Morgunblaðið - 02.12.1975, Page 2

Morgunblaðið - 02.12.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975 Aðalfundur Amnesti í kvöld AÐALFUNDUR Islandsdeildar Amnesti International verður haldinn í kvöld klukkan 20,30 að Hótel Esju. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, en einnig flytur biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, erindi um mannréttindi. Samtökin hafa nú starfað í eitt ár á Islandi, en þau vinna að því að fá leysta úr haldi pólitfska fanga og berjast fyrir þvf að mannréttindayfirlýsing Sam- einuðu þjóðanna sé haldin. „Kreppan” í Háskólabíói HÁTlÐARSAMKOMA stúdenta á fullveldisdaginn 1. desember var haldin I gær I Háskólabfói. Dagskrá samkomunnar var helg- uð „kreppunni" og var flutt f tali og tónum. Dagskránni var útvarpað. Styttum biðina með þvíað rifja upp endurmmningamar segja sögur og tálga Hríðarbólstrar á suðurhimni. Ljósm.: Ól. K. M. A SUNNUDAGINN komu til Ólafsfjarðar mennirnir þrfr, sem höfðu verið tepptir í skipbrotsmannaskýlinu í Héðiqsfirði í fjóra sólarhringa. Mennirnir höfðu farið til Héðinsfjarðar að ná í fé en tepptust þar þegar árabátur sökk undir þeim og nokkrum kindum f svartamyrkri 20 faðma frá landi og björguðust mennirnjr naumlega f land. Ekki reyndist unnt að ná í mennina sjóleiðina vegna veðurs og var brugðið á það ráð á laugardaginn, eins og fram kom f Mbl. á sunnudag, að senda þrjá menn á skíðum landlciðina til Héðins- fjarðar með mat og skfðaútbúnað. 1 ferðina fóru þeir Björn Þór Ólafsson, Sveinn Stefánsson og Konráð Antonsson. Þeir Björn Þór og Sveinn eru báðir landskunnir skfðamenn en Kohráð er þaul- kunnugur Ieiðinni sem farin var, en hún er illfær á vetrum vegna snjóa. Mennirnir sex komu síðan allir landleiðina á skfðum á sunnudag og sagði Björn í sam- tali við Jakob Ágústsson, frétta- ritara Mbl. á Ólafsfirði, að óvíst væri að þeim félögum hefði tekizt að komast á leiðarenda ef þeir hefðu ekki notið kunnug- leika Konráðs, en vandratað er í slfku veðri sem var á laugar- daginn, hvassvirði og snjó- komu. Þeir Sveinn og Konráð eru úr björgunarsveit SVFI á staðnum en hún undirbjó björgunarleiðangurinn og hafði samband við björgunarmenn- ina meðan á ferðinni stóð. For- maður björgunarsveitarinnar er Ari Eðvaldsson. „Það var allt í þessu fína hjá okkur," sagði Sigmundur Agn- arsson, einn þremenninganna sem veðurtepptir urðu þegar Morgunblaðið hafði samband SKVLIÐ 1 HEÐINSFIRÐI — Þetta er skýli Slysavarnafélagsins. Það var reist árið 1966 og stóðu slysavarnadeildirnar Vörn og Strákar I Siglufirði að byggingu þess. Félagar úr Strákum, sem reistu skýlið, sjást hér fyrir framan það. við hann í gær og innti eftir dvelinni í Héðinsfirði. Hinir tveir eru Rögnvaldur Ingólfs- son og Elmar Vfglundsson.„Það var ágætur hiti í skýlinu enda nóg af kolum og ullarfatnaði. Við höfðum ljósaluktir og kerti og svo gátum við haft samband við Ólafsfjörð í gegnum talstöð- ina í skýlinú. Lítið matarkyns var í skýlinu, aðeins súpur og kaffi en það var engin neyð á ferðum og ef í harðbakkan Framhald á bls. 26 Kjarvalsmynd seld á uppboði í Höfn á 800 þús. krónur LISTMUNAUPPBOÐ var haldið í Kunsthallen í Kaupmannahöfn dagana 26. og 27. nóvember síðast- liðinn. Á uppboðinu voru óvenjumörg íslenzk lista- verk, en dýrasta myndin, sem slegin var af hinum íslenzku, var Þingvalla- mynd eftir Jóhannes S. Kjarval, sem slegin var á 29 þúsund danskar krónur eða um 800 þúsund íslenzk- ar. Matsverð myndarinnar var samkvæmt verðskrá 18 þúsund danskar krónur eða um 500 þúsund. Mál- verkið mun íslendingur hafa keypt. Uppboðið stóð í tvo daga eins og áður er getið. Fyrri daginn voru boðin upp verk eftir listamennina Gunnlaug Blöndal, Kristján Davíðsson, Jón Engilberts, Framhald á bls. 26 Nóg vinna á Raufarhöfn „ÞAÐ er nóg vinna hérna,“ sagði Guðmundur Friðriksson verk- stjóri hjá frystihúsinu Jökli á Raufarhöfn f samtali við Mbl. f gær.“ Það er unnið hér til kl. 7 flesta daga og hér vinna um 60 manns. Þetta er aðalvinnan hér og reyndar sú eina og allt byggist þetta á skuttogaranum Rauða- núpi. Hann landar hér að jafnaði vikulega 60—80 tonnum, er nú á sjó f brælunni á miðunum fvrir vestan. Hljóðið? Jú, það er gott f okkur hérna, en það er hins vegar leiðindaveður." flokksráðsins: Skýra ber málstað íslands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins — Ósk um endurgjald fyrir varnar- aðstöðu kemur ekki til greina Kafbáturinn sovézkur SAMKVÆMT áreiðan- legum upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, mun kafbáturinn, sem sást frá landhelgisgæzlu- flugvélinni SÝR í fyrri ' viku, hafa verið sovézk- ur. Kafbáturinn sást bæöi í ratsjá og eins með berum augum 33 sjómíl- ur frá landi. Er kafbát- urinn varð flugvélarinn- ar var stakk hann sér í djúpið. SAUTJÁN starfsmönnum ísafoldarprentsmiðju h.f. hefur verið sagt upp störf- um, þar sem verið er að leggja gömlum vélum prentsmiðjunnar, en í gær var undirritaður samning- Á FUNDI flokksráðs Sjálf- stæðisflokksins sl. laugar- dag var samþykkt ályktun, þar sem segir að nýta beri ur við Guðmund Benediktsson um að hann tæki að sér setningu fyrir ísafold. Samkvæmt upplýsingum Ólafs B. Thors, sem er í stjórn ísafoldarprent- Atlantshafsbandalagið sem vettvang til að skýra mál- stað íslands í landhelgis- málum en jafnframt er smiðju, hefur samningur verið gerður við Guðmund, sem hefur undir höndum mjög afkastamiklar raf- eindavélar, sem setning fer fram með. Slík setning er mun hagkvæmari en blýsetning og er verið með þessu að gera rekstur prentsmiðjunnar hag- kvæmari. Af þeim 17 starfsmönnum, sem sagt hefur verið upp, eru flestir setjarar. ítrekuð sú stefna Sjálf- stæðisflokksins að ekki komi til greina að æskja endurgjalds fyrir varnar- stöðu þá, sem látin er í té í landinu. Ályktun flokksráðsins er svohljóðandi: Flokksráðsfundur Sjálfstæðis- flokksins 1975 Varnarmál FLOKKSRÁÐ sjálfstæðismanna leggur áherzlu á nauðsyn þess að tryggja öryggi landsins með aðild að varnarsamtökum vestrænna þjóða. FORD-umboðin Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson hafa nú verið sameinuð í eitt og mun fyr- irtækið verða starfrækt í Skeif- Telur flokksráðið að nýta beri Atlantshafsbandalagið sem vett- vang til þess að skýra málstað íslands í landhelgismálinu og koma f veg fyrir áframhaldandi ólögmæta valdbeitingu Breta í íslenzkri fiskveiðilögsögu. Flokksráðið ítrekar þá stefnu Sjálfstæðisflokksins, að ekki komi til greina að æskja endur- gjalds fyrir varnaraðstöðu þá, sem látin er í té í landinu. Afstaðan til varnarsamstarfsins og varnarstöðvanna hlýtur að mótast af öryggishagsmunum landsins á hverjum tíma. unni 17 undir nafninu Sveinn Eg- ilsson h.f. Búið er að flytja starfsemi Kr. Kristjánssonar í Skeifuna þar sem öll starfsemi umboðsins verð- ur f nýju húsi sem liggur fast að gömlu verzluninni hjá Sveini Eg- ilssyni h.f. Þar verður til húsa verzlun, sýningarsalur og skrif- stofur að sögn Þóris Jónssonar forstjóra. Uppsagnir vegna breytinga á setningu Ford-umboðin í eitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.