Morgunblaðið - 17.02.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976
17
og skoraði mikið af mörkum í
leiknum. Einnig var Magnús
Sigurðsson drjúgur við að skora
með langskotum. Arni
Indriðason er kletturinn I
Gróttuliðinu, hann haggast
aldrei hvað sem á gengur. Guð-
mundur Ingimundarson stóð í
marki Gróttu allan tímann og
átti mjög góðan leik, en það
sama er ekki hægt að segja um
kollega hans hinum megin á
vellinum. I Haukaliðinu var
það aðeins einn leikmaður sem
lék virkilega vel, nýliðinn Jón
Hauksson, og er undirritaður
illa svikinn ef þar er ekki mikið
efni á ferðinni.
Þórarinn Ragnarsson hefur
heldur betur þjappað leik-
mönnum Gróttu saman síðan
hann tók við liðinu fyrir
nokkru sfðan og getur svo
sannarlega verið stoltur yfir
árangrinum. Sömu sögu er
reyndar að segja um Elias
Jónasson þjálfara og leikmann
Hauka, sem náð hefur mun
betri árangri með liðið i vetur
en búist var við fyrirfram. Að
undanförnu hefur lið hans þó
dalað nokkuð og á þvi ekki
lengur neina möguleika á sigri i
mótinu. En geta Haukarnir
ekki vel unað við þann árangur
sem liðið hefur náð?
-áij
Jóhanna Halldórsdóttir skor-
ar.
Fjögur síöuslu
mörkin íærðu
Fram sigur gegn
FH-stnlkunum
MEÐ ÞVÍ að skora fjögur slðustu
mörkin I leik sinum við FH i 1.
deild kvenna I iþróttahúsinu I
Hafnarfirði á sunnudaginn náði
Fram sigrinum i leiknum, sem allt
fram á siðustu stundu virtist ætla
að falla FH-liðinu i skaut. Staðan
i leikhléi var 5:4 fyrir FH; þann
mun jók FH-liðið i seinni hílf-
leiknum þar til undir lokin að
liðið féll gjörsamlega saman og
Fram náði að sigla fram úr.
Fram er þvi enn með i baráttunni
i 1. deild kvenna, en tap í þessum
leik hefði þýtt að fslandsmeistaratit-
illinn hefði verið Vals, og FH hefði
að öllum Iíkindum náð öðru sæt-
inu Sylvia Hallsteinsdóttir gat litið
leikið með FH-liðinu að þessu sinni
þar sem hún var með hálsbólgu og
kom það þvi á óvart að FH skyldi
leiða lengst af I leiknum Þetta segir
þó lika sina sögu um getuleysi
Framstúlknanna í leiknum, sem
ekki hafa verið sjálfum sér likar að
undanförnu.
Oddný Sigsteinsdóttir var tekin
úr umferð i leiknum við FH og
lamaðist sóknarleikur Fram mjög
við það. Er þær loks svöruðu i
sömu mynt i seinni hálfleiknum
og tóku að fylgja Svanhviti
Magnúsdóttur hvert fótmál eftir
að hún hafði skorað 6 mörk
komst Framliðið framúr.
MÖRK FRAM i leiknum gerðu:
Oddný 5, Kristín, Helga, Jó-
hanna, Guðriður og Guðrún 1
hver. Beztan leik Framstúlkn-
anna átti Jóhanna Halldórsdóttir.
MÖRK FH: Svanhvit 6, Sigrún
og Katrin 1 hvor. Svanhvit stóð
sig bezt i liði FH. __áij
Islandsmeistarar Vals I innanhússknattspyrnu 1976. Fremri röó frá vinstri: Ottar Sveinsson, Grfmur
Sæmundsen, Ingi Björn Albertsson, fyrirliði, Guðmundur Þorbjörnsson og Magnús Bergs. Aftari röð:
Gfsli Sigurðsson, formaður knattspyrnudeiidar Vals, Hannes Lárusson, Atli Eðvaidsson, Kristinn
Björnsson, Vilhjálmur Kjartansson, Ulfar Hróarson, Hermann Gunnarsson og Árni Njálsson, þjálfari.
Islandsmótið íknattepyrnu innanhiíss:
Meistaratitilliim gat ekki
farið annað en til Vatsmanna
Breiðablik sigraði í kvennaflokki
Haukarnir komu á óvart með frammistöðu sinni. Þarna eiga þeir f
höggi við Framara.
VALSMENN höfðu um-
talsverða yfirburði í Is-
landsmótinu í knatt-
spyrnu, sem fram fór í
Laugardalshöllinni um
helgina. Komust Vals-
menn aldrei í taphættu í
öllu mótinu, unnu alla sína
leiki örugglega og saman-
lögð markatala þeirra í
leikjunum 5 var 59:14. FH-
ingar urðu í öðru sæti.
Framarar þriðju og lið
Hauka kom talsvert á óvart
með því að ná fjórða sæt-
inu.
Islandsmeistarar í
kvennaflokki varð lið
Breiðabliks, sem sigraði
FH í úrslitum með 5 mörk-
um gegn 4 eftir hörku-
spennandi leik.
Mikil þátttaka var i mótinu að
þessu sinni og mörg utanbæjarlið
meðal þátttakenda. I forkeppn-
inni komu nokkur þessara liða
verulega á óvart. Til dæmis lið
Þróttar frá Neskaupstað og Týs
frá Vestmannaeyjum, sem þrátt
fyrir góða tilburði komust þó ekki
áfram i 8 liða úrslitin. f forkeppn-
inni sáust nokkrum sinnum stórar
tölur. Valur vann t.d. Skallagrím
12:0 og Reyni 18:2, KR vann Þór
Þorlákshöfn 13:1 og Skagamenn
unnu Leikni með sömu marka-
tölu.
1 milliriðli jöfnuðust leikirnir
mjög og var þar yfirleitt um
skemmtilega keppni að ræða.
Talsverður munur var þó á getu
liðanna og þá þegar mátti ljóst
vera að Valsmenn yrðu ekki auð-
sigraðir. Helzt var búist við að FH
næði að veita Valsliðinu ein-
hverja keppni og raunin varð sú
að þessi lið lentu saman í úrslit-
um. Þá var allur máttur úr FH-
ingum og er þeim mistókst að
brjóta varnarvegg Valsmanna á
bak aftur á upphafsmínútunum
gáfust þeir hreinlega upp og
þeirra hlutverk í leiknum varð að
hirða knöttinn 9 sinnum úr eigin
neti.
Innanhúsknattspyrna er iþrótt
hinna nettu og útsjónarsömu og í
mótinu að þessu sinni voru það
nokkrir einstaklingar sem
sköruðu framúr. Nefna má
Guðmund Þorbjörnsson og Inga
Björn Albertsson úr Val, en sá
síðarnefndi stóð sig sérlega vel
sem varnamaður. Einnig Hannes
Lárusson Val, Ólaf Danívalsson
og Þóri Jónsson FH, Ólaf
Jóhannesson Haukum og Pétur
Ormslev i Fram.
Nokkur forföll voru í mótinu.
Þannig komustlið KAog KS ekki
suður til keppninnar vegna
veðurs og munu Siglfirðingarnir
hafa lent i hrakningum vegna
fyrirhugaðrar ferðar suður.
Komust þeir til Sauðárkróks, en
er ekki var flogið þaðan gekk
þeim erfiðlega að komast heim
vegna ófærðar.
Fjögur lið tóku þátt í kvenna-
keppninni og sigraði Breiðablik í
þeirri keppni, eins og áður sagði.
I úrslitaleiknum við FH var jafnt
á öllum tölum, en Breiðablik
alltaf fyrra til að skora. Orslitin
urðu 5:4, en i hálfleik var 2:1.
Helztu úrslit f mótinu urðu sem
hér segir:
8 liða úrslit:
Fram — IBK9:3 (4:2)
Haukar — IA 7:6 (3:1)
Valur — Víkingur 10:6 (4:1)
FH — KR 6:5 (4:4 eftir venju-
legan leiktíma, 3:3 i hálfleik)
4 liða úrslit:
Valur — Fram 10:5 (4:4)
Mörk Vals: Guðmundur 4,
Hannes 3, Ingi, Atli og Úlfar 1
hver.
Mörk Fram: Ágúst 2, Kristinn 2,
Marteinn 1.
FH — Haukar 5:4 (2:1)
Mörk FH: Þörir 3, Helgi 2.
Mörk Hauka: Ólafur 2, Loftur og
Björn 1 hvor.
Leikið um þriðja sætið:
Fram — Haukar 10:7 (5:4)
Mörk Fram: Pétur 4, Kristinn 3,
Agúst 2, Ásgeir 1.
Mörk Hauka: Ölafur 3, Guðjón,
Loftur, Guðmundur 1 hver og 1
markanna var sjálfsmark.
Urslitaleikur:
Valur — FH 9:1 (5:0)
Mörk Vals: Hermann 3,
Guðmundur 2, Hannes 2, Magnús
og Vilhjálmur 1 hvor.
Hilmar Svavarsson afhendir ungum UBK stúlkum sigurlaun
þeirra.
Kvennakeppnin:
Fram — UBK3:4
IA — FH 1:5
FH — UBK 4:5
— áij
tiaukar ráða
skozkan þjálfara
HAUKAR hafa nú ráðið þjálf-
ara fyrir meistaraflokk félags-
ins f knattspyrnu fvrir næsta
keppnistímabil. Hafa þeir
fengið Skotann Sandv Mac-
Pearson til starfans og honum
tii aðstoðar verður Þráinn
Hauksson, sem undanfarin ár
hefur verið einn sterkasti leik-
maður Hauka.
MacPearson kemur hingað
til lands í aprfl og mun þá æfa
lið Hauka í um hálfan mánuð.
Hingað kemur hann svo aftur f
maí og verður með liðið út
keppnistímabilið. Sandy Mac-
Pearson dvaidist um tfma hjá
Haukunum í fyrrasumar og að-
stoðaði þá m.a. við þjálfun
yngri flokkanna.
Hafsteinn og
Stefán hættir
formennsku
íÍBKogÍBV
TVEIR
framámenn f
fsienzkri
íþröttahreyf-
ingu og
forystumenn
f stórum
héraðssam-
böndum hafa
sfðustu daga
látið ‘ af for-
mannsstörf-
um. Eru það
þeir Haf-
steinn Guð-
mundsson,
formaður
fþróttabanda-
lags Keflavfk-
ur, og Stefán
Runólfsson,
formaður
Iþrótta-
bandalags
Vestmanna-
eyja
Við for-
mennsku af
Hafsteini tók
Hjörtur
Hafsteinn
Guðmundsson
Stefán
Runólfsson
Zakariasson
en Jóhann
Andersen tók
við af
Stefáni.
Hilmar með
mótanefníina
STJORN KSl skipaði fyrir
nokkru f hinar ýmsu sérnefnd-
ir, sem starfa innan sambands-
ins. Helgi Danielsson sem
undanfarin ár hefur gegnt
starfi formanns mótanefndar
með góðum árangri lætur nú
af þeim starfa en tekur við
formennsku I unglinganefnd
KSl. Hilmar Svavarsson sem
séð hefur um skiplagningu
móta KRR undanfarið tók við
starfi hans um formaður f
mótanefndinni. Með honum f
þessari erilsömustu nefnd KSI
verða þeir Gylfi Þórðarson,
Bergþór Jónsson og Helgi
Danielsson.
Hlöðver
með Leikni
LEIKNIR f Rreiðholti hefur
ráðið Hlöðver Rafnsson til að
þjálfa lið félagsins f 3. deild
inni i knattspymu næsta
keppnistfmabil. Mun hann
einnig þjálfa 4. flokk félagsins
í sumar. Hlöðver þjálfaði
Njarðvíkinga sfðasta sumar en
lék áður með Fram. Hann var
einn þeirra sem stundaði nám
við Knattspyrnuskóla KSl
siðastliðið haust. Eru Leiknis-
menn bvrjaðir æfingar af full-
um krafti.