Morgunblaðið - 22.06.1975, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.06.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNI 1975 39 Aldarminning: PállH. Halldórs- son bóndi á Höfða Eg horfi vfir hafið um haust af auðri slrönd, í skuggaský jum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála og auða er stari ég héðan af er ströndin strfðs og nauða er ströndin hafsins dauða. og hafið dauðans haf. VB. Þann 4. júní 1975 voru hundrað ár liðin frá fæðingu Páls Halldórs Halldórssonar bónda á Höfða í Grunfiavíkurhreppi N.Is. Hann fæddist að Nautaeyri 4. 6. 1875. foreldrar hans voru hjónin María Rebekka Kristjánsdóttir og Halldór Hermannsson frá Hattar- dal. María var dóttir Kristjáns Ebenezarsonar dbrn. I Reykjar- firði, hann var hreppstjóri og varaþingmaður, skutlari og stór- bóndi. Var Reykjarfjarðarheimil- ið eitt nafnfrægasta gestrisnis- og rausnarheimili á Vestfjörðum um hans daga. (Ur Arnardalsætt). Páll var yngstur systkina sinna, og ólst upp hjá foreldrum sínum að Nauteyri. Arið 1890 lézt Halldór faðir Páls. Eftir það flutt- ist ekkjan með börn sín að Bæjum, og bjó þar til dauðadags, síðast með Páli syni sínum. Hann kvæntist 18. júní 1898 Steinunni Jóhannsdóttir, f. 16. 4. 1866, á Svanshóli f Bjarnarfirði, Stranda- sýslu. Þeim varð 9 barna aúðið og komust 8 til fullorðinsára. Nú er látnir elztu synirnir Guðmundur og Halldór, en einn sonur er á lífi og 5 dætur sem oft voru kallaðar Höfðasystur. Steinunn kona Páls fluttist um fermingaraldur að Skjaldfönn í ís.-djúpi, eftir að hafa misst föður sinn, til nöfnu sinnar og föður- systur, Steinunnar Jónsdóttur Nielssonar Sveinssonar frá Klefum í Gilsfirði. Jón Níelsson (afi Steinunnar konu Páls) var bróðir Sveins prófasts á Staðastað (eða Stað á Ölduhrygg) og víðar, sem var afi Sveins Björnssonar, okkar fyrsta forseta, og einnig var hann bróðir Daða fróða og tveggja systra sem hétu Sigriður og Karítas. Steinunn kona Páls var mikil- hæf kona bæði til munns og handa, og nætti margt um hana skrifa, og sannast það bezt af dugnaði hennar þegar þau fluttust frá Bæjum með 8 börn, það elzta 14 ára og 2 misseris- gömul (tvíburar). Það var í fardögum 1910 að þau fluttust að Höfða í Jökulfjörðum. Hér kemur litil frásögn af þeim flutningi, sem ekkert einsdæmi var i sveitum iandsins á þessum tíma. Veturinn 1910 var mikill snjóa- vetur. Páll rak féð sem komið var að burði norður Dalsheiði, þá sást hvergi á dökkan dil nema hjalla- randir sem hann reyndi að þræða. Með honum í ferðinni voru elztu synir hans, annar 14 ára og 11 ára, og unglingsstúlka Ingibjörg Kritjánsdóttir. Hann hafði með sér reiðingshest með kláfum til að láta Iömbin í, sem hann bjóst við að fæddust á leiðinni, það bættust nokkur lömb í hópinn. Ferðinn gekk vel, logn og sólskin alla leið. Komið var norður seint um kvöldið féð var látið vera í hjöllunum fyrir ofan Höfða. Gist var á Dynjanda hjá Einari Bæringssyni og konu hans Engil- ráð Benediktsdóttur. Páll hélt vestur í Bæi aftur um daginn eftir og stúlkan, en bræðurnir urðu eftir við fjárgæzlu. Eftir viku kom Kristján Jónsson á Nesi i Grunnvik á mótorbát með sexæring aftan í til að sækja fólkið og farangurinn í Bæi, kýrnar voru fluttar í sexæringnum. Með Kristjáni í þessari ferð voru Pétur Maack og Reinar Finnbogason. Lagt var af stað frá klömpunum í Bæjum seint um kvöld, og haldið norður i Jökulfjörðu i logni og ládauðum sjó, Við sólarupprás var lent á Höfða. Það er fallget á Höfða ekki sizt við sólarupprás og fólkinu leizt vel á nýja staðinn. En kulda- leg var aðjcoman þegar í bæinn kom. Hross höfðu komist inn um veturinn og varð að byrja á því að moka og þvo og þrifa, engin eldstó var í húsinu, snjó var mokað útúr hlóðum i útieldhúsi spölkorn frá bænum og hitað kaffi fyrir fólkið. En svo var hafizt handa um vor- verkin, og allir hjálpuðust að. Lífsbaráttan var hörð á þessum árum og furðulegt hvað fólk gat afkastað miklu en þá var heldur ekki alltaf spurt hvað tímanum liði. Páll var að mörgu leyti á undan samtíð sinni s.s. í ræktunar málum o.fl., en efnin voru litil lengi vel og þvi varð ekki öllu komið í verk sem hann óskaði. Túnið var lítið og að mestu karga- þýfi. Hann sléttaði í túnið og stækkaði, gróf skurði i tún og engjar, og bætti húsakostinn. Fyrstur manna fékk hann kerru og beitti fyrir hana uxa og hest- um. Páll gegndi ýmsum trúnaðar- störfum í báðum hreppunum sem hann bjó I, t.d. i sóknarnefnd og hreppsnefnd, og oddviti Grunna- vikurhrepps var hann á erfiðum tíma, þegar fyrri heimsstyrjöldin stóð yfir. Svo var hann forða- gæzlumaður I mörg ár, og vann það starf af trúmennsku eins og allt sem hann tók sér á hendur. Hann fór sjálfur vel með skepnur, og þær voru svo hændar að hon- um, að hann þurfti ekki nema að kalla á þær til að láta þær hópast saman og hlýða kalli hans, enda var hann sannur dýravinur. Þegar fjárkláðinn mikli kom upp i norður-sýslunni, varð hann eftir- litsmaður með böðum i Grunna- víkur-, Snæfjalla- og Sléttu- hreppi. Svona mætti margt telja upp, t.d. þegar Búnaðarfélagið var stofnað i hreppnum, varð hann einn af stofnendum þess og notfærði sér allar þær nýjungar sem þar voru í boði. Þá hafði hann keypt jörðina Höfða (1930) og eftir það verður hver byltingin á fætur annarri í jarðabótum og byggingum. En þá verður það að hann fer að kenna sér meins af sjúkdómi þeim sem leiddi hann til dauða. Þá fór að halla undan fæti, og börnin gift og höfðu flutt að heim- an, nema 3—4 sem eftir voru og eitt af því var Halldór, næst elztur barna hans, sem þá tók við af honum. Páll var góður heimilis faðir. Þó að strangur væri skipaði hann aldrei börnum sínum eða hjúum að gera þetta eða hitt, heldur bað hann um að verkið væri unnið. Hann var snyrti- menni bæði utan húss og innan. Páll var trúmaður mikill og hélt þeim sið uppi nær því alla sina tið að lesa húslestra á hverjum helgi- degi ársins, og eftir að börnin fóru að heiman og unga fólkið hafði öðru að sinna, t.d. á sunnu- dögum að sumri til, þá sagði hann: Eg les þá fyrir heimilið og þá sem vilja hlusta. Hann dásam- aði söng, og sálmabókin hans var alla tíð á borðinu hans, og þar átti hann marga uppáhalds sálma og einn af hans sálmum, sem hann dáði, var sálmurinn „Ég horfi yfir hafið“: Sá sálmur var sungin við greftrun hans. Kirkjukór Staðar- kirkju fylgdi honum syngjandi út frá kirkjudyrum og að gröf og söng á meðan moldum var kastað, siðasta versið dó út um leið og síðasta rekan féll, og langar mig til að vers það fylgi þessum lin- um. Hann las sína húslestra lengi vel úr Jóns Vídalins postillu, en eftir að prédikanir próf. Haralds Níelssonar, „Arin og eilífðin", komu út þá tileinkaði hann sér þær alveg, og viðaði öllum ritum og lesmáli að sér sem tilheyrði spiritismanum eftir það. Páll og Steinunn voru einlægir aðdáend- ur próf. Haralds (enda voru þau þremenningar að ætt, Steinunn og próf. Haraldur). Páll lifði í þeirri von og vissu að hann fengi 1 að dvelja með sinum nánustu hin- um megin grafar, hann vonaði einnig að hann fengi að sjá Brún, reiðhestinn sinn, og fleiri skepn- ur sem honum þótti vænt um. Að lokum má segja að þeim hafi búnast vel á Höfða og undu hag sfnum vel, þótt bæði kæmi um langan veg. Afkomendur þeirra hjóna eru nú orðnir samtals 145. Þau létust bæði á Höfða, Páll 20. júní 1937, og Steinunn 8. okt. 1942. Þau hvila bæði í Staðar- kirkjugarði í Grunnavik. Nú býr enginn lengur i þessari . fögru sveit þar sem þau og svo margir aðrir háðu sína lífs- baráttu. Blessuð sé minning þeirra. M.R.S. hljúður eflir hlusta «K lipvri klukkna liljoni. Ilve kuöIck Kuöþjónusla er kuós í helKÍdóni. ÉK heyri unaðsóma «K engla ska*ra rausl um drotlins dýróarljónia um droltins verk þoir róma um eilífó endalausl. VB. — Erfiðar viðræður Framhald af bls. 1 fljótt því annars geti þróunin stefnt til nýrrar styrjaldar. Ford og Kissinger vonast til að geta lokið við endurskoðun sína á stefnu Bandarikjanna í Miðaust- urlöndum þegar Khaddam hefur gefið sýrlenzku stjórninni skýrslu um viðræðurnar i Washington. Tilgangur endurskoðunarinnar er að ákveða hvort Kissinger skuli á ný reyna að tryggja takmarkað samkomulag milli Egypta og Isra- elsmanna og síðan vinna að þvi að gert verði allsherjarsamkomulag með þátttöku Sýrlendinga. — Portúgal Framhald af bls. 1 þessir hópar ekki vopnast nema þvi aðeins að neyðarástand skap- aðist. Ráðið sagði að vegna ríkjandi stjórnmálaástands yrði að auka völd hreyfingar hersins. Vegna slæms ástands í efnahagsmálum yrði að koma á kaupbindingu og innflutningseftirliti og auka sparnað. Sagt var að stjórnlaga- þingið ætti að semja nýja stjórn- arskrá en það mætti engin opin- ber afskipti hafa af stjórnmálum eða stjórn landsins. Ráðið hótaði róttækum lögum til að auka eftirlit með skrifum dagblaða þar sem innlendir og erlendir blaðamenn hefðu birt rangar oe niðrandi fréttir og binda yrði endi á æsiskrif. Sagt var að einu dagblaði eða tveimur yrði breytt i hálfopinber málgögn sem mundu endurspegla skoðanir hreyfingar hersins. — Afmæli Péturs Framhald af bls. 23 rennusteinana. Með því móti los- aði hann okkur við sjóinn, sem kom niður kappann að framan. Voru nú góð ráð dýr, þvi neðri kojurnar fóru á kaf í sjó. Var því kvenfólkinu komið fyrir I efri kojunum á meðan verið var að þurrka sængurfötin og fleira niðri á vélarrist. Fór nú Pétur niður í geymslurúm skipsins (cabalroom), náði þar i dýnu og setti hana í koju sína, sagði að við yrðum að skipta þessu á milli okk- ar eins og hægt væri með góðu móti, þangað til við kæmum til Isafjarðar. Var nú Pétur á ferð og flugi alla nóttina að hjálpa fólk- inu, einkum þó þvi, er var- í lest- um skipsins. Var þar eins og í stórri fjárrétt, allir æpandi og skrækjandi um allt. Á Pétur mik- ið þakklæti skilið fyrir góðvild sina, hjálpsemi og drengskap. Og ég efast um að nokkur maður hafi klárað það betur en sá stutti, sem er jafn hár og hann er breiður. Pétur hefur siglt um heim allan og hefur verið stýrimaður á mörg- um skipum í áraraðir bæði hér- lendis og erlendis. Öska ég Pétri til hamingju með hinn mikla dag. Stefán Jónsson Ath: Þess skal að lokum getið — og rétt að komi fram á þessu merkis- afmæli Péturs, — að sæmdarheit- ið sömand hlaut hann er hann var á Goðafossi, viðvaningur árið 1926. Skipið var þá á leið frá Borgarfirði eystra með saltkjöts- og gærufarm til Noregs. Skammt undan landi hreppti skipið hið versta veður og komust skips- menn í hann krappan. Þá var ann- ar stýrimaður á Goðafossi Lárus heitinn Blöndal, sfðast skipstjóri á olíuskipinu Þyrli. Það var hann sem sagði við Pétur eftir að hann kom úr þessari eldraun: „Nú ertu orðin sömand, Pétur!“ Síðan og þá festist nafnið við Pétur. Hann hefur nú verið vistmaður á Hrafn- istu I hartnær 10 ár — á herbergi númer 10, og verður Pétur heima á afmælisdaginn. STJÓRN UNARFÉLAG ÍSLANDS Hafið þér við rekstrarvandamál að stríða? Stjórnunarfélag íslands er að undirbúa nám- skeiðsáætlun vetrarins 1 975 — 76. Stjórnendur, sem vilja hafa áhrif á námskeiða- val félagsins, geta snúið sér til fræðslustjóra félagsins, Brynjólfs Sigurðssonar lektors, í síma 82930 kl. 16.00 — 18.00 mánudaga og fimmtudaga. Stjórnunarfélag íslands. Þökkum öllum þeim, sem sendu okkur hlýjar óskir og sýndu okkur vinarhug á 70 ára brúð- kaupsdegi okkar 16. júní sl. Sigríður Ólafsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Grænuvöllum 6, Selfossi. Skaftfellingar Minnum á Þórsmerkurferðina föstudagskvöldið 27. júní. Farið frá Umferðamiðstöðinni kl. 20. Þátttaka tilkynnist í síma 37291 og 13180, fyrir miðvikudagskvöld. Stjórnin. Nýkomið frá Pakistan AUSTURLENZK TEPPI í mörgum gerðum. Lovísa Afzal Norðurbraut 15, Hafnarfirði sími 50155. KVENBUXUR í SUMARLITUM, MUSSUR, LJÓSIR LITIR, RÚLLUKRAGAPEYSUR, KVENBLÚSSUR, STAKIR JAKKAR. Allt á hagstæðu verði. Elízubúðin, Skipholti 5. A uglýsing frá MELKORKU Hinar vinsælu Wolsey peysur komnar í ýmsum Htum. Stærðir 38—48. Melkorka, Bergstaðastræti 3, sími: 14160.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.