Morgunblaðið - 22.06.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNl 1975
11
Moshe Leshem.
Almenningsálitið
snúizt við
— segir Moshe
Leshem,
sendiherra
Israels
Sendiherra Israels á Is-
landi, Moshe Leshem,
var hér í Reykjavík I síð-
ustu viku, en sendiherr-
ann hefur aðsetur sitt í
Kaupmannahöfn. Héðan
kom hann frá Færeyjum,
en hann hefur ferðazt
mikið og kynnt máistað
lands síns, m.a. í Banda-
ríkjunum.
JMoshe Leshem er
ættaður frá Tékkóslóv-
akfu, en fluttist til
fsraels árið 1949.
Hann átti fund með
blaðamönnum meðan
hann var í Reykjavfk, og
sagði þá m.a. um ófriðinn
í Mið-Austurlöndum:
„Anwar Sadat, Egypta-
Iandsforseti, talar nú
orðið um frið. Það er
vissulega betra en það að
hann talaði um stríð, en
meðan Arabar kaupa
vopn fyrir 20 milljónir
dala dag hvern, þá er
augljóst, að þeir eru ekki
í friðarhug.
Fyrir nokkrum árum var al-
menningsálitið mjög hlynnt
okkur tsraelsmönnum, en nú er
það liðin tíð. Þá höfðum við
flest okkur til málsbóta i aug-
um umheimsins, en nú hefur
þetta snúizt við og Arabar eiga
nú allra samúð.
Að sjálfsögðu er Egyptaland
það land, sem mestu máli skipt-
ir fyrir okkur í þessum átökum,
því að án Egypta geta Araba-
þjóðirnar ekkert stríð háð. Hr.
Sadat er raunsær maður, sem
ekki lætur stjórnast af hugsjón-
um heldur því sem hagkvæmt
er fyrir land hans. Hann hefur
margsinnis sagt, að ekki sé
hægt að semja um frið fyrir
þessa kynslóð og þá, sem kemur
næst á eftir, heldur verði að
leita varanlegri lausnar. Það er
hins vegar útilokað fyrir okkur
að ganga til samninga með
þeim skilyrðum, sem and-
stæðingar okkar vilja setja okk-
ur, og ég held, að jafnvel mestu
friðardúfur i Israel gætu ekki
hugsað sér að ganga til samn-
inga við Araba með þeim skil-
yrðum, sem þeir hafa hingað til
sett. Þessi skilyrði eru svo
ströng, að Israelsríki gæti ekki
staðizt væri að þeim gengið.
Það, sem raunverulega er
krafizt, er það að ísraelsmenn
fremji sjálfsmorð — ef við
hefðum slíkt i huga, gætum við
gert það án samningaviðræðna.
Við viðurkennum, að það er
ekki hægt að leysa þetta mál
nema lausn finnist á málum
Palestínuaraba og líklegasta
lausnin að því leyti væri stofn-
un sérstaks rikis þeirra. Ég
held að þessi hugmynd eigi
vaxandi fylgi að fagna hjá
deiluaðilum um þessar mundir.
Það var ekki Saigon-
stjórninni að kenna hvernig fór
í Vietnam, heldur þeim, sem
rufu samningana, sem gerðir
voru í Paris. Við Israelsmenn
getum ekki farið út í samninga,
sem trúlegt væri að gætu endað
á sama hátt.“
FÍM sýnir
Félag íslenskra myndlistar-
manna hefur opnað sýningarsal
fyrir myndlist I húsakynnum
Byggingarþjónustu Arkitektafé-
lags Islands að Grensásvegi 18
(hús verslunarinnar Málarans).
Þessi salur virðist mjög heppileg-
ur fyrir vissa stærð sýninga, og er
því góður viðbætir við þá sýning-
araðstöðu, sem áður var fyrir
hendi i borginni. Norræna húsið
er ágætt fyrir stórar og veiga-
meiri sýningar og „loftið" fyrir
litlar, og svo eru það Kjarvalsstað-
ir, en eins og stendur er sá staður
í sérflokki.
Það var lítið annað fyrir FlM að
gera en að leita hófanna fyrir
starfsemi sína, þegar þau tré
brustu, sem síst var búist við, og
er það slys harmað af öllum þeim,
sem einhverja sómatilfinningu
hafa á listrænu sviði. Þannig hef-
ur núverandi ástand valdið veru-
legum sársauka bæði meðal al-
mennings og listamanna, að ég
ekki nefni þann ósóma, sem minn-
ingu sjálfs Kjarvals er sýndur.
Mér, sem þetta ritar, er minning
Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals
það heilagt mál, að ég get bókstaf-
lega ekki fengið það af mér að
koma inn fyrir dyr á því húsi, sem
reist var með góðum hug til heið-
urs meistaranum, en hefur nú
verið gert að söluskála alls konar
fiktara í myndlist. Ótrúlegt, að
slíkt skyldi gerast þrjátíu árum
eftir að hin fræga Þorgeirsbola-
orrusta var háð hér I borg. Leitt
er að þurfa að minnast þessara
atvika hér, en einmitt þau eru
orsök þess, að FlM varð að hefjast
handa um aðstöðu fyrir starfsemi
sina, og er það gleðilegt, að það
hefur tekist I samvinnu við húsa-
gerðarmenn, og eiga þeir veruleg-
ar þakkir skilið fyrir að hafa
barna tekið saman höndum við
Eitt af májverkum Sigurðar Sig-
urðssonar.
myndlistarmenn. Samvinna þess-
ara aðila mætti að visu vera nán-
ari en hingað til hefur verið, en
það er önnur saga og kemur ekki
þessu máli við.
Sýningarsalur FlM að Grensás-
vegi er um margt notalegur til
sýningahalds. Þvi er ekki að
neita að aðstaðan mætti vera
betri, en auðvitað þarf að fikra sig
áfram hér sem annars staðar, en
mér list þó mjög vel á staðinn.
Fyrsta sýning, sem FlM hefur
efnt til þarna er samsýning nokk-
urra félagsmanna og má þar líta
28 listaverk eftir átta listamenn.
Sýningin er þannig valin, að hún
er fjölþætt, byggð upp af verkum
nokkuð ólikra listamanna, sem
hver um sig heldur eigin götur, og
hvergi er lögð áhersla á sérstakan
stíl eða listastefnu. Þetta gefur
sýningunni skemmtilegan svip og
þar skapast lifandi andstæður.
sem þó eru miðaðar við vissar
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
kröfur, sem sjálfsagt er að gera til
þeirra.listaverka, sem valin eru
til sýningar í nafni stærstu og
reynslumestu samtaka myndlist-
armanna. Að mínum dómi hefur
þetta val tekist ágætlega, og ég
vonast til, að fleiri sýningar af
svipaðri gerð eigi eftir að koma
frá FlM, og gætu þær orðið snar
þáttur í starfsemi félagsins ásamt
Haustsýningu FlM, sem um lang-
an aldur hefur verið árviss við-
burður í menningarlifi borgarinn-
ar, en sú sýning þarfnast mikils
húsakosts, helst Kjarvalsstaða, en
þar eru myndlistarmenn hins veg-
ar ekki í náðinni sem stendur.
Rennum augum yfir þessa sýn-
ingu. Fyrstur verður fyrir okkur
Gylfi Gislason teiknari. Hann hef-
ur í blóðinu löngun til að deila á
samfélagið og ágætar hugmyndir,
en ef til vill ekki nægilega vel
útfærðar. Það mætti segja mér, að
hér komi i ljós, að hann einfald-
lega vanti þá nauðsynlegu skólun,
Framhald á bís. 31
AÐ KAUPA
VERÐTRYGGÐ
SPARISKlRTEINI RÍKISSJÓÐS
JAFNGILDIR FJÁRFESTINGU
í FASTEIGN
Einfaldasta og hagkvæmasta fjárfestingin
Skatt- og framtalsfrjáls til sölu í öllum bönkum - útibúum
sparisjóðum og hjá nokkrum verðbréfasölum.
Spariskírteini í 1. flokki 1975 eru með grunnvísitölu miðað við 1. mars síðastliðinn,
og verða því aðeins til sölu þar til ný byggingarvísitala tekur gildi
i byrjun næsta mánaðar.
SEÐLABANKI ÍSLANDS