Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 3

Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 3 Öldrykkja vaxandi vanda- mál Norðurlandaœskunnar Strangast eftirlit með ölvun við akstur á íslandi Frá vinstri: Jan Ericson framkvæmdastjóri Bindindisfélags öku- manna f Svfþjóö, Sveinn H. Skúlason og Thorleif Jensen formaður sambands ungtemplara á Norðurlöndum. SVEINN H. Skúlason, sem er I undirbúningsstjórn f.vrir nám- skeiðið, tjáði okkur að 42 út- lendingar væru á námskeiðinu og 21 Islendingur, en á nám- skeiðinu hefur verið samhæfð dagskrá fyrir Norræna ung- templarasambandið annars vegar og hins vegar fyrir hið norræna samband bindindis- félags ökumanna. Námskeiðin eru haldin á veg- um íslenzkra ungtemplara og Bindindisfélags ökumanna. Fyrri hluti námskeiðsins, sem hefur staðið yfir frá s.l. mánu- degi og lýkur í dag, sunnudag, byggðist á þvf að þessi tvö sam- bönd ræddu helztu mál sín sitt I hvoru lagi og var þá að sjálf- sögðu fjallað um umferð og áfengi. Voru útlendu gestunum kynnt æskulýðsmál á Islandi og uppbygging þeirra og áfengís- vandamálið á Islandi í dag. Félög þau sem eiga fulltrúa á þessu móti hafa um 100 þús. félagsmenn innan sinna vé- banda á Norðurlöndum. Næsta ár verður slíkt mót haldið í Færeyjum og að sögn forsvars- manna mótsins hefur það gefið mjög góða raun að hópar frá Norðurlöndunum hittist til þess að ræða hin ýmsu mál, taka afstöðu til þeirra og taka á I baráttunni við þau vandamál sem við er að glíma.,,Til dæmis er sérstakur hópur á mótinu hér sem ræðir um áfengismál Grænlands og barátta gegn hinu slæma ástandi þar verður tekin upp,“ sagði Thorleif Jen- sen formaður sambands norrænna ungtemplara NORGDU. „Það er merkilegt," hélt hann áfram, „að þar sem öl er til á markaði bætist það aðeins við notkun áfengis, það minnkar hana ekki eins og sumir halda, heldur verði ölið algjör viðbót. Sérstaklega á þetta við um æskuna og frjáls- lyndið f meðferð áfengis, sem hefur verið reynt á Norður- löndunum, hefur leitt í ljós þá niðurstöðu að sala áfengis eykst og um leið vandmálin sem áfengisnotkun fylgja. öldrykkja ungs fólk á Norður- löndunum er mjög vaxandi vandamál. Fyrir 10 árum var það ekki yngra fólk en 18—20 ára sem sem neytti öls að ráði en nú er þetta orðið vandamál fyrir allt niður I 12—13 ára gamla unglinga og hvernig verður það eftir 10 ár ef ekki verður spyrnt við fótum? Af Norðurlöndunum er þetta vandamál stærst í Svíþjóð og Finnlandi, en Danmörk og Noregur fylgja fast á eftir. I Noregi t.d. er nú hafin barátta gegn sjálfsölu öls í verzlunum, en í Noregi hafa vandamál vegna öldrykkju unglinga auk- ist um 100% á 15 árum og enn meiri aukning hefur orðið á vandanum í Finnlandi og Sví- þjóð þar sem milliölið er mjög mikið keypt, en verst er þó ástandið í Danmörku miðað við magns hreins áfengis á hvert mannsbarn, en í því efni er Danmörk í 13. sæti af vestræn- um þjóðum um þessar mundir. Hin Norðurlöndin fylgjast að I 24.—28. sæti og er Island þar neðst en fylgir þó röðinni þrátt fyrir að ekki er selt öl hér.“ Jan Ericson framkvæmda- stjóri systurfélags BFÖ í Sví- þjóð sagði i rabbi við Morgun- blaðið að á þessu móti hér hefði mikið verið rætt um öryggismál í umferðinni og þann starfs- vettvang sem unnt er að vinna á til að bæta þar úr. Þá hefur erlendu gestunum verið kynnt hvernig þessi öryggismál eru byggð upp hér á landi. ,,-Við vitum,“ sagði Jan, „að I Svíþjóð eru 2000—3000 alkóhólistar sem aka bil á hverjum degi, en það vantar mjög á að eftirlit sænsku lög- reglunnar I þessum efnum sé nægilegt, bæði hefur það ekki verið nægilega skynsamlega skipulagt og einnig vantar lög- reglumenn til þessara starfa. Þetta er þó aðeins að breytast til hins betra, en maður sem er tekinn ölvaður við akstur í Svf- þjóð verður að greiða allt frá 15 kr. s. upp I 500 kr. sænskar á dag í sektir í ákveðinn tíma, en upphæð sektar á dag fer eftir þeim launum sem maður- inn fær. Sá sem hefur lág laun fær lægri dagsektir, en hinir meira I réttu hlutfalli. Þessar sektir koma til auk þess að viðkomandi missa öku- leyfi I ákveðinn tíma og þessum málum er framfylgt mjög ákveðið. Þeir sem eru teknir með mjög mikið vínmagn f blóð- inu eiga á hættu að lenda f fangelsi allt að mánuð og er það miðað við 1,5 prómill. Á s.l. ári létust 1200 manns í Svíþjóð í umferðarslysum og þar af létust 400 beinlínis vegna ölvunar við akstur, eða um 30%. Þetta vandamál er víðast svipað á Norðurlöndunum, én Island hefur þó sérstöðu sem sýnir sig í því að aðeins 3,5% slysa f umferð má rekja til ölvunar við akstui'. Þetta sýnir að íslenzka lögreglan hlýtur að hafa mjög strangt eftirlit á ölvun við akstur. I Svíþjóð slösuðust 5000 manns mjög alvarlega s.l. ár í umferðarslysum og þar er sama hlutfallið, um 30% af völdum ölvunar ökumanna. Það er nú að hefjast barátta í Svíþjóð þar sem bent er á að akstur bíls og vínnotkun fara ekki saman. Þá hefur barátta í Svíþjóð fyrir notkun öryggisbelta gengið mjög vel en það er nú skylda að hafa bílbelti við akstur. Þetta gekk f gildi 1. jan. s.l. og kannanir hafa sýnt nú að undanförnu að 80% ökumanna nota bílbeltin að staðaldri og á sama tíma hefur fjöldi smærri slysa í umferðinni greinilega minnkað mikið. Það hefur vakið undrun okkar f sambandi Við kynningu á gangi þessara mála á Islandi að ekki skuli vera skylda fyrir ökumenn bifhjóla að hafa hjálma á höfði og einnig að t.d. i jeppakeppnum skuli engar reglur vera t.d. þar að lútandi Framhald á bls. 47. Ljósm. Mbl. Elías Jónsson. SELURINN — Þetta er selurinn sem fannst á Stokksnes- fjöru um síðustu helgi og franskur dýrafræðingur telur að sé ættaður úr Karabískahafi. Selurinn hefur verið djúpfrystur og verður á næstunni sendur til Náttúru- gripasafnsins. — Patty Hearst Framhald af bls. 1 fá dóttur sína heim. Dómarinn ákvað að taka málið á ný fyrir á þriðjudag og kveða þá upp úr- skurð um hvort ungfrú Hearst skyldi látin laus gegn tryggingu. Þegar Patricia var spurð við handtökuna hvað hún starfaði svaraði hún: „Ég er borgarskæru- liði“. Lögfræðingur hennar sagði í dag að hún myndi lýsa sig sak- lausa af ákærum dómsvaldsins, sem eru í 19 liðum, þ. á m. af vopnuðu bankaráni og mannráni. Patriciu Hearst var rænt fyrir 19 mánuðum af félögum úr Symbónesíska frelsishernum en skömmu siðar gekk hún í lið með ræningjum sínum. — Danmörk Framhald af bls. 1 Vísitalan er reiknuð út frá meðal- verði á algengustu neyzluvöru, og hún hefur hækkað sem hér segir það sem af er þessu ári: Janúar: 100.5, febrúar: 100.8, marz: 101.3, april: 101.8, maí: 103.3, júnf: 103.7, júlí: 104.3 og ágúst: 104.5. Ef þróunin frá júlí til ágúst helzt, er verðbólga minni í Dan- mörku en i flestum öðrum löndum Evrópu. — Finnar . Framhald af bls. 1 júní þar sem stjórnarsamstarf Miðflokksins og sósíaldemókrata fór út um þúfur. Þeir fjórir flokkar, sem stóðu að síðustu rfkisstjórn, hafa 107 þingsæti. Þar af hafa sósialdemókratar 56 þing- sæti, Miðflokkurinn 35, frjáls- lyridir sjö og Sænski þjóðar- flokkurinn níu. Af stjórnarandstæðingum hafa kommúnistar flest þingsæti, 37. Ihaldsflokkurinn hefur 33 þing- sæti, Landsbyggðarflokkurinn 18 og önnur þingsæti skiptast milli smærri flokka. — Reuter. — Beirút Framhald af bls. 1 Naameh, á strandveginum sem liggur suður frá Beirút. Stór- skotaárás var gerð á aðalstöðvar flokks falangista i borginni, en engan sakaói. Talsmaður palestfnskra skæru- liða sagði að palestínskir skæru- liðar sem hefðu sótt inn f Líbanon frá Sýrlandi hefðu hörfað aftur til Sýrlands. Þeir fóru til Tripoli- svæðisins samkvæmt samkomu- lagi við stjórnina f Beirút og tals- maðurinn sagði að þeir hefðu hörfað þar sem nú væri allt með kyrrum kjörum f Tripoli. AlKil.VslNCiASÍMINN KK: 22480 JR*rj)itnbl«bit> London Ódýrar vikuferðir: Verð með vikugistingu og morgunverði Verðfrá kr. 38.000.- Sept. 21. og 28. Október. 5 , 12., 18. 1975 1975 1975 1976 1976 1976 Skíðaferð til Lech, Costa Glasgow Austurríki. Del Sol Helgarferðir 15 daga ferð 15 TORREMOLINOS Verð með gistingu janúar. Verð með flug- BENALMADENA og morgunverði ferð, hótelgistingu og frá kr. 24.840.-. hálfu fæði frá kr. Lengið sumarið Október 10. og 24. Nóvember 7 og 21 70 700 - Laus sæti 5 okt KANARÍEYJAFERÐIR 1975- -1976 30 okt. 20. nóv 4. des 1 1. des. 1975 18. des 1975 29. des 1975 8. jan. 1 5. jan 29. jan Ver8 frá kr. 39.800 3 vikur 5. febr. 1976 3 vikur 3 vikur 1 2 feb 1976 3 vikur 2 vikur 26 feb 1976 2 vikur 9 dagar 4 mar. 1976 3 vikur 3 vikur 1 1. mar. 1976 3 vikur 8 dagar 25. mar 1976 3 vikur 3 vikur 1 apr 1976 3 vikur 3 vikur 1 5. apr 1976 2 vikur 2 vikur 22 apr 1976 3 vikur Gististaðir á Playa del Ingles (Ensku strönd- inni) og I Las Palmas. Glsting 1 ibúðum, snáhúsum (bungalows) og á hóteli. Nöfn gististaða: Bungalows: Los Porches / Santa Fe Ibúðir: Broncemar / Protucasa / El Chaparell / Teneguia / Don Carlos Hótel: Hótel Pujol, Las Palmas.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.