Morgunblaðið - 17.02.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976
7
Furðuleg
leiðaraskrif
Ekki eru nema fáir
dagar siðan að Einar
Ágústsson, utanríkisráð-
herra, vakti athygli á þvi I
umræðum á Alþingi um
landhelgismál, að vinstri
stjórnin, undir forystu
Framsóknarflokksins. árin
1971 —1974, hefði
hvorki sett fram kröfu um
úrsögn úr Atlantshafs-
bandalaginu né brottför
varnarliðsins vegna land-
helgismála okkar. Og
ástæða er til að benda á
að slik krafa var heldur
ekki sett fram i tið fyrri
vinstri stjórnar. Aðild ís-
lands að Nato byggðist
ekki, hvorki i öndverðu né
síðan, á fiskveiðihags-
munum okkar fyrst og
fremst, heldur öðrum og
viðtækari öryggishags-
munum. Varzla fiskveiði-
landhelgi okkar var séris-
lenzkt mál. sem halda átti
aðskildu frá Natoaðild.
Leiðarahöfundur Tim-
L-
ans sl. sunnudag, Jón
Helgason, sér ástæðu til
að fylgja máli utanrikis-
ráðherra eftir með gagn-
stæðum skoðunum. Þar
segir m.a.: „En sá galli er
á, að varnarliðið á Kefla-
vikurflugvelli gengur um
með bundið fyrir augun.
þegar Bretar eiga i hlut,
og flugmennirnir i eftir-
litsvélum horfa á það,
sem gerist á miðunum, án
þess að sjá það. Nú er
mál. að þetta fólk dragi
skýluna frá augunum."
.....Við hljótum að gera
þá ófrávíkjanlegu kröfu til
Atlantshafsbandalagsins,
að það friði fiskimiðin
Utanrikisráðherra Fram-
sóknarflokksins fer með
þau mál, er varða aðild að
Nato og samskipti við
varnarliðið, dómsmálaráð-
herra með þau mál, er
varða landhelgisgæzlu og
vörzlu fiskveiðiland-
helginnar og aðalritstjóri
Timans er formaður utan-
rikismálanefndar Alþingis.
Það fer ekki milli mála.
hvert framangreindum
spjótum er beint. ef þau
eru annað en óráðshjal.
Og þvi er hnýtt aftan i
leiðarann til áréttingar, að
þeir, sem hafi aðra guði
en þá, er leiðarinn boði,
skyldu „krjúpa þeim á af-
viknum stað, þar sem
trúarjátning þeirra gæti
farið leynt."
Staðreyndir
mála
Atlantshafsbandalagið er
þann veg upp byggt, að
hver aðildarþjóð hefur
neitunarvald I fastaráði
þess. Við myndum
naumast eiga eða kæra
okkur um aðild að banda-
laginu, ef það hefði úr-
slita- eða úrskurðarvald I
málum einstakra aðildar-
þjóða á borð við ákvörðun
um auðlindalögsögu
þeirra eða fiskverndarlög-
sögu. Neitunarvald í
fastaráðinu tryggir með
öðru algjöran sjálfs-
ákvörðunarrétt aðildar-
þjóða I eigin málum;
annað myndi naumast
þjóna hagsmunum okkar
eða samræmast Islenzk-
um hugsunarhætti. Þetta
leiðir hinsvegar af sér að
hliðstætt neitunarvald
Breta útilokar, að fasta-
ráðið geti „fellt úrskurð" I
máli eins og landhelgis-
deilu milli tveggja aðildar-
rikja.
Hins vegar hefur aðild
okkar að Nato styrkt vlg-
stöðu okkar I landhelgis-
deilum á margan hátt
bæði fyrr og slðar. Áhrif
og samúð aðildarrikja
þess olli þvi, bæði i sið-
asta þorskastriði og
þessu, að Bretar drógu
vigdreka sina út úr land-
helgi okkar, þó mál
snerust nú á verri veg á
ný en leiddu til vinstri
stjórnar samninga 1973.
Aðalritari bandalagsins
hefur og lagt sig I fram-
króka um að knýja Breta
til breyttrar stefnu, hvort
sem lyktir verða þær
sömu nú og i fyrri þorska
striðum eða ekki. Þeir,
sem ekki sjá þessi aðal-
atriði málsins „ganga
með bundið fyrir augun"
og „horfa á" lærdóma lið-
innar reynslu „án þess að
sjá þá".
Spurning að
gefnu tilefni
Tilvitnaður leiðari i mál-
gagni utanrikisráðherra
og æðsta yfirmanns land-
helgisgæzlunnar, vekur
þá spurningu. hvort hér er
átt við einhverskonar
framsal á ákvörðunarrétti
eða vörzluskyldu okkar
sjálfra i stærsta lifshags-
munamáli þjóðarinnar?
Eða er hér aðeins um
frumhlaup að ræða, byggt
á algjörum misskilningi á
öllum málavöxtum, sem
gengur þvert á afstöðu
stjórnvaida, eins og hún
var 1958, 1972—1973
og er enn þann dag i dag?
Þessi leiðari Timans
hlýtur að þurfa frekari
skýringa við.
Engin rikisstjórn á ís-
landi, sem átt hefur aðild
að landhelgisdeilu við
Breta hefur sett fram
kröfu um atbeina varnar-
liðsins eða að Atlantshafs-
bandalagið friði fiski-
miðin. Slíka kröfu gerði
samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar-
flokks ekki 1952, ekki
heldur vinstri stjóm-
in 1956—1958 og
1971 —1974, né núver-
andi stjórn. Hvað er Tim-
inn að fara?
TOYOTA
GæðiToyotaeru heimsþekkt. Engin bifreiðaverksmiðjahefur
haftjafn miklaframleiðslu- og söluaukningu undanfarin ár,
sem Toyota.
Ástæður þess eru:
Mikil gæði
Fallegt útlit
Góðurog vandaðurfrágangur
Örugg fjárfesting
Gott endursöluverð
Fjölbreytt úrval
Þess vegna er Toyota allsstaðar vinsæll. Ogsíðasten ekkisíst:
Gagnrýnendur um allan heim Ijúka lofsorði á Toyota
TOYOTA
Toyola er
traustur
biU
BlLASALA SiMI 44259•VARAHLUTAVERZLUN SÍMI 44156- BiUWERKSTÆÐI SÍMI 44189
NÝBÝLAVEG110
KÓPAVOGI
SÍMI 44144
Skemmd hjólhýsi
Viljum selja tvö hjólhýsi sem skemmdust mikið
í flutning til landsins.
Eitt stykki Monza 1200 S, mjög mikið skemmt
og eitt stykki Astral Scout 1450 T, mikið
skemmt.
Gísli Jónsson og co. h.f.,
Sundaborg, Klettagörðum 11, sími 86644.
Sýningar í
Kaupmannahöfn
í • • ■ ■ ^ MKH
l7-"as?ANDlNAV,AN FASHION
Ý8EET23.marz.Örfésætilaus
30. apTÍl OLD & SILVEB
SCANDINAVIAN gol
FAIR
__5. maí- , j
^'^and.navian eurn.ture
F1A0 ____16. maí
Reynsla, þekking,
þjónusta.
Útsýnarferð er ódýr en 1.
flokks.
Austurstræti 1 7
simi 26611.
ÖTSOUJ-
□ ENN BETRI KJÖR,
EN Á VETRAR
ÚTSÖLUNNI
ALLT NÝJAR OG
NÝLEGAR VÖRUR
□ ÓTRÚLEGT
VÖRUÚRVAL
□ látið EKKI HAPP
ÚR HENDI SLEPPA
er að
Laugavegi
Laugavegi 66, sími 28155