Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JUNI 1975
13
Svæðamót
Nú hefur verið tilkynnt hverjir
mun tefla á svæSamóti A, sem fram
fer I Reykjavlk dagana 19. október
til 11. nóvember næstkomandi.
Keppendur verða þessir: Friðrik
Ólafsson, Jón Kristinsson. Van den
Broeck (Belgia). V. Jansa (Tékkósl ),
H. Westerinen (Finnl.), V. Liberson
(fsrael), Z. Ribli (Ungv.l.), L. Örgaard
(Noregi), H. McGrillen (frland), S.
Hamann (Danm.), Dr. Ostermeyer
(V.-Þýzkal.), E. Laine (Guernesy), J.
Timman (Hollland), B. Parma
(Júgósl.), W.R. Hartston (England).
Eins og þessi upptalning ber með
sér er hér um sterkt mót að ræða, og
vafalaust verður keppnin um tvö efstu
sætin mjög hörð En hverjir koma þá til
greina með að hljóta efstu sætin og
þar með farseðil á millisvæðamót?
Um það er erfitt að spá. Við (slend-
ingar vonum auðvitað að Friðrik Ól-
afsson verði annar hinna útvöldu
og Jón Kristinsson hinn. Ekki
ætti það að teljast nein goðgá
þótt Friðriki sé spáð öðru hinna
tveggja sæta, en hverjir verða
helztu keppendur hans? Sennilega
Liberson og Timman. Liberson er mjög
öflugur stórmeistari, sem nýlega flutt-
ist til ísrael frá Sovétrikjunum Hann
hefur oft’staðið sig mjög vel á mótum I
Sovétrikjunum, og eftir að hann fluttist
til ísrael hefur hann unnið góða sigra.
Er það skemmst að minnast sigurs
hans á skákmótinu í Lone Pine i Kali-
forniu á dögunum. Einnig má geta
þess að i fyrra sigraði Liberson á al-
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
þjóðlegu móti i Feneyjum, þar sem
hann skaut mörgum frægum köppum
ref fyrir rass, þar varð Smyslov i 2.
sæti, en siðan komu Suttles, Anders-
son, Timman, Benkö og Savon.
Hollendingurinn Jan Timman er
ungur og ört vaxandi stórmeistari.
Hann tefldi á Reykjavlkurmótinu 1972
og stóð sig þar með prýði Siðan hefur
Timman oft náðágætum árangri Aðrir
keppendur millisvæðamótsins, sem
einna helzt koma til greina, eru þeir
Jansa, Ribli og Parma. Tveir hinir
fyrsttöldu eru þó mjög mistækir, en
takizt þeim vel upp geta þeir vissulega
stóra hluti. Parma er allra manna ör-
uggastur, en einnig allra manna frið-
samastur. Þess vegna verður að teljast
óliklegt að hann blandi sér i baráttuna
um efstu sætin Aðrir keppendur koma
vart til greina, en aftur á móti má heita
öruggt, að þeir Westerinen, Hamann,
ðgaard og Hartston velgi stórmeistur-
unum eitthvað undir uggum. Þessum
þætti skulum við Ijúka með þvi að
hyggja að skák, sem þeir Timman og
Liberson tefldu á áðurnefndu skákmóti
i Feneyjum i fyrra.
Hvítt: J. H. Timman (Holland)
Svart: V. Liberson (fsrael)
Frönsk vörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. c3
— d5, 4. e5 — Rc6, 5. d4 — Db6,
6. a3 — c4, 7. Rbd2 — Bd7, 8. Be2
— Ra5, 9. 0-0 — Re7, 10. Hbl —
h6, 11. Rh4 — 0-0-0, 12. g3 —
Kb8, 13. Bh5 — g6, 14. Be2 —
Dc7, 15. Rg2 — Bc6, 16. h4 —
Dd7, 17. h5 — Ba4, 18. De1 —
Bc2, 19. Hal — Bg7, 20. Re3 —
Ba4, 21. Bd1 — Bxdl, 22. Dxd1 —
Rf5, 23. Rg2 — Hdg8, 24. g4 —
Re7, 25 Rf4 — f6i, 26. exf6 —
Bxf6, 27. Hel — Rac6l, 28. hxg6
— Rxg6, 29. Rh5 — Bd8, 30. b4 —
Rh4, 31. Kf 1 — Df7, 32. De2 —
Hg6, 33. Rxc4 — bxc4, 34. b5 —
Hg8, 35. Bf4+ — e5, 36. dxe5 —
Dd5, 37. f3? — Hxg4l, 38. fxg4 —
Dhl +, 39. Kf2 — Bb6 + , 40. Kg3
— Rf5 mát.
FLORIDA
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 36.2
Með sófasettinu FLORIDA kynnum við merka
nýjung. Sofinn er jafnframt fullkomið hjónarúm
af beztu gerð, þótt engan gruni við fyrstu sýn,
að um svefnsófa sé að ræða.
KJORGARÐI SÍMI 16975
HEKLAH.F.
lAUGAVEGI 170—172 — SÍMI 21240.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Golf
NÝR BÍLL, SEM BÝÐUR
UPP Á NÝJA MÖGULEIKA
Hann er 3.70 m. langur og
1.60 m. breiður og er því einn
af styttstu og breiðustu bílum í
sínum flokki.
Þó er hann „fullvaxinn" fólksbíll,
reyndar mjög rúmgóður fimm
manna fjölskyldubíll. Farangurs-
rýmið er 350 lítrar, en það er
hægt að stækka um helming
eða í 698 lítra með einu hand-
taki.
Ef þér lítið undir vélarlokið, þá
sjáið þér eina af ástæðunum
fyrir því, að Golfinn er svo stutt-
ur. Vélin er staðsett þversum.
Tvær vélarstærðir er um að
ræða 50 hö og 70 hö. Benzín-
eyðslan er 7—8.9 I. á 1 00 km.
Golfinn er fáanlegur tveggja
dyra og fjögurra dyra, auk aftur-
hurðar.
Golfinn er mikill bíll
áuM og býður upp á mikla
möguleika.
— og þér munið njóta hans vel.
Golf — Volkswagen Compact.
í-s.í LANDSLEIKURINN x.s.í.
ÍSLAND — FÆREYJAR
fer fram á Laugardalsvellinum á morgun mánudaginn 23. júní kl. 20.oo
Dómari Guðjón Finnbogason ^
Línuverðir: Eysteinn Guðmundsson og Hinrik Lárusson
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur frá kl. 19.30
Sala aðgöngumiða frá kl. 13.oo e.h. mánudag í Laugardal.
Fjölmenniö á völlinn og hvetjið ísl. landsliðið til sigurs
Knattspymusamband íslands