Morgunblaðið - 17.02.1976, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBROAR 1976 21
141:75
Nýtt íslandsmótsmet hjá Ármanni
NÝTT tslandsmótsmet í körfuknattleik ieit dagsins ljós
um helgina þegar Ármenningar sigruðu Snæfell með
141 stigi gegn 75. Fyrra stigaskorunarmet í tslandsmóti
var 127 stig svo Ármenningarnir slógu það hressilega.
Hins vegar skorti þá þrjú stig til að jafna Islandsmet í
stigaskorun en það er met KR frá því í Bikark. 1975 144
stig.
Barátta undir körfu Snæfells. Ármenningarnir Guðmundur Sigurðs-
son og Guðsteinn Ingimarsson og Snæfellingurinn Þðr Albertsson
berjast um knöttinn.
Þar var ljóst strax í upphafi að
mikill sóknarhugur var í liði
Armenninga. Þeir pressuðu stíft
eftir skoraða körfu og hirtu bolt-
ann hvað eftir annað af „Hólmur
um“ sem vægast sagt voru
hikandi. Ef „Hólmarar" hins veg-
ar komust úr pressu Armanns
áttu þeir greiða leið í körfu, enda
kjörorð Armenninga „látt ann
fara“ og þeir kölluðu það óspart
sín á milli. Með þessari leikaðferð
fengu Armenningar boltann strax
á ný, og í hverri sókn þeirra
rigndi stígunum yfir Snæfell, þ.e.
þeir stálu boltanum strax eftir
skoraða körfu en um síðir slapp
músin úr gildrunni og sagan
endurtók sig.
Ef nefna á tölur um yfirburði
Ármanns í leiknum má nefna
tölur eins og 14:2 — 36:16 og
61:40 í hálfleik. I byrjun síðari
hálfleiks kom stór „gusa“ og
staðan var fljótlega 88:48 og ljóst
var að mettilraun Ármenninga
gat orðið til þess að nýtt met í
stigaskorun hérlendis sæi dagsins
ljós. En á kafla um miðjan siðari
hálfleik skoraði Snæfell 15:4 og
þar með fór draumur
Armenninga um metið.
Það fer ekki hjá því að barátta
Snæfells í 1. deild veki samúð
margra sem með henni fylgjast.
En það verður að segjast eins og
það er að hlutverk þeirra leik-
manna sem leika nú síðustu leiki
liðsins i 1. deild er langt í frá að
vera öfundsvert. Þeir leikmenn
sem nú berjast vonlausri baráttu
fyrir Snæfell eru fórnarlömb að-
stöðuleysins í Stykkishólmi til
æfinga á iþróttum innanhúss Það
mætti allt eins æfa í baðkeri með
keppni í sundi fyrir augum, eins
og að æfa körfuknattleik í íþrótta-
húsi eins og þeir hafa í Stykkis-
hólmi. Slik aðstaða er varla
sæmandi á okkar tímum, en á sér
e.t.v. eðlilegar skýringar þó varla
eigi hún sér hliðstæðu.
I þessum leik fengu
Armenningar góða æfingu fyrir
pressu þá sem þeir hafa beitt af
og til í vetur og sáust oft góðir
taktar í henni hjá þeim. En ekki
myndi ég veðja miklu á þá pressu
gegn öðrum toppliðum í deildinni
enn sem komið er.
Stighæstir hjá Ármanni:
Jimmy Rogers 32, Björn
Christenssen 25, Jón Sigurðsson
21, Jón Björgvinsson 16, Birgir
örn 14.
Snæfell: Kristján Agústsson 28,
Lárus Svanlaugsson 21, Bjartmar
Bjarnason 9, Sigurður Hjörleifs-
son 8. gk—
STAÐAN
Ármann 9 9 0 926:736 18
IR 9-7-2 817:688 14
KR 7 5 2 621:543 10
UMFN 9-5-4 733:708 10
ÍS 9 4 5 721:758 8
Valur 10 3 7 811848 6
Fram 9-2 7 597 694 4
Snæfell 8-0-8 507:758 0
v/
Stighæstir: Jimmy Rogers Á 260
Bjarni Gunnar fS 205
Trukkur Carter KR 199
Kristján Ágústsson Snæf. 193
Torfi Magnússon Val 192
Kristinn Jör. ÍR 183
Jón Sigurðsson Á 181
Stig Jimmy Rogers i leiknum
gegn UMFN eru 38 samkvæmt
leikskýrslu og það er hún sem
gildir. Flestir munu sammála um
að stig hans i leiknum hafi verið
fleiri en skýrsla ritara sýnir 38
stig og það gildir.
• ♦
Vitaskotanýting: (miðað við 23
skot sem lágmark).
Stefán Bjarkason UMFN
24 20 = 83%
Jón Jórundsson ÍR
42:33 = 79%
Kári Marisson UMFN
42:32 = 76%
Helgi Valdimarsson Fram
24:18 = 75%
Rikharður Hrafnkelsson Val
43 31 = 72%
Jón Sigurðsson Á
38 27 = 71%
gk —.
Hálfur hraði nœgði Völsurum
gegn áhugalausu liði Fram
„ÞAÐ er engu lfkara en
strákarnir séu hættir að taka á i
leikjum sfnum. Þeir virðast
vera búnir að ná markmiði sfnu
sem var að halda sæti sfnu f deild-
inni, en f leikjum liðsins nú örlar
ekki á þeirri baráttu sem færði
Iiðinu þau stig sem þeir hafa náð
sér i“. Það var einn af áköfustu
stuðningsmönnum körfuknatt-
leiksliðs Fram sem viðhafði þessi
orð um lið sitt eftir 63:82 tap
Fram gegn Val um helgina.
Þessi ummæli eiga fullan rétt á
sér. Framliðið er ekki svipur hjá
sjón miðað við leiki þess fyrr á
keppnistfmabilinu þegar undir-
ritaður m.a. spáði liðinu tals-
verðu gengi f 1. deild f vetur.
Þannig fór líka að Valur þurfti
ekki neinn toppleik til þess að
vinna þennan auðvelda sigur.
Leikurinn var að vísu í jafnvægi
fyrstu mfn. hans, en sfðan breytti
Valur stöðunni úr 12:9 fyrir Fram
í 35:16 sér í hag og var þar með
grunnurinn lagður að sigrinum.
Staðan i hálfleik var 41:26 fyrir
Val, og Valur innbyrti þennan
sigur á hálfum hraða I siðari hálf-
leiknum.
Sem fyrr var Þórir Magnússon
atkvæðamestur í liði Vals, þótt
skotanýting hans væri ekki til
þess að hrópa húrra fyrir. En
hann tók sínar venjulegu
skorpur, og var atkvæðamikill f
vörn og sókn þegar Valsmenn
voru að ná forskoti sínu. Annars
er Valsliðið lið sem kemur dálítið
á óvart í hvert skipti sem maður
sér það leika, það lagar sig oftast
að leik andstæðinganna, lélegri
leikirnir koma gegn lélegri and-
stæðingunum og öfugt.
Það hefur margsinnis verið
hamrað á því hér á síðum blaðsins
f vetur hversu efnilegt lið Fram
Dýrmætnr
sigur
Víkings-
stúlkna
VÍKINGUR og Stigandi léku I ís-
landsmóti kvenna i blaki á sunnu-
dagskvöldið og lauk leiknum með
sigri Vikings 3-—0
Vikingur tók forystu strax i fyrstu
hrinu 6 — 4 en Stigandi jafnar 7 — 7
og var hrinan mjog jofn eftir það en
Vikingur var sterkari á endasprettin-
um og sigraði 15— 12 Önnur hrin-
an var einnig mjög spennandi og
hafði Stfgandi forystu lengi vel.
8-—4 og 12—11 en þá seig Vik-
ingur framúr og sigraði 15—12
Vikingsstúlkurnar áttu I mestu erfið-
leikum með að koma boltanum vfir
netið úr uppgjöf og töpuðu þær 8
uppgjöfum Stigandastúlkurnar
voru aðeins skárri þvi þær töpuðu
aðeins 5 uppgjófum
Það var greinilega mtkill tauga-
óstyrkur sem hrjáði Vikingsliðið og
náði það ekki að hrista hann af sér
fyrr en í siðustu hrinunni og sigruðu
þær þá 15—6 Stigandastúlkum
hefur farið nokkuð fram frá þvi i
fyrra en þó ekki nóg Fleygur hefur
batnað mjög mikið h;á þeim og
einmg fingurslag en þær eru ekki
nógu grimmar að skella Liðið m|ög
jafnt og skar sig engin neitt úr
Vikingsliðið hefur einnig sýnt
framfarir frá þvl i fyrra. en sýndi það
þó ekki í þessum leik Ágústa Andre-
ésdóttir bjargaði liðinu i þetta skipt-
ið með frábæru uppspili og vissu-
lega var gaman að sjá þrumuskelli
frá Önnu Aradóttur og Karóllnu
Guðmundsdóttur, sem eru sjáldgæf-
ir I kvennablakleikjum Vikingsliðið
var með mun betri boltameðferð og
móttaka á uppgjöf oft m|ög góð, en
kæruleysið var allsráðandi á köflum
8aráttan I riðlinum stendur á milli
Vikings, Þróttar og Stiganda og á
hún eflaust eftir að vera hörð
er. En í beinu framhaldi af því
kemur það hálf illa við mann
þegar þeir slaka jafnmikið á 1
miðju móti eins og þeir hafa gert
nú, einungis að því er virðist
sökum þess að sætið i 1. deild að
ári virðist tryggt. Hvar er
baráttan og leikgleðin sem ein-
kenndu liðið í fyrstu leikjum
þess? Og væri ekki viturlegra að
notfæra sér leiki sína sem eftir
eru til þess að venjast þeirri
erfiðu keppni sem er í 1. deild í
stað þess að slaka á eins og liði-
hefur því miður gert. gk—.
Stúdentarnir Halldór Jónsson og Indriði Arnórsson I hávörn
við UMFL.
I leik IS
IS vann Laugdœli
naumt íhörkuleik
TOPPLEIKUR var I 1. deild Islandsmótsins I blaki á
laugardaginn. Þar áttust við ÍS og UMFL. Eftir fimm
hrina leik tókst IS að merja sigur og hafði leikurinn
staðið I 100 mínútur. Þetta var fyrsti leikur þessara liða
I vetur og eins og menn áttu von á var hann gifurlega
jafn og spennandi.
Mikið álag var á Stúdentum þvi þeir höfðu ekki tapað
leik i tvö ár og þarna var e.t.v. lið sem gat stöðva-
sigurgöngu þeirra. Það sást líka strax i upphafi að
Stúdentar voru taugaóstyrkir og gengu Laugdælir á
lagið, enda allt að vinna fyrir þá. 15—9 sigur fyrir
Laugdæli var sanngjarn þvi þeir léku mun betur, meb
góða hávörn og beitta sókn hjá þeim Tómasi Jónssyni,
Haraldi Geir, Antoni Bjarnasyni og Birki Þorkelssyni
sem lék þennan leik mjög skynsamlega og vann oft
boltann með skemmtilegum laumum.
Önnur hrinan var mjög spennandi og jöfn. Laugdælir
tóku forystu 7—4 em þá seig ÍS framúr 9—8 og var
leikurinn i járnum upp i 13—13. Allt var á suðupunkti
þvi Laugdælir höfðu boltann og gátu komist yfir, en þá
misheppnast uppgjöf og þar með var draumurinn búinn.
ÍS vann næstu tvö stig og sigraði 1 5—13. Stúdentarnir
voru nú orðnir heitir og Halldór Jónsson Indriði Arnórs-
son og Július Kristinsson áttu mjög góðan leik, Sigfús
Haraldsson átti einnig góðar rispur. Mesti skjálftinn
virtist nú úr fS-mönnum og næstu hrinu unnu þeir
nokkuð örugglega 1 5—9, enda téku Laugdælir fremur
illa miðað við fyrstu tvær hrinurnar.
Uppspil hjá ÍS var mjög gott, langt út á kantana og
dró þannig hávörnina hjá Laugdælum vel I sundur.
Þessu var öfugt farið hjá Laugdælum, því uppspilið var
of stutt og of lágt þannig að annaðhvort var skellt i
hávörn eða laumað. Þetta skánaði þó i fjórðu hrinu þvi
þá burstuðu Laugdælir fS og urðu lokatölur 15—4.
Anton og Haraldur Geir áttu frábærar uppgjafir i þessari
hrinu. Stúdentar fengu lítið að gert, slæm móttaka á
uppgjöfum gerði sóknina veika og góð hávörn Laugdæla
varði margan skellinn frá þeim.
Staðan var nú 2—2 og allt gat gerst. Laugdælir
byrjuðu úrslitaleikinn mjög vel, komust I 7—4, en i
„hálfleik" munaði einu stigi 8—7 og þá seig á ógæfu-
hliðina hjá Laugdælum. Stúdentar skutust framúr og
komust i yfirburðastöðu 13—8. Sigur blasti við ÍS, en
þegar Haraldur Geir hafði unnið 4 stig i röð með
uppgjöfum og minnkað muninn i 12 —13 þá gat sigur-
inn fallið hvorum megin sem var, en Stúdentar voru
sterkari á endasprettinum og sigruðu 15—12.
Halldór og Indriði voru beztir hjá ÍS en Anton Birkir
°g Haraldur Geir hjá Laugdælum. — Dómarar voru Páll
Ólafsson og Þórhallur Bragason. Þeir voru slakir til að
byrja með, en skánuðu er á leið. Þeir slepptu of
mörgum brotum vegna tvislags, í fingur — slagi og
fleyg, en voru þó samkvæmir sjálfum sér. pó|