Morgunblaðið - 29.11.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÚVEMBER 1975
31
— Erfið
Framhald af bls. 15
kraftmiklum sáttaumleitunum í
Miðausturlöndum, og að Frelsis-
hreyfingu Palestínuaraba, PLO,
verði heimiluð aðild að sáttavið-
ræðunum. ísraelar eru eindregið
andvígir viðræðum við PLO sem
þeir segja vera hermdarverka-
samtök sem reyni að útrýma Isra-
elsríki.
— Bonn
Framhald af bls. 1
okkur með samkomulaginu til
að sjá til þess að bókun sex tæki
gildi innan fimm mánaða og við
munum gera okkar bezta I
Briissel til að svo verði."
Aðspurður um hvað gerðist
ef Bretar beittu sér gegn því að
bókun sex tæki gildi, sagði tals-
maðurinn:
„Ef Bretar koma í veg fyrir
að bókunin taki gildi innan
fimm mánaða þá kemur það sér
mjög illa fyrir Þjóðverja, því þá
fellur samkomulagið við ís-
lenzku stjórnina úr gildi. Það
er þess vegna ljóst að við verð-
um að gera það sem við getum
og vona að Islendingar og Bret-
ar nái samkomulagi sin á milli."
— Einar
*
Agústsson
Framhald af bls. 2
bandalaginu. Einnig nefndi utan-
ríkisráðherra, að hugsanlega
mætti setja innflutningsbann á
brezkar vörur til lslands. Ef til
úrsagnar úr NATO kæmi kvað
Einar Island myndu leitast við að
verða hlutlaust ríki.
Þá sagði Einar Ágústsson í við-
tali við Mbl. í gær að það færi
eftir ástandinu hinn 10. desember
á miðunum umhverfis landið,
hvort hann sækti utanríkisráð-
herrafund NATO eða ekki.
— Hestar
Framhald af bls. 10
ræðum um tillöguna, að það væri
sitt álit að óþarft væri að birta
kappreiðaannál með þeim hætti,
sem gert hefur verið síðustu ár, þar
sem mikið væri um að þarna kæmu
sömu hrossin fyrir á blaðslðu eftir
blaðsiðu Nokkrar umræður urðu
um þessa tillögu, og var I þeim m a
bent á nauðsyn þess að birt yrði að
loknu hverju keppnistímabili
afrekaskrá, en til þess að svo geti
orðið þurfa skýrslur hestamanna-
félaganna um kappreiðar að vera
fyllri Sumir töldu, að hér væri um
óþarfa njðurskurð að ræða á efni en
tillagan var samþykkt með 48
atkvæðum gegn 10.
— Landb.vörur
Framhald af bls. 2
bændur yrðu þá að fá enn meiri
hækkun að loknu þessu fjögurra
mánaða verðstöðvunartímabili. I
byrjun næstu viku verður
væntanlega tekin endanleg
ákvörðun um, hvort landbúnaðar-
vöruhækkunin kemur til fram-
kvæmda en Ijóst er að hækkunin
tekur ekki gildi á mánudag.
— Samningurinn
Framhald af bls. 32
við báðar atkvæðagreiðslur og at-
kvæði féllu f báðum tilfellum á
sömu lund.
Mikið málþóf var á Alþingi,
bæði í fyrradag og daginn þar
áður, og stóðu fundir báða þá
daga fram yfir kl. tvö að nóttu.
Útvarpsumræður féllu inn í þenn-
an fundasprett. Alls munu um 34
alþingismenn hafa kvatt sér
hljóðs í umræðum þessum sumir
oftar en einu sinni, fáeinir tíðar,
en alls munu 55 ræður hafa verið
fluttar um málið.
— Grænland
Framhald af bls. 1
stjórnar þeirra, utanríkisráðu-
neytisins í Kaupmannahöfn, sam-
taka danska sjávarútvegsins og
landstjórnarinnar 1 Færeyjum.
Jörgen Peter Hansen Græn-
landsmálaráðherra fer bráðlega
til Madrid og Moskvu til viðræðna
um takmarkanir á rækjuveiðum
spænskra og sovézkra skipa við
vesturströnd Grænlands. Græn-
lendingar segja að rækjustofninn
sé í alvarlegri hættu vegna of-
veiði fiskiskipa frá Sovétríkjun-
um, Spáni og Noregi.
Sjávarútvegsráðherra Norð-
manna, Eivind Bolle, sagði að
loknum viðræðum Norðmanna og
Dana um sjávarútvegsmál að
norsk yfirvöld mundu ekki
heimila aukna rækjuveiði
norskra togara við Græniand.
Bolle ræddi ásamt Jens Even-
sen hafréttarráðherra við Ivar
Nörgaard viðskiptaráðherra og
Poul Dalsager sjávarútvegsráð-
herra um fyrirhugaða útfærslu
norsku fiskveiðilögsögunnar í 200
mflur á næsta ári.
— Vonzkuveður
Framhald af bls. 32
eða slasaðir menn.
I gærdag var tilkynnt að
freigáturnar tvær, Falmouth og
Brighton, væru á Ieið á miðin
fyrir Norðausturlandi. Var búizt
við þvf að þær myndu fara yfir
200 mflna Ifnuna um klukkan 22 f
gærkveldi og koma á miðin f
bítið í morgun, en Falmouth er sú
freigátan, sem hefur yfirmann
verndunaraðgerða Breta innan-
borðs. I gær, er eldur kviknaði f
færeyskum togara 130 sjómflur
suðsuðaustur af Dyrhólaey,
breytti freigátan Brighton um
stefnu og geystist f átt til hins
brennandi togara. Má því gera ráð
fyrir að hún tefjist eitthvað og
komi sfðar á miðin en Falmouth.
— Óhugnanlegt
Framhald af bls. 15
suður af örebro, þar sem for-
eldrar hennar búa, en hún er dótt-
ir auðugs búgarðseiganda. For-
eldrar hennar höfðu fengið í pósti
bréf þar sem krafizt var lausnar-
gjalds upp á 325.000 s.kr. og einn-
ig fengu þeir bréfleiðis vísifingur
dóttur sinnar. Segir lögreglan víst
að vísifingurinn hafi verið skor-
inn af eftir að stúlkan var látin.
Lögreglan leitar nú annars manns
sem kann að vera viðriðinn mann-
ránið.
— Tónleikar
Framhald af bls. 5
prófi lauk hann árið 1967 en
stundaði siðan nám í eitt ár til
viðbótar við annan skóla með
megináherzlu áljóðasöng.
— íþróttir
Framhald af bls. 30
Guðmundur Pálsson gerðu nú
uppspili frá Eiríki Stefáns og
Gunnari Árnasyni góð skil, en
Víkingar voru sem negldir við
gólfið og hávörnin mjög léleg.
Þeir létu þetta þó ekki á sig fá
og í úrslitahrinunni sigruðu þeir
verðskuldað 15—7 og var sigur-
inn í hrinunni aldrei í hættu.
Dómarar leiksins voru Halldór
Jónsson og Pétur Björnsson og
voru þeir mjög óákveðnir oft, létu
leikinn ganga og slepptu mörgum
brotum.
Þá hafa Þróttur og IS leikið i
Reykjavíkurmótinu og Iauk þeim
leik með sigri ÍS 3—1. Urðu úr-
slitin í hrinunum: 15—13, 15—10,
10—15 og 15—2. Beztu menn
Þróttar í þessum leik voru
Gunnar Árnason og Guðmundur
Pálsson, en i liði IS léku Sigfús og
Indriði bezt, en aðrir leikmenn
liðsins stóðu þeim þó ekki langt
að baki.
— Hreinsanir
Framhald af bls. 1
saman til fyrsta fundar síns i dag
siðan stjórnin fór í verkfall, en á
það er lögð áherzla að stjórnin
hafi ekki hafið störf sín að nýju.
— Erni bjargað
Framhald af bls. 5
olíu aftan á hálsi, á baki og
bringu. Hann var magur, en samt
mjög var um sig. Var hann
geymdur á Keldum og alinn
fyrstu vikurnar á hrossaketi, fiski
og hjörtum. Dr. Finnur Guö-
mundsson sá að öllu leyti um fugl-
inn. Varla nokkru sinni át hann
sjálfur og þurfti að mata hann
daglega eða annan hvern dag.“
Þegar fuglinn var kominn i gott
ástand, var hafizt handa um að
losa hann við olíuna. Efna-
fræðingum hér tókst þó að búa til
efni sem er nær eins. Fyrir um
það bil viku var svo efninu úðað á
fuglinn en áður þurfti að setja
svarta hettu um höfuð hans og
leðurhanzka um klær hans. Efn-
inu var síðan úðað á fuglinn, það
binzt olíunni og allt gufar upp.
Eftir að fuglinn hafði tvisvar
sinnum fengið þessa meðferð var
öll olía horfin úr fiðri hans, en
fjaðrirnar voru þó nokkuð skakk-
ar. Var þá brugðið á það ráð að
rétta þær með loftþurrku og eftir
það var ástand arnarins orðið það
sæmilegt, að flogið var með hann
til Stykkishólms og var honum
sleppt á sömu slóðum og hann
fannst á.
— Bretar
Framhald af bls. 1
tökusveitum ef það reynist
nauðsynlegt til að ná aftur brezk-
um togara, sem Islendingar kunni
að taka. Þeir segja að búizt sé við
að íslendingar reyni að taka
brezkan togara sem verði viðskila
við togaraflotann eða er á heim-
Ieið með afla.
Lið manna, sem eru sér-
þjálfaðir í skipatökum, er um
borð f Falmouth og Brighton og
búizt er við mótspyrnu frá íslend-
ingum, segja fréttamennirnir.
Yfirmaður freigátanna, John Tait
kafteinn, segir að beitt verði „lág-
marksvaldi" og notaðir verði
bátar eða þyrlur eftir atvikum.
NEITAÐ I LONDON
Talsmaður flotadeildar brezka
landvarnaráðuneytisins neitaði
því í viðtali við Mbl. í gær að
sérþjálfaðar skipatökusveitir
væru um borð í Falmouth og
Brighton.
„Við höfum engar sérþjálfaðar
sveitir við Island," sagði tals-
maðurinn. „Hins vegar er upp-
ganga í önnur skip venjulegur
þáttur í þjálfun allra sjóliða á
freigátum og svo hefur verið allar
götur síðan ég var í sjóhernum og
það var fyrir 30 árum. öllum sjó-
liðum okkar eru kenndar aðferðir
til að ráðast um borð í skip og það
er oft gert hér við brezku strönd-
ina."
Ráðuneytið viðurkenndi hins
vegar að skipherrar freigátanna
hefðu leynileg fyrirmæli um
hvernig þeir ættu að bregðast við
ef íslenzkt varðskip reyndi að
taka brezkan togara.
— Kafbáturinn
Framhald af bls. 2
kafbáta á tslandsmið. Sagði
talsmaðurinn að ráðuneytið
gæti enga grein gert sér fyrir
hverrar þjóðar báturinn væri.
Marshall Thyer, blaðafulltrúi
varnarliðsins á Keflavfkurflug-
velli sagði í gærkvöldi að
varnarliðið væri enn að kanna
þetta mál og þvf væri ekki hægt
að segja nákvæmlega til um
þjóðerni kafbátsins. „Það
hefur þó verið gengið rækilega
úr skugga um það að kafbátur
frá einhverri af aðildarþjóðum
Atlantshafsbandalagsins hafi
ekki verið á þessum slóðum á
miðvikudag," sagði Thyer.
Hann sagðist ekki geta sagt um
hvort kafbáturinn væri austur
evrópskur, það væri ekki vitað.
„Það eina, sem ég get sagt með
vissu er að kafbáturinn er
hvorki brezkur, bandarfskur né
frá öðru Atlantshafsbandalags-
rfki," sagði hann.
— Þorvaldur
Framhald af bls. 19
Ég var einn þeirra, sem greiddi at-
kvæði gegn þessum sampingi við
Breta 1973 Við, sem greiddum at-
kvæði gegn samkomulaginu, töldum,
að íslendingar gæfu og mikið eftir með
því að ákveða að 5/6 hlutar 50 mllna
landhelginnar að fráteknum báta- og
friðunarsvæðum, væru stöðugt opnir
Bretum. Við töldum og að lokunartími
hinna einstöku hólfa væri annar og
okkur óhentugri -en islenzkir útvegs-
menn og sjómenn hefðu óskað eftir og
vonað, og það kæmi afar illa við suma
landshluta og verstöðvar Við bárum
fyrir okkur, að samningurinn fæli ekki i
sér viðurkenningu Breta á 50 milum
og enga yfirlýsingu væri í honum að
finna um að við stefndum að land-
grunninu öllu og að við myndum taka
okkur 200 mílur áður en langt um liði
I þessu sambandi höfum við ekki farið
að með nægilegri gát og vöruðum við
að samningstímanum loknum myndu
Bretar taka til hernaðaraðgerða á nýjan
leik gegn okkur. Hve sannspáir höfum
við ekki orðið! Þvi miður.
0 Stóllinn góði og samvizkan
Nú hefir hv. iðnaðarráðherra tekið af
mér ómakið að bera saman brezka
samninginn frá 1973 og þennan
samning sem nú er á dagskrá Hann
lagði hv. 2. þingmann Austfirðinga svo
kyrfilega til i þessu sambandi að ekki
þarf frekar vitnanna við.
En ég verð þó að segja hv. 2 þing-
manni Austfirðinga til lofs að i umræð
um hér á hv. Alþingi um brezka samn-
inginn, kom fram, að hann sá og skyldi
galla samningsins mæta vel! Ég fann
þá engan teljandi mun á gagnrýni
minni á samningnum og gagnrýni hv.
2. þingmanns Austfirðinga. Og utan
þings hafði þessi hv. þingmaður uppi
miklu meiri fordæmingu á þessum
brezka samningi en ég hafði nokkru
sinni. Ég átti því ekki á öðru von en að
atkvæði okkar hv 2. þingmanns Aust-
firðinga féllu á sama veg um samning
þennan. En það fór samt á aðra leið
Hann greiddi atkvæði með samningn-
um en ég á móti. Hér kom til stóllinn
góði sem var svo dýrkeyptur eins og
hv. iðnaðarráðherra hefir þegar lýst
Þegar við hlýðum nú á hv. 2. þing-
mann Austfirðinga bölsótast svo gegn
samningi við Þjóðverja, sem átt hefir
stað i þessum umræðum, þá getum við
ekki annað en undrazt það, þegar vað
höfum í huga atkvæði hans með
brezka samningnum 1 973. En kannski
er þetta ekkert frekar að undrast heldur
en framferði þessa hv. þingmanns árið
1973, ef stóllinn góði er enn i dæm-
inu
Eins og ég áður sagði ætla ég ekki
að elta ólar við fullyrðingar stjórnar-
andstæðinga. Mér kom til hugar að
gera eina undantekningu, þar sem er
hv. 5. þingmaður Vestfirðinga Þessi
hv þingmaður setti fram fjölda furðu-
legra fullyrðinga með miklum hávaða
Hann sagði: „Fórnað er málstað
islenzku þjóðarinnar. í staðinn fyrir að
færa landhelgina úter húnfærð inn. Er
ætlunin að ganga af Vestfjörðum dauð-
um." En ég held að ég svari ekki
þessum fullyrðingum hv. 5. þing,
manns Vestfirðinga Það fer bezt á þvi
að þessar fullyrðingar standi sem
minnisvarði um málflutning þessa hv.
þingmanns
En til þess að fá úr þvi skorið hvort
hv. 5. þingmaður Vestfirðinga er yfir-
leitt viðræðuhæfur vil ég aðeins spyrja
hann einnar spurningar. Ég spyr hann
hvers vegna það sé af þvi góða að
hleypa Bretum inn i alla landhelgina
úti fyrir Vestfjörðum utan 20 milna í
10 mánuði á ári, en stefni Vestfjörðum
i slögtun, ef Þjóðverjar hefðu leyfi til að
vera á takmörkuðu svæði í landhelgi
utan 34 til 38 milna Þegar hv 5
þingmaður Vestfirðinga hefir svarað
þessu, kann hann að vera viðræðuhæf-
ur.
— Tilboð
Framhald af bls. 32
þegar að því kæmi, að
Bretar drægju herskip sín
til baka frá tslandi og
bættu ráð sitt, þyrfti að
byrja að nýju alveg frá
grunni.
Eins og kunnugt er lýsti
Roy Hattersley aðstoðar-
utanríkisráðherra því yfir
í neðri málstofu brezka
þingsins, að Bretar væru
reiðubúnir til þess að
lækka kröfur sínar frá
þeim 110 þúsund tonnum,
sem þeir settu fram í
sfðustu viðræðum. Is-
lenzka rfkisstjórnin hefur
hins vegar lýst þvf yfir, að
nýjar viðræður komi ekki
til greina meðan brezk her-
skip eru í fslenzkri fisk-
veiðilögsögu.
r
— Jón Arnason
Frumhald af bls. 19
Það hefur verið okkar ógæfa, hvað
sumir af okkar framámönnum hafa haft
lítinn áhuga á sjálfri friðuninni Það er
að friða veruleg veiðisvæði, þar sem
vitað er um þýðingarmiklar hrygn-
ingarstöðvar og þau svæði önnur, sem
að ungfiskurinn heldur sig á Með þvi
að nýta þessa þætti samkomulagsins
til hins ítrasta getum við örugglega
bjargað miklu og stöðvað vissan þátt
rányrkjunnar. En hér eigum við íslend-
ingar þvi miður ekki aðeins I baráttu
við útlendinga Hér eigum við einnig i
baráttu við okkur sjálfa, og það er hart
til þess að vita, hvað oft hefur verið
talað fyrir daufum eyrum, þegar á þetta
hefur verið bent.
íslendingar
í fremstu víglinu.
Það hefur komið fram f þessum
umræðum, þegar rætt hefur verið um
það hámarksmagn, sem að samkomu-
lagið felur í sér, að nú þurfi að taka
sérstaklega með í reikninginn, að ís-
fiskurinn rýrni og léttist frá þvf að
fiskurinn kemur inn fyrir borðstokkinn
og þar til hann er veginn á markaðnum
f söluhöfn. Það er engu líkara en að hér
sé um ný vísindi að ræða En ég verð
að segja, að ég minnist þess ekki, að
þessir sömu ræðumenn hafi vakið sér-
staklega athygli á þessu f sambandi við
brezka samninginn frá 1973, þvf að
sjálfsögðu hefur þetta lögmál verið
fyrir hendi þá
Stækkun landhelginnar er eitt af
þeim málum, sem segja má, að öðru
fremur sé sama og við sjálfstæðissögu
íslenzku þjóðarinnar íslenzku þjóðinni
er það löngu Ijóst, að það eru auðævi
hafsins umhverfis strendur landsins,
sem hún á öðru fremur Iffsafkomu sina
undir Það er að sjálfsögðu með hlið-
sjón af því, að ekkert mál, sem að
Alþingi hefur með höndum á jafn-
óskipta athygli þjóðarinnar og land-
helgismálið. Og svo hefur það verið
allt frá þvf, að baráttan fyrir stækkun
landhelginnar hófst á fyrri hluta aldar-
innar
Sjálfsagt eru allir sammála um, að
æskilegast væri að við sjálfir, íslend-
ingar, gætum ákveðið stærð okkar fisk-
veiðilandhelgi, hvort sem um hefur
verið að ræða 12, 50 eða 200 sjómíl-
ur Og að þegar við höfum tekið okkar
ákvörðun, þá sé málið útrætt og engar
veiðar útlendra aðila leyfðar í íslenzkri
landhelgi og því síðan framfylgt f lag-
anna nafni
— En því miður, málið er ekki svona
einfalt, og þessvegna hafa fslenzkar
ríkisstjórnir hverjar á eftir annarri farið
þá leið að leggja sig fram um að ná
samkomulagi um málið og með því
náð hverjum áfanganum á eftir öðrum
Á síðari árum hefur þróunin orðið mun
hraðari en áður og okkur hagstæðari á
alþjóðavettvar gi Við höfum fylgzt vel
með og vegna þeirrar sérstöðu, sem
þjóðin á við að búa í þessum efnum
hefur hún skipað sér í fremstu linu i
sókn til aukinna umráða yfir öllu land-
grunninu og verðmætum þess
Skammt í
fullnaðarsigur
í dag eru menn sammála um að
hverju stefnir, og að skammt sé undan
að fullur sigur náist Þessvegna er það
jafnvel enn nauðsynlegra nú en áður.
að þjóðin standi saman i órofafylkingu
og nái því fram nú sem fyrr i samning-
um við þær þjóðir, sem hér eiga hlut
að máli, sem bezt má verða með tilliti
til þeirra möguleika, sem þjóðin hefur
yfir að ráða
Það sem mér finnst erfiðast að sætta
sig við í þeim samkomulagsdrögum.
sem hér eru til umræðu, er hvað
hámarksaflinn, sem að Þjóðverjar
mega taka, er mikill Það er hins vegar
staðreynd, að hér er um árangur að
ræða, sem okkar samningsmenn hafa
talið sig geta náð beztum, en Sjálf-
stæðismenn hafa áður staðið einnig að
samningum um landhelgismálið við
aðrar þjóðir Og í því sambandi má
minna á samkomulagið við Breta, sem
gert var þegar landhelgin var færð út í
1 2 sjómílur
Hér var einn háttvirtur alþingis-
maður að tala um það áður, að rétt
væri að bera þetta samkomulag undir
þjóðaratkvæði Það sama héldu þeir
fram, þegar samningurinn var gerður
um 1 2 milna útfærsluna, en ég vil i þvi
sambandi segja, að þá átti sér stað
þjóðaratkvæðagreiðsla um það sam-
komulag. sem þá var gert. þvi að
skömmu eftir að samningurinn var
gerður, þá fóru fram kosningar í land-
inu, og að sjálfsögðu var þetta stórmál
með í myndinni, þegar þær kosningar
fóru fram, en eins og allir muna, að i
þeim kosningum bætti Sjálfstæðis-
flokkurinn verulega við sig fylgi og þar
með hafði þjóðin kveðið upp sinn dóm
varðandi þá samninga, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn þá hafði beitt sér
fyrir. að gerðir yrðu
Það er með tilliti til þess, að ýmis
ákvæði þessa samkomulags, sem hér
er til umræðu, er að minu áliti mjög
mikils virði fyrir íslendinga, eins og ég
áður hef vikið að, og þá sérstaklega í
sambandi við þá möguleika. sem við
getum haft varðandi friðunarsvæði.
hrygningarsvæði. og friðunarsvæði
fyrir ungfiskinn, ef rétt er á haldið, þá
tel ég að það séu þeir þættir þessa
samkomulags, sem séu mjög mikils
virði fyrir okkur íslendinga Og með
tilliti til þess, og einnig með tilliti til
þeirra aðstöðu, sem íslendmgar eru nú
I, eftir að Bretar hafa sett herskip sin
inn i íslenzka landhelgi. þá tel ég að
rétt sé að samþykkja það samkomulag.
sem hér liggur fyrir