Morgunblaðið - 19.02.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19, FEBRÚAR 1976
Aöhlynning sjúkra íheimahúsum
Klúbbur 32 með
skemmtikvöld
KLÚBBUR 32 er að hefja starf-
semi sfna að nýju um þessar
mundir, að því er segir í fréttatil-
kvnningu frá stjórn Klúbbsins. 1
stórum dráttum er áformað að
hafa starfseminni með svipuðu
sniði og á sl. ári. — þ.e. dansleik-
ir, hljómleikar og utanlandsferð-
ir. Hefur og komið til tals að efna
til ferða um Evrópu með áætlun-
arbflum.
Klúbburinn ætlar að leitast við
að halda skemmtanir hálfs mán-
aðarlega, og fyrsta skemmtun
þessa starfsárs verður í kvöld að
Hótel Loftleiðum. Stendur hún
yfir frá kl. 10—1 en húsið verður
opnað kl. 9. Þar munu koma fram
hljómsveitir og söngflokkar, svo
sem Þokkabót, Randver, Diabolus
In Musica og Cabaret órafmögn-
uð.
Tilgangur klúbbsins er að
stefna saman ungu fólki með sam-
eiginleg áhugamál. Ný stjórn hef-
ur nýlega tekið til starfa og skipa
hana Kristinn T. Haraldsson,
Konráð Eyjólfsson, Sigurður Her-
mannsson og Rúnar Marvinsson
Þriðjudaga og fimmtudaga
frá 24. febrúar til 16. marz
— ísjö skipti —
Námskeiðið verður að Hallveigarstöðum
Kennarar:
María Finnsdóttir, hjúkrunarkona, BA
og Ásta Claessen, sjúkraþjálfari
Námskeiðið er ókeypis og öllum heimil þátttaka
Upplýsingar og innritun í síma 2-82-22
og að Öldugötu 4
Ljósmynd Ól.K.M.
Nam listmálun í bréfaskóla
Hjalti Þórðarson sýnir 30 myndir á Mokka
HJALTI Þórðarson tómstunda-
málari opnaði s.l. sunnudag sýn-
ingu á 30 acryl- og vatnslitamynd-
um á Mokka við Skólavörðustfg.
Elzta mvndin er frá 1958, en flest-
ar frá sfðasta ári. Flestar mynd-
anna eru landsfagsmyndir, en
einnig eru nokkrar dýramvndir
og andlitsmyndir. Sýningin verð-
ur opin á Mokka f þrjár vikur.
Þetta er fyrsta einkasýnir
Hjálta, en hann stundaði á sínu
tima nám f bandarískum bréf
skóla þar sem hann tók fyr
teikningu og málun og aflaði si
þekkingar á grundvallaratriðu
málaralistarinnar.
Þau eru að horfa á spennandi kvikmvndasýningu. Mvndin er úr
leikritinu Equus.
LEIKFELAG Reykjavfkur sýnir um þessar mundir fimm leikverk og
hefur aðsókn að sýningum félagsins verið mjög mikil að undanförnu.
Nokkuð hefur verið um að stórir hópar fólks utan af landshyggðinni
hafi komið á leiksýningar í Iðnó sfðustu vikur og t.d. voru hópar frá
Egilsstöðum og Kirkjubæjarklaustri viðstaddir sýningu á Skjaldhömr-
um s.l. föstudagskvöld. Auk Skjaldhamra sýnir Leikfélagið um þessar
mundir Saumastofuna, Equus, barnaleikritið Kolrössu á kústskaftinu og
f Austurbæjarbíói eru miðnætursýningar á Húrra krakka en sýningum á
þessum gamanleik fer nú senn að Ijúka. Sýningar Leikfélagsins á
þessum vetri eru nú orðnar 120 og samtals eru áhorfendur orðnir
rúmlega 35 þésund.
FRÁ KYNNINGUNNI — Á mvndinni eru, frá v.: John Ralbjerg, yfirmaður hi-fi
deildar, Þorsteinn Daníelsson, verzlunarstjóri hjá Karnabæ, John Ergemann, hljóð-
tæknifræðingur, Peter Philips, tæknistjóri, Steen Steensen, framkvæmdastjóri, Jón
Þór Sveinbjörnsson útvarpsvirki, Þorvaldur Sigurðsson, útvarpsvirki og Björn
Stefánsson, umboðsmaður fyrir JBL og Harman/Kardon á íslandi.
Hljómtækjakynning
á Hótel Loftleiðum
FJÓRIR sérfræðingar frá hljóm-
tækjafyrirtækjunum JBL og
Harman/Kardon voru staddir hér
SERTILBOÐ
20% AFSLÁTTUR af
ÖLLUM FRÖKKUM í NOKKRA DAGA
H ERRADEILDI
MELKA:
með iausu vattfóðri
án — með belti og án
DH OBI:
með belti og án —
Austurstræti
+ |REYKJAVÍKURDEILD R.K.Í.I
Námskeið:
á landi um sfðustu helgi og
kvnntu framleiðslu sína fvrir
Islendingum. A kynningunni,
sem fram fór á Hótel Loftleiðum
á laugardag og sunnudag gafst
tækifæri til að kynnast nær öllum
þeim hljómtækjaútbúnaði sem
fvrirtækin hafa á boðstólum.
Steen Steensen, framkvæmda-
stjóri Harman/Kardon í Evrópu
sagði að kynningunni hefði verið
þannig háttað að fólki hefði verið
gefinn kostur á að hlusta á tónlist
í gegnum hin ýmsu tæki, sem
hefðu verið allt frá tækjum til
afnota i heimahúsum og uppí
stúdió-tæki, sem væru mjög stór
og fyrirferðarmikil og væru éin-
göngu ætluð til meiri háttar af-
nota.
Steensen sagði einnig að um
70% allra sjónvarps- og útvarps-
stúdióa í heiminum notuðu þessi
tæki, og væri Rikisútvarpið hér
búið að festa kaup á slíkum
tækjum. Einnig sagði hann að í
athugun væri að sjónvarpið
keypti hátalara frá JBL, en það
mál væri aðeins í athugun, eins og
fyrr segir. Steensen sagði að þetta
væru ekki óþekkt fyrirtæki hér-
lendis, til dæmis vissi hann til
þess a upptökustúdíóið Hljóðriti i
Hafnarfirði notaði hátalara frá
JBL og hefði gert um nokkurt
skeið.
Bjarni Stefánsson, umboðs-
maður fyrir JBL og
Harman/Kardon á Islandi, tjáði
okkur að kynningin hefði
heppnazt mjög vel, og hefðu á að
gizka 700 manns notfært sér þetta
tækifæri. Bjarni sagði að á laugar-
deginum hefði verið boðið tækni-
fólki frá ýmsum stöðum svo sem
sjónvarpinu og útvarpinu; einnig
hefði þarna verið hljómlistarfólk
og upptökufólk ásamt fleirum, og
hefðu þá komið um 80 manns. —
Á sunnudeginum var hjá okkur
opið hús — fyrir alla þá sem vildu
kynna sér hljómtæki af þessum
gerðum og komu þá um 6—700
manns. Eins og fyrr segir, þá er
Bjarni umboðsmaður fyrir þessi
tæki hér á landi, en Karnabær
mun annast sölu þeirra og dreif-
ingu. Karnabær mun einnig
annast alla viðgerðarþjónustu á
tækjunum, og mun á næstunni
fara viðgeróarmaður á vegum
Karnabæjar utan til aö kynna sér
þau mál.