Morgunblaðið - 19.03.1976, Blaðsíða 32
\l (il.YSIM, ASIMINN KK:
22480
FlorjjunbInbií>
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976
LANDHELGISMALIÐ — Eiginkonur, unnustur og mæður skipverja á varð-
skipunum fjölmenntu í alþingi í gær. Afhentu þar Olafi Jóhannessyni dómsmála-
ráðherra skjal, þar sem farið er fram á aukaáhöfn á varðskipin og bættan
skipakost. Myndin er tekin er dómsmálaráðherra ræddi við konurnar í
anddyri Alþingishússins. — Sjá nánar á bls. 3
Ljósm. Mbl.RAX
Verkfallsmálin á Austfjörðum:
Verkfallsboðunin á Vopna-
firði og Hornafirði ólögmæt
KOMIÐ hefur f Ijós, að verkfallsboðanir tveggja verkalýðsfélaga á
Austfjörðum vegna sjómannaverkfalla voru ólöglegar. Sjómenn á
Brettingi, frá Vopnafirði greiddu atkvæði um það f,gær, hvort þeirra
verkfallsboðun væri lögleg. 10 menn greiddu atkvæði, 6 töldu verk-
fallsboðunina ólögmæta, en 4 lögmæta. Þá kom f Ijós að verkfallið, sem
átti að hefjast á Hornafirði, er einnig ólögmætt, þar sem forystu-
mönnum verkalýðsfélagsins láðist að tiikynna sáttasemjara rfkisins
um verkfallið með löglegum fyrirvara, en þar átti verkfallið að hyrja
23. marz. Jónas llaraldsson, lögfræðingur hjá L.l.tJ., sagði f gærkvöldi
að Vopnfirðingar hefðu sent út tilkynningu um að þeir myndu boða
nýtt verkfall og nú á lögmætan hátt, en um Hornfirðinga var ekki Ijóst.
Flugfélagið VIKINGUR:
Hlutafé orðið
33,6 millj. kr.
Miklar líkur á sameiningu hópanna tveggja
Sjómannaverkfall er nú á all-
flestum fjörðum Austurlands og
lamar það allt athafnalff þar
eystra eins og formaður Alþýðu-
sambands Austurlands komst að
orði við Mbl. Eins og fram hefur
komið í fréttum gáfu 70 bátasjó-
menn á Eskifirði fyrir skömmu út
yfirlýsingu, þar sem þeir sögðust
ekki mundu virða verkfallið, sem
boðað var frá og með 17. marz, en
á öðrum fjörðum var verkfalls-
boðun miðuð við 18. marz. Sjó-
mannadcild verkalýðsfélagsins á
Eskifirði hefur nú leyst þetta
félagslega vandamál með því að
veita undanþágu fyrir bátasjó-
menn frá verkfallinu og stöðvast
því aðeins tveir skuttogarar Esk-
30% hækkun
á sjónvarpi
og útvarpi
AFNOTAGJÖLD útvarps fvrir
fvrri hluta ársins 1976 hafa verið
ákveðin. Að sögn 'Gunnars Vagns-
sonar framkv.stj. verða afnota-
gjöld útvarps 2500 krónur fyrir
hálft ár (5000 kr. á ári) var
1900 krónur og afnotagjald sjón-
varps 8000 krónur fvrir sama
tímahil (16.000 kr. á ári) en var
6.100 krónur. Hækkunin er um
30% að sögn Gunnars. Skráðir
eigendur sjónvarpstækja borga
sjálfkrafa af útvarpi. Reikningar
vegna fvrri hluta ársins verða
sendir út á næstu dögum.
firðinga. Eru þeir nú báðir í höfn
og var í gær verið að landa úr
þeim. A Eskifirði hefur ekki verið
látin fara fram atkvæðagreiðsla
um samningana, sem samtök sjó-
manna og útgerðarmanna náðu
um síðastliðin mánaðamót. Er
sömu sögu að segja af öðrum
fjörðum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk á skrifstofu LÍÚ, mun
Brettingur á Vopnafirði vera að
verða tilbúinn á veiðar, og átti að
fara út í gærkvöldi.
Útvegsmannafélag Austurlands
fékk aldrei tilkynningu um verk-
fall á Vopnafirði, en samkvæmt
lögum verður að tilkynna þeim
aðila, sem verkfallið beinist gegn,
með viku fyrirvara, að verkfall sé
yfirvofandi. Ennfremur verður
sáttasemjari að fá tilkynningu um
slíkt. Útvegsmannafélag Aust-
fjarða hefur hins vegar aldrei
fengið tilkynningu um verkfall.
Jónas Haraldsson kvað Sigfinn
Karlsson aldrei hafa talið Vopna-
fjörð með í þeirri upptalningu, er
hann hefur nefnt verkfallsstað-
ina
Hvalbakur frá Stöðvarfirði er
nú á Reyðarfirði. Áhöfnin mun
hafa átt inni hafnarfrí. Auk þess
er togarinn í vélarhreinsun,
þurfti að stoppa, en þegar hann
kom inn var afli togarans orðinn
50 tonn og hefði hann verið að
veiðum fram að helgi, ef áhöfnin
hefði ekki krafizt þess að togar-
inn kæmi inn. Aflatjón togarans
er því tilfinnanlegt, á að gizka 50
til 80 tonn, vegna þessa sam-
blásturs. Hefur því útgerðar-
félagið orðið fyrir milljónatjóni
— sagði Jónas Haraldsson.
Jónas Haraldsson kvaðst harma
að verkalýðsforingjar á Austur-
landi hefðu ekki leitað til lög-
fræðinga Alþýðusambands Is-
lands um það hvað væru löglegar
aðgerðir og hvað ekki. Hann kvað
haft eftir Sigfinni Karlssyni að
Alþýðusamband Austurlands
væri nú að kanna, hvort upp-
sagnir hásetanna á Ljósafelli
væru ekki ólöglegar. Slíkt hefðu
þessir menn átt að gera fyrr — að
ganga úr skugga um, hvort að-
gerðir þeirra eru löglegar eða
ekki — sagði Jónas. „Það er ekki
fyrr en allt er komið í hönk og
leiðindi, að farið er að kanna laga-
legu hlið málanna."
Sigfinnur Karlsson, formaður
Alþýðusambands Austurlands,
sagði að verkfallsmálin gengju
eins og þau ættu að ganga, a.m.k.
á sumum stöðunum. Sigfinnur
kvað verkföllin vera löglega
Framhald á bls. 18
HLÚTAFJARSÖFNÚN hins
nýstofnaða flugfélags, Flug-
félagsins Víkings, hefur gengið
mjög vel, að því er Arngrimur
TVeir
bátar í
vanda
TVEIR bátar lentu í vanda nú
í vikunni. Annar varð fyrir
vélarbilun en hinn fékk net í
skrúfuna. I báðum tilvikunum
var taug komið f bátana áður
en tjón og mannskaðar hlutust
af en litlu mátti muna að illa
færi í bæði skiptin.
1 fvrrakvöld urðu skipverjar
á Bláfelli varir við nevðarblvs,
þar sem skipíð var á siglingu
undan Öndverðarnesi. Var
skipinu strax snúið þangað,
sem hlvsinu var skotið. Sigldi
Bláfell fram á 12 tonna vélbát,
Drómund BA 66, þjir sem hann
var á reki með bilaða vél
aðeins 'A mílu frá landi.
Álandsvindur var og rak bát-
inn í átt að landi. Taug var sett
I Drómund og hann dreginn til
Reykjavíkur.
Þá gerðist það á þriðjudags-
kvöld, að Leó VE 400 fékk net i
skrúfuna, þar sem báturinn
var að veiðum við Þrídranga.
Tókst skipverjum að losa
aðeins um skrúfuna. þannig að
afstýra tókst því að báturinn
færi í drangana en ekki mátti
miklu muna. Lóðsinn kom á
vettvang og dró Leó til Vest-
mannaevja. Leó er 100 tonna
bátur.
Efnalaugar og rak-
arar hækka taxta sina
RlKISSTJÖRNIN staðfesti í gær-
morgun 14% hækkun á taxta
efnalauga miðaé við 20. marz og
5% hækkun á taxta rakara. Verð-
lagsnefnd hafði áður samþykkt
þessar hækkanir.
Jóhannsson. flugstjóri, formaður
undirbúningsst jórnar félagsins,
tjáði Mbl. í gær. Síðdegis í gær
höfðu borizt hlutafjárloforð að
upphæð 33,6 milljónir króna. Að
sögn Arngrims eru nokkrir stórir
aðilar þar á meðal, t.d. Olíu-
félagið h.f. og Reginn hf, en fvrr-
nefnda félagið er sem kunnugt er
stór kröfuhafi í þrotabú Air
Vikings. Þátttaka almenn-
ings hefur einnig verið mjög
mikil og hluthafar skipta nú
þegar hundruðum að sögri Arn-
Framhald á bls. 18
VEÐRIÐ
Veðurstofan
spáir suðaustan-
átt um nær allt
land í dag og
vlða verður all-
hvasst. Sunnan-
lands verður
skýjað og gæti
rignt lítilsháttar
en fyrir norðan
og austan verð-
ur þokuloft og
súld. Á morgun
er áfram spáð
suðlægri átt og
mildu veðri.
Smjörið
skammt-
að í búðir
AÐEINS örfá tonn eru nú til af
smjöri hjá Osta- og smjörsölunni,
að því er Oskar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins sagði
við Mbl. í gær. Sagði Óskar að
mjög lítið kæmi inn og væri ekki
hægt að afgreiða upp í allar
pantanir sem fyrir liggja. Er
smjör skammtað til verzlana og
annarra sem það panta í stærri
stfl, t.d. veitingahúsa. Oskað
hefur verið eftir leyfi til að flytja
inn smjör, en það hefur ekki verið
veitt. Sagði Óskar að það mál
myndi skýrast á næstu dögum.
Kartöfhilaust
fram í apríl
Tafir á send-
ingum frá
Póllandi
vegna frosta
KARTÖFLLBIRGÐIR Græn-
metisverzlunar landbúnaðarins
eru þrotnar og er fyrirsjáanlegt
að kartöflur koma ekki á mark-
að aftur fvrr en einhverntíma f
næsta mánuði. Astæðan er sú,
að vegna frosta í Póllandi hefur
ekki tekiil að koma í skip þeim
kartöflum, sem búið var að
kaupa þar í landi, en fvrsta
sendingin átti að koma til
landsins á mánudaginn.
Jóhann Jónasson forstjóri
Grænmetisverzlunarinnar
sagði i samtali við Morgunblað-
ið í gær, að undanfarnar vikur
hefði orðið að skammta kartöfl-
ur í verzlanir en nú eru allar
birgðir þrotnar nema smávegis,
sem geymt er handa sjúkrahús-
um. Ef allt hefði verið eðlilegt
hefði ekki þurft að koma til
skortur á kartöflum þvi búið
var að festa kaup á 2500 tonn-
um f Póllandi. Átti að setja
fyrsta farminn í skip um s.l.
helgi en vegna frosthörku i Pól-
landi hefur ekki tekizt að koma
kartöflunum áskip. Samkvæmt
skeyti, sem Grænmetisverzlun-
inni barst í gær að utan, eru
ekki horfur á þvi að frostið
minnki í bráð. Segir í skeytinu
Framhald á bls. 18