Morgunblaðið - 02.12.1975, Síða 13

Morgunblaðið - 02.12.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975 13 „Þar er spurt um leyndar- mál hins lifandi heims” Málverkasýningar Jónasar Guð- mundssonar í 3 borgum erlendis MALVERKASVNINGAR á verk- um Jónasar Guðmundssonar list- málara og rithöfundar hafa staðið yfir að undanförnu í borgunum Oxnabriick og Miinster f Þýzka- landi og einnig f Luxemburg. Við röbbuðum stuttlega við Jónas um þessar svningar, en þær hafa fengið lofsamleg ummæli í er- lendum blöðum. Upphaf þessara sýninga var með þeim hætti að þýzkur graffk- listamaður, Rudolf Weissauer, bauð Jónasi að sýna með sér í Miinster í Galleri Clasing. Þar eru fjórir salir og sýndu þeir í tveim- ur hvor, en salurinn er einn sá þekktasti í þessum fjðlmenna háskólabæ þar sem tugþúsundir stúdenta stunda nám. Jónas kvað viðtökurnar hafa verið ákaflega ánægjulegar, fólk hefði heypt myndir og ummæli blaða hefðu verið lofsamleg og var sýningin framlengd. þessum sýningum og verður myndin sýnd í þætti sem heitir List í Evrópu og verður þar einn- ig sett inn í filma sem sjónvarps- menn báðu Jónas úm af vinnu hans í vinnustofu sinni. Hinn kunni gagnrýnandi Munsterischer Anzeiger, dr. Bernard Gervink, segir í gagnrýni sinni undir fyrirsögninni ,,Frá ókunnum ströndum", að mynd- irnar beri sterk séreinkenni, en í þeim komí fram þrá eftir víðátt- unni eins og söknuður til fram- andi stranda. Þá getur hann þess einnig að það sé einkennandi hve skip komi aftur og aftur. Síðan segir Gervink: „Vatnslitamynd- irnar sem hangá í sýningarsaln- um sýna að Jónas er tilfinninga- næmur og hugmyndaríkur lista- maður. Myndefnin eru að mestu frá íslenzku umhverfi og við hlið skipa eru landslag, eldfjöll, menn og dýr. Myndirnar eru mjög hug- Jónas Guðmundsson lægar en renna þó ekki út í hið óraunverulega, heldur er sköpun þeirra örugg og ákveðin. Veröld sú sem þessi listamaður málar hefur hann séð og upplifað. Lit- irnir eru daufir og skera ekki í augun, en einmitt i því liggur máttur þess sem þeir eiga að lýsa. Myndirnar eru árangur einlægrar vinnu, þar sem spurt er um leynd- armál hins lifandi heims". Gagnrýnandi France Journal sem gefið er út í Luxemburg, lýsir sýningu Jónasar sem eftirtektar- verðri þar sem frásagnarhæfileik- ar Jónasar komi vel fram og verk hans einkennist af lífsþrótti og innra afli. „Sérliver mynd,“ segir blaðið, „segir sina sögu, fallega eða dapurlega, en alltaf sanna. Málarinn hefur stöku sinnum gaman af að gera nákvæma lýs- ingu á landslagi og í slíku um- hverfi verða lýsingar hans svo flóknar að sumir telja abstrakt, en með frásagnarhæfileikum sín- um skapar málarinn líf með ein- faldri mynd af fáeinum bátum á dökkum grunni." STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Fundatækni Námskeið i fundatækni verður haldið að Skipholti 3 og 1 2. desenber og stendur yfir kl. 1 5:30 — 1 9:00 alla dagana. Fundarstörf eru veigamikill þáttur í stjórnun, og flestir stjórnendur eyða miklum tíma á fundum. Tilgangur námskeiðsins er að benda á, með hverjum hætti er mögulegt að nýta betur þann tima, sem varið er til fundarstárfa. Leiðbeinandi verður Friðrik Sophusson framkvæmda stjóri. Þátttaka tilkynnist í síma 82930. Þekking er góð fjárfesting. I Oxnabrúck sýndi Jónas 16 vatnslitamyndir á einkasýningu og i ágúst s.l. opnaði hann sýn- ingu í Galleri Jos Beffa, sem er elzti og virtasti sýningarsalur Luxemborgara. Sú sýning var einnig framlengd þar til fyrir skömmu. Evrópusjónvarpið tók myndir á Jökull Jakobsson „Feilnóta í fimmtu sin- fóníunni Ný skáldsaga eftir Jökul Jakobsson BÓKAÚTGÁFAN örn og Örlygur hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Jökul Jakobsson. Nefnist hún „Feilnóta í fimmtu sin- fóníunni". Bókin fjallar um til- finningalíf giftrar, miðaldra konu í Arnarnesinu. Hún heldur við síðhærðan slána i Þingholtunum, meðan eiginmaðurinn klifrar metorðastigann og rennir stoðum undir þingmennskuna. Á bókarkápu segir m.a.: „Mann- lífið er margslungin sinfónía og mannfólkið eins og strengir i stóru slagverki, sem sífellt skipta um tóntegund og hljóma, allt eftir því hvernig á þá er slegið. Einn getur framkallað undursamlega tóna, þar sem annar nær engu nema óræðu surgi. Mannleg náttúra lætur ekki að sér hæða nú fremur en fyrri daginn“. Aflabrögð á Akranesi Akranesi, 28. nóvember 1 VIKUNNI, sem er að líða, lönd- uðu skuttogararnir Haraldur Böðvarsson AK 12 106 lestum og Ver AK 200 85 lestum með blönd- uðum fiski. Fimm vélbátar veiða nú með línu hér í Faxaflóanum. Þeir hafa aflað frá þremur til fimm lesta í veiðiferð. Aflinn hefur verið fallegur þorskur og ýsa. Raunar veiðir línan vænsta fiskinn og grisjar stofnana hæfi- lega. — Júlíus. Röndóttir ^ Rúllukraga LAUGAVEGUR ©-21599 BANKASTRÆTI ©-14275

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.