Morgunblaðið - 21.09.1975, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21, SEPTEMBER 1975
45
VELVAKANDI
Velvakandí svarar í slma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Hver á að passa
krakkana?
Erna Magnúsdóttir hringdi.
Hún kvaðst hafa verið í sauma-
klúbb ásamt nokkrum vinkonum
sínum, en þær störfuðu allar utan
heimilis, væru tiltölulega nýgiftar
og ættu flestar börn. Höfðu þær
verið að ræða um kvennaverk-
fallið í október, sem komið hefur
til tals að halda. Hún sagði m.a.:
„Við vorum nú að ræða það í
klúbbnum hvernig ætti að hafa
það I kvennaverkfallinu þegar
fóstrur á dagheimilum eða leik-
skólum tækju sér frí um leið og
við, sem erum kennarar eða
vinnum á skrifstofum. Þá lendir
auðvitað á okkur mæðrunum að
passa krakkana, þannig að við
gerum ekki annað en að hafa
verkaskipti við þær, sem passa
börnin venjulega. Sam sagt —
ekkert frí og ekkert verkfall. Þess
vegna fannst okkur ekki til of
mikils mælzt þótt karlarnir okkar
tækju sér frí líka, þannig að hægt
væri að skipta barnagæzlunni á
milli sín. En hvað svo um allar
þær manneskjur, sem eru „bara“
húsmæður? Hver á að ,taka að sér
börnin þeirra? Ekki verða vist
konur við störf á gæzluvöllum
frekar en annars staðar.
Mér sýnist þetta allt stefna í þá
átt, að 24. október verði almennur
frídagur, þvt að með öðrum hætti
getur þetta ekki orðið neitt
kvennaverkfall eða kvennafrí-
dagur.“
0 1 upphafi
skólaárs
K.S.M. skrifar:
„Velvakandi góður.
Mig langar til að koma á fram-
færi í dálki þínum þeirri hug-
mynd, að í vetur eða þá við fyrsta
tækifæri verði tónlistar- og teikni-
kennslu i barnaskólum ofurlítið
öðruvísi háttað en verið hefur.
Væri ekki miklu betra að kenna
börnum að hlýða á tónlist, t.d. leik
Sinfóniuhljómsveitarinnar eða
bara leik af hljómplötum i skóla-
stofunni, i stað þess að láta þau
syngja saman, eins og nú er víða
gert? Hér á ég að sjálfsögðu ekki
við, að útrýma eigi þeim kennslu-
aðferðum, sem nú eru viðhafðar,
heldur að auka beri fjölbreytn-
ina. Þá fyndist mér vel til fundið
að láta börnin ekki bara föndra
eða teikna í teiknitímum, heldur
trúi ég því, að verulegum hluta
þess tíma, sem ætlaður er til
kennslu, væri betur varið með þvi
að sýna börnunum myndir af
listaverkum með útskýringum og
umræðum, og fara með þau á
myndlistarsýningar og söfn.
— ég hef nóg pláss svo að ég get’
sem bezt leyft yður að gista. Þér
hafið afrekað nóg í kvöld.
David lét undan henni og þau
ókutil heimilis hennar og þar bar
hún fram gómsætustu máltíð.
Meðan þau snæddu, töluðu þau i
ákafa um morðin tvö sem enn
voru jafnóráðin gáta og áður og
Diane lét í Ijós þá skoðun sina að
iögreglan ætti að kanna nánar
aðstæður Talmeys prófessors, —
þvi að fræðilegur möguleiki var
enn á að hann væri morðingi ung-
frú Shaw að því er Dianc sagði.
Ástæðan gat verið örvænting og
afbrýðissemi vegna fyrirhugaðr-
ar ferðar hennar til Ilollywood.
En á hínn bóginn var í fljótu
bragði ekkert sem bcnti til að
hann væri morðinginn, sagði
David f mótmælaskyní og Diane
kvaðst sætta sig við rök hans.
Engu að síður hafði hún sfðasta
orðið. Rétt áður en þau gengu til
hvflu snéri hún sér við f dyrunum
og sagði:
— Það er enn ein spurning,
sem lögreglan hefur enn ckki
svarað. Vitið þér hver hún er?
Ég er að vissu leyti fylgjandi
þeirri þróun, sem orðin pr í
barnafræðslu, þ.e. að láta börnin
sjálf gera sem allra mest, láta þau
hafa frumkvæðið sjálf og lofa
þeim að fá útrás með eigin athöfn-
um, en stundum finnst mér eins
og of litið sé gert af þvi að fræða
þau um meistaraverk og menn-
ingarsögu og lofa þeim einnig að
kynnast þeim af eigin raun. Þetta
finnst mér verðugt umhugsunar-
efni í upphafi skólaárs.
Með þökk fyrir birtinguna.
K.S.M."
0 Hundar og bjór
Stefán Hafstein skrifar á
þessa leið:
„Hundamálið svo nefnda hefur
nú verið mikið í deiglunni og vil
ég þvi segja mitt álit á þvi.
Hundurinn hefur verið bezti vin-
ur mannsins frá aldaöðli. Og hvað
sagði ekki Friðrik mikli, sem vissi
hvað hann söng? „Þvi betur sem
ég kynnist bróður minum þeim
mun vænna þykir mér um hann
Sám minn.“ Að vlsu má segja, að
ekki eigi allir svo leiðinlega
bræður, en samt má eitthvað af
þessum orðum marka. Þær ugg-
vænlegu sögur berast frá út-
löndum, að hundar skilji 24 þús-
und smálestir af hundasaur eftir
sig á götum Lundúnaborgar. Og
hver vill standa i því að moka
sliku magni af götum okkar fögru
og hreinu höfuðborgar? Að visu
er sagt að hann Albert sé hlynnt-
ur hundahaldi, en samt sem áður
hljótum við að hugsa okkur
tvisvar um áður en við hleypum
hundum út á göturnar.
Hvort leyfa eigi sölu á sterkum
bjór hefur verið þrætuepli okkar
Islendinga ærið lengi. Persónu-
lega held ég að nú sé nóg af sliku
komið. Væri ekki löngu búið að
leyfa bjórinn, ef slikt væri hættu-
laust? Þvi held ég, að nú sé mál að
linni og þjóðin láti af klofningi
sinum, og sameinist I þvi að
drekka bara það, sem hér er leyft.
0 Mataræði barna
Áhyggjufull móðir lýsti
nýlega slæmu heimilisástandi,
sem skapazt hefur við ínnflutning
á kornmat í pökk'um. Er nú svo
komið á heimili hennar, að börnin
neita að borða nokkuð annað en
kornmat þennan. Má gera því
skóna, að svipað ástand hafi skap-
azt víðar. An þess að nokkur geri
sér þess ljósa grein, þá er nú að
vaxa upp á íslandi kynslóð, sem
nær eingöngu er alin á kornmeti
þessu. Hér er mikið alvörumál á
ferðinni, þvi að við vitum i raun-
inni ósköp lítið um raunverulegt
fóðurgildi matarins. Þvi hljótum
við að spyrja: Ætla innflytjendur
virkilega ekki að gera hreint fyrir
sinum dyrum og gera ærlega
grein fyrir uppvaxtar- og fram-
tíðarmöguleikum íslenzkrar
æsku? Vissulega er ekkert, sem
bendir til þess að bráður voði sé
fyrir dyrum, en við eigum
heimtingu á því að vita vissu
okkar. Heill og hamingja getur
verið í veði.
Ég tek því heilshugar undir
með áhyggjufullri móður og skora
á fleiri að gera slíkt hið sama.
Stefán Hafstein."
0 Stolið úr
skólagörðum
í Breiðholti
Elisabet Jónsdóttir hringdi
til að vekja athygli á þjófnaði á
grænmeti úr skólagörðunum við
Stekkjarbakka I neðra Breiðholti.
Hún sagði:
„Það var á laugardegi fyrir um
það bil hálfum mánuði, að full-
orðið fólk sást vera að sækja sér
grænmeti i garðana. Þetta hef ég
eftir kennara, sem hefur leið-
beint börnunum við garðræktina i
sumar. Þarna hefur bara verið
hirt það, sem bezt var vaxið, en
hitt látið eiga sig. Ég á dreng, sem
hefur verið í skólagörðunum í
sumar. Hann skilur ekki hvers
vegna hann hefur verið að erfiða i
þessu I sumar, þegar málið er svo
einfalt, að hægt er að sækja sér
grænmeti I garðana án þess að
hafa nokkuð fyrir þvi. Ég vil
skora á það fólk, sem þarna var að
verki, að skila grænmetinu aftur
eða bæta það á annan hátt.“
HÖGNI HREKKVÍSI
estafette
GEFJUN AKUREYRI
HÆKKAINIDI
BENSÍNVERÐ
GERIR RENAULT SÍFELLT
HAGSTÆÐARI
RÚMGÓÐUR- tÆGILEGUR AÐ VINNA VIÐ -
MJÖG SPARNEYTINN.
VhÐGERÐAR OG VARAHUJTAhJÓNUSTA
F ÍENAULTO -'gpgt
KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Hérer
það allt-
prjónamir, karfan og
Gefjunar
DRALON-BABY DRALON-SPORT
GRETTIS-GARN C1007ulD
GRILON-GARN GRILON-MERINO