Morgunblaðið - 22.06.1975, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JUNl 1975
+
Þökkum samúð og vinarhug vegna andláts,
MAGNEU INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR.
Guðmundur Kr. Símonarson
Hulda Guðmundsdóttir og Kristjén Benjamínsson
Gyða Guðmundsdóttir og Haraldur Baldursson
Adolf Guðmundsson og Erla Þórðardóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
ÓLAFS HÁKONAR HÁKONARSONAR
Ástrfður Ólafsdóttir Kristján Guðlaugsson
Hákon Ólafsson, Svava Ingimundardóttir
Magnússina Ólafsdóttir, Sigurjón Páisson
Katrín Ólafsdóttir, Elías Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
BJARNA BJARNASONAR
Sigríður M. Jónsdóttir
Unnur Bjarnadóttir Sigurður Sigurjónsson
Þorbjörg Sigurðardóttir
Sigriður M. Sigurðardóttir Sigurður St. Arnalds
Sigurður R. Arnalds
Faðir okkar
GUNNAR E. KVARAN,
stórkaupmaður,
Smáragötu 6.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 24. júní kl 14.00
Ragnhildur Kvaran
Gunnar Kvaran
Ragnar Kvaran
Einar G. Kvaran
t
Maðurinn minn,
MAGNÚS SIGURÐSSON,
Laugaveg 76,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júní kl. 13.30
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Fyrir hönd vandamanna, _. ,* ., .
' Sigríður Petursdóttir.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður
okkar,
SIGRfÐAR BJÖRNSDÓTTUR,
frá Miklabæ,
Guðfinna Eirlksdóttir, Jón Eiríksson,
Stefanla Eiriksdóttir. Friðrik Eirlksson,
Ásta Eiriksdóttir, Ragnar Eiriksson.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
AMALfU K. ÞORLEIFSDÓTTUR,
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Magnúsdóttir,
Guðrlður Magnúsdóttir.
+
Minningarathöfn um móðurokkar,
GUNNARÍNU GESTSDÓTTUR
frá Holti,
Álftaveri,
verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 23 júní kl. 3. Jarðsett
verður frá Þykkvabæjarklausturskirkju föstudaginn 27 júní. Athöfnin
hefst með húskveðju að heimili sonar hennar að Jórvík kl 1. Blóm og
kransar vinsamlega afþökkuð, enþeim, sem vildu minnast hinnar látnu,
er bent á líknarstofnanir.
Börn hinnar látnu.
+
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HILDUR ÞÓRA ÞÓRARINSDÓTTIR,
frá Lundi, Vestmannaeyjum,
Vesturgötu 50 A, Reykjavlk.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 24. júni kl. 3 e.h.
Þórarinn Hallbjörnsson,
Hallbjörn Þórarinsson, Helga Sigurðardóttir,
Matthildur Þórarinsdóttir, Þórir Svansson,
Hlif Þórarinsdóttir, Ólafur Ólafsson.
og barnabörn.
Scania til sölu
Til sölu Scania LBS 110 með svefnhúsi og
palli, árg. '72. Bifreiðin er til sýnis að Reykja-
nesbraut 12. Nánari uppl. hjá okkur
Scania umboðið, ísarn h.f., Reykjanesbraut 12,
sími 20720.
Laxá í Kjós.
Nokkur veiðileyfi laus fyrri hluta júlímánaðar.
Upplýsingar í Pólaris h.f., Áusturstræti 18,
símar 21085 og 21388.
Rafstöð til leigu
Höfum til leigu sérlega vel búna dieselrafstöð
37 kVA, 380/220 V.
Höfum einnig til sölu nýja dieselrafstöð af sömu
gerð (Ford dieselvél).
ORKA H.F.,
SÍM/ 38000.
Bifreiðaskoðun í Kópavogi
Bifreiðaeigendur i Kópavogi eru minntir á að bifreiðaskoðun lýkur um
næstu mánaðamót. Byrjað er að stöðva óskoðaðar bifreiðir og eftir 1.
júli verða allar óskoðaðar bifreiðir teknar úr umferð.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Iðnaðar-------verzlunar — verk
smiðju — og skrifstofuhús-
næði
á góðum stað skammt frá Miðborginni. Húsnæðið er um 1400 ferm.
Innkeyrsla. Hentugt fyrir hvers konar starfsemi og rekstur. Frekari
upplýsingar á skrifstofunni. Ekki í sima.
Eignamiðlunin,
Vonarstræti 12,
sími 27711.
WtTJAWWARW»
Wm HÚSVÖRÐUR —
VALHÚSASKÓLI
Óskum eftir að ráða húsvörð að Valhúsaskóla
nú þegar. Aðeins duglegur og reglusamur
maður kemur til greina. Upplýsingar veittar á
bæjarskrifstofunni Seltjarnarnesi.
Bæjarstjóri.
Ul ÚTBOÐ
Tilboð óskast i jarðvinnu á fyrirhugsuðu iþróttasvæði i Fossvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, gegn
1 0.000.— kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 9. júli 1975, kl.
1 1.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Einbýlishús í Ólafsvík
Til sölu nýtt einbýlishúS í Ólafsvík. Á hæðinni
3—4 svefnherb., stofa, eldhús og bað, í kjall-
ara bílskúr, geymslur og lítil 2ja herb. íbúð.
Hugsanlegt að taka 2ja herb. íbúð í Reykjavík
upp í. Upplýsingar veitir Jónatan Sveinsson,
lögfr. sími 83058 í Reykjavík.
r
Islenzkar
lækninga-
og drykkjar-
jurtir
Björn L. Jónsson tók saman.
13. rit Náttúrulækninga-
félags Islands.
Þessi litla en mjög fróðlega bók
kom út fyrir nokkru, og hefir
höfundur hennar, Björn L. Jóns-
son læknir, sótt heimildir í ýmis
gömul rit um þessi efni.
Kver þetta lætur ekki mikið
yfir sér, en segja má að þar kenni
margra grasa, og þar er nytsaman
fróðleik að finna sem margir
hefðu gott af að kynnast og hag-
nýta sér. Og allur er frágangur
bókarinnar hinn vandaðasti.
Höfundur hefir aðallega stuðzt
við Iitið kver, er nefnist „Islenzk-
ar drykkjarjurtir“ og kom út á
Akureyri árið 1860, eftir þing-
eyskan bónda, Alexander Bjarna-
son að nafni, en fróðleik sinn sótti
hann í rit Iækna og annarra
fróðra manna. Meðal þeirra má
nefna læknana Odd Hjaltalín, Jón
Pétursson og Svein Pálsson og
auk þess Björn prófast Halldórs-
son. Markmið Alexanders var
fyrst og fremst að vinna á móti
vaxandi kaffineyzlu landsmanna
með leiðbeiningum um söfnun
islenzkra nytjajurta, sem nota
mætti með góðum árangri í
heilnæma drykki I stað kaffis.
Hvað mætti þá segja nú á okkar
dögum, þar sem kaffineyzla hefir
margfaldazt frá þessum tíma, og
það er engum efa bundið að eitur-
efni þau sem í kaffi er að finna,
eru skaðleg heilsu manna, eins og
öll önnur eiturefni.
Bókin skiptist i sjö kafla. Eftir
inngang um aðdraganda að út-
gáfu bókarinnar og heimildir
koma leiðbeiningar um söfnun
jurta, hvar og hvenær þær skuli
teknar og hvaða hlutar þeirra,
blöð, blóm, fræ eða rætur. Þá er
rætt um þurrkun og geymslu jurt-
anna, og i 4. kafla eru leiðbein-
ingar um notkun þeirra, hvernig
jurtadrykkir eru lagaðir til al-
mennrar neyzlu eða til lækninga,
hvernig bakstrar eru búnir til
o.s.frv. 1 5. kafla er skýrt frá
verkunum jurtanna á líkamann,
og 6. kafli fræðir lesendur um
ýmsar jurtablöndur til drykkjar.
I 7. og lengsta kafianum eru
loks taldar upp yfir 60 jurtir, með
islenzku nafni og hinu latneska
heiti þeirra, skýrt frá vaxtarstað
þeirra og blómgunartíma, hvenær
heppilegast er að taka þær og
lýsing á áhrifum þeirra á lifs-
störfin. Og það eykur mikið á
gildi bókarinnar að myndir eru af
flestum jurtunum, og eru þær
allar úr „Islenzkri ferðaflóru" eft-
ir prófessor Askel Löve, teikn-
aðar af Dagný Tande Lid.
I bókarlok er skrá yfir jurtirnar
eftir stafrófsröð og önnur skrá
yfir verkanir þeirra í ýmsum
sjúkdómum.
Öskandi væri að þessi litla bók
vekti forvitni og áhuga manna á
að hagnýta sér íslenzkar jurtir til
matar og drykkjar, og væri það
spor I rétta átt til heilnæmari
lifnaðarhátta. Frá alda öðli hafa'
grasalækningar tíðkazt, bæði er-
lendis og hérlendis, með góðum
árangri, enda mörg lyf unnin úr
jurtum. Þeim fækkar nú óðum
sem leggja stund á söfnun jurta.
Aður fyrr þótti það sjálfsagður
hlutur að safna fjallagrösum til
vetrarforða, og við sjávarsíðuna
voru söl víða notuð til matar. Með
breyttum lifnaðarháttum og vax-
andi velmegun hefir þetta lagzt
niður að mestu, því miður. Ber
þvi að þakka höfundi og út-
gefanda bókarinnar fyrir þær
leiðbeiningar sem hún hefir að
geyma um notkun íslenzkra lækn-
inga- og drykkjarjurta.
Dagbjört Jónsdóttir
húsmæðrakennari.
AUGI.YSIN<;ASIMINN ER: Í=T^.
22480 ^