Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNI 1975
33
fclk f
fréttum
+ Gryfja bjarndýranna f dýra-
garðinum í Nyköbing f Dan-
mörku er stórhættuleg. A að-
eins örfáum mánuðum hefur
þrennt slasast þar. Fyrir nokkr-
um mánuðum ætlaði kona ein
að klappa einum birninum sem
nfði í hönd hennar og slasaði
hana illa. t maf s.l. komst
lögreglan f málið, þegar annar
gestur í dyragarðinum slasaðist
illa á hendi. Eftir það slys
samdi læknir dýragarðsins
skýrslu um málin sem hann
sendi lögrcglunni en hún náði
ekki að gera neitt í málinu þvf
aðeins nokkrum dögum seinna
varð þriðja slysið og það hroða-
legasta. Leif Wilhelm Schytz,
23ja ára gamall var í skemmti-
ferð í dýragarðinum með hóp
af fólki, og ætlaði hann að
klappa birninum „Peter“ á
kollinn. Björninn náði í hend-
ina á honum og þó að cinn af
fararstjórum hópsins togaði á
móti, var björninn sterkari.
Leif hrapaði ofan í gryfjuna og
lenti á einu bjarndýrinu. Það
hefur Ifklega bjargað lffi hans,
því ef hann hefði Ient á stein-
gólfinu og rotast þá hefðu
bjarndýrin bitið hann á háls.
Það reyndu þau næstu mfnút-
urnar, en maðurinn reyndi ör-
væntingarfullur að verja sig.
„Vertu rólegur, vertu rólegur,
bangsi minn,“ bað hann. Birn-
irnir rifu utan af honum fötin
og bitu hann í axlirnar. Birnan
dró hann upp á steinvegg, en
áður en henni tókst að koma
Leif inn f holuna sfna, kastaði
einn gestanna f dyragarðinum
stiga niður til Leifs. Hann hélt
sér dauðahaldi I stigann en
bjarndýrin toguðu á móti. Þeg-
ar svo eitt bjarndýrið beit f
magann á honum, vaið hann
hljóðandi að sleppa stiganum.
Það voru margir gestir vitni að
slysinu en allir voru svo
skelfingu lostnir, að engum
datt i hug að sækja hjálp. Það
var ekki fyrr en stjórnandinn
stökk ofan í gryfjuna með járn-
stöng, að bjarndýrin slepptu
taki sfnu á Leif, sem þá hafði
misst mcðvitund. Ilann er mjög
alvarlega slasaður, að vfsu er
hann livergi brotinn en nánast
allur tættur f sundur. Strax eft-
ir þcnnan atburð var ákveðið að
setja grind yfir gryfjuna.
+ Þýzka sjónvarpsstjarnan,
hægri hönd ERICODE, sem lék
„DER KOMMISAR" í sjón-
varpsþáttunum og sá sem
konurnar dáðust mest að,
Fritz Wepper hefur nú til-
kynnt að hann hyggist
ganga f það heilata á næst-
unni. Sú lukkulega er prins-
essa Angela von Hohen-
zollern. Þessi vinsæli pip-
arsveinn hefur áður hafnað
fjölda bónorða frá hrifnum
konum, en hann var ekki I
neinum vafa þcgar Angcla
hrósaði honum dag nokkurn
fyrir hlutvcrk hans f
„Kommissæren" og bætti þvf
svo við að hún hefði fallið fyrir
honum. „Það er gagnkvæmt,"
sagði hann, og dætur Angelu
þær Valerie og Stephanie fá nú
nýjan föður. Þær hafa í tvö ár
saknað þess að hafa karlmann í
húsinu, eftir að faðir þeirra,
Ferfried prins af
Hohenzollern, yfirgaf hús og
heimili. Angela býr f glæsilegu
húsi í Miinchen, en parið hefur
ennþá ekki ákveðið hvar þau
ætla að búa. „Það mikilvægasta
cr að við skiljum hvort annað
svo vel,“ segir Wepper ... Ja,
hann um það.
+ Gerald Ford forseti Banda-
rfkjanna er mikill aðdáandi
kvenlegrar fegurðai'. Og honum
finnst ails ekki, að hann þurfi
neitt að fara f launkofa með
það, þó að hann hafi það starf
með höndum að vera forseti.
Þetta kom í ljós fyrir skömmu,
þegar sænska kynbomban Ann-
Margret skemmti í Hvfta hús-
inu f veizlu sem haldin var til
heiðurs keisaranum f Iran.
Ann-Margret sagði síðar, að
henni hefði fundisl forsetinn
„sérstaklega sjarmerandi".
Gulur,rauóur,
grænn&blár
Brauðlvx'r Ér
gerðuraf
^ meistarans
# höndum
Kráin isbúð
VIÐ HLEMMTORG