Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 27

Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 27 FNLA var stofnuð 1962 og leiðtogi hennar er mótmæland- inn Holden Roberto, sem var viðurkenndur af Einingarsam- tökum Afríkuríkja sem forseti útlagastjórnar Angóla fram til ársins 1971. Hreyfingin var stofnuð upp úr annarri hreyf- ingu Bakongoættbálksins, sem býr skammt frá landamærum Zaire. Holden Roberto hefur varla komið til Angóla frá því að hann var tveggja ára að aldri. Hann hefur aðsetur í Zaire og er Mobuto forseti þar hans helzti stuðningsmaður. UNITA var stofnuð 1966 af hópi manna, sem klauf sig út úr FNLA. Leiðtoginn er dr. Jonas Savimbi, útskrifaður úr sviss- neskum háskóla. Hann þykir hvað viðfeldnastur leiðtoga þessara þriggja hreyfinga, en UNITA er veikasta hreyfingin og átti engan stuðning erlendis né útlagastjórn. Það er einkum Ovimbunduættbálkurinn, stærsti ættbálkur Angóla, sem býr í suðurhluta landsins, sem styður UNITA. Rúmur hálfur mánuður er nú frá því að útlendingum var ráð- legt að koma sér úr landi vegna hættunnar á borgarastyrjöld því að þrátt fyrir að hreyfing- arnar hafi 7 sinnum fallizt á að gera vopnahlé, hefur það aldrei staðið nema nokkra daga og á- tökin í hvert skipti magnazt um allan helming. Um' 600 þúsund hvítir menn bjuggu í Angóla þar til fyrir nokkrum mánuð- um, en nú eru aðeins eftir um 300 þúsund, sem bíða f ofvæni eftir að fá far út úr landinu. Hefur nú Bandaríkjastjórn fall- izt á beiðni Portúgalsstjórnar um að taka sér þessa flutninga, en Portúgalsstjórn reynir nú eftir mætti að finna þessu fólki samastað meðal vinaþjóða sinna, þvl að efnahagsástandið og atvinnuástandið heimafyrir er svo alvarlegt, að það gæti orðið mjög örlagarlkt ef allt þetta fólk kæmi til Portúgals. Talið er Ifklegt að um 100 þús- und manns verði leyft að setj- ast að f Brasilfu. Þegar byltingin í Portúgal var gerð á sl. ári var áætlað að FNLA réði yfir um 15000 skæruliðum, MPLA um 3000 og UNITA aðeins um 700. Nú er talið að FNLA telji um 30000 meðlimi, UNITA um 22000 og MPLA um 17000. Svo virðist, sem marxistahreyfingin MPLA sé einna bezt búin vopnum enda hafa Sovétmenn og Júgó- slavar sent mörg vopnaflutn- ingaskip á síðustu vikum upp að ströndum Angóla, þar sem vopnin hafa verið ferjuð f land, þvf að Portúgalsstjórn leyfir ekki að vopn séu losuð f höfn- um Angóla. FNLA njóta stuðnings Kfn- verja, íhaldssamra Portúgala og að öllum lfkindum Banda- ríkjamanna. Stuðningur Kfn- verja við FNLA á rætur sfnar að rekja til deilu þeirra við Sovétrlkin, og þar sem Sovét- menn styðja MPLA hófu Kin- verjar stuðning við andstæð- inga þeirra. Um 100 kínverskir hernaðarráðunautar eru við þjálfun FNLA í aðalstöðvunum í Zaire. Þáttur Bandaríkjanna í Angóla er fremur óljós. Banda- ríkjamenn studdu Roberto á forsetaárum John Kennedys en Johnson hætti þeim stuðningi. Nixon studdi Portúgala en stefna Kissingers hefur verið að forðast fhlutun. Hins vegar lýsti Vitor Alves major, einn af meðlimum í byltingarráði her- foringjanna í Portúgal, þvi yfir í sfðustu viku, er hann kom úr kynnisferð frá Angóla, að bandarfska leyniþjónustan CIA styddi FNLA. Stjórnmála- fréttaritarar telja einnig líkur á því að Bandaríkjamenn hafi fengið aukinn áhuga á UNITA og ráðamenn á Vesturlöndum í heild eru sagðir mundu styðja sameiningu FNLA óg UNITA á móti marxistum MPLA. Banda- ríkjamenn ’eru sagðir vilja koma í veg fyrir að MPLA nái völdum í Angóla og bezta ráðið fyrir þá í þeim tilgangi væri stuðningur við FNLA og FYRRUM AUÐUGASTA NÝLENDA PORTÚGALA RIÐAR NÚ Á BARMI BORGARASTYRJALDAR — ALGERT EFNAHAGSHRUN BLASIR VIÐ KortiS sýnir yfirráSasvæSi hreyfinganna þriggja. PunktasvæSiS er ð valdi MPLA, skástrikuSu svæSin á valdi UNITA og beinstrikuSu svæSin á valdi FNLA TaliS aS ofan: Dr. Agostinho Neto, leiStogi MPLA, Holden Roberto, leiStogi FNLA og dr. Jonas Savimbi, leiStogi UNITA Verður Angóla Vietnam Afríku? UNITA. Bandaríkjastjórn sam- þykkti nýlega umfangsmikla hernaðaraðstoð til handa Zaire og er talið líklegt að FNLA muni njóta góðs af þeirri á- kvörðun. Fulltrúar allra hreyfinganna hafa heimsótt Pekirig til að biðja Kínverja um aukna að- stoð, heimildir herma að ráðamenn þar hafi lýst því yfir Angóla, sem eitt sinn var auð- ugasta nýlenda Portúgala, riðar nú á barmi borgarstyrjaldar og algers efnahagslegs hruns. Verði borgarastyrjöld f landinu telja stjórnmálafréttaritarar hættu á að Sovétríkin, Kína, Bandaríkin, Júgóslavfa og Afríkulöndin dragist inn f hana. Sumir sérfræðingar segja að Angóla geti orðið afrfkönsk útgáfa af Indókínastríðinu. Landinu er þegar skipt í þrjú svæði, sem skæruliðahreyfing- arnar MPLA, FNLA og UNITA hafa á valdi sínu, hin fyrst- nefnda er Alþýðuhreyfingin til frelsunar Angóla, minnst af þremur, þá kemur Þjóðlega frelsishreyfingin f Angóla og síðast Samtök um algera frels- un Angóla. Leiðtogi MPLA er dr. Agostinho Neto, yfirlýstur marxisti, sem nýtur stuðnings Sovétstjórnarinnar. Honum hefur verið lýst af forseta eins Afrfkurfkisins á þá leið að hann hafi svipaðar tilfinningar og kaldur steinn. Hreyfingin á minni stuðning að sækja til ætt- bálka en hinar tvær og á mest fylgi meðal verkamanna f borg- unum, einkum Luanda. MPLA var stofnuð 1956. að Kínverjar myndi styðja allar hreyfingarnar jafnt. Þvf virðist sem Sovétmenn, Júgóslavar og kommúnistaleiðtogar f Afríku séu þeir einu, sem hafi tekið ákveðna afstöðu um hvaða hreyfingu þeir styðja, enda er MPLA hörð marxistahreyfing og leiðtogar hennar hafa ekki farið dult með hvað þeir hyggj- ast fyrir ef þeir ná Angóla á sitt vald. Fyrirtæki á Vesturlönd- um og í S-Afríku hafa fjárfest um 400 milljónir dollara í námu- og olfuvinnslu f Angóla og hafa leiðtogar MPLA lýst þvf yfir að starfsmenn þessara fyr- irtækja verði hraktir úr landi og eigur þeirra gerðar upptæk- ar þegar þeir hafi náð völdum í Iandinu. MPLA hefur nú höfuðborg- ina Luanda á sínu valdi og einn- ig hafnarborgina Lobito, sem er mjög mikilvæg, því að er MPLA náði henni á sitt vald lokaðist bezta flutningaleiðin til Nýju Lissabon, sem UNITA hefur á sínu valdi. UNITA er verst stödd hvað vopnabúnað snertir og er lífsnauðsynlegt fyrir hana að fá vopn og skotfæri, ef hún ætlar að gera sér vonir um að halda stöðu sinni í suðurhluta ■ landsins. Segja stjórnmála- fréttaritarar að án hafnar horfi óglæsilega fyrir UNITA nema verulegur stuðningur erlendis frá komi til. Áætlun MPLA virðist liggja nokkuð ljóst fyrir. Leiðtogarnir ætla að reyna að auka áhrif sfn meðal stuðnings- manna hinna hreyfinganna. Slfkt gæti tekið langan tima, en eins og málin horfa við nú virð- ist MPLA eina hreyfingin, sem hafi möguleika á að ná landinu á sitt vald með vopnavaldi og stjórnmálafréttaritarar segja að vopnavald muni ákveða hver erfir Angóla frá Portúgölum. MPLA hefur einnig treyst tök sin á þeim ráðuneytum, sem enn starfa f Luanda svo og á fjölmiðlum, simstöðvum og öðr- um sambandsleiðum, augljós- lega til að nota sem áróðurs- vopn til að reyna að sannfjera Angólabúa og erlendar þjóðir um að hreyfingin sé talsmaður landsmanna. Horfurnar f dag virðast þvf skástar fyrir marx- istana. Stjórnmálafréttaritarar benda þó á að þrátt fyrir allt geti Luanda og Lobito orðið dragbítur á hreyfingunni, vegna þess að báðar þessar borgir eru að verða að efna- hagslegri auðn. Það er varla til það fyrirtæki í borgunum sem ekki er gjaldþrota eða á barmi gjaldþrots, matarbirgðir eru af svo skornum skammti að það virðist aðeins spurning um tfma þar til allur matur verður bú- inn. Enginn vill selja vörur til Angóla nema greitt sé í reiðufé fyrirfram og nú er vart nokkur maður eftir í landinu, sem telur það þess virði að stunda inn- flutning. Þvf gæti svo farið að jafnvel hörðustu stuðnings- menn MPLA misstu áhugann á byltingu þegar ekkert verður eftir til að seðja hungur þeirra. (Observer, AP.Time, Newsweek). Hermenn MPLA á eftirlitsferð I Luanda að nœturlagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.