Morgunblaðið - 17.02.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976
Handofinn fatnaður
kynn tur ákvöldvöku
ORLOFSNEFND húsmæðra í
Reykjavík efnir til kvöldvöku
að Hótel Sögu þriðjudaginn 17.
febr. Þar verður sýning á
fatnaði frá Vefstofu Guðrúnar
Vigfúsdóttur á Isafirði. Guðrún
Vigfúsdóttir kynnir sjálf
fatnaðinn á sýningunni.
Arið 1972 efndi orlofsnefnd
húsmæðra í Reykjavík til
kvöldvöku, og kynnti þar m.a.
ný lög um starfsemina.-Þessari
nýbreytni var vel tekið.
Nú verður athyglinni beint
að handvefnaði og óteljandi
möguleikum á úrvinnslu
Islenzku ullarinnar. Gerður
Hjörleifsdóttir flytur forspjall
um þetta efni. Unnur
Arngrlmsdóttir sér um sjálfa
sýninguna.
Auk þessa verður brugðið
upp svipmynd af kvöldvöku I
orlofi, meðal annars syngja þar
10 „Maríuerlur" undir stjórn
Maríu Markan.
Formaður orlofsnefndar hús-
mæðra I Reykjavík, Stein-
unn Finnbogadóttir, stjórnar
þessari kvöldvöku á Hótel Sögu
sem hefst kl. 20.30. öllum er
Ljósm. Mbl. Hreggviflur Guógeirsson.
Aflaskipið Guðmundur RE (t.h.) bfður eftir löndun á Reyðarfirði ásamt Þórði Jónassyni EA.
Guðmundur RE hæsti loðnubáturinn
VITAÐ var um 73 báta sem
fengið höfðu loðnuafla s.I. laugar-
dagskvöld, og samkvæmt skýrslu
Fiskifélags Islands var heildar-
aflinn þá orðinn 137,362 lestir.
Aflinn f sfðustu viku var 49,352 ,
lestir. A sama tfma I fyrra var
heildaraflinn 152,883 lestir og þá
höfðu 102 bátar fengið afla. Afla-
hæsti báturinn I vikulokin var
Guðmundur RE með 5,678 lestir.
Skipstjóri á Guðmundi er Hrólfur
Gunnarsson. Loðnunni hefur
verið landað á 16 stöðum á land-
inu og auk þess f bræðsluskipið
Norglobal.
Hér fer á eftir skrá yfir þá báta
sem fengið höfðu loðnuafla á
laugardagskvöldið:
Guðmundur RE 5678
Eldborg GK 4797
Sigurður RE 4715
Börkur NK 4642
Gísli Arni RE 4612
Pétur Jónsson RE 4068
örn KE 3645
Helga Guðmundsdóttir BA 3617
Ásberg RE 3486
Loftur Baldvinsson EA 3242
Gullberg VE 3174
Öskar Magnússon AK 3069
Árni Sigurður AK 3066
Hrafn GK 3053
Rauðsey AK 2922
Þorsteinn RE 2914
Reykjaborg RE 2805
Grindvfkingur GK 2712
Fífill GK 2680
Jón Finnsson GK 2562
Huginn VE 2551
Hákon ÞH 2525
Harpa RE 2458
Ásgeir RE 2357
AlbertGK 2310
Helga II RE 2217
HilmirSU 2212
Svanur RE 2083
Súlan EA 2069
ísleifur VE 2022
Þórður Jónasson EA 2011
Sæbjörg VE 1975
Óskar Halldórsson RE 1912
Magnús NK 1834
Náttfari ÞH 1821
Skírnir AK 1709
Hrafn Sveinbjarnarson GK 1623
Framhald á bls. 35
heimill aðgangur að kvöld-
vökunni. •
(Fréttatilk.).
Innréttingar
Tökum að okkur smíði á eldhúsinnréttingum,
klæðaskápum o.fl.
Gerum föst verðtilboð.
Trésmiðaverkstæði Þorvaldar Björnssonar,
Súðarvogi 7,
simi 86940, kvöldsími 71118.
Eldavélar
Bökunarofnar
í NÝJA BÖKUNAROFNINUM FRÁ AEG, ER HÆGT
AÐ BAKA Á MÖRGUM PLÖTUM í EINU.
JAFN HITI ER UM ALLAN OFNINN, BAKAST
ÞVÍ ALLAR KÖKURNAR JAFNT j
SPARAR TÍMA-SPARAR RAFMAGN. c
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
,/
, /W
4-
Nýtt námskeið
hefst aftur 23. febrúar
6 vikna tvisvar til fjórum sinnum í viku. Dag- og
kvöldtímar. Sauna, sturtur, sápa, sjampó, gigtar-lampi,
háfjallasól, olíur og hvíld, nudd, vigtun, og matarkúr.
Sentimetramál tekið.
Sérstakt megrunarnámskeið 4 sinnum í viku
með verðlaun
sólarferð með Flugfélagi Islands.
Upplýsingar og innritun í síma 42360
Leikfimi fyrir karlmenn föstudagskvöldum
Upplýsingar og innritun í síma 40935
á kvöldin
jtbtt
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360