Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 40
ALLTÁ EINUM STAÐ
83155
iM 83354
IÐNVALb OLHOLTI4
BYGGINGA ÞJÓNUSTA REYKJAVÍK
SUNNUDAGUR 22. JUNÍ 1975
Krfisuvíkurbiarq:
Rússneskt dufl
Ljósm. Mbl. Guðfinnur Bergsson.
DUFLIÐ — Þetta er rússneska duflið sem skipverjarnir á Kára fundu út af
Krýsuvíkurbjargi í fyrradag.
Níu skuttogarar í smíðum —
Kaup á fjórum er í athugun
fannst
SKIPVERJAR á togaran-
um Kára GK 146 frá
Grindavik fundu á föstu-
dag rússneskt hlustunar-
dufl á reki í Hælsvík, sem
er vestast í Krýsuvíkur-
bjargi. Tóku þeir duflið
innbyrðis og komu með það
til Grindavíkur um kvöld-
ið. Var duflið í gæzlu lög-
reglunnar í Grindavík í
fyrrinótt en í gærmorgun
var það flutt til geymzlu á
Keflavíkurflugvöll sam-
kvæmt beiðni bæjarfóget-
ans í Keflavík. Þetta mun
vera fimmta rússneska
hlustunarduflið sem rekur
hér á land á þessu ári.
Guðfinnur Bergsson, fréttarit-
ari Mbl. i Grindavik tjáði blaðinu
í gær, að Kári hefði verið á tog-
veiðum undan Krýsuvikurbjargi
á föstudaginn. Sfðdegis átti bátur-
inn erindi inn íHælsvík.og sáu
skipverjar þá duflið á floti og
tóku það upp í bátinn. Að sögn
Guðfinns er duflið nákvæmlega
Landhelgisgæzlan hefur
nú í tvo sólarhringa verið
að eltast við bíræfinn land-
helgisbrjót frá Hvamms-
tanga, en það er vélbátur-
inn Fróði. Fyrst var bátur-
inn staðinn að ólöglegum
veiðum langt inni á Axar-
firði, með rækjutrollið úti,
en þar er rækjuveiði sem
kunnugt er bönnuð um
þessar mundir og báturinn
aldrei haft leyfi til rækju-
veiða á þeim slóðum. Það
voru skipstjórnarlærðir
menn á Kópaskeri sem
staðsettu bátinn og kærðu
er hann var á veíðum á
Axarfirði
Síðan var það I fyrrinótt, að
flugvél Landhelgisgæzlunnar
Storkur-
inn týndur
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við nokkra bæi undir
Eyjafjöllum og spurðist fyrir um
ferðir vinar okkar storksins. Kom
þá í ljós, að menn þar f sveit hafa
ekki orðið varir við ferðir hans
síðan um mánaðamótin síðustu og
ekki hafa borizt fregnir um ferðir
hans í öðrum sveitum. Ekki voru
menn undir Eyjafjöllum á þeirri
skoðun að storkurinn væri dauð-
ur heldur töldu líklegra að hann
héldi sig nú einhvers staðar fjarri
mannabyggðum.
á rekí
sömu tegundar og duflin sem
fundizt hafa fyrr á þessu ári og
myndir birzt af i fjölmiðlum, en
þau dufl eru sem kunnugt er rúss-
nesk að uppruna. Á þessu nýjasta
dufli eru allir hljóðnemar brotnir
af. Guðfinnur sagði að engar á-
letranir hefðu verið sjáanlegar á
duflinu, en hins vegar hefðu litt
greinilegir tölustafir verið grafn-
ir á það. Eftir útlitinu að dæma
taldi Guðfinnur að duflið hefði
ekki legið iengi í sjó.
Skipstjóri á Kára GK er Öskar
Gislason.
EFTIR þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið aflaði
sér í gær, þá er nú búið, á
skömmum tíma, að festa
kaup á eða athuga um
smíði á 13 skuttogurum af
minni gerð, þ.e. 350—500
kom að bátnum, þar sem hann var
á veiðum á Þistilfirði, og sá til
skipverja þar sem þeir voru að
innbyrða veiðarfæri. Á Þistilfirði
er nú stranglega bannað að vera
með botnvörpu, af hvaða tegund
sem er, en á þeim slóðum er mikil
uppeldisstöð ungfisks. Báturinn
var ekki kominn að landi er síðast
fréttist, en beðið var eftir því að
hann kæmi að Iandi.
brúttólestir. Nokkur þess-
ara skipa verða smíðuð
innanlands, sum í Póllandi,
a.m.k. 1 er í smíðum í
Noregi og 1 er nýkominn
þaðan. Ennfremur er vitað
um aðila, sem eru að at-
huga með kaup á 3 notuð-
um skuttogurum frá
Frakklandi. Kaupverð
allra þessara skipa mun
vart verða undir 5 milljörð-
um króna, en um þessar
mundir mun nýr skuttog-
ari af minni gerð kosta
nálægt 400 milljónum kr.
Slippstöðin á Akureyri hefur
þegar hafið smiði á tveimur skut-
og nótaveiðiskipum. I Stálvík er
verið að smíða einn skuttogara og
smíði á öðrum er í undirbúningi.
Þá er verið að byggja þrjá 500
tonna togara i Póilandi, einn er í
smíðum í Flekkefjord í Noregi og
einn, Skinney frá Hornafirði, er
nýkominn þaðan. Kaupverð
Skinneyjar var 12.8 millj. n. kr.
eða 396 millj. ísl. króna og þykir
það mjög gott verð.
Þá hefur blaðið eftir áreiðan-
legum heimildum, að Ötgerðarfé-
lag K.E.A. á Akureyri og Gunnar
I. Hafsteinsson i Reykjavík séu á
höttunum eftir þrem notuðum
skuttogurum frá Frakklandi, ekki
ósvipuðum Barða og Hólmatindi,
HVALVERTÍÐIN hefur
nú staðið í eina viku og á
þessum tíma hafa hvalbát-
arnir komið að með 32
hvali og er þetta einhver
bezta vikuveiði hvalbát-
anna um áratugaskeið. í
gærmorgun höfðu bátarnir
komið með 26 hvali að
landi og tveir bátar voru þá
á leið til lands með þrjá
hvali hvor.
í hvalstöðinni í Hvalfirði
fengum við þær upplýsing-
ar, að vinnslan gengi
þokkalega, en svo ört bær-
ist aflinn að landi, að vart
hefðist undan að vinna
hann, þrátt fyrir að menn
og vélar væru nýtt til hins
ýtrasta.
Hvalirnir sem hafa
veiðzt skiptast þannig eftir
tegundum, að 27 langreyð-
Utanríkisráðherra
mótmælir veiðiað-
ferðum V-Þjóðverja
EINAR Ágústsson kallaói Fuchs,
sendiráðunaut v-þýzka sendiráðs-
ins, á sinn fund i fyrradag og
mótmælti harðlega aðferðum v-
þýzkra skuttogara i islenzkri fisk-
veiðilögsögu. Fuchs mótmælti á
móti og kvað skot varðskipsins
Öðins algjörlega tilhæfulaus, þar
sem togarinn Sagefisch hefði
verið á veiðum á alþjóðlegu haf-
svæði.
sem eru elztu skuttogarar lands-
ins og reynzt hafa mjög vel. Enn-
fremur mun Haraldur Böðvars-
son og Co á Akranesi vera að
athuga meó kaup á skuttogara frá
Noregi.
ur hafa veiðzt, 3 búrhveli
og 2 sandreyður. Þá hafa
hvalbátarnir skipt aflanum
bróðurlega á milli sín, því í
gær voru bátarnir 4 búnir
að fá8 hvali hver.
Hooley hættur
HINN umdeildi og skapmikli
þjálfari Keflavfkurliðsins í knatt-
spyrnu, Joe Hooley, hefur sagt
starfi sfnu lausu og er farinn til
Englands, og er þetta ekki f fyrsta
skipti sem hann hættir fyrirvara-
laust þjálfun knattspyrnuliða.
Guðni Kjartansson og Jón Jó-
hannsson hafa tekið við þjálfun
liðsins og voru með það f fyrsta
skipti á móti FH f gær.
Undirnefnd í
prentaradeilu
SAMNINGAFUNDUR milli
deiluaðila f prentiðnaðinum hófst
á föstudag klukkan 14 og lauk
fundinum um klukkan 17. Skipuð
var undirnefnd sem starfaði fram
til klukkan 19.30, er sáttasemjari
ákvað að til næsta fundar yrði
boðað á þriðjudag klukkan 14.
Hlutverk undirnefndarinnar er
að kanna þau kjör, sem aðrar
stéttir iðnaðarmanna hafa fengið
i nýgerðum kjarasamningum, svo
að unnt sé að samræma þær
hækkanir, sem starfsmenn prent-
iðnaðarins fá, er samningar
takast.
Ljósm. Mbl.: Jakob.
ISBJÖRN — Vélbáturinn Araar frá Olafsfirði kom með fsbjörn-
inn, sem skipverjar skutu á Grfmseyjarsundi f fyrradag, tif
Ölafsfjarðar i fyrrakvöld. Farið var með bangsa í frvstihúsið og
hér sjáum við þá Rafn Ragnarsson skipstjóra og Trausta
Aðalsteinsson með fsbjörninn á milli sfn.
Bíræfinn land-
helgisbrjótur
Góð veiði hvalbátanna:
Eru búnir að fá 32
hvali á sjö dögum