Morgunblaðið - 10.10.1975, Side 19

Morgunblaðið - 10.10.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTOBER 1975 19 Á sfðustu mánuðum hefur margt gerzt á varnarvfgstöðv- unum. Lissabon er orðin ein helzta miðstöð KGB f heiminum. Á sviði „viiliheim- ilda“ eða „villiupplýsinga" hefur KGB náð athyglisverðum árangri. Sé litið lauslega yfir sfðustu fréttir af alþjóðlegum vettvangi, kemur f Ijós, að þrátt fyrir hina opinberu slökunar- stefnu, hefur KGB sfður en svo slakað á starfsemi sinni. I maf 1974 stóðu átta borgar- ar fyrir rétti í Túnis, ákærðir fyrir njósnir í þágu Sovét- ríkjanna, en rússneskir sendi- ráðsstarfsmenn og blaðamenn höfðu ráðið þátil starfa. Mánuði áður hafði Gtinter Guillaume verið handtekinn I Bonn. Hann er hinn síðasti og æðsti í röð KGB-manna, sem ljóstrað hefur verið upp um í Þýzkalandi frá stofnun Sambandslýðveldisins. (Talið er, að af 260 sovézkum sendi- ráðsstarfsmönnum þar séu um 100 háttsettir KGB-menn.). I janúar 1975 voru 9 aðrir sovézkir njósnarar handteknir í Sambandslýðveldinu. I febrúar 1975 komust menn að raun um, að þriðjungur sovézku sendinefndarinnar við SALT-viðræðurnar væri njósn- arar á vegum KGB og þar á meðal fulltrúinn Nicolai Kischilov, sem áður hafði verið flæktur í finnskt njósnamál. Um þessar mundir er Portúgal að sjálfsögðu mikil- vægur stjórnmálalegur brenni- depill fyrir KGB. Leiðtogi kommúnistaflokks Portúgals, Alvaro Cunhal, sem frá önd- verðu hefur verið fortakslaus stalínisti og tryggur fylgis- maður Moskvu, ætti að vfsu að sækja fyrirmæli sín beint til utanrfkisdeildar sovézku miðstjórnarinnar. En þar með er þó ekki sagt, að KGB hafi engin afskipti af málum Portúgals. I Lissabon eru þegar yfir hundrað sovézkir sendi- ráðsstarfsmenn og aðrir embættismenn. Sendiráðs- starfsliðið er síðan aukið með starfsmönnum hjá Aeroflot, TASS, Novotnybankanum o% stofnunum á sviði ferðamála og viðskipta. Auk þess hafa átta austur-evrópsk sendiráð með hliðstæðum undirdeildum fært út starfsemi sína f Lissabon. Að minnsta kosti sex KGB-menn voru afhjúpaðir þegar fyrir komu sína til Lissabon, þar á meðal sendiráðunauturinn Sviatoslav Kuznetzov, sem áður hafði stjórnað starfseminni f Argentínu og Chile. HVER DRAP FEISAL? Það væri vissulega misskilningur að halda, að KGB starfaði aðeins á Vestur- löndum. KGB hefur fyrr og síðar látið mjög til sín taka i kommúnistískum löndum, sem hafa ekki verið undir beinu eftirliti Sovétrfkjanna, — og í löndum bandamanna sinna. Pólland, Tékkóslóvakía, og „alþýðulýðveldið" Þýskaland valda litlum áhyggjum eins og stendur. Þeirra eigin leyni- þjónusta nægir sem útibú frá KGB. En í Albaníu, Rúmenfu, Júgóslavíu, Kina, Kúbu og Egyptalandi hvflir meginþungi hinnar ósleitilegu viðleitni Sovétrfkjanna til áhrifa á herðum KGB. Undanfarið hefur það orðið æ greinilegra, að KGB hefur auk hinnar „venjulegu" starf- semi lagt sérstaka áherzlu á og sérhæft sig í „villufræðslu" ósannri fréttamiðlun, sem beinist gegn leyniþjónustu andstæðinganna. Sú deild innan KGB, sem annast falsfréttamiðlun, og úti- bú hennar í Póllandi og Tékkóslóvakíu vinna að því dag og nótt að semja falskar upplýs- ingar um menn og stofnanir, sem standa í vegi fyrir sovézk- um hagsmunum. Þannig tókst að koma af stað þeim orðrómi, að CIA ætti sök á morðinu á Feisal, konungi. Það byrjaði með þvf, að látið var að vissum hlutum liggja í tveimur klausum, sem birtust í „Pravda" 30. marz 1975 (erlent fréttayfirlit) og 31. marz (fréttaskýringar). Það voru engar fullyrðingar viðhafðar, heldur var það haft eftir „fréttaskýrendum ýmissa erlendra blaða“ sem sagðir voru hafa spurt: „Skyldi það hafa verið hinn langi armur CIA, sem hefði náð alla leið til morðstaðarins í Riad?“ Þessi frásögn — sem er upp- spuni frá rótum — er dæmigerð aðferð „afvegaleiðslu“-deildar KGB. En þessar starfsaðferðir eru sannarlega ekki nýjar af nál- inni. Þegar 1964 voru lögð fram gögn fyrir stjórn Indónesíu, sem áttu að sanna morðsamsæri CIA gegn Sukarno, forseta, og áætlanir um ensk-amerfska inn- rás í Indónesíu. Þetta var að mestu leyti gert fyrir tilstilli tékknesks milligöngumanns. Einstök atriði þessa máls komu í ljós eftir 1968, þegar einn af hinum tékknesku sérfræðing- um f slíkum blekkingaraðferð- um, Ladislav Dittman, flúði til Vesturlanda. Nefna má fleiri tiltektir af svipaðri tegund, eins og þegar fölsuðu bréfi var komið á fram- færi við indverska fjölmiðla, en samkvæmt þvi áttu Bandaríkja- menn að hafa komið sér upp birgðum sýklavopna 1968. Meðal umfangsmestu blekk- ingartilrauna, sem nú standa yfir undir yfirskini slökunar, eru aðgerðir gegn útvarpsstöðv- unum Radio Liberty og Free Europe. Milligöngumennirnir eru aðallega Pólverjar. Fölsk skjöl hafa verið notuð til að sanna, að austur-evrópskir fréttaritarar útvarpsstöðvanna séu fyrrverandi nazistar eða að- stoðarmenn þeirra. Undanfarið hefur fjöldi slíkra „sönnunar- gagná“ verið afhjúpaður sem fölsun. Þessar árásir á einstaklinga eru liður f vfðtækri herferð til að fá þaggað niður í hinum frjálsu útvarpsstöðvum eða að minnsta kosti dregið úr þeim. Útvarp Moskva og útvarp Var- sjá halda að vísu uppi stanz- lausum áróðri gegn Vesturlönd- um f útsendingum sínum á ensku og öðrum erlendum tungumálum, en fréttaritarar þeirra f vestrænum löndum gera sitt ítrasta til að sannfæra vestræna stjórnmálamenn — eins og til dæmis Fullbright, fyrrverandi öldungardeildar þingmann — um það, að frétta- flutningu'- í þeirra eigin (austur-evrópsku) útvarps- stöðvum, sem væri fjandsam- legur ríkisstjórnum þeirra, myndi torvelda samkomulag á alþjóðlegum vettvangi. Svo virðist sem nokkrir einfeldn- ingar séu til í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu, sem vilji draga úr sendingum útvarps- stöðvanna, lækka rödd frelsis- ins, í þeirri von, að með þvf muni nást einhver ímynduð eft- irgjöf af hálfu Sovétrfkjanna f átt til slökunar. Sú deild, sem- annast blekk- ingar og falsanir, er að sjálf- sögðu aðeins ein hinna mörgu deilda hinnar risavöxnu KGB- stofnunar, sem enn hefur aðal- setur sitt í hinu alræmda Lublj- anka fangelsi, þar sem hrylli- legar aftökur hafa átt sér stað. Þar situr Juri Andropov á skrifstofu sinni á 3. hæð en þaðan hafa ekki færri en fimm fyrirrennarar hans verið dregn- ir niður í fangaklefa fyrir neð- an og síðan í aftökukjallarann. Njósna- og ofbeldisaðgerðir erlendis heyra undir fyrstu að- aldeild, sem hefur aðsetur fyrir utan Moskvu, langt frá þeim stöðum, sem erlendir gestir koma nokkurn tíma nálægt. (Málefni útlendinga f Sovét- ríkjunum heyra undir aðra deild). Fyrsta aðaldeild skiptist í 23 undirdeildir. Þar fyrir utan starfar GRU, sem er fréttaþjón- usta sovézka hersins og á að heita sjálfstæð stofnun. Milli KGB og GRU var alltaf sam- keppni. Á tfmum Stalíns lét leynilögreglan skjóta tvo yfir- menn fréttaþjónustu hersins. Nú er GRU miklu viðaminni en KGB, og þegar í ljós kom 1963, að Bretar og Bandaríkjamenn höfðu náð samböndum í GRU með aðstoð Penkovskys, of- ursta, missti sú stofnun í raun- inni sjálfstæði sitt og er nú ekki mikið annað en útibú KGB. Fyrsta deildin rekur starf- semi sína erlendis fyrst og fremst í sambandi við sendiráð- in sovézku. Samkvæmt skýrsl- um, sem fyrir hendi eru, starfa um 40 af hundraði sovézkra sendiráðsmanna og annarra sovézkra borgara erlendis á vegum KGB. Hinir eru reiðu- búnir, ef þeir eru kallaðir til starfa fyrir þá stofnun. Sendiherrarnir sjálfir geta tilheyrt leyniþjónustunni. í rauninni er ekkert f vegi fyrir því, að starfsmenn KGB geti verið skipaðir f háar stöður allra hugsanlegra stofnana. Þannig brá engum í brún, þegar tveir herforingjar úr leynilögreglunni voru skipaðir í hæstarétt, og mönnum fannst heldur ekkert athugavert við það, þótt jafn sérstæður maður og KGB — foringinn Pitivranov yrði gerður að varaforseta so- vézka verzlunarráðsins. Aður hafði hann gegnt mikilvægu njósnaembætti í Berlín og verið fastafulltrúi KGB f Peking. I dag sést hann á vörusýningum og ráðstefnum um verndun einkaleyfa. öllu furðulegri er þó skipun Dzermen Gvishlanis í embætti annars varaforseta vísindaráðs, sem aðallega annast samninga- viðræður og samskipti við út- lönd á sviði vfsinda. Hann hefur starfað fyrir GRU og er embættismaður leyniþjónust- unnar að ævistarfi. Það er tákn- rænt að hann ber nafn, sem sett er saman úr fyrstu atkvæðum eða samstöfum tveggja fyrstu yfirmanna leynilögreglunnar, Dzherzinski og Menschinski. Gluggað l rll Roberts Conquests um KGB - sovézku leyniblönusluna MUNURINN Á CIA OG KGB Á KGB og höfuðandstæðingi hennar, hinnar bandarfsku CIA er feikilegur munur. Staða KGB er miklum mun sterkari þegar af þeirri ástæðu einni, að öll opinber gagnrýni hefur frá öndverðu verið útilokuð. Menn skyldu aðeins gera sér f hugarlund, að sfðustu atburðir í Bandaríkjunum gerðust f Sovétríkjunum: Embættismað- ur sovézku stjórnarinnar lætur „Pravda" í té leyniskjöl, sem blaðið birtir. Maðurinn kemur fyrir rétt vegna smámuna og er sýknaður — þannig liti mál Daniels Ellsbergs út í Rúss- landi. Eða: Meðlimur f Æðsta ráði Sovétríkjanna — hliðstæða Michael Harringtons — finnur trúnaðarskjöl um athafnir KGB, segjum t.d. í Chile og lætur þau á þrykk út ganga. Þau eru birt í Pravda og Isvestijha með þeim afleiðing um, að yfirmaður KGB, Juri Andropov, verður að koma fyr- ir nefnd Æðsta ráðsins og verja gerðir sfnar ... Það er augljóst mál, að á starfsemi CIA er drag- bftur, sem þætti vitfirring í Moskvu. En það verður réttilega að viðurkenna, að engum manni f Englandi eða Frakklandi dytti í hug að leggja slíkar hömlur á leyniþjónustu sfns eigin lands. Og þegar þess er ennfremur gætt, að ein af helztu ásökunum á hendur CIA varðandi Chile var þess efnis, að hún hefði haft fé til ráðstöfunar fyrir blöð og verkfallssamtök stjórn- arandstæðinga — en ekki eins og KGB hafði gert í gegnum norður-kóreanska sendiráðið, að sjá hryðjuverkamönnum fyr- ir vopnum og þjálfun — þá hlýtur maður þó að spyrja, hvað gangi eiginlega að þessum gagnrýnendum, sem sagðir eru hliðhollir Vesturveldunum. Gagnstætt CIA rekur KGB einnig starfsemi sfna innan landamæra eigin ríkis. Banda- ríkjamenn skipta leyniþjónustu sinni í tvær sjálfstæðar stofn- anir: CIA og FBI. KGB er aftur á móti stofnun í mörgum sam- ræmdum deildum, sem hafa innlend og erlend starfssvið, þó að þær komi oft inn á svið hver annarrar. Þannig geta til dæmis njósn- arar í Moskvu komið erlendum sendiráðsstarfsmanni í svo hræðilega aðstöðu vegna kyn- lífs hans (slíkt hefur komið fyr- ir franskan sendiherra), að hann verði síðar viljalaust verkfæri í höndum KGB í sínu eigin landi. í Sovétríkjunum kæmi heldur aldrei til þeirrar þröngsýnu fastheldni við lagaákvæði, sem kemur fram í hinum hörðu ásökunum í garð CIA vegna að- gerða þennar gagnvart banda- rískum ríkisborgurum í Banda- ríkjunum. Það er fráleitt að hugsa sér, að eftirliti með manni, sem lægi undir grun, en gerði aðeins stuttan stanz f föð- urlandi sfnu, væri hætt á flug- vellinum og í skyndi falið ann- arri stofnun, sem ekki þekkti neitt til hins grunaða. Svipað þessu á við um fjölda vanda- mála CIA, en eru með öllu óþekkt fyrirbæri hjá KGB sem . hefur auk þess að sjálfsögðu miklu sterkari stjórnmálalegan bakhjall. LIÐHLAUPAR HVERFA MEÐ ötLU Nýjustu skammirnar, sem CIA hefur fengið, koma frá mönnum, sem hafa sagt skilið við CIA t.d. Philip Agee og Victor Marchetti, Mikið af þvf, sem við vitum um KGB kemur einnig frá strokumönnum eða liðhlaupum. Liðhlaupa frá KGB verður að fela vandlega með fölskum skil- ríkjum, svo að fyrrverandi hús- bændur þeirra komizt ekki á snoðir um þá. Marga þeirra, sem ekki hefur verið gætt nógu vel, hafa menn síðar fundið dauða af dularfullum ástæðum — þeir höfðu dáið af eitri, verið skotnir eða varpað út um glugga. Liðhlaupar frá CIA lifa aftur á móti góðu lffi í löndum, sem eru f bandalagi við Bandaríkin. Þeir skrifa endurminningar sfnar og láta þær meira að segja Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.