Morgunblaðið - 22.06.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNI 1975
30 ár frá stofnun Sam-
bands ísl. sveitarfélaga
IIINN II. júnf sl. voru 30 ár liðin
frá stofnun Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Forgöngumaður
um stofnun félagsins og formaður
þess um rúmlega tveggja áratuga
skeið var Jónas Guðmundsson
fyrrverandi ráðuneytisst jóri. A
stofnfundinum fyrir 30 árum
gengu 53 sveitarfélög í samband-
ið og nú eru öll fslenzk sveitar-
félög aðilar að sambandinu.
Hlutverk sambandsins hefur
frá öndverðu verið að vinna að
sameiginlegum hagsmunamálum
islenzkra sveitarfélaga, að vera
fulltrúi íslenzkra sveitarfélaga
gagnvart ríkisvaldinu og öðrum
innlendum aðilum svo og gagn-
vart erlendum samtökum um
sveitarstjórnarmál, að vinna að
fræðslu um sveitarstjórnarmál og
efla samstarf sveitarfélaga og
kynni milli sveitarstjórnarmanna.
Landsþing, sem haldið er fjórða
hvert ár, hefur æðsta vald í
málefnum sambandsins. Það kýs
stjórn sambandsins og fulltrúa-
ráð, sem er skipað 25 mönnum
auk stjórnarmanna, en fulltrúa-
ráðið kemur saman einu sinni á
ári.
Sambandið hefur frá stofnun
sinni gefið út tímaritið Sveitar-
stjórnarmál auk ýmissa rita um
sveitarstjórnarmálefni.
Fyrstu stjórn Sambands
íslenzkra sveitarfélaga skipuðu:
Jónas Guðmundsson, formaður,
Björn Jóhannesson, Hafnarfirði,
Helgi H. Eiriksson, Reykjavik,
Klemens Jónsson, Bessastaða-
hreppi og Sigurjón Jónsson, Sel-
tjarnarnesi.
Núverandi stjórn sambandsins
skipa:
Páll Lfndal, borgarlögmaður,
Reykjavík, Ólafur G. Einarsson,
oddviti, Garðahreppi, Alexander
Stefánsson, oddviti, Ólafsvfk,
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri,
Akureyri, Guðmundur B. Jóns-
son, bæjarfulltrúi, Bolungarvfk,
Logi Krist jánsson, bæjarstjóri,
Neskaupstað og ölvir Karlsson,
oddviti, Ásahreppi.
Framkvæmdastjóri sambands-
ins er Magnús E. Guðjónsson og
ritstjóri tfmaritsins Sveitarstjórn-
armál Unnar Stefánsson.
Skrifstofa sambandsins er að
Laugavegi 105, Reykjavík.
I tilefni þessara tímamóta i
sögu sambandsins samþykkti
stjórn þess á fundi sinum i gær að
efna til ritgerðarsamkeppni á
vetri komanda í efstu bekkjum
þeirra skóla, sem brautskrá
stúdenta, um efnið: „Sveitar-
stjórnir á Islandi — framtiðar-
hlutverk" og veita þrenn verð-
laun fyrir beztar úrlausnir að
mati dómnefndar, 1. verðlaun
verði kr. 100.000.—, 2. verðlaun
verði kr. 50.000.—, og þriðju verð-
laun verði kr. 25.000.—. Nánari
tilhögun ritgerðarsamkeppninnar
verði ákveðin I samráði við
menntamálaráðuneytið og hlutað-
eigandi skóla.
Betri aðstaða fyrir Smyril:
Stoppaði aðeins í
eina klukkustund
FÆREVSKA bllferjan Smyrill,
átti að koma til Seyðisfjarðar kl.
20 I gærkvöldi, með um það bil
210 farþega utanlands frá og
nokkurn fjölda bifreiða. Þegar
Smyrill kom, var búið að ganga
þannig frá málum á Scyðisfirði,
að skipið gat lagzt strax að
hryggju þvf búið er að girða
hafnarsvæðið af, þannig að hægt
er að framkvæma alla tollskoðun
þar. Þvf átti Smyrill ekki að þurfa
að stanza nema f eina klukku-
stund á Seyðisfirði.
Jónas Hallgrimsson, bæjar-
Túnþökur fluttar í
stórum stíl til Eyja
AÐ UNDANFÖRNU hafa túnþök-
ur verið fluttar I stórum stfl frá
Þorlákshöfn til Vestmannaeyja.
Hafa þær aðallega verið fluttar
með bátum en einnig hefur nokk-
urt magn verið flutt með Herj-
ólfi. Að sögn Sigurgeirs Jónsson-
ar fréttaritara okkar f Eyjum
hafa verið flutt þangað hundruð
tonna af þökum undanfarnar vik-
ur.
FLUGVÉLAR — Það er ekki oft
sem flugvél flytur flugvél, en þetta
kom þó fyrir I gaermorgun, er
flutningaflugvél Iscargo kom til
Reykjavíkur. I farminum var m.a.
lítil kennsluflugvél, sem Flugskóli
Helga Jónssonar hefur fest kaup á.
Töluverðar annir hafa verið hjá
Iscargo að undanförnu og ! þessari
sömu ferð var komið við á Egils-
stöðum með 60 fermetra tjald, sem
notað verður sem farþegaafgreiðsla
vegna Smyrils á Seyðisfirði.
Alvarlegt bílslys
stjóri á Seyðisfirði sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær, að í gær-
morgun hefðu Seyðfirðingar lokið
við að reisa 2 metra háa girðingu
kringum hafnarsvæðið og komið
upp sérstöku húsi fyrir útlend-
ingaeftirlitið, en áður var búið að
koma upp sérstöku húsi fyrir toll-
verði og snyrtiaðstöðu fyrir far-
þega. Þá var byrjað að reisa 1 gær
60 fermetra tjald, sem flugvél Is-
cargo kom með frá Danmörku.
Tjaldið er úr álbogum og polyest-
er efni. Þar inni verður aðstaða
fyrir farþega og vörur.
Alvarlegt bifreiðaslys
varð á Nesvegi í Reykjavík
í fyrrinótt. Fólksbifreið af
Citroen-gerð ók á Ijósa-
staur og varð að flytja
þrjár konur sem voru far-
þegar í bílnum á slysadeild
Borgarspítalans.
Ein þeirra, sem sat við hlið bíl-
stjórans, slasaðist langmest, hlaut
alvarlega höfuðáverka. Hinar
konurnar slösuðust minna og bíl-
stjórinn karlmaður slapp með
skrámur. Hann er erlendur að
þjóðerni og sömuleiðis kona hans,
sem sat við hliðina á honum og
slasaðist mest. Grunur leikur á að
hann hafi verið undir áhrifum
áfengis. Slysið gerðist um klukk-
an 5 um nóttina. Bfllinn er mikið
skemmdur.
Kvöldið áður hafði orðið harður
árekstur á mótum Laugavegar og
Friðjón Þórðarson.
Friðjón Þórðarson lætur
af störfum sem sýslumaður
Þá hefur mikið magn af alls
konar garðagróðri verið flutt frá
meginlandinu til Eyja. Húsagarð-
ar i Vestmannaeyjum hafa ekki
náð sér fyllilega á strik eftir gosið
og hafa fjölmargir Eyjaskeggjar
þvi gripið til þess ráðs að skipta
um gras á blettumjSínum með því
að sá og þó aðalléga með þvi að
tyrfa.
FRIÐJÓN Þórðarson,
sýslumaður og alþingis-
maður í Stykkishólmi mun
láta af störfum sem sýslu-
maður í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu 1. sept-
ember næst komandi.
— Astæðan fyrir því, að ég læt
nú af sýslumannsstörfum er ein-
faldlega sú, að ég tel allsendis
ófært lengur að gegna bæði störf-
um sýslumanns og alþingismanns,
sagði Friðjón í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Ég er nú búinn að
vera bæði sýslumaður Snæfell-
inga og alþingismaður Vestur-
landskjördæmis í 10 ár og þar
áður í sömu stöðum fyrir Dala-
menn. Þessi störf verða sífellt
viðameiri og því hef ég ákveðið að
láta af störfum, sem sýslumaður
og helga mig stjórnmálastörfun-
um betur en áður. Og ég vona að
þetta sé öllum fyrir beztu, sagði
Friðjón.
Illlí) LÁTAÆÐIVERÐBOLGÖNNAR
ERFIÐLEGA ætlar að ganga að
ráða niðurlögum óðaverðbólg-
unnar, sem segja má að hafi
geisað hér á landi í rúmlega ár,
enda naumast hlaupið að slíku
á sama tíma og viðskiptakjör á
mörkuðum helztu útflutnings-
vara landsmanna hafa stöðugt
verið að versna. Ekki hafa þó
heldur orðið neinar stökkbreyt-
ingar til hins verra á undan-
förnum mánuðum samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblað-
ið aflaði sér hjá Þjóðhagsstofn-
uninni, þó að dálitlar sveiflur
séu á verðbólguþróuninni milli
tímabila. Ástandinu í þessum
efnum verður því kannski bezt
lýst með því að taka að láni
orðatiltæki sem blaðamenn
nota einatt í sambandi við
slysafréttir og segja að sjúkl-
ingnum liði eftir atvikum.
Að sögn Ölafs Davíðssonar,
hagfræðings hjá Þjóðhagsstofn-
uninni, varð verðlagið á árinu
1974 miðað við framfærsluvísi-
tölu að meðaltali um 43%
hærra en árið áður. Þegar
þróunin yfir allt árið 1974 er
athuguð nánar kemur i ljós, að
1. febrúar 1974 var framfærslu-
visitalan 32,6% hærri en á
sama tíma árið áður. Við næsta
útreikning framfærsluvísitöl-
unnar í maímánuði 1974 er
þessi 12 mánaða hækkun á
verðlagi orðin 43,8% en i ágúst
hefur orðið örlítil lækkun á
þessari 12 mánaða hreyfingu en
verðhækkanir höfðu þá orðið
41,2% frá ágúst 1973 til sama
mánaðar 1974. Þessi lækkun
stafaði fyrst og fremst af öllum
niðurgreiðslunum sem komu til
í maílok í fyrra, en við næsta
útreikning í nóvember 1974 er
þessi 12 mánaða hreyfing
komin upp í 51,2%.
Við útreikning framfærslu-
vísitölunnar i febrúar á þessu
ári kemur hins vegar í ljós að
verðlagið hefur hækkað að
meðaltali um 53,6% miðað við
útreikningana í sama mánuði í
fyrra.
I maí hefur heldur orðið
lækkun, þessi 12 mánaða verð-
lagsbreyting sýnir þá 47,7%
hækkun. Hefur þvi á síðasta 3ja
mánaða timabili aðeins tekizt
að hægja á verðbójgunni miðað
við þessar 12 mánaða breyt-
ingar, en hafa verður í huga að
það var einmitt á þessu timabili
í fyrra sem stökkið mikla upp á
við varð, þegar vísitalan
hækkaði um hvorki meira né
minna en 19%. Litil hækkun
varð hins vegar úr því yfir
sumarmánuðina i fyrra, svo að
búazt má við að fyrrgreind 12
mánaða verðlagsviðmiðun fari
upp á við á nýjan leik við næsta
útreikning framfærsluvísitöl-
unnar, að því er Ólafur sagði.
Klapparstigs milli tveggja fólks-
bifreiða. Engin meiðsli urðu á
fólki en töluverðar skemmdir á
bilunum.
Slakur árangur
bridgemanna á
NL-mótinu
NORÐURLANDAMÓTINU i
bridge er lokið. Island sendi tvö
lið til keppninnar. Arangur i
karlaflokki varð mjög siakur og
hafnaði liðið i neðsta sæti. I ungl-
ingaflokki varð sveitin fjórðameð
nokkuð þokkalegan árangur.
Blaðið mun skýra nánar frá mót-
inu siðar.
Enn einn
tíðindalaus
sáttafundur
ENN EINU sinni varð tíðinda-
laust á sáttafundi í togaradeil-
unni 1 fyrrinótt. Fundurinn stóð
til klukkan 2,30 í fyrrinótt og
annar fundur var boðaður I gær
klukkan 14.30.
Jón Sigurðsson formaður Sjó-
mannasambands Isiands sagði í
viðtali við Mbl. i gær að hann
byggist við því að flestir sjómenn
stóru togaranna væru komnir I
aðra atvinnu. Menn sæju að hver
deilan á fætur annarri leystist —
nema þessi og gæti orðið talsvert
langt í lausn hennar. Yrðu menn
því að leita í aðrar starfsgreinar.
Jón sagði að erfitt gæti reynzt að
manna aftur togarana með jafn-
góðum mannskap. Ekki væri nóg
að hafa góðan skipstjóra, heldur
þyrfti skipshöfn öll að vera sam-
hent og góð. Jón kvaðst lengi hafa
vonað að unnt væri að leysa deil-
una, en jafnan hafi hann orðið
fyrir vonbrigðum.
Miklar annir
á Siglufirði
Siglufirði, laugardag.
HÉR ER hið fegursta veður 1 dag
— og allur bærinn í miklum önn-
úm. Þær eru aðallega kringum
fiskvinnuna því áframhald er á
góðu fiskirfi hjá bátum og togur-
um. Hér verður trúlega unnið um
helgina til að koma fiskinum frá.
Nú er sementsverksmiðjuverk-
fallið á dögunum farið að segja til
sfn hér, því að ekki er hægt að
drffa upp einn einasta sements-
poka f bænum. — mj.
Lögbann var
sett á lend-
ingar Vængja
Sýslumannsembættið í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu tók á föstudag
fyrir lögbannsbeiðni Hesta-
mannafélagsins Dreyra á lending-
ar Flugfélagsins Vængja á Akra-
nesflugvelli. Var orðið við beiðni
félagsins um lögbann, enda mun
félagið vera þinglýstur eigandi
landsins, sem.völlurinn er á. Gísli
Kjartansson sýslufulltrúi kvað
upp úrskurðinn.