Morgunblaðið - 20.11.1975, Qupperneq 1
36 SÍÐUR
266. tbl. 62. árg.
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bonn:
SÁTTFÝSI? —
Þeir virðast f sáttahug, Ein-
ar Ágústsson, utanrfkisráð-
herra, og Hans-Jiirgen
Wischnewski, aðstoðarutan-
rfkisráðherra Vestur-
Þýzkalands, og bjóða hvor
öðrum sæti af mikilli kurt-
eisi á samningafundinum f
Bonn í gærmorgun. T.v. er
Gunnar Thoroddsen, iðnað-
arráðherra. simamyndAP.
0 EINAR Ágústsson, utanríkisráðherra, sagði f samtali við Morgun-
blaðið f gærkvöldi, að viðræðum Islendinga og Vestur-Þjóðverja f
fiskveiðideilunni vrði fram haldið í dag og sagði að enn bæri töluvert á
milli, einkum er varðaði veiðisvæði. Reuter-fréttastofan hafði það eftir
heimildum í Bonn að fyrr um daginn hefði jafnvel verið búizt við því
að viðræðunum lvki samdægurs en síðar hefðu samningamennirnir
rekið sig á ýmis vandamál. Utanríkisráðherra staðfesti fregnir um að
Vestur-Þjóðverjar hefðu fallið frá fvrri kröfu sinni um 85 þúsund
tonna ársafla, en ekki vildi hann nefna aðra tölu að svo stöddu.
0 Er Einar var spurður hvort gildistaka bókunar 6 um lækkun tolla
væri skilvrði fvrir samningum sagði hann að þetta atriði væri til
umræðu, en varðist frétta að öðru leyti — einnig um það hvort
V-Þjóðverjar myndu semja um að virða 200 mílurnar f verki þótt þeir
viðurkenndu þær ekki formlega. Einar sagði að enn væri allt óljóst og
ekkert atriði frágengið. Hans Júrgen Wischnewski, aðstoðarutanrfkis-
ráðherra og aðalsamningamaður Þjóðverja, var hins vegar öllu bjart-
sýnni og hefur Reuter-fréttastofan eftir honum að samkomulag hefði
náðst um alit annað en veiðisvæði innan 200 mflnanna, en bætti við að
samkomulagið myndi ekki gilda til langframa. Hann kvaðst hins vegar
búast fastlega við að samkomulag mvndi takast.
Reuter-fréttastofan hefur eftir
Einari Agústssyni að enn væru
mörg mál óleyst. Um væri að ræða
ein 11 atriði, — um sum hefði að
mestu náðst samkomulag, en um
önnur væri enn alvarlegur
ágreiningur.
0 Belgar vonast eftir
samningum.
I gær gaf talsmaður belgíska
utanríkisráðuneytisins út yfirlýs-
ingu um að Belgar vonuðust til að
ná samningum f fiskveiðideilunni
við Islendinga, en samningar
þeirra runnu út sama dag og
samningarnir við V-Þjóðverja og
Breta.
r
Urslitakostir brezkra togaraskipstjóra:
Krefjast herskipavemdar
en stjórnin bíður átekta
Ágreiningur um veiði-
svæði og fleiri atriði
Viðræðum haldið áfram í dag
Bretadrettning
og þorskastrífið
□
□
Sjá frétt um há-
sætisræðuna á bls. 17
□
□
I HÁSÆTISRÆÐU sinni, sem
hún flutti f gær, minntist
Elfsabet Bretadrottning stutt-
lega á fiskveiðideilu Breta við
tslendinga og sagði: „Rfkis-
stjórn mín mun á virkan hátt
vernda hagsmuni fiskiðnaðar-
ins, og mun taka fullan þátt f
alþjóðlegum verndunarað-
gerðum og f mótun sameigin-
legrar stefnu f fiskveiðimál-
um. Hún reynir nú að ná nýju
samkomulagi um veiðar Breta
við fslenzku rfkisstjórnina til
að koma f stað þess sem er
nýrunnið út.“
Bandaríkin:
London 19. nóvember Reuter — AP
— Mike Smartt
• SKIPSTJÖRAR á brezkum
togurum á íslandsmiðum hafa
sett brezku ríkisstjórninni þá úr-
slitakosti að ef þeir fái ekki
vopnaða vernd fyrir áreitni
fslenzku varðskipanna frá hinum
konunglega brezka flota innan
þriggja daga, þá muni þeir sigla
af miðunum, að þvf er talsmaður
landbúnaður- og sjávarút-
vegsráðuneytisins staðfesti f dag.
Reuter hefur eftir fslenzku land-
helgisgæzlunni sem hlerað hefur
innbyrðis talstöðvarsamtöl togar-
anna, að 30 skipstjórar hefðu
staðið að úrslitakostum þessum,
tveir hefðu verið á móti, en
annaðhvort náðist ekki f 10 eða
þeir tóku ekki þátt f atkvæða-
greiðslunni.
0 Talsmaðurinn sagði hins vegar
að svar stjórnarinnar við þessari
orðsendingu væri að biðja
Flugher og flotinn
gegn 200 mílunum
Washington 19. nóvember — AP
TVEIR háttsettir embættismenn
bandarfska flotans og flughersins
sögðu f dag fyrir hermálanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings
um frumvarpið um 200 mflna út-
færslu bandarfsku fiskveiðilög-
sögunnar, að slfk útfærsla gæti
haft alvarleg áhrif á starfsemi
þessara greina hersins um heim
allan. James Holloway, yfirmaður
flotaaðgerða, sagði að útfærsla
gæti Ieitt til þess að Miðjarðar-
hafið lokaðist fyrir sjötta flota
Bandarfkjanna og jafnvel erlend-
um rfkjum, og þannig neytt
bandarfska kafbáta til að vera
ofansjávar á öllum tfinum. David
Jones, yfirmaður herráðs flug-
hersins, var á sama máli og sagði
að það sem gilti fyrir sjóínn gilti
Ifka fyrir loftið. Þeir sögðu að
þetta stafaði af því að aðrar þjóð-
ir lýstu vfir 200 mflna útfærslu f
hefndarskyni fyrir slfka útfærslu
Bandaríkjanna. Þeir, ásamt John
Norton Moore, aðalfulltrúa Hvfta
hússins á hafréttarráðstefnunni,
hvöttu tii þess að Ieitað yrði
alþjóðlegra samninga.
togarana að vera f hnapp um
verndarskipin þrjú sem komu á
miðin í dag og láta reyna á það
hversu vel þau geti verndað
togarana. Einnig er von á dráttar-
bátnum Lloydsman um hádegið á
morgun, fimmtudag, en móður-
skipið Hausa er á leið til heima-
hafnar með vélarbilun. Miranda
siglir frá Hull á mánudag f stað
Hausa. Heimildir í London herma
hins vegar að ef vernd þessara
óvopnuðu aðstoðarskipa reynist
ónóg þá séu nú hafnar skyndiráð-
stafanir til undirbúnings her-
Hattersley — talar f neori
málstofunni f dag
skipavernd, — ekki sfzt með til-
liti tíl úrslitakosta skipstjóranna.
Þá sagði The Times f dag, að
Nimrod-þota væri á leið til
tslands til eftirlitsflugs.
Skömmu áður en eitt af brezku
verndarskipunum kom skila-
boðunum frá skipstjórunum til
rfkisstjórnarinnar i London lauk
fundi Roy Hattersleys, aðstoðar-
utanrikisráðherra, og Fred
Pearts, sjávarútvegsráðherra,
með fulltrúum útgerðarmanna,
skipstjóra og áhafna um upp'lausn
viðræðnanna við Islendinga og
þau nýju viðhorf sem þá hefðu
skapazt. Engin yfirlýsing var gef-
in út um fundinn og ekkert var
tilgreint um flotavernd, en Peart
sagði að togaramenn hefðu verið
„mjög ánægðir" með ráðagerðir
stjórnarinnar í verndarmálum.
Fundurinn stóð I klukkustund.
Peart sagði ennfremur að togara-
menn væru „mjög ánægðir með
það hvernig við höfum staðið að
viðræðunum, — en auðvitað
leggja þeir áherzlu á að fá nauð-
synlega vernd. Ég tel þó ekki rétt
að segja neitt um það mál“.
Austen Laing, framkvæmda-
stjóri samtaka útgerðarmanna
sagði eftir fundinn: „Það var al-
gjör einhugur á fundinum og við
erum mjög ánægðir með það
hvernig Hattersley stóð að við-
ræðunum". Hann sagðist einnig
i
Banatilræði
við Fraser
Sydney 19. nóvember — Reuter
LÖGREGLAN i Astralíu hefur
gert strangar öryggisráðstafanir
eftir að sendar voru í dag tvær
bréfsprengjur til Malcolm
Frasers, forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnarinnar og til
Johannes Bjelke Petersen, for-
sáetisráðherra i Queenslandfylki,
og hefur ástralska póststjórnin
he'itið 20.000 dollara verðlaunum
fyrir upplýsingar sem leitt geta til
þess að upp kómist um tilræðis-
mennina. Öryggislögreglunni
tókst að gera bréfsprengjuna til
Frasers óskaðlega, en tveir skrif-
stofumenn særðust er bréfið til
Bjelke Petersen sprakk. Ef
sprengjan til Frasers hefði
sprungið hefði hún drepið eða
sært alla sem hefðu veríð i minna
en 5 metra fjarlægð. Petersen
hefur barizt hatrammlega gegn
stjórn Whitlams, fyrrum forsætis-
ráðherra, en bréfin tvö voru
stíluð á þá Fraser og Petersen og
póstlögð á tveimur stöðum í
Sydney.
vera ánægður með þá vernd sem
nú væri veitt, en „hvort hún verð-
ur nægjanleg verður að koma i
ljós“.
David Cairns, fulltrúi áhafna
frá verkalýðssamtökunum, sagði
að hann hefði fengið fullvissu um
að vernd yrði veitt til lengdar, en
neitaði að svara spurningum um
herskipavernd.
MIKILL ERILL I
ISLENZKA SENDIRÁÐINU
— Öll brezku blöðin i morgun,
sem hafa komið i sendiráðið,
segja frá fiskveiðideilunni i áber-
andi fréttum, flest á forsiðu, sagði
Helgi Ágústsson, sendiráðunaut-
ur í London í samtali við Morgun-
blaðið. — Times skýrir frá því i
tveggja dálka frétt að flugherinn
hafi gerzt aðili að deilunni með
þvi að ljá samkvæmt beiðni Nim-
rod-vél til könnunarflugs. í frétt-
inni segir að vélin fari frá Kinloss
áleiðis á Islandsmið i dag og muni
sveima yfir brezku togurunum og
fylgjast með þeim. Aftur á móti er
ljóst að engin fyrirskipun hefur
verið gefin um að herskip stefni á
Islandsmið, en það mun vitanlega
skýrást innan þriggja daga. Frei-
Franihald á bls. 20
Lífi Francos
ekki bjargað
Madrid 19. nóvember — Reuler
LÆKNAR Francisco Francos,
einræðisherra Spánar, gáfu f
dag upp alla von og hafa hætt
tilraunum til að bjarga Iffi
hans, en gefa honum aðeins
inn kvalastillandi lvf. Þegar
Mbl. fór f prentun hékk lff
Francos á bláþræði og var
jafnvel búizt við andláti hans á
hverri stundu.