Morgunblaðið - 10.10.1975, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1975
Iðnaður mun verða ein af megin
stoðum efnahagslífs íslendinga
Tæknistofnun fyrir iðnaðinn — Frumvarp til nýrra
iðnlaga — Endurskoðun laga um lánasjóði iðnaðar-
ins — Frumvarp til byggingarlaga — Mannvirki
verði reist og smíðuð af innlendum aðilum — Skipa
smíðaiðnaði verði tryggð meiri og jafnari eftirspurn
o o
Ræða Gunnars Thoroddsens
iðnaðarráðherra á Iðnþingi
o *
EFNAHAGSMÁL
Síðan núverandi rikisstjórn var mynduð hafa
efnahagsmálin verið sá meginvandi, sem hún
hefur þurft að glíma við
..Viðskiptakjör'' er það orð, sem einna oftast er
nú nefnt Með því er átt við hlutfallið milli
verðlags á útflutningi og innflutningi í upphafi
þessa árs var því spáð, að viðskiptakjörin myndu
versna á árinu um 15% Nýjustu spár benda til
þess, að rýrnun viðskiptakjara verði nokkru
meiri, eða 1 7— 1 8% Þá var áætlað, að þjóðar-
framleiðsla myndi minnka um 2% og þjóðartekj-
ur rýrna enn meir eða um 6%, vegna versnandi
viðskiptakjara Þróunin hefur orðið enn óhag-
stæðari, svo að líklega mun þjóðarframleiðsla í
ár rýrna um 3,5% og þjóðartekjur um allt að
8%
Staða þjóðarbúsins út á við er mjög erfið. Einn
veikasti hlekkur utanríkisviðskiptanna á þessu
ári og á seinni helming ársins 1974, er
minnkandi eftirspurn eftir ýmsum helztu út-
flutningsvörum okkar, er leitt hefur til óhag-
stæðrar verðþróunar Þannig er gert ráð fyrir, að
verðlækkun útflutnings muni nema um 11%
fyrir árið í heild, miðað við svokallað fast gengi.
Verð á ýmsum innfluttum vörum hefur hins-
vegar hækkað En þróun innflutnings á árinu
sýnir að innflutningur hefur dregizt saman á
fyrstu sjö mánuðum ársins að magni til um tæp
1 7%.
Breytingar frá fyrra ári í framleiðslu hinna
ýmsu greina iðnaðarins hafa orðið nokkuð mis-
munandi Framleiðsla hins almenna iðnaðar, að
undanskildu áli og byggingariðnaði, mun á fyrra
helmingi þessa árs vera svipað og á fyrra
helmingi ársins 1974 Álframleiðsla hefur hins-
vegar dregizt saman um 1 2%.
Breytingarnar hafa verið mjög ólikar eftir iðn-
greinum Þannig hefur veruleg framleiðslu-
aukning orðið í skipasmíðaiðnaði (13,8%), í
vefjar-, fata- og skinnaiðnaði (10,3%) og í hús-
gagna- innréttingaiðnaði (5,3%). í sambandi við
ullar- og skinnaiðnað er þess að geta, að fram-
leiðsluauknmgin stafar að verulegu leyti af aukn-
um útflutningi þessara atvinnugreina Hin aukna
erlenda eftirspurn hefur haft það í för með sér,
jð afkastageta þai er fullnýtt og verður svo
fyrirsjáanlega á næstu mánuðum
Samdráttur í framleiðslu hefur á þessu ári
einkum átt sér stað í steinefnaiðnaði, þ.e sem-
ent o.fl. (14%), og öðrum efnaiðnaði (5,7%), og
stafar það einkum af verkföllum við Sements-
verksmiðjuna og Kisiliðjuna Þá er um nokkurn
samdrátt að ræða í pappírsiðnaði, matvæla- og
drykkjarvöruiðnaði og í viðgerðargreinum
IÐNÞRÓUN
Fyrri hluta árs 1971 voru gerðir samningar
við tvær stofnanir Sameinuðu þjóðanna, Iðn-
þróunarstofnun og Viðskiptastofnun, um undir-
búning iðnþróunaráætlunar til langs tima Að
þeirri áætlun unnu síðan næstu tvö árin erlendir
sérfræðingar i samstarfi við Iðnþróunarstofnun
Islands Skýrslugerð var lokið á árinu 1973
Nokkru eftir að sú skýrsla lá fyrir, skipaði
fyrrverandi iðnaðarráðherra nefnd, Iðnþróunar-
nefnd, en hún skyldi hafa það meginviðfangs-
efni að yfirfara og endurskoða áætlanagerð
hinna erlendu sérfræðinga um langtíma-
iðnþróun.
Nefnd þessi hefur nú fyrir nokkru lokið þessu
starfi og skilað itarlegri álitsgerð Kemst nefndin
að þeirri meginniðurstöðu, að sérfræðingar SÞ
ofáætli þær breytingar og endurnýjun vinnu-
staða, sem verða þurfi I iðnaði til að halda fullri
atvinnu og hinsvegar vegna breyttra sam-
keppnisaðstæðna i iðnaði Miðað við árið 1 972
sem grunnár gerðu hinir erlendu sérfræðingar
ráð fyrir endurnýjun og nýmyndun 1 1.000
starfa eða „atvinnutækifæra" i iðnaði fram til
1980. Iðnþróunarnefnd áætlar aftur á móti að
sama tala sé 6 300, og að heildarmannafli í
iðnaði verði um 18.000 árið 1980 og 1 9 600
árið 1985 í tölum þessum er ekki meðtalinn
byggingariðnaður, en samkvæmt áliti nefndar-
innar er gert ráð fyrir því, að fjöldi atvinnufólks i
byggingariðnaði aukist úr 9 700 manns árið
1972 i 12 000 manns árið 1980. Á hinn
bóginn er ekki gert ráð fyrir þvi, að verulegar
breytingar á mannafla I þeirri iðngreih verði
næstu ár þar á eftir, vegna vaxandi framleiðslu
byggingareininga í verksmiðjum.
Iðnaður mun i næstu framtið verða ein af
meginstoðum efnahagslifs íslendinga og sjá um
30% af vinnufæru fólki fyrir atvinnu.
[ álitsgerð Iðnþróunarnefndar er viðfangsefn-
um iðnþróunar næstu árin skipt í þrjá megin-
þætti í fyrsta lagi er þar um að ræða hina
svonefndu ytri aðbúnað; það eru þær meginfor-
séndur, sem stjórnvöld á hverjum tima skapa
iðnaðinum með löggjöf eða á annan hátt. Má
þar nefna löggjöf á sviði tolla- og skattamála,
lánsfjármála og löggjöf, er snertir þær stofnanir,
sem starfa eiga i þágu iðnaðarins, og fjármögn-
un þeirra
I öðru lagi eru það mál, sem snúa að innri
starfssemi og skipulagi fyrirtækja svo sem
stjórnun, sölustarfsemi, fjármálalegum og tækni-
legum hliðum rekstrarins, verk- og tæknimennt-
un starfsfólks, hönnun, vöruþróun o fl
I þriðja lagi eru það málefni, sem snerta
viðleitni og örvun til nýiðnaðar, bæði er varðar
orkufrekan iðnað, aukna vinnslu innlendra hrá-
efna og margvíslega framleiðslu, er byggir fyrst
og fremst á hugviti og þekkingu
Hér er um athyglisverða, Itarlega og þakkar-
verða skýrslu að ræða, sem gerir grein fyrir þeim
margvislegu viðfangsefnum, sem við er að glima
I uppbyggihgu Islenzks iðnaðar, og mjög nyt-
samlegt er að fá dregið saman á einn stað
Iðnaðarráðuneytið hefur hinar ýmsu tillögur til
meðferðar, en hefur falið Iðnþróunarstofnun
íslands að annast framkvæmd tiltekinna verk-
efna, sem nefndin gerir tillögur um, eftir nánari
ákvörðun iðnaðarráðherra hverju sinni.
TÆKNISTOFNUN
[ iðnaðarráðuneytinu er unnið að þvi að semja
frumvarp um tæknistofnun fyrir iðnaðinn, sem
miðar að aukinni alhliða þjónustu og tækniað-
stoð.
Vorið 1974 var lagt fyrir Alþingi frumvarp til
laga um Iðntæknistofnun fslands, en frumvarp
þetta miðaði m a að sameiningu Iðnþróunar-
stofnunar íslands, Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins og Rannsóknastofnunar
iðnaðarins. Samstaða náðist ekki um afgreiðslu
þessa frumvarps á Alþingi og voru skoðanir
mjög skiptar, bæði utan þings og innan.
Hið nýja frumvarp um tæknistofnun mun
verða rætt innan skamms við samtök ykkar og
Margt bendir til þess að iðn-
aðurinn stefni inn í öldudal
Mikill fjárskortur hjá fyrirtækjum i þjónustu-
greinum — Auka þarf skilning á þjóðhagslegu
mikilvægi iðnaðar — Verkmenntun hljóti sama
sess og önnur menntun í landinu.
Ræða Sigurðar Kristinssonar,
forseta Landssambands * c
iðnaðarmanna, við
setningu Iðnþings
Herra iðnaðarráðberra,
borgarstjóri,
virðulegu iðnþingsfulltrúar,
góðir gestir
Ég býð yður öll velkomin til setningar 36
Iðnþings íslendinga Ég flyt meistarafélögum í
byggingariðnaði i Reykjavik, Kynningarklúbbn-
um Björk og Klúbbi eiginkvenna málarameistara
þakkir fyrir að undirbúa og standa fyrir dagskrá
fyrir maka þingfulltrúa Einnig færi ég starfsfólki
góðar þakkir fyrir allan undirbúning þinghalds-
ins
Frá því að síðasta Iðnþing var haldið hafa
fjórir fyrrverandi iðnþingsfulltrúar látist, þeir
Tómas Vigfússon, Jón E Ágústsson, Helgi
Hermann Eiríksson og Guðjón Scheving
Tómas Vigfússon húsasmiðameistari lést 1.
febrúar 1 974 Hann var athafnamaður og mjög
vandvírkur, enda eftir honum sóst til vanda-
samra verka Vegna forystuhæfni hlóðust á hann
fjölmörg störf, ekki eingöngu fyrir samtök
iðnaðarmanna, heldur og einnig opinber störf og
forusta i umfangsmiklum framkvæmdum. Hann
var i forustu i félagssamtökum iðnaðarmanna
um áratuga skeið Hann átti sætí í stjórn L I. í
22 ár, eða frá 1947—-1969 Hannvar sæmdur
heiðursmerki iðnaðarmanna úr gulli 1962 og
kjörinn heiðursfélagi 1970 Verk hans verða
seint metin sem vert er, en munu geymast i
minningunni um góðan félaga og forystumann
Jón E. Ágústsson málarameistari lést 27.
mars 1974 Hann var mikill félagsmálamaður
og tók virkan þátt i félagsmálum sinnar iðn-
greinar, átti um áratuga skeið sæti í stjórn
Málarameistarafélags Reykjavíkur Þá átti hann
sæti i stjórn L I um 7 ára skeið og var þar sem
annars staðar hinn trausti og raungóði félagi
Helgi Hermann Eiríksson verkfræðingur lést
10 október 1974 Þegar hann kom heim frá
námi sinu gekk hann til móts við iðnaðarmenn á
sviði félagsmála Hann varð skólastjóri Iðnskól-
ans í Reykjavík og tók virkan þátt í mótun
samtaka iðnaðarins á frumstigi Hann var með i
forystu um stofnun L I og varð hinn sjálfkjörni
leiðtogi og forystumaður um tuttugu ára skeið,
jafnframt þvi sem hann tók virkan þátt í opinber-
um málum. Hann var sæmdur heiðursmerki
iðnaðarmanna úr gulli 1949 Kjörinn heiðurs-
félagi 1952
Guðjón Scheving málarameistari lést 9
október 1974 Hann var fæddur í Vestmanna-
eyjum, lærði mátaraiðn i Reykjavlk, en fluttist
aftur til Vestmannaeyja og stundaði þar iðn sína
Hann var frumkvöðull og stofnandi margra
félaga Mest af starfsorku sinni helgaði hann
Iðnaðarmannafélagi Vestmannaeyja, var for-
maður þess í meir en aldarfjórðung, hann var
fulltrúi þess á mörgum Iðnþingum, Hann var
kjörinn heiðursfélagi í félagi sinu og sæmdur
heiðursmerki iðnaðarmarma úr gulli 1952. Ég
bið yður að risa úr sætum i virðingarskyni við
hina látnu heiðursmenn og félaga
Hin óhagstæða þróun efnahagsmálanna að
undanförnu svo og þær efnahagsráðstafanir,
sem gerðar hafa verið til þess að beina þróuninni
inn á aðrar brautir, hafa haft veruleg áhrif á
iðnaðinn Hin gífurlega eftirspurnarþensla hefur
að sjálfsögðu birst i eftirspurn eftir framleiðslu
hans og þjónustu eins og annarra atvinnugreina,
sem á mörgum sviðum hefur orðið miklu meiri
en hægt hefur verið að anna Hins vegar hafa
um leið orðið miklar kostnaðarhækkanir, þannig
að fjárhagsleg afkoma iðnaðarins hefur versnað
að miklum mun Þannig hefur hin almenna
verðbólga ásamt þeim kauphækkunum, sem
urðu á siðasta ári og á fyrri hluta þessa árs átt
sinn verulega þátt i þeirri kostnaðaraukningu,
sem orðið hefur. Ennfremur urðu tvær gengis-
fellingar á árinu 1974, sem höfðu sín áhrif til
hækkunar kostnaðar og þar með á verðbólguna.
Gengislækkun krónunnar gagnvart helstu við-
skiptagjaldmiðlum varð að meðaltali um 33% á
árinu. og svarar það til um 50% hækkunar á
erlendum gjaldeyri
Lækkun gengisins hefur vissulega haft nokkur
áhrif til bóta fyrir samkeppnis- og útflutnings-
iðnað, þar sem hækkun á erlendum gjaldeyri
hækkar annars vegar útfluttar og hins vegar
innfluttar vörur í verði, þannig að samkeppnisað-
staða á innlendum markaði batnar og tekjur
útflutningsiðngreina aukast. Hins vegar ber að
hafa I huga að samkeppnishæfni þessara greina
er mjög mikil hætta búin, þegar kostnaðar-
hækkanir verða svo gífurlegar sem raun ber
vitni Ekki er því að heilsa, að þjónustugreinar
hafi heldur komist klakklaust frá þeim kostnaðar-
hækkunum, sem orðið hafa. Ströng og óraun-
hæf verðlagshöft og framlenging verðstöðvunar
hafa orðið til þess, að þessar greinar hafa ekki
fengið kostnaðarhækkanir bættar nema að mjög
takmörkuðu leyti Hefur þetta valdið minnkandi
arðsemi i mörgum iðngreinum, og stefnir raunar
beint i hreinan taprekstur hjá sumum Þegar við
bætist útlánaþak bankanna að undanförnu og
verulegir erfiðleikar við innheimtu söluandvirðis,
hefur afleiðingin orðið mikill fjárskortur hjá fyrir-
tækjum í þjónustugreinum, bæði til rekstrar og
nauðsynlegrar endurnýjunar á framleiðslutækj-
um sinum Nú þegar blasir við, að mörg þjón-
ustufyrirtæki verða hreinlega að hætta starfsemi
sinni af þessum sökum og er það mjög háskaleg
þróun.
Efnahagsráðstafanir rikisstjórnarinnar hafa
nær einskorðast við að draga úr greiðsluhalla við
útlönd og tryggja viðunandi afkomu aðalútflutn-
ingsatvinnuveganna, án þess þó að valda of
snöggum samdrætti i innlendri eftirspurn, þann-
ig að ekki dragi verulega úr atvinnu Þegar hin
mikla umframeftirspurn eftir erlendum gjaldeyri
er höfð í huga verður að telja þessi viðbrögð að
mörgu leyti eðlileg Þar sem vandinn, sem við er
að glima, er svo mikill sem raun ber vitni, er
hins vegar ólíklegt, að nokkrum viðhlitandi
árangri verði náð til lausnar honum, nema
talsverð minnkun verði á þeirri eftirspurn, sem
verið hefur Afleiðingarnar hljóta þvi að verða
talsverð minnkun umsvifa i iðnaðinum. Enda
varð aukning iðnaðarframleiðslu á árinu 1974
minni en verið hefur um langt árabil, þrátt fyrir
að langt sé i land með að vandinn hafi verið
leystur Þó má segja að hingað til hafi ekki borið
á verkefnaskorti hjá iðnfyrirtækjunum, en langt
er slðan útlitið hefur verið I eins mikilli óvíssu
háð og nú