Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 31
Veggskildir með
mynd Stephans G.
GERÐUR hefur verið sérstakur
veggsjöldur f tilefni af aldaraf-
mæli Islendingabyggðar í Vestur-
heimi. Er skjöldurinn með mynd
af Stephan G. Stephanssyni og
heimili hans 1 Alberta. Þá eru á
skildinum vfsuorðin „Þo þú lang-
förufl legðir sérhvert fand undir
fót“.
Þórhildur Jónsdóttir teiknaði
myndina á veggskjöldinn, en Stef-
án Arnason á Syðri-Reykjum í
Biskupstungum gerði hann. Stef-
án er garðyrkjubóndi, en árið
1973 kom hann sér upp postulins-
brennslu Gerði hann m.a. marga
skildi fyrir ýmsa aðila í tilefni af
þjóðhátíðarárinu 1974.
Þegar er ljóst að margir þátt-
takendur í hópferðinni á aldaraf-
mæli Islendingabyggðar í Vestur-
heimi taka veggskjöldinn með sér
til gjafa, og er séráletrun á bak-
hlið fyrir þátttakendur í bænda-
förinni. Búnaðarfélagið og Stétt-
arsambandið fá skildina með
þeirri áletrun, en skildi með ann-
arri áfetrun selur Stefán i
Rammagerðinni.
— FÍM sýnir
Framhald af bls. 11
sem þarf til að geta túlkað hug-
myndir á eftirminnilegan hátt, en
það er nútímakvilii, sem algengur
er víðar en hér á landi. — Bene-
dikt Gunnarsson sýnir 5 olíumál-
verk, sem öll eru nokkuð í sama
dúr og bera greinileg höfundar-
merki Benedikts: samanþjappað-
an litsvip, örugglega unnið. —
Matthea Jónsdóttir heldur klass-
ískum tón í verkum sinum, sem
öll eru frá árinu 1974, keimlik, en
þægileg i lit. — Sigurður Sigurðs-
son á þarna þrjú oliumálverk,
sem vekja verðskuldaða eftirtekt.
Hann blómstrar á þessari sýn-
ingu, og verk hans eru hvert öðru
betra sem málverk. — Kjartan
Guðjónsson sýnir nokkrar
guachemyndir, sem eru einkenn-
andi fyrir hinn rökvissa og ör-
ugga málara, hnitmiðuð og spil-
andi myndbygging i sterkum og
hreinum tón. — Hjörleifur Sig-
urðsson sýnir aðeins tvö verk:
olíumálverk og vatnslitamynd.
Þessi verk eru byggð upp á svip-
aðan hátt, en ólik i eðli sinu.
Vatnslitaverkið finnst mér mun
merkilegra en olíumyndin. —
Björgvin Sigurgeir Haraldsson
teiknar á hvítan grunn með svört-
um olíulit og nær lífi og skemmti-
legum áhrifum, þegar best lætur.
— Elias B. Halldórsson notar
hrjúfa og oft safarika áferð í oliu-
málverkum sinum, sem eru byggð
upp af hispursleysi í formi og lit.
Þetta er i heild falleg og
skemmtileg sýning, fordómalaus
og fersk. FlM á þakkir skilið fyrir
þessa tímabæru sýningu.
Valtýr Pétursson.
Kerndum
verndúín
votlendi
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JUNl 1975
31
Electrolux
eldhúsið innréttingin og heimilistækin
allt frá ELECTROLUX
■
li' 1 I.-.iii .:. h 1 í%TY
m ■■■
Eldhúsinnrétting úraski. Litir: Blábæsuð, grænbæsuð, Ijós.
Fura: Ljós eða bæsuð blá, rauð, græn og brún. Lökkuð: Orange, hvft, gul, græn og brún.
Einnig fást skápar í svefnherbergin, baðherbergin, forstofuna o.fl.
Komið með teikningu af húsinu og við gerum
tilboð í innréttinguna yður að kostnaðarlausu.
Hagstæðir greiðsluskilmálar. Sérstök kjör veitt
þeim, sem kaupa bæði innréttingar og heimilis
tæki.
Vörumarkaðurinn hf.
| Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2 Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-113