær að núgildandi búvöruverð
héldist óbreytt á gildistfma þess
kjarasamnings, sem þá var verið
að vinna að. Eins gaf rfkisstjórn-
in fyrirheit um að aðilar vinnu-
markaðarins fengju aðild að
endurskoðun laga og reglugcrða
um ákvörðun búvöruverðs. Sam-
kvæmt upplýsingum er Morgun-
blaðið hefur aflað sér má ætla að
áframhaldandi niðurgreiðsla á
búvöruverði þvf sem átti að koma
til 1. júnf sl. til áramóta kosti
rfkið milli 700—800 milljóna
króna.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar til
Alþýðusambands Islands er svo-
hljóðandi:
Til þess að greiða fyrir samn-
ingum um kaup og kjör milli sam-
taka launafólks og vinnuveitenda
og i trausti þess, að vinnufriður
haldist, lýsir ríkisstjórnin yfir:
Að sú hækkun á helztu neyzlu-
vörum heimilanna — mjólk,
smjöri og kindakjöti — sem fram
átti að koma 1. júní sl., komi ekki
til framkvæmda á gildistíma þess
kjarasamnings, sem nú er unnið
að.
Þá mun ríkisstjórnin beita sér
fyrir því, að aðilar vinnu-
markaðarins fái aðild að endur-
skoðun laga og reglugerða um
ákvörðun búvöruverðs.
Reykjavík, 12. júní 1975
Geir Ilallgrímsson.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, tjáði
Framhald á bls. 20
Samruni Ford-
umboðanna
NO hefur verið ákveðið að Ford-
umboðunum tveimur á íslandi —
Sveins Eigilssonar og Co og Kr.
Kristjánssonar skuli steypt saman
í eina heild. Er þessi samruni
fyrirtækjanna í undirbúningi um
þessar mundir, og er fyrirhugað
að bæði umboðin flytjist undir
eitt þak nú á næstunni. verður
það væntanlega í húsgkynnum
Sveins Egilssonar.
Sáttanefnd ríkisins að störfum i gærkvöldi.