Morgunblaðið - 10.10.1975, Side 20

Morgunblaðið - 10.10.1975, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTOBER 1975 20 Þuríður Júníusdótt- ir—Minningarorð FiKdd 4. júní 1897. Dáin 22. septemher 1975. Þuriður var fædd á Syðra-Seli við Stokkseyri, dóttir hjónanna Siftrfðar Jónsdóttur frá Gríms- fjó.sum, Stokkseyri o« Júníusar Páissonar, sem fa.‘ddur \ar á Syðra-Seli. Hann varð síðar bóndi þar, formaður og sýslunefndar- maður. Heimili þeirra var þekkt menninsarheimili. Bræður Júníusar voru tónskáld- in Jón Pálsson bankafóhirðir, Isólfur, faðir dr. Páls Isólfssonar, og Bjarni Pálsson, sem drukknaði ásamt föður sínum f róðri við Þor- lákshöfn. Bjarni var ungur að ár- um. Hann lét þó eftir sig mörf> listaverk. Var hans sárt saknað vegna mikiila hæfileika. Hann var faðir Friðriks Bjarnasonar tónskálds. Börn SiKrfðar og Júníusar urðu átta. Var Þuríður sjötta í röðinni. Hálfsystjr þeirra var Margrét Júníusdóttir, rjómabústýra við Baugstaðarjómabúið, sem nú hefur verið gert að minjasafni. Einnig bættist í hópinn Guðbjörg Jónsdóttir frá Stokkseyri. Páll var elstur, giftist Þórdfsi Eyjólfsdóttur frá Stokkseyri. Hann var kunnur íþróttamaður. Einkasonur þeirra fæddist eftir að hann drukknaði á þilskipinu Valtý 1920. Hann heitir Páll Júníus, rafvirkjameistari í Reykjavík. Ólst hann upp á Syðra- Seli hjá afa og ömmu. Hann er giftur Kristjönu Stefánsdóttur og eiga þau 4 börn. Næst var Sigríður, hjúkrunar- kona. Hún Iærði í Danmörku og vann síðast á Bispebjergspítala í Danmörku og dó þar 1927, ógift ■ og barnlaus. Bjarni fæddur 1893, vann á búi foreldra sinna. Hann dó árið 1967, ógiftur og barnlaus. Jóo, stýrimaður í Reykjavík, fæddur 1895, giftur Jónínu Jóns- — Minning Björn Framhaid af bls. 27 eyri. Þar og vfðar nyrðra hafði hann um skeið dvalið, á þeim slóðum þar sem hann var sfðast prestur. Hann var fæddur í Kaup- mannahöfn 21. jan. 1895, þar sem foreldrar hans áttu heima þá, en þau voru Oddur Björnsson, síðar prentsmiðjueigandi á Akureyri, bróðir sr. Magnúsar prófasts á Prestsbakka á Síðu, og Ingibjarg- ar Benjaminsdóttur bónda að Skeggjastöðum á Skagaströnd og viðar. Kynni mín af sr. Birni hófust, er hann kom hingað nývigður prestur árið 1922. Áður hafði ég heyrt þess getið, að mynd af hon- um hefði verið eða væri í barna- bók (Nýju barnagulli?) er faðir hans gaf út, og var til þess tekið, hve falleg myndin væri, svipur- inn heiður, enda virtist mér ævin- lega að sr. Björn myndaðist vel. En hann hafði meira til að bera en svipinn. Hið innra með honum sló hjarta, sem hin hiýja fram- koma hans við aðra mótaðist af og kom fram í mörgu. Hann virtist hafa áhuga fyrir sem nánustu sambandi við sóknarbörn sín, fór hægt yfir í húsvitjunarferðunum, svo að hafa mætti sem mestan tfma til umræðna. Og yrði hann þess var, að einhverjar erjur risu upp milli manna, var hann boðinn og búinn að vinna að sættum — og vannst eftir atvikum vel. Prestur var hann hér 11 ár (1922—33) var settur inn í em- bættið í Langholtskirkju í Meðal- landi af föðurbróður sínum sr. Magnúsi prófasti á Prestbakka. • Fór sú athöfn fram með virðuleik. Kirkjur hafði hann þrjár, enga heima á prestsetrinu, Ásum í Skaftártungu, hinar voru Grafar- kirkja í Skaftártungu og Þykkva- bæjarklausturskirkja f Álftaveri. Auk þess hafði hann auka- þjónustu um stuttan tima í Kirkjubæjarklaustursprestakalli, þar sem eru tvær kirkjur. — Á starfsárum hans hér (nærfellt dóttur frá Mundakoti á Eyrar- bakka. Þau eignuðust 2 börn. Jón lést árið 1967. Þuriður, fædd 1897, dáin 1975, ógift og barnlaus. Ágústa fædd 1899, seinni kona Jóns Magnússonar, kaupmanns frá Stokkseyri. Hún dó árið 1973. Yngst er Sigríður Júnía, fædd 1907. Hún er gift Jóhanni Eysteinssyni frá Hildisey, Land- eyjum. Þau eiga 2 dætur, sem búa í Vestmannaeyjum. Sigrfður átti með unnusta sínum, Einari Guðmundssyni, eina dóttur, Sigríði, handavinnukennara á Egilsstöðum. Fósturdóttirin, Guðbjörg, gift- ist Gísla Guðmundssyni frá Þjóð- ólfshaga. Þau eignuðust 2 börn. Gfsli lést 1971. Þuríður ölst upp hjá foreldrum sínum í glöðum systkinahópi. Þótti hún óvenjulega vel gefin og frið stúlka. Hún varð alvarlega veik af spönsku veikinni 1918 og náði sér ekki aftur fullri heilsu. Gat hún þó alltaf gcngið að léttari störfum. Árið 1944 fékk hún berklaveiki og fór á Vífilsstaði. Þá voru ekki komin þau lyf, sem nú eru og þurfti hún því að liggja nokkuð lengi. Var hún mjög þakk- lát öllu starfsfólki þar. Sérstak- lega bar hún mikið traust til Helga Ingvarssonar yfirlæknis. Segja má, að það hafi flýtt fyrir bata hennar, hvað hún bar mikið traust til lækna og hjúkrunar- fólks, Ieiddist ekki og var bjart- sýn um bata, enda náði hún fullum bata. Taldi hún það gæfu sína að fá vinnu á hælinu, þar sem hún gat alltaf verið undir læknishendi og fylgst vel með að hún ofgerði ekki heilsu sinni. Þuríður var mjög trúuð. Allt hennar lif einkenndist af kær- leika og hógværð. Það er líka gott veganesti, þegar æviskeiði er lokið. Jesús segir sjálfur: „Sælir öllum) voru ferðalög öll á hest- um, ekki nema verstu vötnin brúuð, hin upp og niður að vetrar- lagi. Fram úr þessu varð hann, kaupstaðarbarnið, að brjótast, og mun aðeins hafa notið aðstoðar, þegar verst gegndi. Og marga ferðina fór hann til Reykjavíkur á öllum árstímum, einkum í sam- bandi við útgáfustörf, að ég ætla. — Honum var létt um að semja var fljótur með ræður sínar, stíll- inn dálitið sérkennilegur og ræðuefni fjölbreytt. Og manna var hann ólatastur að skrifa sendibréf. Yfir þeim var léttleiki, létt rabb um „daginn og veginn", en hann gat einnig, ef tilefni gafst til, slegið á aðra strengi. Er mér í minni hið hugljúfa bréf, er hann sendi föður mínum eftir að hann í hárri elli hafði misst konu sína og systur. Þótt hann rækti preststarfið óaðfinnanlega, virtist hann engu síður hafa áhuga fyrir ritstörfum. Byrjaði hér að skrifa og halda úti tímariti, sem hann kallaði Jörð, og hélt því áfram eftir að hann fór héðan, allfjölbreyttu að efni, og loks kom að því, að hann gaf sig allan að því -og lét af prests- störfum þess vegna um tíma. Gerði sér hugmynd um að hann ynni meira menningarstarf með þeim hætti. En — lengst mun hans minnzt hér fyrir annað rit, bókina Vestur-Skaftafellssýsla og íbúar hennar, sem í hátíðarskyni var gefin út alþingis-hátíðarárið 1930. Vildu fyrirmenn sýslunnar koma slíku riti á framfæri til hátíðarhalds, og kom það í hlut sr. Björns að safna efni í það og búa undir prentun. Hugmynd þessi kom svo seint fram, að beita varð hinu mesta atfylgi við að koma henni í framgang. Hann ferðaðist um allar sveitir sýslunnar til að fá menn til að skrifa um efni, sem hann tiltók. Kom mönnum þetta á óvart, vöknuðu við „vondan draum“, töldu sig enga rithöf- unda vera, því sízt til að skrifa hátíðastíl og hefðu auk þess eng- an tíma til þess í önnum vordag- anna, en engin undanbrögð dugðu, hann hélt á máli sínu með festu og alúð, svo að menn fóru að eru hógværir, þvf þeir munu land- ið erfa.“ Hún hafði mikið yndi af að gefa og gleðja aðra. Passíusálmarnir voru hennar leiðarljós. Þar fann hún, að við erum öll dýru verði keypt til inn- göngu i betri heim. Hún lagði alltaf eitthvað til hliðar í svolítinn sjóð, í musteri það, sem er í bygg- ingu f Reykjavík og helgað minningu höfundar Passíu- sálmanna. Ánægjulegt var að heimsækja hana í litla herbergið hennar í húsi starfsfólksins á Vífils- stöðum. Þar ríkti kyrrð og friður. Ekkert umstang var hjá henni, sest var niður og rabbað. Konfekt- kassi látinn á borðið. Oftast voru börnin eða barnabörnin með, þau voru alltaf tilbúin að heimsækja Þuru frænku. Ef ekki var búið að tæma kassann, þegar átti að fara heim, var restin bara látin i nesti. Það var líka skemmtilegt að taka hana í bíltúr. Hugurinn leitaði alltaf á æskustöðvarnar. Það var alltaf opið hús hjá Sillu og Ingólfi á Efra-Seli og mátti hún vera þar í sumarhúsinu eins og hún vildi. Æskustöðvarnar og allt umhverfis það var hennar eft- irlæti að fara um. Það sést vel til allra átta frá Syðra-Seli. Þuríður vann á Vífilsstöðum, meðan aldur leyfði. Þá fór hún að skrifa — og hann sjálfur einnig. Bókin kom út og fékk góða dóma, enda var hún sérstætt rit f þátíð, varð forystubók í héraðsbók- menntunum, sem síðar hafa víða myndast í sýslum landsins. Höf- undar voru margir, en nú eru flestir þeirra dánir, en nöfn þeirra og verk geymast í bókinni og hún sjálf fræðibók um forna háttu sýslubúa og eykst að gildi með árunum á þessum miklu breytingatímum, sem síðan hafa gengið yfir þjóðina. Ritstörfum hélt sr. Björn áfram, eftir að hann fór héðan, frumsamdi og þýddi, svo að tillag hans á bókmennta- sviðinu er ærið. Við erfiðleika komst hann ekki laust: heilsan stundum ekki sem bezt, fjárhagur í þrengra lagi og prestshúsið ekki við hans hæfi. En hann kvæntist hér elskulegri konu, sem bar fyrir honum mikla virðingu, var honum ein eftir- látasta og tók innilega þátt í öllum kjörum hans. Hún hét Guðríður Vigfúsdóttir frá Flögu f Skaftár- tungu, í móðurætt komin frá Sveini Pálssyni lækni og náttúru- fræðingi. Hún lézt fyrir fáum ár- um. Þau eignuðust nokkur börn og lét hann mikið af barnaláni sínu. Þótt margs sé að minnast á skilnaðarstund, er mér hér efst f huga hinn góðlátlegi og hlýi maður. Þau eigindi hans komu í ýmsu fram, t.d. í umgengni við fólkið ekki sízt þá, sem kröppust höfðu kjörin, kveðjur hans til safnaðarins, er hann, auk venju- legrar kveðju-guðsþjónustu, ferðaðist ásamt konu sinni á nær öll — eða öll — heimili í presta- kallinu til þess að þau með handa- taki gætu kvatt allt sóknarfólkið með þökkum og góðum óskum. Og þegar hann síðar kom hingað sem gestur, — síðast í hittiðfyrra, 40 árum eftir að hann fór héðan — mátti segja að hann „húsvitjaði" heimilin til að heilsa með hlýju handtaki upp á skírnar- og ferm- ingarbörnin sín gömlu og annað fólk, eldra og yngra. Varð hann aufúsugestur, og kunni fólk þessari aðferð hans hið bezta. Og nú, þegar hann er allur og Ási í Hveragerði um tfma, en loftslagið passaði ekki heilsu hennar og ýfðust berklarnir upp. Var hún um tíma á spítala, en komst svo á Elli- og hjúkrunar- heimilið Grund. Undi hún sér vel þar, kvartaði aldrei yfir neinu. Hún sagði alltaf, að allir væru sér góðir. Margir heimsóttu hana og þar á meðal fyrrv. yfirlæknir Vífils- staða, Helgi Ingvarsson, sem mundi eftir sínum gömlu sjúklingum. Blessunaróskir hennar fylgja þeim, sem sýndu henni vináttu. Kveð ég hana með ljóðlínum sálmaskáldsins Valdimars Briem: Sá á mest & sönnum auði. sem á mestan kærleikann. Sá er mestur, sem er bestur, sannarlega það er hann. Mágkona. - Skemmdarverk Framhald af bls. 2 starfsmenn átt í erfiðleikum undanfarið vegna skemmdar- verka á áhöldum þeirra og vinnutækjum á þessum slóðum. Þannig voru fyrir fáeinum dögum brotnar sex rúður f þremur völt- urum, sem voru notaðir til gerðar gangstíga við Jórufell. Kvað ögmundur nú svo komið að ekki væri annað talið fært en að vakta tækin fram til mið- nættis á hverju kvöldi, því að tjónið af völdum skemmdar- verkanna næmi nú þegar tug- um þúsunda svo ekki væri talað um tafirnar sem þetta ylli. — Verzlun Framhald af bls. 3 Jens Guðjónssyni gullsmið og batikvörum frá Katrínu og Stefáni. Ingrid dvaldi hér í eina viku að þessu sinni. „Þetta var fyrst og fremst kynningarferð, því ég tel það algera nauðsyn fyrir þann sem hefur til sölu vörur eins og þær íslenzku sem þau hjón komin yfir móðuna miklu, sem öllum er fram undan, er mér efst i huga kveðjan til beggja eða hvors í sínu lagi: Flýt þér, vinur, í fegri heim, krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira aðstarfaguðs um geim. Börnum þeirra og nánustu ættingjum sendi ég hlýjar samúðarkveðjur. 3. 10 1975 Eyjólfur Eyjólfsson Hnausum f Meðallandi Hinsta kveðja flutt við kistu séra Björns O. Björnssonar, er hann var kistulagður I Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 2. okt. Svo kom þín stund, vor kæri faðir, nú kveðja þig vor hjörtu klökk. I vorri sorg vér syngjum glaðir, og segjum Guði lof og þökk. Svo verður dyggum hvfldin h<r, sem heim með sæmd frá verki sn<r. Orðin i eftirmælum séra Matthíasar Jochumssonar koma mér í hug, er við stöndum hér hjá kistu séra Björns O. Björnssonar með börnum hans og ástvinum. Reyndar átti ég erfitt með að átta mig á þvf, að hann væri dáinn, er ég frétti lát hans. Þótt hann væri nær dauða kominn, er hann var fluttur í sjúkrahúsið og aldur hans hár, var það líf og starf, er setti svipmót sitt á hann, en ekki svefn og dauði. — En dauðinn fer sínu fram. Þar verður eigi um þokað. Þótt séra Björn liggi hér nár, sé ég hann fyrir mér lffsglaðan hressan og gjörvu- legan eins og hann ævinlega var á langri samleið. Fyrir réttum mánuði var hann með okkur prestum á Vestmanns- vatni. Hann flutti okkur gagn- merkt erindi um viðhorf kristni til samtfðar og hinnar geigvæn- legu kjarnorku, sem ógnar öllu mannkyni. Við sátum í kring um hann við umræðuborðið. Hann var aldursforsetinn. Mál hans var ég hef sérhæft mig í, að kynna sér vöruna og hvernig hún er framleidd." Ingrid Berg hefur gert margt til að kynna þær íslenzku vörur sem hún hefur á boðstólum, gefið út bækling í litum, haft vörurnar til sýnis f stórum vöruhúsum og anddyrum hótela og margt fleira f þeim dúr. Hún sagði f viðtalinu við Mbl. að hún teldi íslenzku ullina eiga mikla möguleika á erlendum markaði vegna þess hve gæði hennarværu mikil og hún ein- stök f samanburði við aðra ull á markaðnum. Hennar mestu kostir væru hve létt hún væri og hve vel hún héldi hita. „Ég vona að ég eigi eftir að leggja mitt af mörkum til að kynna íslenzku vörurnar og koma þeim á framfæri," sagði Ingrid Berg að lokum. — Ólöf Pálsdóttir Framhald af bls. 3 að hann haldi tónleika i Skálholts- kirkju og Háteigskirkju ásamt þeim Svanberg og Hovaldt. Verkin sem flutt verða eftir Pál Ólafsson n.k. sunnudag eru „Föð- urbæn“, sem Páll tileinkaði Ólöfu dóttur sinni og „Góða nótt“. Bæði verkin eru fyrir orgel, básúnu og trompet. — Þorvaldur Framhald af bls. 3 forstjóri einróma kosinn formaður S.V.G. til næstu tveggja ára. Aðrir í aðalstjórn voru kosnir: Árni Stefánsson hótelstjóri, Hornafirði, Erling Aspelund hótel- stjóri, Reykjavík, Ragnar A. Ragn- arsson hótelstjóri, Akureyri, og Sigurjón Ragnarsson veitingamað- ur, Reykjavík. Fyrir í aðalstjórn voru Bjarni I. Árnason veitingamaður, Reykja- vík, og Steinunn Hafstað hótel- stjóri, Selfossi. I varastjórn eru: Stefán Ólafs- son veitingamaður, Reykjavfk, og Sveinbjörn Pétursson veitinga- maður, Kópavogi. þrungið vizku og kærleika. Með þá mynd í huganum minnist ég orða Hebrea-bréfsins: Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað, virðið fyrir yður, hvernig ævi þeirra lauk, og líkið síðan eftir trú þeirra. Séra Björn var þjónn Guðs í raun og sannleika. Hann predikaði í orði og verki, fram- komu og viðmóti. Hann gekk fram fyrir skjöldu í sókn og vörn. Hann átti djúpa þekkingu, hugvit og sannleiksást. Hann var merkur kennimaður. Þannig kom hann mér fyrir sjónir. Ég virti hann mikils, skoðanir hans og lífsviðhorf. Af fundi hans gekk maður lærðari og bjartsýnni. Séra Björn gekk öruggur og hugdjarfur til þessara þáttaskila. Við hann á hið forna spakmæli: Glaður og reifur skyldi gumna hver, unz sinn bíður bána. Trúin var honum sá stafur, sem lýst er í 23. sálmi Daviðs. Um dauðann hafði séra Björn mikið hugsað, eins og hver hlýtur að gera, sem horfir fram á hinztu vegamót. Með innri augum eygði hann undur og stórmerki trúarlífsins, sá Krist koma, hann, sem stýrir vorsins veldi og vernd- ar hverja rós, eins og segir í sálmi skáldsins frá Fagraskógi. Séra Björn O. Björnsson gekk fram í ljósinu. Birtan bjó í sál hans og ljómaði á andliti hans. Því gleymi ég ekki, hve sá ljómi var mikill, svipur hans hýr og góðmannleg- ur. Á haustkvöldi eru ferðalokin komin og augun hafa lokast. í Guðs firði hefur séra Björn sofnað. Og það hvílir mikil ró og friður yfir kistu hans, sem vekur sömu tilfinningu og Jónas Hallgrímsson lýsir i sólsetursljóði sínu: Hóglega hægleKa á hafsæng þ<ða sólin sæla síg þú til vióar. Nú er um heiðar himinbrautir för þfn farin yfir frjó\ga jöró. Guð blessi minningu séra Björns O. Björnssonar. Pétur Sigurgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.