Morgunblaðið - 17.02.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976
Mikil björgunaræfing
haldin á Suðurnesjum
Sandgerði 16. feb.
SlÐASTLIÐINN laugardag fór
fram f Sandgerði sameiginleg æf-
ing sjóbjörgunarsveita á Suður-
nesjum. t þeirri æfingu tóku þátt
sveitir frá slysavarnafólögunum f
Garði, Sigurvon 1 Sandgerði, Eld-
ey I Höfnum, Þorbirni f Grinda-
vfk og björgunarsveitin Stakkur f
Keflavfk. Einnig mættu frá Slysa
varnafélagi tslands Hannes Haf-
stein framkvæmdastjóri og Oskar
Þór Karlsson erindreki. Undir-
búning og skipulagningu æfing-
arinnar önnuðust féiagar f björg-
unarsveitunum f Sandgerði og
Garði. Konur þeirra stóðu einnig
fyrir rausnarlegum kaffiveit-
ingum f samkomuhúsinu f Sand-
gerði meðan á æfingunni stóð og
eftir hana.
Æfingin hófst í samkomuhús-
inu klukkan 16 með kaffidrykkju
og þar voru sýndar fræðslu-
myndir frá sjóbjörgun og björg-
unartækni og kynnt var ný gerð
af línubyssum, sem björgunar-
sveitirnar hafa nú fengið til
afnota frá SVFl. Klukkan 19,30
fór fram sameiginleg björgunar-
æfing við höfnina I Sandgerði.
Var gert ráð fyrir því að bátur
með 20 manns um borð hefði
strandað á Bæjarskerseyri.
Byrjað var á að skjóta björgunar-
linu yfir í hinn „strandaða bát“,
sem í þessu tilviki var i höfninni í
Sandgerði, en skotið var á milli
hafnargarða og voru menn dregn-
ir á björgunarstól á milli. Kom þá
í ljós að tveir gúmmíbátar með 7
mönnum áttu að hafa slitnað frá
hinu strandaða skipi með alllöngu
millibili en sökum áttabreytinga
átti þá að reka í sina hvora áttina.
Var þá skipulögð leit að þeim á
fjörum frá Garðskaga og suður
undir Hvalsnes og fundust þeir
allir að lokum i mismunandi ásig-
komulagi. Mjög slæmt veður var á
laugardaginn þegar æfingin fór
fram, hvöss suðvestanátt og élja-
gangur.
Að æfingu lokinni komu menn
saman í samkomuhúsinu og
ræddu björgunaræfinguna og var
sammála álit allra að hún hefði
verið mjög lærdómsrik. — Jón.
Yer ðbólgnsamningar voru
niðurstaða síðasta
allsherjarverkfalls
RÉTT tæplega 2 ár eru nú frá
þvf er sfðast kom til allsherjar-
verkfalls. Verkalýðsforystan
hafði boðað til allsherjarverk-
falls hinn 19. febrúar 1974, en á
sfðustu stundu frestuðu félög
verkfalli til þess að unnt yrði
að freista þess að samningar
næðust. Var frestunin til 23.
febrúar, en eitt félag
Verzlunarmannafélag Reykja-
vfkur, neitaði þó að veita frest
og fór þetta stærsta launþega-
félag eitt f verkfall hinn 19.
febrúar. Kom þá greinilega f
Ijós, hve lamandi áhrif verkfall
verzlunarmanna hefur á þjóð-
félagið f heild.
Aðfararnótt hins 23 febrúar,
er verkfailið skyldi skella á,
lagði sáttanefnd ríkisins fram
sáttatillögu eða hugmyndir að
tillögu og samþykktu fulltrúar
vinnuveitenda tillöguna, en
ASl felldi. Tillögurnar földu í
sér, 23,9% meðaltalshækkun á
tveggja ára tfmabili, þar af
16,8% strax. Hitt voru áfanga-
hækkanir. VR hafnaði einnig
tillögunni. Ríkisstjórnin sem þá
var við völd, hafði allmikil af-
skipti af deilunni og á tfma
voru 3 ráðherrar 6 sáttasemjur-
um til aðstoðar við lausn deil-
unnar. Ráðherrarnir voru Lúð-
vík Jósepsson, Björn Jónsson
og Halldór E. Sigurðsson. Hinn
26. febrúar hafði svo náðst sam-
komulag í meginatriðum 18%
kauphækkun strax og um 25%
á samningstfmanum. Þegar
gengið hafði verið frá auka-
kröfum var hin raunverulega
prósentuhækkun samninganna
þó allmiklu hærri en þessar töl-
ur sögðu til um, enda fóru yfir-
borganir iðnaðarmanna inn í
kjarasamninga og dæmi voru
þess að kauphækkun þeirra fór
allt að þvf í 50%.
1 Morgunblaðin daginn eftir
að samið var, voru viðtöl við
Framhald á bls. 35
John Prescott:
Bretar mundu ekki
fremur en Islendingar
sætta sig við þrýst-
ing NATO í deilunni
Á FUNDI, sem John Prescott,
þingmaður Verkamannaflokks-
ins frá Hull, átti með frétta-
mönnum áður en hann hélt
heimleiðis í gær, kom fram, að
þingmaðurinn hefði hvorki
komið hingað til lands með til-
lögur til lausnar deilunni né
heldur færi hann héðan með
ákveðnar tillögur. Hann sagðist
vera þeirrar skoðunar, að Is-
lendingar vildu semja, þótt enn
bæri, talsvert á milli. Hann
kvaðst þó hvorki vera bjart-
sýnn eða svartsýnn á lausn deil-
unnar er hann færi héðan.
John Prescott sagðist hafa
orðið var við það í samræðum
við menn hér á landi, að sumir
litu á aðildina að Atlantshafs-
bandalaginu sem trompspil í
deilunni við Breta. Hann sagði:
„Það eru mistök að halda, að
NATO geti verið einhver
dómari i þessu máli. Islend-
ingar verða að skilja, að Bretar
mundu ekki fremur en Islend-
ingar sætta sig við þrýsting
NATO í deilunni, enda eru
þetta tvö algjörlega aðskilin
mál, — fiskveiðideila og aðild
að varnarbandalagi.
John Prescott kvaðst hafa
rætt hér við allmarga aðila, —
ráðherra, þingmenn, vfsinda-
menn og almenning, enda hefði
það verið tilgangur sinn með
heimsókninni til íslands að
kynnast viðhorfum manna til
málsins að eigin raun um leið
og hann gerði grein fyrir
sjónarmiðum umbjóðenda
sinna við Islendinga, en i Hull
hefðu menn ekki siður áhyggj-
ur af ástandinu en hér.
Þá vék þingmaðurinn að
hugsanlegum stjórnmálaslitum
Islendinga við Breta. Hann
lagði áherzlu á, að sú ráðstöfun
yrði aðeins til ófagnaðar, þar
sem viðræður yrðu þá að heita
mætti útilokaðar. Hann kvað
það skoðun sína, að í við-
ræðunum í Reykjavik í nóvem-
ber hefðu Bretar verið óraun-
sæir, — þeir hefðu þá átt að
taka tilboðinu um 65 þúsund
tonna aflamagn. Hann benti á,
að sfðan hefðu Bretar komið
nokkuð til móts við Islendinga,
sem hins vegar hefðu ekki
hnikað til. Eftir viðræður
undangengna daga væri það
skoðun sín, að hægt væri að
samræma sjónarmiðin og mæt-
ast einhvers staðar á leiðinni,
en hann vildi ekki gizka á hvar
snertipunkturinn væri.
John Prescott var að þvf
spurður, hvort hann hefði orðið
var við ágreining meðal þeirra,
sem sæti ættu í fslenzku sam-
steypustjórninni. Hann svaraði
þvf til, að hann hefði vissulega
orðið var við mismunandi
skoðanir og skilning á málinu,
meðal annars hjá mönnum úr
sama flokki.
Feröamiöstööin hf.
Aðalstræti 9.
símar 281 33 og 11 255.
COSTA BLANCA — BENIDORM
Köln
Herratfskusýning
Brottför 25. febrúar
Verðfrá: 59.900.—
Frankfurt
Alþjóðleg vörusýning.
Brottför 21. febrúar.
Verð frá: 60.500 —
mimh iMúnchen
Alþjóðleg sportvörusýning ^
ISPO '76
Karnival '76 á sama stað
og sama tíma.
Brottför 25 febrúar
Verðfrá: 63.000 —
Páskaferðin
til Benidorm
er17 daga ferð
(aðeins 6 virkir dagar).
Brottför 9. apríl.
Verð frá 47.000.
Benidorm
er 10.000 manna bær við tvær
bestu sólarstrendur Spánar,
Playa de Levante og Playa de
Poniente, dálltið sunnar en
Mallorka. Bærinn er um-
kringdur fjallahring á þrjá
vegu, sem orsakar að þar er
hæstur meðalhiti á allri
spænsku ströndinni 22° C. allt
árið.
9 april 12. júli
25 apríl 26. júli
12. maí 9. ágúst
31. mai 23 ágúst
14. 28 júní júní. 6 20 sept. sepr