Morgunblaðið - 21.11.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1975
5
„ÞRAUTGOÐIR
Á RAUNASTUND”
Sjöunda bindi, eftir Steinar J. Lúðvíksson
BÓKAÚTGAFAN Hraundrangi
— Örn og Örlygur — hefur sent
frá sér 7. bindi hins mikla bóka-
flokks um Björgunar- og sjóslvsa-
sögu Islands. 1 þessu bindi eru
Steinar J. Lúðvfksson.
raktir atburðir áranna 1925, 1926
og 1927, en áður var búið að rekja
atburði áranna 1928—1958 og
fjalla um brautrvðjendur og for-
ystumenn slysavarna hérlendis.
Árið 1925 var eitt af meiri slysa-
árum i sögu þjóðarinnar og urðu
mannskaðar mestir í miklu óveðri
er gekk yfir landið og miðin dag-
ana 7. og 8. febrúar. Hefur ofviðri
þetta oft verið kallað Halaveðrið
mikla, en þegar það skall á voru
margir togarar, bæði íslenskir og
erlendir, við veiðar á Halamiðum
út af Vestfjörðum og lentu þeir
flestir í kröppum dans og tveir
þeirra fórust með allri áhöfn.
Drjúgur hluti hinnar nýju bók-
ar fjallar um þetta mikla ofviðri
og afleiðingar þess, en auk þess
eru raktir allir aðrir atburðir
þeirra þriggja ára sem bókin
spannar.
Ný bók eftir Árna Óla
KOMIN er út ný bók eftir Arna
Óla og nefnist hún „Dulheimar
tslands".
Bókin skiptist í 18 kafla og gefa
heiti þeirra gott yfirlit yfir efni
bökarinnar. Kaflarnir eru:
Trú og hjátrú, Upphaf trúar-
bragða, Forn trúarbörgð, Trú for-
feðranna, Galdur og fjölkynngi,
Goðatrú á íslandi. Menn verða að
vættum.blótnir staðir, Ragnarök
og nýjar vættir, Sól og máni, Loft-
andar, Landvættir, Dýr, Fuglar,
Tröll, Dvergar, Skjaldarmerki Is-
lands og Áfella.
Bókin er 188 bls. að stærð. Út-
gefandi er Setberg.
W
Dulheimar Islands
„Mannfólk milli sæva
— Staðhverfingabók”
Eftir sr. Gísla Brynjólfsson
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út ofanskráða bók, en
á kápu hennar segir m.a. að hún
sé í lausu máli, Ijóðum og mynd-
um lýsing á horfinni byggð. Hún
sé lifandi lýsing á atvinnuháttum,
daglegu lifi og mannlegum örlög-
um við rammíslenskar aðstæður.
Ráðstefna um
lánamálin
KJARABARÁTTUNEFND náms-
manna hefur ákveðið að boða til
ráðstefnu um hin margumræddu
lánamái um næstu helgi. 1 frétta-
tilkynningu sem nefndin hefur
sent Morgunblaðinu segir, að á
ráðstefnunni sé ætlunin að fjalla
um eftirtalda fimm málaflokka: 1.
hluta námskostnaðar á fjárlögum
1976, 2. endurskoðun laga um
námsaðstoð, 3. þjóðfélagslegt
hlutverk námsaðstoðar, 4. sam-
skipti námsmanna og verkalýðs-
hreyfingar og 5. verkmenntun.
Ráðstefnan verður haldin i
Árnagarði við Suðurgötu og hefst
hún á morgun, laugardag, kl. 9.
„Mannfólk mikilla sæva“ er átt-
hagarit. 1 fréttatilkynningu frá
útgefanda segir m.a.: „1 bókinni
er fyrst og fremst að finna lýs-
ingu á atvinnuháttum og daglegu
lifi fólksins sem við sögu kemur.
Hér fá prestar jafnt sem púls-
menn skráða sína sögu. Kirkjan
Framhald á bls. 20
Sr. GIsli Brynjólfsson.
Hansi Schmidt
og félagar skulu
sannarlega fá að
taka á honum stóra
sínum á morgun í
Laugardalshöllinni
kl. 15.00.
Frá tónleikum Sambands fslenzkra karlakóra 1 Háskólabfói f júlf f fyrra.
Samband sunnlenzkra karlakóra
HINN 9. nóvember s.l. var hald-
inn stofnfundur sambands sunn-
lenzkra karlakóra. Hlaut það
nafnið Katla og er hliðstætt
Heklu, sambandi norðlenzkra
karlakóra. Tilgangur sambands-
ins er að efla kynningu, sönglff og
söngkunnáttu meðal félaga karla-
kóranna.
Starfssvæði sambandsins er frá
Hornafirði til Breiðafjarðar og
eru eftirtaldir átta kórar aðilar að
þvf: Karlakór Stykkishólms,
Karlakórinn Svanir, Akranesi,
Karlakórinn Fóstbræður, Karla-
kór Reykjavíkur, Karlakórinn
Þrestir, Hafnarfirði, Karlakór
Keflavíkur, Karlakór Selfoss og
Karlakórinn Jökull, Höfn í
Hornafirði. í kórunum eru sam-
tals um þrjú hundruð söngmenn
Stjórn Sambands íslenzkra
kariakóra (S.l.K.) átti frumkvæði
að stofnun sambandsins, en fimm
af aðildarkórum þess sungu á
kóramóti S.I.K. í júlí 1974.
Formaður Kötlu, sambands
sunnlenzkra karlakóra, var kjör-
inn Sigurður Hallur Stefánsson,
Hafnarfirði, en aðrir i stjórn
5. REGLULEGU tónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar tslands verða
haldnir fimmtudaginn 27. nóvem-
ber kl. 20.30 í Háskólabiói. Stjórn-
andi verður Bohdan Wodiczko og
einleikari Rut Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari. Fluttur verður forleikur
eftir Stanislaw Moniuzko, skozk
fantasía fyrir fiðlu og hljómsveit
eftir Max Bruch og Sinfónía nr.
10 eftir Dmitri Sjostakovitsj.
Athygli er vakin á því, að aðeins
ein vika er á milli þessara tón-
leika og tveggja tónleika þar á
eftir. 6. reglulegu tónleikarnir
verða haldnir 4. desember, og 7.
tónleikar 11. desember. Tón-
Stefán Bjarnason, Akranesi, og
Árni Þór Eymundsson, Reykja-
vik.
leikunum 4. desember stjórnar
Vladimir Ashkenazy, og einleik-
ari verður Radu Lupu píanóleik-
ari, sem leikur pianókonsert nr. 4
eftir Beethoven. önnur verk á
efnisskránni eru Egmont forleik-
urinn eftir Beethoven og Sinfónia
nr. 1 eftir Brahms.
Karsten Andersen stjórnar tón-
leikunum 11. desember, og verður
þá flutt Carmina Burana eftir
Carl Orff. Flytjendur auk Sin-
fóniuhljómsveitarinnar eru ein-
söngvararnir Ölöf Harðardóttir,
Þorsteinn Hannesson og Garðar
Cortes og Söngsveitin
Filharmónía.
Fimmtu tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar
TÍZKUVERZLUIM UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 6S LAUGAVEG 20a
Simi frá skiptiborði 28155