Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNI 1975
jITYINNjí áTY
Bifreiðastjóri
Óskum að ráða vanan bifreiðastjóra nú
þegar.
Uppl. gefur Þórarinn Öfjörð.
Vélsmiðjan Héðinn h. f.,
sími 24260.
Bókbindari
bókbindari óskast. Góð vinnuskilyrði.
Upplýsingar gefur Bragi Þórðarson,
prentsmiðjustjóri.
Prentverk Akraness h/ f.
Verslunarstjóri
Vanur verslunarstjóri óskast við
byggingavöruverslun. Farið með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt:
Framtíðarstarf — 6989.
Prjónakonur
Kaupum vandaðar lopapeysur með tvö-
földum kraga. Móttaka þriðjudaginn
24/6 og þriðjudaginn 1 /7 kl. 16 —18.
GRÁFELDUR H/F,
Ingólfsstræti 5, Reykjavík.
Sími 26540.
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða nú þegar eða frá næstu
mánaðamótum eftirlitsmann með bygg-
ingu steyptra undirstaða.
Skilyrði er að viðkomandi kunni að
meðhöndla mælitæki.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 116,
Reykjavík.
Málmiðnaðarmenn
íslenzka Álfélagið óskar eftir að ráða
nokkra járniðnaðarmenn og rafsuðumenn
nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri,
sími 52365.
Upisóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík og
bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst í póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
íslenzka Álfélagið h. f.,
Straumsvík.
Einkaritari
Óskum að ráða stúlku á skrifstofu vora.
Hér er um að ræða sjálfstætt starf, sem
býður upp á mikla fjölbreytni. Góð
frönsku- og enskukunnátta er nauðsyn-
leg, svo og leikni í vélritun. Vinnustaður í
hjarta borgarinnar. Mjög hentugur vinnu-
tími. Laun samkvæmt kjarasamningum
verzlunarmanna. Æskilegt væri, að
umsækjandi gæti hafið störf 1. júlí.
Umsóknir sendist Morgunblaðinu sem
fyrst merkt: „Einkaritari — 6990."
Hjukrunarkona
óskast að Skálatúnsheimilinu Mosfells-
sveit. Húsnæði og fæði á staðnum ef
óskað er. Nánari uppl. veitir forstöðumað-
ur í síma 66249.
Stjórn Skála túnsheimilisins.
Kjötafgreiðsla
Óskum að ráða vana afgreiðslustúlku til
starfa í sumar.
Kjötbúð Suðurvers,
Stigahlíð 45—4 7.
Blikksmiður eða
járnsmiður
óskast strax.
Blikksmiðja Gylfa
sími 83121.
Plötusmiði og
rafsuðumenn
vantar nú þegar til starfa utan Reykja-
víkur. Þeir, sem hafa áhuga leggi tilboð
inn á afgr. Mbl. með upplýsingum um
aldur og starfsreynslu merkt: „ákvæðis-
vinna —2663".
Raftæknar-
Rafvirkjar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að
ráða rafvirkja með próf frá Raftæknadeild
Tækniskóla íslands eða Rafmagnsdeild
Vélskóla íslands eða með hliðstæða
menntun, til eftirlitsstarfa.
Umsóknareyðublöð og nánari uppl. fást á
skrifstofu Rafmagnsveitunnar, Hafnar-
húsinu 4. hæð. Umsóknarfrestur er til
30. júní 1975.
Rafmagnsveita Reykjavíkur.
Laus staða
Kennarastaða á félagsfræðakjörsviði við Menntaskólann á
ísafirði er laus til umsóknar. Kennslugreinar eru bókfærsla,
rekstrar- og þjóðhagsfræði, reikningshald og stjórnun.
Viðskiptafræði- eða hagfræðimenntun æskileg. Laun sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Skólinn mun aðstoða
við útvegun húsnæðis.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu
hafa borist menn.tamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík,
fyrir 1 9. júlí n.k. Umsóknareyðublöð fást i Ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
20. júní 1975.
Verzlunarstjóri
óskast fyrir stóra sérverzlun sem opnuð verður i miðborginni í
haust.
Leitað er eftir karli eða konu sem hefur áhuga fyrir að byggja
upp þessa rtýju verzlun. Viðkomandi þarf að hafa nokkra
málakunnáttu, hafa hugvitssemi og dugnað til að bera.
Viðkomandi þyrfti helzt að geta hafið störf i september/októ-
ber.
Við bjóðum góð laun, en kaup og kjör mundu að nokkru
miðast við árangur i starfinu.
Farið verður með umsóknir sem algjört trúnaðarmál.
Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 30. þ.m. Merkt: Sér-
verzlun 2661.
Kranamaður óskast
á Allen krana.
Uppl. í síma 51 1 98.
Ung stúlka
með gagnfræðapróf úr verzlunardeild
Hagaskólans og þýzku og enskukunnáttu,
óskar eftir vinnu strax eða innan tveggja
mánaða. Hringið í síma 1 7821.
IMokkrir vanir
kranamenn
óskast til starfa strax. Einnig nokkrir járn-
iðnaðarmenn.
Upplýsingar í síma 1 1 790, þriðjudag og
miðvikudag 24. og 25. þ.m. Einnig á
skrifstofu vorri á Keflavíkurflugvelli.
íslenzkir aðalverktakar s. f.
Innflutnings- og
iðnfyrirtæki
óskar að ráða skrifstofustúlku. Starfið
útheimtir góða vélritunar- og enskukunn-
áttu. Hálfs dags starf (eftir hádegi) gæti
komið til greina.
Umsókn sendist Mbl. fyrir 26. þ.m.
merkt: „Telex — 6988."
Bæjarstjóri
Hér með er auglýst laust til umsóknar
starf bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri
störf og launakröfur, sendist bæjarráði
Vestmannaeyja fyrir 1 0. júlí n.k.
Vestmannaeyjum 18. júní 1975
Bæjarstjóri.
Framtíðarstarf
Óskum að ráða trésmiði og lagtæka
menn, helst vana bekkvinnu, til framtíðar-
starfa. Gott kaup fyrir rétta menn.
Yngri menn en 20 ára koma ekki til
greina.
Hurðaiðjan s. f.
Kársnesbraut 98, Kópavogi
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða rafgæslumann með aðsetri á
Breiðdalsvík.
Umsóknir sendist til rafveitustjórans á
Austurlandi Selási 8, Egilsstaðakauptúni
eða til Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 116, Reykjavík.