Morgunblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÖVEMBER 1975 5 Thorvaldsensfé- lagið gefurLanda- koti veglega gjöf Thorvaldsensfélagið af- henti i gær barnadeild Landakotsspítala sér- stakt gjörgæzlutæki fyrir börn. Gjöf þessi er mjög vegleg, en tækið er einkum notað til þess að láta ófullburða börn vera í unz þau hafa hlotið nægan þroska. í tæki þessu er jafn hiti, súrefni og tæki til mælingar á hjartslætti barna. Einnig er unnt að nota tækið fyrir önnur börn en ungbörn. Á myndinni, sem hér fylgir, er príórinnan, Hildegard, að taka við gjöfinni, en formaður Thorvaldsensfélagsins, Unnur Ágústsdóttir, af- henti tækið. Góður afli • • hjá Ogra TOGARINN ögri landaði í Reykjavík í siðustu viku 215 tonn- um af fiski, mestmegnis þorski og grálúðu. Verðmæti aflans var 7,8 milljónir og meðalverð 36,40 krónur kílóið. Skipstjóri á Ögra er Brynjólfur Halldórsson. Sýning á verkum Jóns Engilberts SÝNINGU á verkum Jóns Engil- berts í Listasafni íslands átti að ljúka s.l. sunnudag, en vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að sýningin verði opin þrjá daga í viðbót. Verður það á fimmtudag, laugardag og sunnu- dag, alla dagana frá kl. 1,30—4 e.h. Umgengni RARIK eins og óðra fíla í frumskógi Miðhúsum við Reykhóla 19. nóvember. RAFMAGNSVEITUR ríkisins eru að endurbæta raflínu frá Króksfjarðarnesi að Reykhól- um. Umgengni flokksins er vinnur þetta verk er líkast þvl að fllar í frumskógi hafi brugðið á leik. Girðingar eru lagðar niður og slitnar, og stundum án þess að á þvl sé sýnileg þörf. Og dæmi eru til þess að fé hafi sloppið úr vörzlu vegna þessara aðgerða. Á læstum gróðurreit hefur lás verið sagaður sundur án þess að gerð hafi verið tilraun til að læsa hliðinu aftur. Ljótust eru þó svöðusárin sem skilin eru eftir á gróðri landsins, og mun það taka áratugi að þessi sár jafni sig. Fréttaritara er ekki kunnugt um að talað hafi verið við nokkurn bónda I haust áð- ur en flokkur fór yfir land þeirra. _ Sveinn Marantz 7 Allir þekkja regluna um, að engin keðja er sterkari en veikasti hlekkur hennar. Furðu margir virða þó að vettugi þessa staðreynd, þegar þeir velja og kaupa hljómtæki sin, og er allt of algengt, að há- talararnir nái ekki til nema hluta þess tónsviðs, sem keypt er dýrum dómum i vönduðum mögnur- um og plötuspilurum, eða, að ófullkomnir hátalarar afmyndi það ágæta hljóðmerki, sem vel byggður magnari og plötuspilari skila frá sér. Þegar hátalarar eru valdir, er semsé alls ekki nóg að huga að wött- um, stærð og útliti. Atriði, sem ekki skipta minna máli en t.d. flutningsgeta, eru tónsvið, kúrfa (bjög- un á uppgefnu tónsviði) og svo maður tali nú ekki um, hvort magnari sá, sem nota á við hátalarana, dugar til að drífa þá, en hátalarar eru mjög „mis- þungir.“ MARANTZ 7 hátalararnir eru hannaðir og byggðir með það fyrir augum, að þeir standi betri mögnurum og plötuspilurum vel á sporði í öllu tilliti, enda eru þeir í fremstu röð á sinu sviði, eins og öll önnur MARANTZ tæki. Verðið á MARANTZ 7 há- tölurunum er kr. 46.900,00 (stk.) og er það hóflegt, þegar tillit er tekið til hinna ágætu eiginleika þeirra. MARANTZ býður reyndar enn fullkomnari hátalara, tegund 8 og 9, en verð þeirra, kr. 83.700,00 og kr. 119.200,00 (stk.), kemur væntanlega i veg fyrir, að þeir geti orðið almenningseign. NESCO HF Leiöandi fyrirtæki á sviói sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik Simar: 19150-19192-27788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.