Morgunblaðið - 21.09.1975, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975
41
félk í
fréttum
Hann Jón Gunnar Ákason datt
heldur betur f lukkupottinn á
dögunum. Hann var einn þeirra
fjölmörgu sem heimsóttu
Kaupstefnuna og var svo hepp-
inn að vinna f dagshappdrætti
sýningarinnar og verðlaunin
voru ferð með Vængjum vestur
f Stykkishólm og sigling með
bát frá Stykkishólmi út á f jörð-
inn. Með sér f ferðina bauð hann
vini sfnum, Þórarni Guðmunds-
syni, sem farið hafði með
honum á Kaupstefnuna. Bjarni
bróðir hans fékk að fara með og
sömuleiðis Áki Jónsson pabbi
hans og Jón M. Sigurðsson afi
hans. Á myndinni eru þeir
bræður Bjarni og Jón Gunnar
við flugvél Vængja á flug-
vellinum f Stykkishólmi.
+ Leikarinn kunni Laurence
Olivier, sem reyndar er orðinn
lávarður, hefur nú farið að
dæmi Yul Brynners og látið
krúnuraka sig. Þetta gerði
hann fyrir nýtt kvikmyndahlut-
verk, þar sem hann á að leika
þýzkan hermann.
+ Rokkstjarnan Elvis Presley
er sagður hafa mjög gaman af
alls konar farartækjum. Hér
sjáum við Presley, þar sem
hann er að reyna nýjasta leik-
fangið sitt, en það er þriggja
hjóla mótorhjól, knúið Volks-
wagen-vél. Sem kunnugt er
þurfti Presley að fara á sjúkra-
hús f sfðasta mánuði, en þá var
hann að skemmta á nætur-
klúbbum f Las Vegas, en er nú
sagður góður til heilsunnar á
ný. Stúlkan til hægri á mynd-
inni, ku vera náin vinkona
rokkkóngsins um þessar
mundir og er sögð heita
Jeanette Brazda frá Frakk-
landi.
+ Heimsmeistarinn f skák, Ánatolji Karpov, var allur eitt bros er
hann tók við 12 þús. dollara verðlaunum eftir sigur á alþjóðaskák-
mótinu f Mflanó á dögunum. Þá var Karpov ennfremur gefið
forkunnarfagurt skákborð, með ekki síðri taflmönnum, allt hand-
skorið.
FJARFESTING-
ENDURMAT
Á bak við hverja SELKÖ hurð er 25 ára reynsla
í smíði spónlagðra innihurða. Skipulögð fram-
leiðsla SELKÓ innihurða hófst hjá Sigurði Elías-
syni h. f. fyrir 15 árum. I ár fögnum við því tvö-
földum áfanga í hurðasmíði.
Einkunnarorð framleiðslunnar hafa ætíð verið
hin sömu: Vönduð smíði, góður frágangur og
fallegt útlit. Enda hafa SELKÓ hurðir fyllilega
staðizt erlenda samkeppni um árabil.
Þess vegna er það mjög algengt að þeir, sem
vilja endurnýja útlit eldra húsnæðis með t. d.
tvöföldu gleri, nýjum húsgögnum, og fallegum
teppum, fjárfesti einnig í nýjum SELKÓ inni-
hurðum.
SELKÓ innihurðir gefa heimilinu traustan og
áferðarfallegan svip, samræma heildarútlit hús-
næðisins við nýja búslóð, og hækka verðmæti
íbúðarinnar, þegar meta þarf til skipta eða end-
ursölu.
Þér tryggið útlit og verðmæti íbúðarinnar með
SELKÖ innihurðum.
SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI í FYRIRRÚMI
4% SIGURÐUR
iMf ELlASSON HE
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380