Morgunblaðið - 19.02.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1976
27
— Nýja bræðslan
Framhald af bls. 2
Sveinn Sveinbjörnsson, stöðvast,
er hann kemur í kvöld með full-
fermi af loðnu. Skuttogararnir
Barði og Bjartur voru farnir á
veiðar áður en Sjómannaverkfall-
ið skall á. Asgeir.
— Ægir skar
Framhald af bls. 28
komist að togurunum um kl. 6.30
og kl. 6.35 setti varðskipið klipp-
urnar í belginn á trolli Vianova og
reif hann mjög mikið. Stuttu siðar
kom varðskipið að William
Wilberforce og náði til að klippa á
aftari togvírinn. Varðskipið
komst að fleiri togurum, en þeir
voru allir búnir að hífa er að var
komið. 29 togarar voru á þessum
slóðum I gærmorgun.
Þegar Þór nálgaðist togarahóp-
inn tók freigátan Lowestoft á
móti varðskipinu. Fyrst í stað
urðu smásviptingar með
skipunum, en sfðan hættu þær og
létu skipin reka, um 200 metra
hvort frá öðru.
Klukkan 11.36 setti Þór á hæga
ferð áfram, en þá ætlaði varð-
skipið að sigla í átt að togurunum,
ásamt hinum varðskipunum
tveimur í sameiginlegri aðgerð.
Skipti það engum togum,
Lowestoft setti á fulla ferð fram
fyrir varðskipið, frá bakborða
yfir í stjórnborða. Vélar varð-
skipsins voru þá settar fulla ferð
aftur á bak, en árekstri varð ekki
forðað. Lenti stefni varðskipsins á
stjórnborðshlið freigátunnar á
móts við fallbyssuna og dældaðist
freigátan nokkuð. Dældir komu á
stefnið á Þór og ennfremur á bak-
borðshnifil.
Týr og Ægir héldu einnig að
togarahópnum, en þar tók sín
freigátan á móti hvoru varðskipi,
þrfr dráttarbátar, birgðaskip og
tvö aðstoðarskip. Þrátt fyrir alla
þessa vernd hffðu allir togararnir
strax er þeir sáu varðskipin nálg-
ast og létu reka á eftir. I gær-
kvöldi stóðu málin þannig á
miðunum úti fyrir Austfjörðum,
að togararnir létu reka enn, enda
voru varðskipin ekki ýkja langt
frá þeim____^ ____
— Allsherjar-
verkfalíið
Framhald af bls. 28
mjög tengt hinum sameiginlegu
sérkröfum Alþýðusambandsins.
Bjóst Barði einnig við þvf, að
vinnuveitendur myndu nú gefa
svör við því, hvort þeir teldu geta
komið til umræðu að snúa sér að
þessum sameiginlegu sérkröfum
og eins öðrum kröfum sérhópa.
Einnig náði Morgunblaðið tali
af Snorra Jónssyni framkvæmda-
stjóra A.S.I. Hann kvað lítið hafa
gerzt þennan daginn og þó hefðu
átt sér stað umræður um ýmis mál
sérhópanna. Ekki hefðu fengist
nein raunhæf svör frá vinnuveit-
endum um hugmyndir þeirra f
kaupgjaldsmálum, en ljóst væri
að þeir myndu binda sérkröf-
urnar og kaupkröfuna saman.
Hann taldi að nóttin myndi að
mestu fara í sérhópana, og jafnvel
standa eitthvað fram á daginn i
dag. ----------------
— Enn unnið...
Framhald af bls. 28
menn f byggingarfélaginu Ar-
vakri ekki boðað verkfall fyrr
en 24. febrúar n.k. og
Verzlunarmannafélag Húsa-
víkur ekki fyrr en þann 25.
febrúar. Af þessum sökum er
víða unnið af fullum krafti á
Húsavfk, en vinna eins og t.d. í
fyrstihúsinu liggur alveg niðri.
Ekki kemur til vinnustöðv-
unar í Kisiliðjunni við Mývatn,
þar sem starfsmenn þar vinna
eftir samningi, sem gerður var
á s.l. ári. Húsvíkingar eru þegar
farnir að fá rauðmaga f soðið og
hafa menn fengið nóg til matar
innanbæjar, en ekki er þess að
vænta að aðalgangan komi á
miðin fyrr en eftir tvær til fjór-
ar vikur.
ALLAR ÞRÆR
FULLAR
A Vopnafirði skellur verkfall
á á miðnætti 20. þ.m. Hjá fiski-
mjölsverksmiðjunni eru allar
þrær fullar og hefur þvf ekki
verið tekið á móti loðnu í
nokkurn tíma af þeim sökum.
Verksmiðjan hefur fengið
undanþágu til vinnslu nokkurs
magns eftir að verkfallið hefst.
Fyrir skömmu kom skip til
Vopnafjarðar með vistir þannig
að matvælaskortur mun ekki
gera vart við sig fyrst um sinn.
Þó munu þessar birgðir ekki
endast lengi eftir að verkfall
skellur á.________________
ENN TEKIÐ A
MÓTI LOÐNU
Miðvikudaginn 25. hefst
verkfall á Fáskrúðsfirðl. I gær
var verið að landa þar úr tveim-
ur loðnubátum, bæði til fryst-
ingar og í bræðslu. Ekki hefur
"enn verið fjallað um undan-
þágu til að ljúka vinnslu
þeirrar loðnu sem hugsánlega
verður í geymsluþróm verk-
smiðjunnar, enda er enn tæp-
lega vika til stefnu.
Ekki hefur heyrst hvort verk-
smiðjan muni hætta að taka á
móti loðnu næstu daga. Togari
þeirra Fáskrúðsfirðinga, Ljósa-
feli, kemur inn um næstu helgi
svo unnt verði að vinna aflann
fyrir verkfall. Togarinn mun
sennilega halda á veiðar aftur
þegar búið verður að landa.
ÞRÆR TÓMAR
A Raufarhöfn er boðað verk-
fall á miðnætti 24. Fiskimjöls-
verksmiðjan á Raufarhöfn lauk
vinnslu á þriðjudag en þá höfðu
borist á land um 14.000 tonn.
Engin loðna hefur borist til
Raufarhafnar um nokkurn
tíma þar sem verksmiðjurnar
sunnanlands hafa annað þvi
magni sem veiðst hefur. Það
magn hefur verið óvanalega
lítið þar sem mjög fáir loðnu-
bátar eru nú á sjó. Á loðnu-
vertfðinni f fyrra bárust
nokkur þúsund tonn af loðnu
til Raufarhafnar sem veiðst
hafði við Ingólfshöfða þar sem
loðnan er nú. Verkfallið mun
fyrst hafa áhrif á matvælaflutn-
ing til Raufarhafnar en þar er
ekki mikið af matvælum til.
Von er á báti frá Húsavík í dag
með mjólk.
VERKFALL1KVÖLD
Verkfall skellur á á Reyðar-
firði á miðnætti f kvöld. Verk-
smiðjan er nú að vinna upp það
magn loðnu sem er f geymslu-
þróm. Undanþága hefur fengist
til að ljúka vinnslu þess magns
sem eftir verður er verkfallið
byrjar en verksmiðjan hefur
ekki tekið á möti loðnu f nokkra
daga samkvæmt tilmælum
verkalýðsfélagsins.
Fiskvinnslustöðin og hrað-
frystihúsið munu stöðvast á
miðnætti. Kaupfélagið á
Reyðarfirði mun sennilega
verða opið.
Til Reyðarfjarðar hefur
hvorki komið póstur né blöð frá
því að verkfallið hófst
SKIPAÐ tJT MJÖLI
A Seyðisfirði er unnið af
kappi í loðnuverksmiðjunum,
en þær eru þó hættar að taka á
móti loðnu. Er gert ráð fyrir að
þær hafi lokið bræðslu a.m.k.
að mestu þegar verkfall skellur
á þann 22. febrúar.
-Sjómannadeilan
Framhald af bls. 28
lægi á borðinu. Jón Sigurðsson,
formaður Sjómannasambandsins,
sagði einnig að mikil vinna væri
enn eftir þótt einstakar tölur
hvað snerti hliítaskiptin væru frá
en málin þokuðust hægt í áUina.
Blaðamanni Morgunblaðsins
var sagt sem dæmi um það hversu
umfangsmikið hlutaskiptaatriðið
eitt væri, að þar væri um að ræða
84 tölur varðandi aflaprósentuna
sem þyrfti að taka til meðferðar,
þar eð hún væri mismunandi eftir
veiðarfærum fyrir hverja stærð
báta. Um sex leytið í gær var
nióurstaða fengin um liðlega 30
atriði, en samningamenn tóku
Morgunblaðinu vara fyrir því að
það segði neitt um ganginn i
samningsgerðinni almennt.
— Ferðum SVR
Framhald af bls. 2
11 og 12 fram til kl. 19, en þá
yrði öllum akstri hætt.
— Miðað við venjulegan
akstur á virkum degi þarf
S.V.R. 25 manns til viðhalds á
41 vagni, sem þá er í notkun. 1
sambandi við þá ferðatíðni, sem
var i fyrradag og f gær vil ég
geta þess, að þá notuðum við 21
vagn og til að halda þeim gang-
andi þurfum við 18 manns und-
ir venjulegum kringum-
stæðum, en við höfum nú að-
eins undanþágu fyrir 5 manns,
sagði Eiríkur.
Hann sagði, að S.V.R. hefði
farið fram á undanþágu fyrir
15 manns, sem væri algjört lág-
mark til að halda starfsemi
strætisvagnanna áfram.
Á okkur hvílir sú ábyrgð, að
við verðum að sjá öllu fólki
fyrir fari til vinnu um leið og
vinna hefst á ný. Vagnkostur-
inn má ekki vera verri en þegar
verkfall hófst, en þá var hann í
algjöru lágmarki vegna hins
slæma tíðarfars í vetur.
Guðmundur Hilmarsson hjá
Félagi bifvélavirkja tjáði Mbl. í
gærkvöldi að ákveðið hefði
verið að veita undanþágu fyrir
einn mann til viðbótar til við-
halds á vögnum S.V.R. þannig
að þeir yrðu nú 6.
Karl Árnason hjá Strætis-
vögnum Kópavogs sagði, að
ákveðið hefði verið að fækka
ferðum S.V.K. I dag yrði ekið á
12 mínútna fresti fram til kl. 10
en eftir það á 20 mínútna fresti.
Strandaglópar
erlendis
Fjölmargir Islendingar eru
nú strandaglópar eriendis. Mun
talsverður fjöldi fólks búa á
Hótel Aerogold í Luxemborg,
einnig er margt fólk i London,
Kaupmannahöfn og New York.
Margt af þessu fólki stendur
orðið illa að vígi fjárhagslega
en sendiráð og ræðismenn hafa
víða hlaupið undir bagga.
— Klúbburinn
Framhald af bls. 2
króna, þar af var ein upp á 1,6
milljón krónur, stfluð á Afengis-
og tóbaksverzlun ríkisins. Rann-
sókn þessa tékkamáls var nýhafin
en það lá ljóst fyrir að ávfsanirn-
ar yoru ekki útfylltar af veitinga-
manninum, heldur starfsfólki
hússins.
I framhaldi af þessu hafði
Morgunblaðið samband við Jón
Kjartansson, forstjóra ÁTVR, og
spurði hann hvernig á því stæði
að fyrirtæki hans tæki við stór-
ávísunum frá veitingahúsum um
leið og það neitaði að taka við
ávísunum frá almennum við-
skiptavinum. Svaraði Jón þvi til,
að þess væri krafizt í viðskiptum
við veitingahús og tóbaksbúðir að
fyrirtækin settu tryggingar fyrir
viðskiptunum annað hvort banka-
tryggingar eða veð í fasteignum.
Ætti ÁTVR veð í Klúbbnum fyrir
umræddri skuld.
— Aðildarríki
Framhald af bls. 1
hring áður en umræður hefjast í
brezka þinginu um fiskveiðimál,
en brezkir sjómenn segja að út-
gerð í Bretlandi muni hrynja
saman innan nokkurra mánaða
verði ekkert gert til að vernda
hagsmuni brezkra sjómanna og
hafa þeir krafist þess að brezka
stjórnin tryggi Bretum 100 milna
fiskveiðilögsögu.
Slit
Framhald af bls. 1
enda ekki opinberlega búið að
tilkynna um slitin.
Morgunblaðið aflaði sér f gær
upplýsinga um það hvað gerist ef
stjórnmálasambandi er slitið við
Breta. Þess verður fyrst óskað að
Bretar loki sendiráði sinu hér
á landi og að brezki sendiherr-
ann hverfi af landi brott. Fær
hann til þess ákveðinn frest
samkvæmt alþjóðareglum.
Sendiráði Islands i Loncion
verður lokað en Sigurður
-Bjarnason sendiherra þar er nú
staddur hér á landi. Um fram-
kvæmd stjörnmálaslitanna að
öðru leyti fer eftir tvihliða samn-
ingum, sem gerðir verða milli Is-
lendinga og Breta. Þó er ráðgert
að islenzka sendiráðið í 'London
verði hluti af þvi norska og
brezka sendiráði hér i Reykjavík
hluti af því franska. Verður
aðeins skipt um skilti á sendi-
ráðunum. I stað skiltisins „Is-
lenzka sendiráðið" kemur skiltið
„Norska sendiráðið, Islandsdeild"
og það sama verður uppi á ten-
ingnum með brezka sendiráðið
hér. Starfsmenn sendiráðanna
verða eftir slitin starfsmenn fyrr-
nefndra deilda í norska og
franska sendiráðinu. Munu deild-
irnar eins og sendiráðin áður
vinna að málefnum sem snerta
viðkomandi lönd og þegna þess og
sjá um upplýsingaöflun og miðl-
un. Samgöngur verða væntanlegí
óbreyttar, engin breyting á við-
skiptatengslum og hagur náms-
manna verður sá sami.
— Lífeyrir
hækkar
Framhald af bls. 3
„Þessi lífeyrismál hafa verið
einn af dekkri blettunum í
þjóðfélaginu, en nú hefur feng-
izt veruleg bót á. Lífeyris-
sjóðirnir munu taka þetta sam-
eiginlega á sig ásamt ríkisvald-
inu, en endanleg afgreiðsla
þessa máls er í höndum ríkis-
stjórnarinnar.
Guðmundur kvaðst vilja full-
yrða að niðurstaða sú, sem
fékkst i fyrrinótt, væri með
stærri skrefum til launajöfn-
unar sem hérlendis hefðu veriö
tekin á undanförnum árum og
komið væri til móts við það'fólk
sem verst væri sett. Hann var
spurður að því hvað nú tæki við
í samningsgerðinni.
„Eg býst við að aðilar fari nú
að ræða tilboð sáttanefndar eða
kaupgjaldsmálin sjálf, ellegar
taki til við hinar sameiginlegu
sérkröfur. Þar verður ekki
komist hjá ýmsum leiðrétting-
um vegna misræmis sem orðið
hefur milli samninga einstakra
aðila. Þó að árfðandi sé að
vinda sér í aðalkröfuna um
kaupið, þá eru ýmsar kröfur
t.d. hjá Verkamannasamband-
inu, atriði sem nauðsynlegt er
að leiðrétta og samræma áður
en við getum skrifað undir
nokkra samninga. En eftir sam-
komulagið í nótt er vissulega
komin viss hreyfing —. betra
sjóveður óneitanlega.
— Mikill áfangi
Framhald af bls. 3
spurður að þvi hversu stöndug-
ir slikir sjóðir væru. „Það er
því miður með þá eins og aðra
sjóði hér í landi, að þeir hafa
rýrnað i verðbólgunni. Yfirleitt
eru sjóðirnir ekki öflugir en þó
er það æði misjafnt. Sum félög-
in eiga nánast enga sjóði, og
jafnvel hjá þeim sem bezt eru
sett munu sjóðirnir ekki endast
langan tíma.“
Að lokum var Björn Jónsson
spurður hverju hann vildi spá
um framvinduna. „Það er undir
báðum aðilum komið hvað þeir
vilja hraða þessari samnings-
gerð, en jafnvel þótt allt fari á
bezta veg mun það alltaf taka
einhverja daga að koma þessu
saman,“ svaraði hann.
— Sjópróf
Framhald af bls. 14
gátunnar með 50° til 60° horni
á afturhorn þilfarshúss. Stb.
bógur freigátunnar lagðist
síðan að afturhlið varðskipsins
og dróst aftur með siðu þess.
Strax eftir áreksturinn var
stefnu varðskipsins breytt í
135° en Diomede hélt í hring til
bb. og nálgaðist varðskipið
aftur undir enn stærra horni á
að gizka 70—80°.
Baldri var snúið hart til bb.
(sjá afstöðumynd 2) til að forð-
ast yfirvofandi ásiglingu og
sigldi freigátan að þvi er virtist
fulla ferð rétt aftan við skut
þess. Var varðskipinu þá snúið
við til stb. á upphaflega stefnu
þess.
Þegar freigátan hafði misst
af varðskipinu beygði hún með
krappri beygju til bb. og gerði
aftur ásiglingartilraun undir
sama horni og að því er virtist
með sama siglingarhraða.
Ásiglingartilraun þessari var
bægt frá með því að snúa varð-
skipinu hart til stb. með allri
mögulegri ferð en síðan á 180°
stefnu. I öllum tilraununum
beindi freigátan sinni skæru
ljósvörpu að stjórnpalli varð-
skipsins eins og áður er getið,
svo að nær ógerlegt var að átta
sig á hreyfingum og fjarlægð
hennar. — Skömmu siðar gerði
Diomede enn eina ásiglingar-
tilraun með því að sigla fram
með varðskipinu bb. megin og
reyna slá stb. horni i síðu þess.
Eftir ásiglingartilraunir
freigátunnar hélt varðskipið
innfyrir 12 milna mörkin út af
Langanesi og stöðvaðist þar.
Dómforseti í sjóprófunum í
gær var Hrafn Bragason
borgardómari, en meðdómend-
ur skipstjórarnir Guðmundur
Hjaltason og Halldór
Sigþórsson. Ásamt Höskuldi
Skarphéðinssyni skipherra
gáfu skýrslu 4 aðrir yfirmenn
varðskipsins. Viðstaddir
sjóprófin voru frá Landhelgis-
gæzlunni Jón Magnússon lög-
maður og Gunnar H. Ölafsson
skipherra.
— Ford
Framhaid af bls. 13
Ford forseti er trúaður á að Bush
takist með seiglu að endurnýja
trú manna á nauðsyn starfs CIA
og hefur Bush meðal annars sett
fram nokkrar hugmyndir um
hvernig að skuli staðið. Hann
hefur meðal annars lýst því yfir
að CIA muni ekki framar leita
eftir aðstoð frá bandarískum fjöl-
miðlasamtökum og ekki verði
óskað eftir starfsmönnum úr
prestastétt. Stjórn Fords hefur
gagnrýnt harðlega að upplýsingar
„láku“ úr leyniskýrslu fulltrúa-
deildarinnar og kann það að hafa
leitt til dauða Welch, sem var
skotinn af grfmuklæddum
mönnum fyrir nokkru. En ’
skömmu áður hafð nafn hans
verið birt í blaðinu Athens News,
sem er gefið út á ensku I Grikk-
landi, og var þar látið að þvf
liggja, að hann væri CIA-
starfsmaður. Ári fyrr hafði og
verið íað að hinu sama.
— Ófagrar
Framhald af bls. 13
þeim. Hún sagði að bindi
frá augum hefði ekki verið
tekið fyrr en 1. apríl eða
um það bil tveimur mánuðum
eftir að henni var rænt og hún
var þá látin laus úr skápvistinni
og sagt að bankaránið stæði
fyrir dyrum. Þegar Baily spurði
hana hvers vegna hún teldi að
Defreeze hefði viljað að hún
tæki þátt í bankaráninu sagði
hún: „Hann vildi að ég yrði
eftirlýst af FBI.“
Mikill tími réttarhaldanna i
gær fór í að hlusta á segul-
bandsupptökur frá Patriciu og
öðrum í samtökunum. Þar lýsti
hún Randolph Hearst föður
sínum sem „svíni“ og „lygara“
og kvaðst ætla að taka sér
nafnið Tania og hefja af þrótti
að starfa með samtökunum.
Foreldrar Patriciu sátu i
fremstu röð á meðan segul-
bandsupptökurnar voru fluttar
og frú Hearst grét er hún
hlýddi á þær.
— Herlög
Framhald af bls. 13
Barcelona til að mótmæla fram-
komu lögreglunnar og var á ný
gerður aðsúgur að ráðhúsinu,
enda þótt lyktir yrðu að verkfalls-
menn héldu þaðan með friði i
siðara skiptið.
Verkfallsmenn’ hafa krafist
þess að borgarstjórinn í
Barcelona segi af sér og gerðu
aðsúg að honum þegar hann kom
til ráðhússins i morgun. Síðdegis i
dag var kyrrt víðast hvar í
landinu, en mikill viðbúnaður er
af hálfu lögreglu, ef til tíðinda
skyldi draga siðar í kvöld.
lr:i> siiV' lástc,I 1)4