Morgunblaðið - 19.02.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1976
5
Margslunginn árekstur:
Bílar, menn og
sjónvarpstæki
á fleygiferð
„ÞETTA er Uklega skraut-
legasti árekstur, sem ég hef
farið í,“ sagði lögreglumaður
nokkur, sem kallaður var á
árekstursstað á gatnamðtum
Þórsgötu og Baldursgötu laust
fvrir klukkan 15 I gærdag.
Nánari atvik voru þau, að
Morris fólksbifreió ók suður
Þórsgötu en Fiatbill austur
Þarna hafnaði litsjónvarps-
tækið góða.
Baldursgötu. Skullu bílarnir
harkalega saman á gatnamótun-
um. Morrisbíllinn þeyttist nú á
kyrrstæðan sendibil og síðan á
tvo menn, sem stóðu við bílinn
og héldu á milli sín dýrindis
litsjónvarpstæki. Annar mann-
anna tókst á loft, lenti á fram-
rúðu Morrisbilsins, braut hana
og hafnaði loks á hnjánum á
ökumanninum. Gat ökumaður-
inn ekki hreyft sig fyrst i stað
og leið því smátími áður en
hann gat bremsað og hafði bíll-
inn þá runnið nokkurn spöl. Af
hinum manninum er það að
segja, að hann klemmdist og
fingurbrotnaði. Þá er að segja
frá sjónvarpstækinu. Það tókst
á loft, lenti á þaki kyrrstæðrar
bifreiðar og fór síðan á þak
næstu bifreiðar fyrir aftan. Eru
harla litlar líkur á þvi að
nokkrir litir sjáist i því framar.
Loks er að segja frá Fiatbíln-
um, en hann lenti einnig á hin-
um kyrrstæða sendiferðabíl en
olli ekki tjóni að öðru leyti.
Eins og vænta mátti varð
þarna mikið eignatjón en
meiðsli urðu ekki önnur en
þau, að maðurinn fingur-
brotnaði eins og að framan
greindi, og maður sá sem fór
inn um framrúðuna, marðist
allmikið.
Þarna endaði Morrissinn þegar ökumaðurinn náði loks að bremsa, allfjarri árekstursstað. Eins og
sjá má er framrúðan brotin, en maðurinn fór þar f gegn.
OMK
Frá árekstursstað. Fiatinn utan f sendibflnum og sjónvarpið sést á milli fólksbflanna tveggja.
Ljósm. Mbl. Frióþjófur.
Tíu færanlegar kennslu-
stofur smíðaðar í Rvík
Ákveðið hefur verið að láta
smíða 10 færanlegar kennslustof-
ur hjá Reykjavíkurborg. En slfkar
færanlegar kennslustofur hafa
komið að miklu og góðu gagni sem
kennsluhúsnæði til viðbótar, með-
an verið er að byggja upp skóla í
nýjum hverfum og meðan mest
fjölmenni er í skólum.
Fræðsluráð lagði til við borgar-
ráð að hafin yrði nú þegar smiði á
þessum 10 stofum, þ.e. þremur
sem tilbúnar yrðu á starfsvelli 1.
mai, fimm samtengdum stofum
fyrir Fossvogsskóla með afhend-
ingartíma 15. júlí og tveim til
notkunar við skóla i Breiðholts-
hverfum, þar sem henta þykir,
með afhendingartima 15. júlí. Er
nú i fyrsta skipti hugmyndin að
nýta sömu stofur að sumrinu á
starfsvelli og til skólahalds að
vetrinum og getur orðið til mikils
hagræðis. Borgarráð samþykkti
þetta og jafnframt að 5 af stofun-
um yrðu boðnar út, en 5 smiðað-
ar hjá Trésmíðastofu borgarinn-
ar.
Lokið við smíði 209 íbúða
í Kópavogi á
Um s.I. áramót var alls unnið að
bygginu 763 íbúða og 205 ein-
býlishúsa í Kópavogi. Að rúm-
máli voru þessar íbúðir 267.398
rúmm. t frétt frá bvggingarfull-
trúanum í Kópavogi segir, að f lok
síðasta árs hafi verið gefið út
4000 byggingaleyfið í kaupstaðn-
um. Á árinu hafi verið afgreiddar
192 (248) byggingarleyfisum-
sóknir, þar af samþykkti nefndin
145 (248) mál.
Aðeins hálf milljón
safnaðist til Guatemala
TÆPLEGA 550 þúsund krónur
söfnuðust f söfnun sem Kauði
kross lslands efndi til vegna jarð-
skjálftanna miklu f Guatemala.
Þar af söfnuðu börn á Fáskrúðs-
firði tæplega 50 þúsund krónum,
eins og fram kemur f frétt hér á
eftir:
Fáskrúðsi'irði 16. febrúar.
FYRIR helgina fóru nokkrir
krakkar á aldrinum 5—13 ára og
söfnuðu munum hjá þorpsbúum I
hlutaveltu, sem þau efndu til um
helgina. Ágóðinn varð 47.600
krónur og létu börnin peningana
renna i söfnun fyrir Guatemala,
sem Rauði krossinn hefur staðið
að. Vilja börnin koma á framfæri
þakklæti til allra sem aðstoðuðu
þau við framkvæmdina á þessu.
árinu 1975
I fréttinni kemur fram, að á
árinu 1975 hafi verið lokið við
smiði 209 ibúða og skiptist þær
þannig eftir fjölskyldustærð: 2
herb. og eldhús 5 íbúðir, 3 her-
bergi og eldhús 75 fbúðir, 4 her-
bergi og eldhús 91 íbúð, 5 herb. og
eldhús 30 ibúðir, 6 herbergi og
eldhús 5 íbúðir og 7 herb. og
eldhús 3 ibúðir.
Þá segir, að á árinu hafi verið
byrjað á byggingum i' nýju
iðnaðarhverfi austan Smiðju-
vegar i landi þvi, sem Kópavogs-
kaupstaður hafi fengið í maka-
skiptum við Reykjavik, u.þ.b. 23
ha. Þar sé gert ráð fyrir 57
iðnaðarlóðum og hafi hús verið
samþykkt á 55 lóðir, alls 47.244
fm eða 208.354 rúmm. — Þá var á
árinu hafin bygging á 90 íbúðum i
tveimur húsum í fjölbýlishúsa-
hverfi við Engihjalla austast í
Digraneslandi. *
Týndi veski
Á sunnudagsmorgun týndi ung-
urmaður svörtu ‘leðurveski með
20 þús. krónum í. I veskinu voru
engin skilríki, en það tapaðist á
Reynimel. Skilvis finnandi getur
komið veskinu til ritstjórnar
Morgunblaðsins gegn fundarlaun-
um.
---'«
81 Verzlnn okkar
að
LAU6AVEGI66
er opin í
verkfallinn