Morgunblaðið - 17.02.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1976
35
— Allt athafnalíf
Framhald af bls. 36
samtakanna, að það væri reynsla
liðinna ára, að þegar eftir viku-
tíma yrði tekið að gæta verulegs
vöruskorts I slíkum verzlunum og
eftir hálfan mánuð mætti búast
við því að varningur í þessum
verzlunum væri algjörlega þrot-
inn. Öll afgreiðsla og dreifing á
vörum til verzlana liggur niðri
vegna verkfallsins.
Engin mjólk?
Mjólkurfræðingar hófu verkfall
á miðnætti, og stöðvast þar með
öll framleiðsla á mjólk auk þess
sem dreifing hennar liggur niðri
af völdum verkfallsins. Ekki
höfðu I gærdag verið teknar
neinar ákvarðanir um hugsanlega
undanþágu t.d. vegna ungbarna
enda var Mbl. tjáð að framkvæmd
slfkra undanþága væri ákaflega
erfið og helzt ekki hægt að koma
slíku í kring nema með skömmt-
unarseðlum. I fyrri verkföllum
hefur stundum verið gripið til
þess að láta aðstandendum ung-
barna í té slíka skömmtunarseðla,
sem voru arfur frá skömmtunar-
árunum hér á landi, en nú er
upplag þeirra algjörlega þrotið.
Mikið hamstrað af
mat og bensfni
Geysileg verzlun var í öllum
búðum í gær þar sem almenn-
ingur var að byrgja sig upp fyrir
verkfallið af mat- og nýlendu-
vörum og mjólkurmeti, og eitt
dæmi heyrðum við úr Hafnarfirði
um mann sem keypt hafði 40
fernur af nýmjólk. Verzlunar-
stjóri I stórri verzlun I miðborg
Reykjavíkur tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins, að honum virtist
fólk kaupa inn núna eins og það
ætti von á að verkfallið stæði I um
vikutíma.
Þá var ekki síður örtröð við
bensínstöðvar I gær, en afgreiðsla
þeirra stöðvaðist um kl. 8.30 í
gær. Slökkvilið, lögregla og
strætisvagnar hafa eigin bensln-
geyma, en búast má við að læknar
og fleiri, sem vinna við ýmiss
konar öryggis- og neyðarþjónustu,
fái undanþágur, og er fordæmi
fyrir sllku I fyrri allsherjarverk-
föllum.
Flugsamgöngur
stöðvast
Allt flug Flugleiða stöðvaðist á
miðnætti vegna verkfalls þeirra
sem vinna við afgreiðslu flugvél-
anna. Að sögn Sveins Sæmunds-
sonar, blaðafulltrúa Flugleiða,
varð félagið fyrir því óhappi I
fyrradag að flugvél félagsins
bilaði úti I Kaupmannahöfn. Var I
gær sett DC-8 þota inn á þessa
flugleið, og átti hún að koma heim
á áætlun um kl. 16.30 með um 200
farþega frá Kaupmannahöfn og
Glasgow. Vélin átti sfðan að fara
aftur út kl. 20 með um 100 far-
þega, og var það sfðasta ferð
héðan til bæði Bretlands og
Norðurlanda fyrir verkfall. Þá
kom ein vél I gær frá Luxemborg
en hélt síðan áfram vestur um, og
var það síðasta ferðin til Banda-
ríkjanna héðan.
Mikil vandræði verða I innan-
landsfluginu vegna verkfallsins,
enda hefur ekkert verið hægt að
fljúga innanlands siðustu daga
vegna veðurs. T.a.m. biðu um 200
manns eftir flugi frá Akureyri I
gær og annar eins hópur hér
syðra eftir flugi norður. Ráðgert
var að fara aukaferð norður seint
I gærkvöldi ef veður leyfði. Svo til
ekkert hefur verið hægt að fljúga
til Akureyrar frá þvf á fimmtu-
dag.
Litlu flugfélögin eiga sjálf eld-
sneytisgeyma, og munu þau halda
uppi ferðum innanlands svo lengi
sem eldsneytisbirgðir þeirra end-
ast.
Treg til
undanþága
Eins og ljóst má vera af framan-
greindu hafa undanþágur, sem
þegar hafa verið veittar, fyrst og
fremst náð til þeirra sem fást við
öryggis- og neyðarþjónustu ýmiss
konar. Þannig hefur Verzlunar-
mannafélag tslands veitt lyfja-
búðum undanþágu vegna af-
greiðslu á lyfjum og til aðila sem
vinna að líknarmálum. Hins vegar
tjáði Halldór Björnsson, ritari
Dagsbrúnar, Mbl. I gær að búast
mætti við þvi að launþegafélögin
yrðu mjög treg til að veita undan-
þágur en kvað þegar mjög mikið
farið að berast af beiðnum um
undanþágur til Dagsbrúnar. Yrði
afstaða tekin til þeirra á fundi
sem stjórn Dagsbrúnar ætlaði að
halda um kvöldið, og þá yrði jafn-
framt reynt að móta einhverja
almenna stefnu I þessum málum I
samræmi við önnur félög. Jafn-
framt yrði þar rætt um fyrir-
komulag verkfallsvörzlu.
Bjarni Felixson hjá Verzlunar-
mannafélaginu tjáði Morgunblað-
inu I gær varðandi verkfalls-
vörzlu á vegum félagsins að um-
dæmi þess yrði skipt I 8 svæði, og
yrðu um 2—3 hverfisstjórar á
hverjum stað. Hópur verkfalls-
varða ætlaði að mæta I bæki-
stöðvar félagsii^j nú I morgun, og
sagði Bjarni að verkfallsverðir
yrðu kallaðir þangað sem þörf
krefði hverju sinni. Hins vegar
kvaðst hann vænta þess að skrif-
stofu — og verzlunarfólk sýndi
þann félagslega þroska i kjara-
baráttu félagsins, að ekki þyrfti
að koma til kasta verkfallsvarða.
Bankar opnir
Rétt er að taka fram, að bankar
lokast ekki vegna verkfallsins þar
eð starfsfólk ríkisbankanna
vinnur áfram með sama hætti og
opinberir starfsmenn, en hinir
bankarnir með sama hætti. Þá
munu matsölustaðir verða opnir,
þar eð starfsfólk þeirra á ekki
aðild að verkfallinu. Aður er getið
um dagblöðin en einnig má geta
þess að bókbindarar hafa enn
ekki boðað verkfall. Eins halda
almenningsvagnaferðir hér á
höfuðborgarsvæðinu áfram, svo
og ferðir sérleyfishafa víða út um
land, þar sem þeir eiga margir
hverjir eigin bensfngeyma. Hins
vegar má gera ráð fyrir þvl að
þessar ferðir stöðvist einnig ef
verkfall dregst á langinn og
bensínbirgðir þrjóta.
— MPLA
Framhald af bls. 1
• 1 Nairobi, höfuðborg Kenýa,
hermdu diplómatfskar heimildir
1 kvöld að rfkisstjórn Jomo Keny-
atta, forseta, kunni bráðlega að
viðurkenna stjórn MPLA undir
forsæti dr. Agostinho Neto í
Luanda sem rfkisstjórn Angóla,
ásamt rfkisstjórn Kenneth
Kaunda f Zambfa, en utanrfkis-
ráðherra Zambfu kom f kvöid til
Nairobi með orðsendingu um
Angólamálið frá Kaunda tii
Kenyatta. Um helgina iýsti
Kaunda þvf yfir að hann fbug-
aði nú að viðurkenna stjórn
MPLA, og utanrfkisráðherra
hans sagði f kvöld að þó
að stjórnin hefði ekki tekið
ákvörðun enn þá myndi hún ekki
snúast gegn vilja meirihlutans á
væntanlegum ráðherrafundi
Einingarsamtaka Afrfkurfkja
(OAU) f Addis Ababa. Meirihluti
OAU-rfkja hefur þegar formlega
viðurkennt MPLA-stjórnina. Þá
sagði talsmaður Mobutu, forseta
Zaire, f dag að með vissum skil-
yrðum væri hugsaniegt að hefja
viðræður við MPLA um að koma
sambúð Zaire og Angóla f eðlilegt
horf. Zaire, Zambfa og Kenya
hafa til skamms tfma öil beitt sér
fyrir myndun þjóðstjórnar f
Angóla.
— Loðnan
Framhald af bls. 36
norska Alþýóusambandinu og
verkalýðsfélagi I Tromsö, þaðan
sem Norglobal er gert út, beiðni
um að af þeirra hálfu yrðu gerðar
ráðstafanir til þess að Norglobal
hætti á sama tíma og verksmiðj-
urnar I landi. Þá gat Björn þess,
að verkalýðssamtök í Færeyjum,
Belglu og Vestur-Þýzkalandi
hefðu verið beðin að sjá til þess
að ekki yrði landað afla úr
íslenzkum skipum I höfnum í við-
komandi löndum.
Jón Ingvarsson hjá Isbirninum,
sem hefur Norglobal á leigu,
sagði við Morgunblaðið I gær, að
hann vildi ekkert tjá sig um hvert
yrði framhald á rekstri skipsins,
málið væri á viðkvæmu stigi.
A sunnudaginn tilkynntu 8 bát-
ar um afla til Loðnunefndar, sam-
tals 2570 lestir. Þeir eru: Sigurð-
ur 970, Börkur 550, Magnús 170,
Flosi 160, Hilmir KE 30, Skógey
150, Sigurbjörg 150 og Ásberg
350.
A laugardaginn, fyrsta verk-
fallsdag flotans, tilkynntu 33 bát-
ar um afla, samtals 10,660 lestir.
Voru það eftirtaldir bátar: Grind-
vikingur 550, Keflvikingur 250,
Húnaröst 250, Þórður Jónasson
350, Arnarnes 180, Arsæll 200,
Eldborg 500, Hrafn Sveinbjarnar-
son 230, Faxi 100, Hrafn 380,
Höfrungur III 240, Sklrnir 250,
Rauðsey 430, Gullberg 390, Alfta-
fell 240, Gunnar Jónsson 150,
Hákon 430, Dagfari 240, Sæbjörg
260, Sveinn Sveinbjörnsson 230,
Bergur 180, Fífill 550, Loftur
Baldvinsson 520, Jón Finnsson
440, Ásgeir 360, Snæfugl 90,
Helga 250, Öskar Halldórsson 400,
Súlan 650, Olafur Magnússon 200,
Helga II 270, Árni Sigurður 400,
Hilmir 500.
I gær tilkynnti aðeins einn
bátur afia, Náttfari 150 lestir.
— Dagblöðin
Framhald af bls. 36
ástæða til þess að stöðva dag-
blöðin að sinni, að þvf er
Bjarni Felixson hjá
Verzlunarmannafélaginu tjáði
Mbl. f gær. Eru raunar for-
dæmi fyrir slfkum undanþág-
um úr sfðasta verkfalli Verzl-
unarmannafélagsins.
Félög annarra starfsmanna
dagblaðanna hafa enn ekki
boðað verkfall eftir því sem
bezt er vitað. Hið ísl. prentara-
félag er aðili að Alþýðusam-
bandinu en I gær hafði ekki
borizt verkfallsboðun frá því.
Hins vegar hefur Morgun-
blaðið fregnað að á félagsfundi
I HlP hafi stjórn og trúnaðar-
mannaráði verið veitt heimild
til að boða til verkfalls frá og
með 25. febrúar nk. Grafiska
sveinafélagið stendur fyrir
utan Alþýðusambandið og
hefur enn ekki boðað verkfall.
Sama er að segja um Blaða-
mannafélag tslands, en kjara-
deilu blaðamanna og útgef-
a«da hefur nýlega verið visað
til sáttasemjara.
— Patty
Framhald af bls. 1
San Francisco, en þar var henni
haldið vikum saman I þröngum
skáp með bundið fyrir augun og
nauðgað af einum ræningjanna
að sögn hennar. Carter dómari
samþykkti kynnisferð þessa svo
að kviðdómendurnir gætu séð
bygginguna og húsakynnin, sem
koma fyrir I málsskjölunum. Lög-
fræðingur Patty, F. Lee Bailey,
hafði látið svo um mælt, að sjö
konur meðal kviðdómendanna
tólf ættu að fá að stíga inn I
skápinn til að finna hvernig það
væri að þurfa að hlrast I slíkri
vistarveru langtimum saman.
Múgur og margmenni þusti að er
Patricia Hearst kom að húsinu og
þurfti harða löggæzlu til að verja
hana fyrir ágengni fréttaliðsins.
Hún á sjálf að koma fyrir réttinn
á morgun.
— Þórshafnar-
spjall
Framhald af bls. 23
geysilegur sjór. Særok og hvltt
á gluggum og sjórinn gengur
yfir vélar og tæki, það kostar
mikið viðhaldið á þeim. Fyrir
hefur komið að brim hafi
rústað rétt hér I túnfætinum
við fjöruna og jafnvel flætt inn
I fjárhús, en annað hefur ekki
gengið á land úr sæ, sækýr
höfum við engar fyrir hitt.
Annars hefur verið aldeilis
undarlega snjólétt I vetur, snjó-
áttin, af norðaustan, hefur
aldrei komið I vetur.“
„Hrindið þið á flot héðan úr
Sætúni?"
„Við höfðum bát fyrrum og
þá var nóg að ýta rétt á flot til
að fá I soðið, nú er þetta horfið.
Þá var lika mikill silungur, en
nú er það hending að fá lontu I
net, algjörlega að hverfa.
Fisk fáum við þó með vöru-
skiptum útfrá I Þórshöfn hjá
trillukörlunum, það gengur
ljómandi. Það er ómögulegt
annað en fá fisk. Það lifnar yfir
því, þegar fer að vora, þá fara
þeir af stað.“
— Pyntingar
Framhald af bls. 1
hafa þeir hlýtt á vitnisburð út-
lægra Chilebúa og annarra vitna,
auk þess sem fjallað hefur verið
um skrifleg gögn. Eitt vitnanna
var dr. Sheila Cassidy, brezki
læknirinn, sem kveðst hafa verið í
haldi I Chile og pyntuð fyrir að
hafa hjúkrað særðum skæruliða-
foringja. Allana sagði, að nefndin
myndi hvetja ríkisstjórn Chile til
að láta lausa 11 chilenska
frammámenn, þ.ám. Luis
Corvalan, leiðtoga kommúnista-
flokks landsins, sem verið hafa í
haldi án dóms í meir en tvö ár.
Lýsir starfshópurinn áhyggjum
vegna þess að frétzt hefur að
menn þessir muni fara fyrir her-
rétt I næsta mánuði.
— Svíar
Framhald af bls. 34
slðustu vikurnar, en sænska
stjórnin hefur haft náið samband
við MPLA. Þá hefur finnska
stjórnin látið það leka út að viður-
kenning á stjórn MPLA sé á
næsta leiti, að sögn blaðsins. Sven
Anderson, utanríkisráðherra
Svía, hefur á undanförnum mán-
uðum margsinnis lýst því yfir I
þinginu, að Svíar líti á MPLA sem
þá frelsishreyfingu, sem eigi sér
sterkastar rætur með angólsku
þjóðinni.
— Auðmaður
Framhald af bls. 34
Kodama I tíu ár en segist aldrei
hafa rætt við hann eða Kakuei
Tanaka fyrrum forsætisráðherra,
sem hann hafi þekkt í 30 ár, um
kaup á flugvélum til eftirlits með
kafbátaferðum.
Einni nefnd öldungadeildar
Bandarlkjaþings hefur verið
skýrt svo frá, að Kodama hafi
þegið sjö milljónir dollara af
Lockheed og að Osano hafi
sennilega fengið hluta upphæðar-
innar. Japanir hafa pantað 21
Tristar-þotu og þar af hefur ANA
fengið 14.
— Finnland
Framhald af bls. 34
brota. Slðdegis I dag var ráð-
gerður fundur sáttasemjara rikis-
ins og leiðtoga lögreglumanna.
Fleiri verkföll standa yfir í Finn-
landi. Bankar voru lokaðir I dag I
Helsinki, Tammerfors, Abo og
fleiri bæjum en járnbrautar-
starfsmenn aflýstu I kvöld verk-
falli sem hefjast átti á morgun.
— Höfuðpaura
leitað
Framhald af bls. 34
sig „ungu byltingarmennina”,
hafði farið út um þúfur.
Þeir veittu Murtala Mu-
hammeð forseta fyrirsát á
eynni Ikoyi, þar sem herfor-
ingjastjórnin hefur aðsetur,
skutu á bifreið hans úr vél-
byssum og drápu auk forsetans
bílstjóra hans, aðstoðarfor-
ingja og þjón.
Herforingjastjórnin hefur
lýst þvl yfir að uppreisnin hafi
einskorðazt við höfuðborgina
Lagos, að fyrir henni hafi
staðið fámennur hópur for-
ingja úr hernum og að hún
hafi verið bæld niður.
Oluuegun Obasanjo hershöfð-
ingi, yfirmaður heraflans og
staðgengill Muhammeds hers-
höfðingja, hefur tekið við
stjórninni í Nígeriu.
Stjórn hans hefur skipað
rannsóknarnefnd hermanna,
sem á að kanna byltingartil-
raunina og komast að raun um
hvernig banatilræðið var
skipulagt.
— Verðbólgu-
samningar
Framhald af bls. 3
forystumenn vinnuveitenda og
launþega. öllum bar saman um
að samningarnir væru mjög
verðbólguhvetjandi, enda hafði
ríkisstjórnin þá lofað atvinnu-
rekendum því að þeir mættu
veita kauphækkunum út I verð-
lagið. Eðvarð Sigurðsson sagði
t.d.: „Ég reikna með því, að
ekki verði hjá því komizt, að
þeir fái þann dóm,“ og átti
hann þá við að fólk myndi
dæma samningana sem verð-
bólgusamninga. Um þetta sagði
Eðvarð ennfremur: „Er það eitt
hið nöturlegasta við þessa
samninga, að það sem gert er
fyrir láglaunafólk, skuli alltaf
fara á þann hátt að aðrir —
launþegarnir með háu launin,
skuli fá allt það sem náðist
fyrir láglaunafólkið. Þetta
verkefni er verðugt verkefni
stjórnmálaaflanna að glima við
sem úrlausnarefni."
Þetta allsherjarverkfall, sem
um getur hér að ofan, stóð ekki
I langan tíma. En allsherjar-
verkfallið þar á undan var mjög
langvinnt. Það hófst 27. maí
1970 og stóð til 19. júni, er
samningar tókust. Verkfall
þetta skall á þremur dögum
fyrir borgarstjórnarkosningar.
Eftir þetta langvinna verkfall
fengu launþegar 15% grunn-
kaupshækkun og fulla verð-
tryggingu launa. Áttu samn-
ingarnir að gilda til 1. október
1971 eða I rúmt ár. Að lokinni
samningagerð voru menn ekki
á eitt sáttir um úrslitin, forystu-
menn atvinnurekenda töldu
samningana þungbæra, en
launþegar voru ánægðir eftir
atvikum.
— Guðmundur
Framhald af bls. 5
Keflvíkingur KE 1591
Sæberg SU 1563
Kristbjörg VE 1559
Dagfari ÞH 1457
Húnaröst ÁR 1416
Álftafell SU 1403
Sigurbjörg OF 1385
Helga RE 1313
Vörður ÞH 1307
Bjarni Ólafsson AK 1298
Skógey SF 1276
Sveinn Sveinbjörnsson NK 1263
Höfrungur III AR 1202
Ársæll KE 1132
BergurVE 1118
Faxi GK 1071
Lárus Sveinsson SH 1002
— Hannes
Framhald á bls. 35
viðkomandi landa, en slik bréf
senda sendiherrar starfs-
bræðrum sínum er þeir koma
til starfa á nýjum stað.
Ástæðuna sagði Hannes Jóns-
son vera þá, að „allt tal um
vinsamleg samskipti tslands
og Bretlands um þessar
mundir er ekkert annað en
hræsni“. Um leið upplýsti ís-
lenzki sendiherrann, að hann
hefði frábeðið sér kurteisis-
heimsókn herra og frú Smith
til sín og frúar sinnar, en
slíkar heimsöknir eru liður í
samskiptum forráðamanna
sendiráða. Fram kom að sendi-
herrann hefði falið einkaritara
sínum að tjá einkaritara
Smiths, að „meðan brezkar
freigátur væru á Islands-
miðum og hindruðu islenzku
varðskipin i löggæzlustörfum
með ofbeldisaðgerðum tæki ís-
lenzki sendiherrann ekki ' á
móti brezka sendiherranum í
Moskvu.“
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá utanrikisráðu-
neytinu í gær, að sendihérrar
Islands erlendis hefðu engin
fyrirmæli fengið um að taka
upp sérstaka umgengnishætti
við brezka starfsbræður slna.
þannig að hér væri um að ræða
frumkvæði Hannesar Jóns-
sonar, en ekki ráðuneytisins.