Morgunblaðið - 22.06.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1975
Öskast til kaups
Bröyt X 2 B vélgrafa árgerð 1968 —1973.
Upplýsingar veittar hjá Gunnari Ásgeirssyni h.f.
í síma 35200.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum i efni i flugskýli, er reist verður á Reykjavíkur-
flugvelli.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu minni, Reykjavikurflugvelli.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 12 á hádegi, föstudaginn 25.
júli n.k.
Flugmálastjórinn,
Agnar Kofoed-Hansen.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í Grindavík
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með,
að bifreiðar með Ö og G skráningarmerkjum,
sem staðsettar eru í Grindavík verða skoðaðar á
tímabilinu 1. júlí 1975 til 4. júlí 1975 að
báðum dögum meðtöldum.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sínar að Barnaskólanum í Grindavík, og verður
skoðun framkvæmd þar á fyrrgreindum dögum
milli kl. 9.15 — 12.00 og 13.00—16.30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því að bifreiðaiðg/ö/d fyrir árið 1975 séu greidd
og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í
gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður
skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð
þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og
bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Grindavík
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN:
HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa á
hinar ýmsu deildir spítalans til afleys-
inga og í föst störf. Vinna hluta úr fullu
starfi kemur til greina. Upplýsingar
veitir forstöðukonan, sími 38160.
FÓSTRAóskast á dagheimili fyrir börn
starfsfólks spítalans nú þegar eða eftir
samkomulagi. Upplýsingar veitir for-
stöðukonan, sími 38100.
Reykjavík, 20. júní 1 975.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
HBIRGÐAVÖRÐUR
í ÁHALDAHÚS
Starf birgðavarðar í Áhaldahúsi Seltjarnarnes-
bæjar er auglýst laust til umsóknar. Upplýs-
ingar veittar á bæjarskrifstofunni Seltjarnar-
nesi.
Bæjarstjóri
Háskóli íslands
óskar eftir 2ja eða 3ja herb. íbúð til leigu handa
erlendum kennara í 1 ár frá 1. júlí 1975.
Nánari upplýsingar veittar í síma 20269 eða
15804.
Einbýlishús óskast
Okkur hefur verið falið að auglýsa sérstaklega
eftir 150—170 fm nýlegu einbýlishúsi helst í
Reykjavík. Útb. 9 til 10 millj.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.
Fasteignasalan Norðurveri,
simar 21870 — 20998.
Nýtísku karlmannaföt
falleg og vönduð kr. 9080,-
terelynebuxur frá kr 2275.-
terelynefrakkar kr. 3550.-
stakir jakkar 2975.-
denim buxur nr. 4—14 kr. 1175.- 1555.-
sumarblússur nr. 6—44 kr. 775. 1275.-
úlpur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22.
Rannsóknastyrkir
frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna
Matvæla- og landbúnaðarstofnur. Sameinuðu þjóðanna (FAO) veitir árlega
nokkra rannsóknastyrki sem kenndir eru við André Mayer. Styrkirnir eru
bundnir við það svið, sem starfsemi stofnunarinnar tekur til, þ.e. ýmsar
greinar landbúnaðar, skógrækt, fiskveiðar og matvælafræði, svo og
haffræðilegar rannsóknir á þeim vettvangi. Auglýst hefur verið eftir
umsóknum um styrki þá, sem til úthlutunar koma á árinu 1975. Skal
umsóknum hér á landi komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 5. júlí n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu
svo og nánari upplýsingar um styrkina ásamt skrá um rannsóknaverkefni,
sem FAO hefur lýst sérstökum áhuga á i sambandi við styrkveitingar að
þessu sinni. — Tekið skal fram, að ekki er vitað fyrir fram, hvort nokkur
styrkjanna kemur i hlut íslands á þessu ári.
Menntamálaráðuneytið.
1 6. júni 1 975.
Málverkasýning
Danski listmálarinn
Poul Hansen
sýnir í Norræna húsinu 21.—29. júní.
Opið kl. 14—22.
NORRíNA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
BREYTTUR
SKRIFSTOFUTÍMI
Yfir sumarmánuðina eða til 1. okt. n.k. er
skrifstofutími frá kl. 8.00 til kl. 16.05 mánu-
daga til föstudaga. Engin breyting verður á
opnunartíma afgreiðslu né útborgunartíma
reikninga frá því sem verið hefur.
Reykjavík 18. /úní 1975
Skrifstofa ríkisspítalanna
Húnvetningar —
Húnvetningar
Húnvetningafélagið í Reykjavík áætlar ferðalag
í heimabyggð. Farið verður frá B.S.Í. e.h. þann
4. júlí n.k.
Upplýsingar i símum: 81981,73379, 83776.
Evrópumótið i bridge fyrir
ári8 1975 fer fram f Brighton i
Englandi dagana 13. til 27. júli
n.k. Mótið fer hið 25,1 röSinni.
íslenzk sveit keppir I opna flokkn-
um og er þaS I 18. sinn sem
Islenzkir bridgespilarar keppa I
Evrópumóti. Sveitin sem keppir
að þessu sinni er þannig skipuð:
Hallur Slmonarson, Þórir
Sigurðsson, Jakob Möller, Jón
Baldursson, Stefán J.
Guðjohnsen og Simon Simonar-
son.
Tii gamans skulu rifjuð upp
úrslit frá siðustu Evrópumótum.
Árið 1971 fór mótið fram i
Aþenu. Þar sigraði ftalfa, hlaut
379 stig, en Bretland varð i 2.
sæti með 314 stig. fslenzka
sveitin varð nr. 14 af 22
keppendum, með 193 stig.
Árið 1973 fór mótið fram í
Ostende. Þar sigraði ftalia, hlaut
379 stig, en Frakkland varð i 2.
sæti, með 329 stig. fslenzka
sveitin varð nr. 14 af 23
keppendum, hlaut 221 stig.
Árið 1974 fór mótið fram i
fsrael. Þar sigraði Frakkland,
hlaut 276 stig, en ftalía varð i 2.
sæti með 274 stig. fslenzka
sveitin varð nr. 14 af 19
keppendum og hlaut 147 stig.
I sambandi við mótið, sem
fram fer í Brighton i næsta
mánuði, verður gefið út frétta-
blað með upplýsingum um mótið
og sagt frá spilum í mótinu.
Lesendur geta gerzt áskrifendur
af þessu fréttablaði og kostar
áskriftin £. 3.00. Tilkynningu ber
að senda til European Bridge
Union, 15b High Street, Thame,
Oxon, England.
Frá Bridgefélagi Blönduóss
Sveitakeppni félagsins hófst
10. janúar og lauk 28. febrúar.
Úrslit urðu þau að sveit Sigurðar
H. Þorsteinssonar sigraði, hlaut
109 stig. Röð annarra sveita varð
þessi:
Sveit
Hallbjörns Kristjánssonar 83
Guðmundar Theodórssonar 80
Þorsteins Péturssonar 42
Birgitte Vilhelmsdóttur 40
Sigurðar Kr. Jónssonar 37
Júlíus Fossdal 29
0 0 0
Tiu pör tóku þátt i bikarkeppni
BSf 24. janúar sl.
0 0 0
Minningarmót var haldið um
Ara Hermannsson og Jónas Hall-
dórsson. Spilaður var einmenn-
ingur i þrjú kvöld. Ari H. Einars-
son varð hlutskarpastur af 24
keppendum, hlaut 546 stig. Röð
efstu manna varð þessi:
Guðbjartur Guðmundsson 542
Sveinn Ellertsson 530
Þórunn Pétursdóttir 529
Bergur Felixson 523
Friðrik Indriðason 517
Keppt var um veglegan farand
bikar, gefinn af Trésmiðjunni
Fróða hf.
0 0 0
Meistarakeppni i tvimenning
fór fram 4. —18. apríl. Henni
lauk þannig að Ari H. Einarsson
og Hallbjörn Kristjánsson sigruðu
naumlega og hrifsuðu titilinn af
Sigurði H. Þorsteinssyni og Vigni
Einarssyni sem voru 25 stigum
hærri fyrir síðustu umferðina. Ari
og Hallbjörn hlutu 364 stig en
Sigurður og Vignir hlutu 363
stig. Röð næstu para varð þessi:
Eggert Guðmundsson
— Einar Einarsson 354
Friðrik Indriðason
— Björn Friðriksson 331
Knútur Berndsen
— Þormóður Pétursson 330
Birgitte Vilhelmsdóttir
— Sigurlaug Hermannsdóttir
314
Tvfmenningskeppnin var jafn-
framt siðasta keppni vetrarins.