Morgunblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1976
3
Ljósm : Þórólfur Magnússon
Bifreiðin féll niður skriðurnar sem eru lengst til hægri á myndinni. Til vinstri sjást bæirnir Máná og
Dalabær.
„Hélt að Birgir hefði
farið niður með bílnum”
— segir Þórdís Ingimarsdóttir, sem var farþegi
í bílnum er hrapaði niður Mánárskriður
„ÉG sá bílinn fara fram af skriðubrúninni og ég hélt
að Birgir væri enn í bflnum, og þar af leiðandi brá
mér gífurlega. En sem betur fer hafði Birgi tekizt
að henda sér út úr bflnum og stóð hann upp rétt á
eftir ómeiddur." sagði Þórdís Ingimarsdóttir, en
hún var farþegi í bifreið Birgis Ólafssonar frá
Hofsósi, sem var svo óheppinn að missa nýlega
bifreið sfna fram af Mánárskriðum sem eru skammt
frá Siglufirði.
Þórdís sagði, aó þau Birgir
hefðu verið á leið frá Siglufirði
til Hofsóss, þar sem þau eiga
heima, skömmu eftir hádegi á
laugardag. Þau vissu að gífur-
leg hálka var í Mánárskriðum
og að menn höfðu lent þar i
erfiðleikum á bílum sínum.
„Þegar við komum efst I
brekkuna, bað Birgir mig að
fara út úr bilnum og ganga
niður skriðurnar, þvi honum
leizt ekki meir en svo á þær.
Það háttar þannig til i
skriðunum nú, að veginum
hallar frá brekkunni og ef
eitthvert farartæki fer af stað,
þarf ekki að spyrja að leiks-
lokum.
Nú ég fór út úr bílnum og
Birgir ætlaði að fara rólega
niður veginn. Ég leit eitthvað í
aðra átt, en um leið og ég leit
aftur við, sá ég bílinn hverfa
fram af vegarbrúninni."
Bifreið Birgis var nýleg
Volvo bifreið Það er ekki mikið
heillegt eftir af henni, því hún
féll fram af 150 metra háum
hömrum niður í fjöru. Á
leiðinni niður kastaðist vélin út
úr bílnum er hún skall utan í
hömrunum. Fréttaritari
Morgunblaðsins á Siglufirði
sagði 1 gær, að það væri vitavert
af Vegagerðinni að láta veginn
vera svona. Ef þorandi ætti að
vera að aka veginn án þess að
eiga á hættu að falla fram af,
þyrfti að laga hann þannig að
honum hallaði inn að fjalls-
hlíðinni en ekki út að sjónum.
Ungrir piltur stórslas-
aðist 1 umferðarslysi
UNGUR piltur stórslasaðist f
umferðarslysi á Laugarnesvegi f
gær. Var pilturinn á skellinöðru
er hann lenti I árekstri við flutn-
ingabíl. Hann höfuðkúpubrotn-
aði, handleggsbrotnaði, brot kom
f hálslið og auk þess skarst piltur-
inn mjög mikið f framan. Hann
gekkst undir mikla aðgerð á
slysadeild Borgarspftalans í gær
en var svo lagður inn á spítalann.
Hann er ekki talinn f Iffshættu.
Nánari atvik voru þau, að pilt-
urinn ók suður Laugarnesveginn
en bifreiðin norður Laugarnes-
veg. Á mót við afurðasölu SlS
beygði bíllinn til vinstri í veg
fyrir skellinöðruna. Taldi bílstjór-
inn að hann myndi geta beygt
áður en hjólið kæmi en hefur
misreiknað ferð hjólsins sem
skall á framhjóli bilsins. Piltur-
inn kastaðist af hjólinu og í gegn-
um framrúðu bílsins og hlaut þau
meiðsli, sem að framan voru rak-
in.
Traktor stolið
RAUÐUM Ferguson-traktor var
stolið í Seljahverfi i Breiðholti
einhvern tíma á tímabilinu frá s.l.
fimmtudegi til mánudags. Trakt-
orinn er með olíuvél og veltigrind
er á honum. Þeir sem telja sig vita
hvar traktor þessi er niðurkom-
inn eru beðnir að hafa samband
við rannsóknarlögregluna.
I ljós kom, að pilturinn, sem er
17 ára gamall, hafði ekki réttindi
til að aka skellinöðru. Hann hafði
engan hjálm á höfði, hjólið sem
hann var á, reyndist vera númera-
laust og auk þess sætislaust.
Mál veitingahúsanna
bríút send Sakadómi
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær
til Williams Th. Möller, aðalfull-
trúa lögreglustjórans f Reykjavfk
og spurðist fyrir um rannsóknina
á meintum svikum f veitingahús-
um f höfuðborginni, en eins og
fram kom f blaðinu á sunnudag-
inn hafa veitingahús orðið uppvfs
að þvf að nota ólöglega sjúss-
mæla. Sagði William að flest
benti til þess, að þarna væri að-
eins um að ræða tvö veitingahús.
Mál þeirra væru f rannsókn og
væri ekki meira um þau að segja
en þegar hefur komið fram. Bjóst
William við þvf, að málið yrði
sent Sakadómi Reykjavfkur til
meðferðar nú I vikunni.
Vegna ónákvæms orðalags á
fréttinni i sunnudagsblaðinu
Mikil heimþrá
á Kanaríeyjum
UM 120 tslendingar bfða nú
heimferðar frá Tenerife á
Kanaríeyjum og vonast þeir
flestir til að verkfallið leysist
sem skjótast. Morgunblaðið
hafði samband við einn þeirra,
Kristján Bergþórsson, sem
dvelur áTenerife.
Hann sagði, að ekki þyrfti að
kvarta undan veðrinu, um 18
stiga hiti væri daglega, sól og
sumarblfða. Engu að siður
vildi flest fólkið komast heim
til sin hið fyrsta af ýmsum
ástæðum, ekki hvað sizt
vegna barna sinna og fjöl-
skyldna, einnig vegna skatta-
framtals og söluskatts atvinnu-
rekenda og siðast en ekki sízt
vegna peningaleysis flestra.
— Allir hér eru við beztu
heilsu og senda vinum og
vandamönnuin beztu kveðjur.
Við vonum að verkfallið leysist
hið fyrsta, sagði Kristján.
mátti ætla, að Löggildingarstofan
sæi veitingahúsum og þjónum
fyrir vínmælum. Þetta er ekki
rétt, og hefur Jón Agnars, for-
stöðumaður Löggildingarstofunn-
ar beðið Mbl. að koma því á fram-
færi, að eigendur mælitækjanna
sæju sjálfir um innflutning og
smiði þeirra. Hins vegar bæri
þeim skylda til að fá þau löggilt
hjá Löggildingarstofunni áður en
þau eru tekin í notkun, eins og
réttilega kom frá í fréttinni. Það
Framhald á bls. 35
SVK fjölg-
ar ferðum
FERÐIR Strætisvagna Reykja-
vfkur og Kópavogs og Landleiða,
sem aka til Hafnarfjarðar. munu
verða óbrevttar enn um sinn frá
þvf sem verið hefur undanfarna
daga. Þó verður sú breyting á hjá
Strætisvögnum Kópavogs, að
vegna mikils fjölda farþega
verður f dag ekið samkvæmt
venjulegri áætlun, þ.e. á 12 mfn-
útna fresti.
Strætisvagnar Reykjavíkur aka
á öllum leiðum á hálftíma fresti,
þ.e. samkvæmt kvöldáætlun.
Strætisvagnar Kópavogs aka eftir
venjulegri áætlun eins og fyrr
segir og það sama er að segja um
Landleiðir. Sú breyting hefur
orðið þar, að vagnarnir aka ekki
lengra en að Álfafelli i stað Hval-
eyrarholts, sem venjulega er
endastöð vagnanna. Er það vegna
þess hve Strandgatan er illa farin
eftir vatnsveðrið s.l. föstudag.
Hefur ekki fengizt undanþága hjá
Hlíf til að hefla Strandgötuna og
treysta Landleiðir sér ekki til að
láta vagna sína aka götuna af ótta
við að þeir hreinlega brotni niður.
Vitni munu hafa verið að slys-
inu og er það ósk slysarann-
sóknardeildar lögreglunnar, að
þau hafi samband við deildlna
sem allra fyrst. Síminn er 10200.
20. febr. var undirritaður samningur milli Revkjavfkur og Seltjarn-
arneskaupstaðar um breytingu á lögsögumörkum o.fl. Samninginn
undirrituðu Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri og Birgir Jsl. Gunnars-
son, borgarstjóri. Með þeim eru á myndinni bæjarfulltrúarnir Njáll
Þorsteinsson og Karl B. Guðmundsson, borgarfulltrúarnir Magnús L.
Sveinsson, Ölafur B. Thors, Albert Guðmundsson og Kristján Bene-
diktsson og Jón G. Tómasson, skrifstofustjóri.
steins
Verðbólga i %
Frá nóvember 1974 til
nóvember 1975
Atvinnuleysi i %
síðustu handbærar
tölur:
+ 43,8
ISLANO
STÓRA BRETLAND
ITALIA
BELGlA
FRAKKLAND
SVlÞJÓÐ
BANDARlKIN
AUSTURRlKI
V ÞÝZKALAND
DANMORK
og sleggju
ÞESSI línurit sýna annars veg-
ar verðbólgu í viðkomandi
OECD-löndum sfðustu 12
mánuði frá 1. nóvember 1975
og annars vegar hlutfall at-
vinnulausra af vinnufærum
mönnum f hverju landi.
Athyglisvert er að þar sem
minnst atvinnuleysi er, er
mest verðbólga, en það er ein-
mitt á tslandi. Næst kemur
Bretland, en þar er atvinnu-
leysið tæplega fimm sinnum
meira en á tslandi. Næst-
minnsta verðbólgan er i Dan-
mörku en á hinn bóginn er
atvinnulevsið þar alvarlegast,
hvorki meira né minna en
11%. Annars tala Ifnuritin
bezt sfnu máli.