Morgunblaðið - 17.02.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.02.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976 23 kostnað og fjármál Búrfellsvirkj- unar frá Landsvirkjun, formanni og framkvæmdastjóra, er áætlað meðalkostnaðarverð á rafmagni í aurum á kílówattstund frá Búr- fellsvirkjun, svo sem greinir f eftirfarandi töflu, sem fylgisskjal með nefndaráliti á Alþingi 1969—70, 45. mál fskj. 365 frá meirihluta fjárhagsnefndar, bls. 9. Þá er áætlað meðalkostnaðar- verð í aurum á selda kílówatt- stund frá Búrfellsvirkjun annars vegar með sölu til álbræðslu og hins vegar án sölu til álbræðslu: Sjá töflu. A þessu sést að með sölu til Isals fæst full nýting árið 1977, en hefði Búrfellsvirkjun eingöngu verið gerð fyrir almenna markaðinn, hefði hins vegar þurft að biða langt fram yfir 1980, áður en ávinningur hins hagkvæma orkuverðs hefði komið almenn- ingskerfinu til fullra nota. Það með sölu án sölu Ár til tsal til tsal 1970 47,4 aurar 224 aurar 1971 41,3 “ 143,5 (i 1972 31,9 “ 105,5 ii 1973 24,7 “ 84,5 ii 1974 22,7 “ 77,8 ii 1975 20,9 “ 64,2 “ 1976 20,2 “ 53.9 tt 1977 20,1 (fulln.) 52,5 ti 1978 20,1 “ 45,3 i* 1979 20,1 “ 39,7 “ 1980 20,1 “ 34,9 i* kemur einnig í ljós að tekjurnar af raforkusölusamningnum nægja til að endurgreiða lán til virkjunarinnar, er nema Vt af stofnkostnaðinum, á 25 árum með 7% vöxtum, enda þótt álbræðslan noti aðeins um % af framleiddri orku. dunum sfnum, en hún kvaðst hafa mjög 1 sækýr f Sætúni þá er hulduslæðan fyrir þó sér f gegn um hana eins og móðu. Eftir Árna Johnsen „Stórt bú“? „24 kýr og 160 kindur. Við erum búin að byggja yfir kúa- búið, það er alveg búið. Sætún er minnsta jörðin í Norður- Þingeyjarsýslu. Smáspilda úr Ytra-Brekknalandi, 40 hektara land, svona spilda hér upp í fjallið, svo til allt ræktað. Byggðin hér á svæðinu er hann- ig að það eru tveir bæri utan við Þórshöfn, sem eru í byggð, en 15 bæir í eyði, hroðalegt. Heyjað er þó á sumum túnum og reki er þar stundum. Það rekur rokna tré viða á þessum jörðum, miklar jarðir. Annars er þessi hreppur okkar tvískiptur og sunnan við Þórshöfn er hann algjörlega nýttur og reyndar tvibýli á sumum jörðum. Hljóðið i mönnum hér er yfir- leitt gott, flestir eru hér bjartsýnismenn, það hjálpar að vera vongöður. Þó erum við yfirleitt á eftir hér með ýmis- legt, það er erfitt að rækta hér og vélar komu seint. Fjárbú eru hér ríkjandi og satt bezt horfir illa með mjólk fyrir Þórs- hafnarbúa. Varla kýr að ráði nema hér í Sætúni og Syðra-Lóni, þar sem eru 20—30 kýr. Það eru þö engin vandkvæði á að hafa hér kýr, en ungu mennirnir, sem eru að byrja, vilja síður hafa þær, bæði er það meira bindandi og það kostar líka meira að byggja yfir kýr. Bara að einhverjir fáist til að starta, þar ræður úr að verði.“ „Gefur stundum yfir Sætún?“ „Það brimar stundum hroða- lega mikið og fer þá sunnan við hús og aiveg upp í veginn, oft Framhald á bls. 35 Gjaldeyristekjur þrisvar sinnum meiri en allur stofnkostnaður Það sem sagt er hér, er miðað við gengi dollars á þessum árum 1969—70 og einnig í eftirfarandi málsgrein úr sömu greinargerð, bls. 11: „Sé miðað við núverandi verðlag á áli má reikna með því, að skatttekjur af álbræðslunni muni næstu 25 árin nema nær 4000 millj. kr. eða um 50 milljónum dollara, en tekjur af raforkusölunni um 6500 milljón- um króna eða 74 milljónum doll- ara. Samtals eru þessar gjald- eyristekjur nær ellefu þúsund milljónir króna eða hátt í þrisvar sinnum meiri en allur stofn- kostnaður Búrfellsvirkjunar. Munu gjaldeyristekjurnar af þessu tvennu fyrstu fimmtán árin nægja til þess að endurgreiða öll lán vegna virkjunarinnar með 7% vöxtum." Nú vil ég minna á stuttar klaus- ur úr greinargerðinni með ál- frumvafpinu á sínum tíma. Þær eru þess virði að gleymast ekki: „Á bls. 100 segir eftirfarandi: „Bein áhrif álbræðslunnar á þjóðartekjur eru mjög svipuð hreinum gjaldeyristekjum af henni. A hinn bóginn er rétt að hafa í huga, að álbræðslan er ný undirstöðuatvinnugrein, sem skapar viðbótargjaldeyristekjur, sem aftur verða undirstaða frek- ari aukningar þjóðartekna. Reynslan hefur sýnt, að aukning þjóðartekna hér á landi er mjög háð þvi hver aukning á sér stað í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Gjaldeyrisöflunin er á vissan hátt undirstaða annarrar tekjuöfl- unar, svo sem í formi framleiðslu á innlendum neyzluvörum og hvers konar þjónustu. Reynslan hefur bent til þess, að i grófum dráttum þurfi hrein gjaldeyris- öflun að nema um 'A af þjóðar- tekjunum. Þetta þýðir með öðrum orðum, að aukning hreinna gjald- eyristekna skapi svigrúm til allt að fjórfaldrar aukningar þjóðar- tekna. Þetta hefur komið skýrt I ljós í því, að undanfarin tuttugu ár hafa öll tímabil ört vaxandi þjóðartekna verið í beinu sam- hengi við mikla aukningu gjald- eyristekna." Orkuframleiðslan nýtist miklu fyrr A bls. 99 segir svo: „Hinn mikli hagnaður, sem I því felst að gera samning við álbræðslu nú, liggur einfaldlega i því, að geta miklu fyrr en ella nýtt til tekjuöflunar fyrir þjóðarbúið stórfellda raf- orkuframleiðslu, sem ella væri ekki markaður fyrir. Þetta mun svo aftur hafa í för með sér örari uppbyggingu orkuframleiðsl- unnar i framtíðinni ásamt þeim efnahagslegu tækifærum, sem i því felst. Loks er svo rétt að benda á það að hér hefur aðeins verið rætt um afkomu Landsvirkjunar fram til ársins 1985, en eftir þann tíma mun rafmagnssamningurinn við álbræðsluna halda áfram að skila Landsvirkjun miklum umfram- tekjum árlega. Um tuttugu og tveim árum eftir að virkjunin tek- ur til starfa verða öll lán hennar fullgreidd, svo að allar tekjur frá álbræðslunni að frádregnum til- tölulega litlum árlegum rekstrar- kostnaði munu þá vera hreinn greiðsluafgangur fyrir raforku kerfið". Enn liggja fyrir eftirfarandi staðreyndir: Á bls. 109: „Sé hins vegar litið á það hver áhrifin eru á framleiðslukostnað hverrar raf- orkueiningar, kemur í ljós, að á árunum 1969—1975 mundi við- bótarorkan kosta 62% meira, ef álbræðslan væri ekki byggð, 22% meira á árunum 1976—1980 en 12% á árunum 1980—1985. Yfir allt tímabilið 1969—1985 mundi raforkukostnaður verða 28% hærri, ef Búrfellsvirkjun væri eingöngu byggð fyrir almennings notkun og enginn sölusaíftningur gerður við álbræðslu." : Þá er enn á það að lfta, að „i rafmagnssamningnum v við álbræðsluna er samið um sölu raf- orku til langs tíma með þeön skil- málum að greiðsla komi fyrir ork- una, hvort sem álbræðslafljþarf á henni að halda eða efei^. Með löngum og föstum samí&hgi er stefnt að því að tryggjalfvennt, sem Islendingum er m nauð- synlegt. I fyrsta lagi dre|tw hinn langi og fasti samningur úr áhættu þeirri, sem Islertdingar taka á sig með þyi að leggja í svo stóra fjár- freka framkvæmd, sem lliírfells- virkjun er, og afla að mífeSú leyti fjár til hennar með lánuipj.1 öðru lagi er samningurinn þei^ eðlis, að hann greiðir stórlega fyrir ián- tökum til virkjunarinnjjr, en segja má, að hið erlenda fyrirtæki sem ábyrgist rafmagnssamning- inn, taki að verulegu leyti á sig áhættuna af erlendu lánunum. Það er þvi raunverulega ekki verið að nota lánstraust Islenska ríkisins." L Ranghermi um- orkuverðið 1 nefndaráliti minniþlutans, Vilborgar Harðardóttur, s^gir svo m.a.: „Þess vegna er öll raforku- sala lil Straumsvíkur og |*ar með einnig til fjórða áfanga^aman- burðarhæf við forgangsörkusöl- una til málmblendiverksmiðj- unnar. Samkvæmt gilda n|fa samn- ingi um málmbelndiventsmiðju er forgangsorka seld á héf um bil 10 rnill." Hvað er nú að atjp^ga við slíkar villandi upplýsirlgar? I fylgisskjali 1 við frumvfl|pið til laga um járnblendiverkágíiðjuna er skýrsla frá viðræðumSþd um orkufrekan iðnað: „Sfepsla til ríkisstjórnarinnar um járníálendi- verksmiðju i Hvalfirði ðjtgs. 23. nóvember 1974.“ Þar se^ á bls. Framhald d.þls. 13 i i —— 9563 —3005 —II. Ljóð og ljóðaþýðingar. Iðunn 1975. I UPPHAFI þessarar bókar segist Þorgeir Þorgeirsson hafa sýslað með orð „líkt og bóndi með grösin sem grænka á vorin“ og „likt og handfæra- jaxlinn með von um fengsælan róður“. Ljóð Þorgeirs Þorgeirssonar eru einhvers konar andsvar við þrúgandi umhverfi. I ljóðum sínum er hann staddur „handan við bifreiðadyninn og verslunarglamrið“: Þú ert feitur og sæll og svfvirdilega rór og svo er um fleiri f þessum djöfulsins bæ (Revkjavík) Hann spyr: hvern djöfulinn sjálfan er ég að gera hér í landi fullu af sósfaldemókrötum náitúrulausum hórum og hráblautum þvotti á snúrum (Þágufall) Velferðin fer í taugarnar á honum. Þar keppa menn eftir „að deyja sem djöfulóð glans- mynd af svini í virðingarstöðu". „Mig langar eitthvert þangað sem bara er reisn“, stynur skáldið upp þegar því verður hugsað til viðreisnarinnar ís- lensku. Snyrtileg skáld í sjón- varpi, forsætisráðherra með þvagfærakvilla, frímúrarar eru að mati skáldsins dæmigerðir fulltrúar gelds þjóðfélags. Hér eru á ferðinni ljóð, sem stefnt er gegn borgaralegu þjóðfélagi, ádeila og uppgjör, ljóð með ákveðnu markmiði. Frumsömdu ljóðin eru mun Þorgelr Þorgeirsson færri í bókinni en þau þýddu. Öll vitna Ijóðin um mann, sem í sýsli sínu með orð leggur mikið upp úr merkingu þeirra og hljómi. Þorgeir er hagur á mál og hefur gaman af skrúði og hrynjandi eins og glöggt kemur fram í þýðingunni á Svefngeng- ilsljóði García Lorca. Ég verð að játa að mér virðist hann ná betri árangri í prósaverkum sínum en í ljóðunum. En ljöð hans eru mörg hressandi lestur, athugul og skemmtileg. Sum þeirra eru opinská án þess að hafa neitt nýtt fram að færa, önnur njóta stráksskapar síns eins og til að mynda ljóð Jónasar Svafárs og Dags Sigurðarsonar. Þorgeir nær þeim tilgangi sínum að knýja lesandann til að taka afstöðu með eða móti. Bókmeimtir eftir JOHANN HJÁLMARSSON Að formi eru ljóðin yfirleitt frjálsleg og nátengd hversdags- legu lifi í anda tímans. Nokkur ljóð eru rímuð. Það er töluverð fjölbreytni í þýddu ljóðunum. Tékkanum Miroslav Holub eru gerð góð skil. Eftir hann eru sex ljóð, eitt þeirra Undirrót hlutanna langur flokkur. Þorgeir þýðir líka eftir Þjóðverjann Bertolt Brecht og Færeyinginn Willi- am Heinesen svo að fleiri séu nefndir. Nokkur eskimóaljóð skera sig úr. I þeim er meira af ljóðrænum innileik en í verk- um hinna skáldanna. Þorgeir Þorgeirsson er enginn afkastamaður í ljóða- gerð. Þtita er önnur ljóðabók hans. Með báðar bækurnar f huga er ljóst að hann er vel hlutgengurí skáldskap sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.