Morgunblaðið - 02.12.1975, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.12.1975, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975 16 flfaKgpusiltffiMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Eftir þær umræður, sem orðið hafa síðustu vikur um ástand fiskstofnanna og samninga um veiðiheimildir fyrir aðrar þjóðir innan 200 milna fiskveiðimarkanna, er Ijóst, að ekkert viðfangsefni er þýðingarmeira í okkar þjóð- félagi um þessar mundír en verndun fiskstofnanna. Skýrsla Hafrannsóknastofnun- ar í októbermánuði, sem sýndi að hámarksafli þorsks á næsta ári mætti ekki verða meiri en 230 þúsund tonn ef komast ætti hjá hruni þorskstofnsins á árinu 1 979, hefur komið eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir þjóðina og er það í sjálfu sér skiljanlegt vegna þess, að ekki hefur, fyrr en nú, verið gerð alvarleg tilraun til þess að koma fólki i skilning um hvilík hætta er hér á ferðum En þótt við séum nú fyrst að vakna til vitundar um þá stað- reynd, að sá fiskstofn, sem þjóðin byggir lifsafkomu sina á, er í alvöru i þeirri hættu að fara sömu leið og síldarstofninn fyrir tæpum áratug, er Ijóst, að visindamenn okkar hafa á undanförnum árum gert itrekaðar tilraunir til þess að koma aðvörunum á framfæri en ekki verið á þá hlustað Þannig hefur nú verið upplýst, að í marzmánuði 1 972 skrifaði Hafrannsóknastofnun þáver- andi sjávarútvegsráðherra, Lúðvík Jósepssyni, bréf, þar sem þeirri skoðun Haf- rannsóknastofnunar var lýst að minnka yrði sóknina i þorskinn um helming, ef ekki ætti illa að fara. Lúðvik Jósepsson hafði þessar aðvaranir Hafrannsóknastofnunar, og aðrar af sama tagi, sem stofnunin sendi frá sér um þetta leyti, að engu. í maí- mánuði 1972 flutti einn fremsti sérfræðingur þjóðar- innar í þorskrannsóknum, dr. Sigfús Schopka, útvarpserindi, þar sem hann sagði m.a.: „Það er samdóma álit fiskifræðinga, að islenzki þorskstofninn sé nú fullnýttur og aukin sókn muni ekki skila.sér í auknum afla. Þvert á móti muni afli i sóknar- einingu minnka við aukna sókn þ.e að minni afli kemur i hlut hvers og eins og er þvi full ástæða að koma í veg fyrir, að sóknin aukist. Langæskilegast væri að draga úr sókninni í þorskinn þar sem það stuðlar að hagkvæmari veiðum." Fjölmargar fleiri slíkar til- vitnanir mætti draga fram úr greinum og ræðum fiskifræð- inga okkar á árinu 1972, og bæði fyrr og síðar, en bersýni- legt er, að þeir hafa talað þar fyrir daufum eyrum. Þar er að sjálfsögðu við marga að sakast og hvert okkar um sig getur litið í eigin barm og spurt, hversu mikið mark við höfum tekið á þessum aðvörunum visindamanna okkar. Augljóst er hins vegar að mest er ábyrgð þess manns, sem gegndi æðsta embætti í islenzkum sjávarút- vegsmálum á þessu tímabili, Lúðvíks Jósepssonar, sem virti aðvaranir fiskifræðinganna að vettugi en stuðlaði miklu frem- ur að stóraukinni sókn i þorsk- stofninn. Þetta er nauðsynlegt að menn geri sér Ijóst og liggi fyrir enda þótt það muni ekki verða þorskstofninum til bjarg- ar að rifja upp þau mistök, sem aðrir menn hafa gert á undan- förnum árum. Hitt er miklu þýðingarmeira verkefni nú á næstu mánuðum og misserum, að ríkisstjórnin taki ótviræða forystu i þeim málum, sem varða verndun þorskstofnsins og annarra fisk- stofna á íslandsmiðum. Þetta eru þær auðlindir, sem við ís- lendingar höfum að byggja á lifsafkomu okkar og jafnvel þótt það muni reynast miklum erfiðleikum bundið að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að'vernda þessar auðlindir er svo mikið i húfi fyrir þjóðina alla, að ekkert má láta ógert í þessum efnum. Sá þáttur þessa máls, sem mest hefur verið til umræðu á undanförn- um vikum, þ.e. samningar við erlendar þjóðir um veiði- heimildir á íslandsmiðum, er aðeins hluti vandans. Miklu minna hefur verið rætt um þá hlið, sem að okkur sjálfum snýr þ.e. veiðar okkar sjálfra á fiski- miðunum og rányrkju okkar sjálfra. Ekki leikur nokkur vafi á þv!, að þegar að þvi kemur á næstu mánuðum, að stjórnvöld gera tilraun til þess að koma einhverri stjórn á veiðar okkar sjálfra á miðunum mun heyrast hljóð úr horni og margir munu verða tilbúnir til þess að risa upp og efna til æsinga vegna þess að takmarkanir verði sett- ar á það frjálsræði, sem fiski- menn okkar hafa haft til þess að sækja aflann. Þess vegna er nauðsynlegt að við gerum okk- ur strax grein fyrir því að stjórn og skipulag veiða okkar sjálfra til verndunar fiskstofnunum er stærsta mál islenzku þjóðar- innar í dag ásamt því að beita öllu afli okkar til þess að draga úr veiðum útlendinga, og horfa að lokum á eftir siðasta togaranum, sem siglir heim frá íölandsmiðum. VERNDUN FISKISTOFNANNA Andrei Kirilenko Leiðtogaskipti í Sovétríkjunum? Leonid Brezhnev Moskvu — 1. des. — NTB — Reuter — Observer. TILKYNNING sovézka kommúnistaflokksins að loknum miðstjórnarfundi flokksins nú um helgina þykir gefa til kynna að engin breyting verði á valdastöðu Brezhnevs, aðalritara, f nánustu framtíð, auk þess sem tilkynningin er taiin bera með sér, að Kosygin gegni stöðu forsætis- ráðherra landsins enn um sinn. Á miðstjórnarfundinum var samþykkt dagskrá 25. þings kommúnistaflokksins, sem hefst f febrúarlok á næsta ári. Sam- kvæmt dagskránni flytur Leonid Brezhnev skýrslu miðstjórnarinn- ar fyrir þau fimm ár, sem þá verða liðin frá sfðasta flokks- þingi. Verður ræða Brezhnevs að- alræða þingsins. Á flokksþinginu mun Aleksei Kosygin flytja ræðu um stefnu flolíksins fram til árs- ins 1980. Að undanförnu hefur ýmislegt þótt benda til þess, að leiðtoga- skipti í Sovétríkjunum væru á næsta leiti. Þannig greinir brezka blaðið Observer frá því nú um helgina, að Andrei Kirilenko taki að öllum líkindum við af Brezhn- ev á næstunni. Hafi þetta orðið niðurstaða framkvæmdanefndar flokksins (Politburo), sem 16 manns eiga sæti í, eftir meirihátt- ar ósamkomulag innan miðstjórn- ar flokksins um ýmis stefnuatriði, svo sem slökunarstefnuna (dét- ente) og ákvörðun um eftirmann Brezhnevs. Andrei Kirilenko er jafngamall Brezhnev, — 69 ára. Hann er Ukrafnumaður og einn áhrifa- mesti miðstjórnarmaður komm- únistaflokksins, en hann á jafn- framt sæti i forsætisnefnd flokks- ins. Kirilenko var á sfnum tima skjólstæðingur Krushevs. Hann hefur oft komið fram fyrir hönd Brezhnevs I forföllum hans und- anfarið ár. Almennt hefur verið talið, að undir forystu hans yrði stefnan að mestu óbreytt frá því sem verið hefur. Miðstjórn kommúnistaflokks Sovétríkjanna hefur ekki komið saman síðan í aprílmánuði s.L, enda þótt I lögum sé svo ráð fyrir gert, að hún komi saman eigi sjaldnar en á misserisfresti. Hef- ur þetta verið talið stafa af ósam- komulagi því, sem að ofan greinir. Vfsbendingin um áframhald- andi forystu Brezhnevs þykir benda til þess, að árangurs sé að vænta í afvopnunarviðræðum Bandarikjanna og Sovétrfkjanna (SALT), en bandarískir embætt- ismenn hafa látið í ljós ótta við, að hlé kynni að verða á viðræðunum, ef leiðtogaskipti yrðu i Sovétríkj- unum. 1 FRÉTTABRfiFI Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar (WHO) segir að árlega deyi um fimm milljónir manna af völdum krabbameins f heiminum, og á sama tímabili komi í Ijós sex milljónir nýrra krabbameinstil- fella. Skýrslur leiða í ljós, að nú er hægt að lækna þrjá til fjóra af hverjum tíu krabbameins- sjúklingum, en mestum árangri hefur verið náð í viðureigninni við krabbamein í legi, barka, vör- um og húð. Eiturefni 1 umhverfínu aðalorsök krabbameins Þar sem viðeigandi meðferð er beitt við sjúklinga, sem eru með legkrabba á byrjunarstigum, ber lækning árangur f 60 til 80 tilfell- um af hverjum 100. Skýrslur frá Heilbrigðismálaráðuneyti Sovét- ríkjanna greina frá því, að um 1,5 milljónir manna, sem læknazt hafi af krabbameini fyrir fimm árum eða meira. séu enn á lifi. 1 grein, sem aðstoðarforstjóri WHO, dr. Alexander Pavlov, ritar í nóvember-tölublað World Health, — tímarit, sem gefið er út af stofnuninni, koma þessar upp- lýsingar fram, en þar segir Pavlov einnig: „Það er ekki fráleitt að búast við þvf, að krabbameins- vandamálið verði leyst jnnan fárra áratuga.“ Rannsóknir hafa leitt f ljós lík- ur á því, að 80 af hundraði allra krabbameinstilfella í mönnum stafi beint eða óbeint af eiturefn- um í umhverfi mannsins. Þá hafa rannsóknir á krabbameini í lifur leitt í ljós að sjúkdómurinn stend- ur í beinu sambandi við ofneyzlu áfengra drykkja. I Norður- Frakklandi hafa margir of- drykkjumenn fengið krabbamein í vélinda, en það virðist ótvfrætt eiga rætur sínar að rekja til neyzlu áfengis, sem búið er til úr eplasafa, og mikið er drukkið á þessum slóðum. í Wórld Health ritar dr. Gisela Gástrin, finnskur sérfræðingur f leit að brjóstkrabba, grein, þar sem lögð er mikil áherzla á mikil- vægi upplýsingastarfs þegar um er að ræða krabbameinsvarnir. Hún telur að slíkt upplýsingastarf þurfi að miðast við heilbrigt fólk, sem hætt er við sjúkdómnum, annaðhvort af völdum tóbaks- reykinga eða vegna sérstakra að- stæðna á vinnustað, ekki síður en þeirra, sem þegar hafa sýnt merki þess að hafa tekið sjúkdóminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.