Morgunblaðið - 19.02.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1976
7
Auknar
heildartekjur
af álverinu
Ingólfur Jónsson 1.
þingmaður Sunnlendinga.
var meðat þátttakenda I
umræðum á Alþingi
nýverið um viðbótar
samning við Swiss
Aluminium. i ræðu hans
kom m.a. ótvfrætt fram,
að með breytingum á ál-
samningnum væri stefnt
að auknum og öruggari
heildartekjum islendinga
af álverinu. Samningurinn
muni m.a. leiða til veru-
lega hærra raforkuverðs
til álversins og aukins
framleiðslugjalds, en
drýgstur hluti þess rennur
til Byggðasjóðs, er fjár-
magnar landsbyggðar-
framkvæmdir.
Um orkusöluna sagði
Ingólfur: „Orkusalan
eykst um 20 MW, þar af
12 MW afgangsorka.
Aðalbreytingar frá gild-
andi samningum eru
þessar: Nýtt orkuverð
tekur gildi frá 1. október
1975, en þá átti raf-
magnsverð til álversins að
lækka úr 3 millj. í 2.5
millj. Nýja orkuverðið
verður tengt álverði og
hækkar eftir settum regl-
um frá 1. jan. 1978 miðað
við verð á áli. Frá 1.
október 1975 er nýja
verðið þannig samkvæmt
rammasamningi: Til árs-
loka 1975 3 millj. næstu
6 mánuði 3.5 millj næstu
12 mánuði 4 millj næstu
6 mánuði 4 til 5 millj eftir
álverði. Frá 1. janúar
1978 fylgir orkuverðið
álverði, en fer þó aldrei
niður fyrir 3.5 millj þótt
álverð kunni að lækka."
Framleiðslugjald
ÍSALS, sem hefur verið
12.50 $ á tonn, breytist
nú I lágmarksskatt að
sögn Ingólfs sem greiða
ber mánaðarlega eftir út-
skipunum. Lágmarks-
skatturinn verður 20 $ á
tonn eða sem svarar
1.500.000$ á ári, miðað
við afkastagetu verk-
smiðjunnar, sem er
75.000 tonn á ári. Þessi
skattur greiðist án tillits
til afkomu verksmiðjunnar
og myndar enga skattinn-
eign, eins og gerðist sam-
kvæmt hinum eldra samn-
ingi. Við hækkun á
álverði, umfram 40 sent á
enskt pund, fer fram-
leiðslugjaldið hækkandi.
j umræðum um þetta
mál sagði Jóhann Haf-
stein, 6. þingmaður
Reykvlkinga efnislega: Sé
miðað við gengi dollars
eins og það var
1969—1970, og
þáverandi verð á áli. sem
lagt var til grundvallar er
Fyrrverandi iðnaðar-
ráðherrar:
Ingólfur Jónsson
mál þetta var upphaflega
til ákvörðunar, var
reiknað með að skatt-
tekjur af verksmiðjunni
myndu nema 4000
milljónum króna á 25 ár-
um, tekjur af raforku-
sölunni 6500 milljónum
eða samtals gjaldtekjum
um ellefu þúsund
milljónir. Það var þrisvar
sinnuin meira en stofn-
kostnaður Búrfells-
virkjunar sem álverið
gerði mögulegt að reisa.
Gjaldeyristekjur af þessu
tvennu áttu að nægja til
að endurgreiða á 1 5 árum
öll lán vegna virkjunar-
innar með 7% vöxtum.
Slðan hefur gengi dollars
breytzt og verð raforku
hækkar með hinum nýja
samningi.
Þá sýndi Jóhann fram á
með Ijósum rökum að raf-
orka frá Búrfellsvirkjun til
almannanota varð veru-
lega lægri on verið hefði
án sölu til álversins. Verð
á kwst. hefði þurft að
vera árið 1970 án
álversins 224 aurar en
varð 47.4 aurar. Eftir þvi
sem virkjunin eða stofn-
kostnaður hennar
greiddist niður hefði þetta
verð að visu lækkað niður
i 64,2 aura 1975 án
álversins (20.9 aura með
þvi) og 45.3 aura 1978 án
álvers(20.1 meðþvi).
Álverið gegndi þvi
veigamiklu hlutverki i raf-
orkuþróun landsins, gerði
Búrfellsvirkjun mögulega
mun fyrr en ella hefði
orðið og stuðlaði að lægra
raforkuverði almennt. Nýr
samningur, sem drög
liggja fyrir um, bætir enn
stöðu okkar, sniðir af
agnúa, sem reynslan
hefur leitt i Ijós, hækkar
raforkuverð, framleiðslu-
gjald og heildartekjur
islendinga af álverinu.
sem er og veigamikill
hlekkur i gjaldeyris-
sköpun þjóðarinnar. Svo
erfið sem gjaldeyrisstaða
okkar er i dag, hefði hún
þó orðið allverulega verri,
ef álverið væri ekki
staðreynd og umfangs-
mikill hlekkur I verð-
mæta- og gjaldeyris-
sköpun i landinu.
27150
> r-i
' N i
27750
FA8TEIONAHÚ8IÐ
BANKASTRÆTI 11 II HÆÐ
Efri sérhæð ásamt bílskúr
Vorum að fá í einkasölu í tvibýlishúsi við Digranesveg mjög
fallega 5 herb. efri hæð. íbúðin skiptist þannig: 2 samliggj-
andi stofur, um 40 ferm., húsbóndaherbergi, tvö svefnher-
bergi. Eldhús m. harðviðarinnréttingu, bað flísalagt. Sér
þvottahús á hæðinni og geymsla. Rúmgóður innbyggður
bílskúr fylgir. Sér hitaveita. Sér inngangur. Ræktuð lóð. Mjög
viðsýnt útsýni.
Höfum fjársterkan kaupanda að húseign við
Miðborgina.
Umboðsmenn
Óskum eftir umboðsmönnum og söluaðilum
um land allt fyrir BARUM hjólbarða.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma
42606.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ISLANDIH/E
AUDBREKKU 44-46 SÍMI 42606
TILBOÐ
Teg. 1, — teg. 2:
brúnt leður og með hrágúmmísólum
Stærðir: Nr. 36 — 37 — 38.
Verð áður: Kr. 2.685.-
Núkr. 1.595.—
Teg. 3.
Trétöfflur: í brúnu leðri. Stærðir
Nr.: 35—42
Verð: Áður Kr. 2.985.-
Nú kr. 1595.—
Póstsendum
Skóverzlun Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/ Austurvöll sími 14181
Fjármálastjórn fyrirtækja
Hver er fjárhagsleg aðstaða fyrirtækisins.
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði i fjármálum I 23. febrúar til 1.
marz n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 1 5.00 til kl.
19.00 mánud. 23. febrúar, þriðjudaginn 24. febrúar, miðvikud. 25.
febrúar föstud. 27. febrúar og mánud. 1. marz.
Markmið þessa námskeiðs er að veita þjálfun i að meta afkomu og
fjárhagslega stöðu fyrirtækis og að auki að kynna gerð fjárhagsáætlana
(budgeting), þ.e.a.s. áætlana um rekstrarafkomu, um sjóðshreyfingar
og um þróun efnahags fyrirtækja.
Athyglinni verður beint fyrst og
fremst að ársreikningum (rekstrar-
og efnahagsreikningi) fyrirtækja og
kannað, hvert gagn megi af þeim
hafa og i hverju þeim sé áfátt. Eftir
upprifjun i bókhaldstækni verður
gerð grein fyrir tækni við rannsóknir
á ársreikningum og tækni við
samningu yfirlits um fjármagns-
streymi.
Þá kemur lýsing og gagnrýnið mat á hefðbundnum meginreglum sem
fylgt er við samningu ársreikninga og lýst tækni, sem beita má til að
leiðrétta það vegna áhrifa verðlagsbreytinga.
Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að hafa bókhaldsþekkingu. Nám-
skeiðið kemur að góðu haldi öllum, sem fást við fjármál.
Leiðbeinandi verður
Árni Vilhjálmsson prófessor
Þátttaka tilkynnist i síma 82930
Þetta er rétta námskeiðið fyrir þá sem standa i ársuppgjöri.
UTSBLU-
ENN BETRI KJOR,
EN Á VETRAR
ÚTSÖLUNNI
ALLTNÝJAR OG
NÝLEGAR VÖRUR
ÓTRÚLEGT
VÖRUÚRVAL
LÁTIÐ EKKI HAPP
ÚR HENDI SLEPPA
Teg. 4.
Brúnt leður og með hrágúmml-
sólum. Stærðir Nr. 36 — 38
39 — 40.
Verð: Áður Kr. 4.495.—
Núkr. 2.995.—
er að
Laugavegi
66
Laugavegi 66, sími 28155