Morgunblaðið - 23.03.1976, Page 2

Morgunblaðið - 23.03.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 Líkfundur á Selfossi I GÆRMORGUN fannst Ifk af ungum karlmanni f sand- blevtu rétt fyrir nedan Olfus- árbrú, skammt frá Selfoss- kirkju. Revndist þetta vera lík 22 ára gamals Reykvikings, Hallgríms Georgs Guðbjörns- sonar, Hverfisgötu 32. Hall- grímur heitinn hvarf 9. desember s.I. og spurðist ekk- ert til hans þrátt fyrir leit. Virðist sem hann hafi fallið undir ís i ánni, því að þá var áin í klakaböndum. 14 skip með 2800 tonn í gærkvöldi höfðu 14 loðnu- skip tilkynnt ioðnulöndunar- nefnd um afla, samtals 2800 tonn og hiifðu skipin aðallega fengið aflann seinnipart dags í gær úti af Garðskaga. Virtist sem þar væri töluverð loðna á ferð, og ásigkomulag hennar allgott enda þótt hún væri orðin nokkuð laus i sér. Heildaraflinn á loðnuver- tíðinni var í gær orðinn 325 þúsund tonn en var um sama leyti í fyrra 430 þúsund tnnn Vel safnast hjá Víkingi SÖFNUN hlutafjár hjá flug- vélaginu Víkingi gengur vel að sögn forráðamanna fyrirtækis- ins. Félaginu berast 2—3 hlutafjárloforð daglega og eru það aðallega um kaup á smærri hlutabréfum að ræða — 5—20 þúsund krónur en þó eru einstöku menn stórtækari, að þvi er Morgunblaðinu var tjáð í gær. Hlutafé félagsins er nú samtals orðið milli 73 og 74 milljónir króna en takmark forráðamanna fyrirtækisins er 100 milljónir króna í hlutafé. Stjórn félagsins sat á fundi í gær með forráðamönnum Olíu- félagsins, helzta kröfuhafa í þrotabú Air Vikins, sem jafn- framt er orðið hluthafi í hinu nýja flugfélagi. MA-nemi vann Guðmund Sig. Akureyri —22. marz GUÐMUNDUR Sigurjónsson stórmeistari, tefldi fjöltefli á laugardaginn við 24 nemendur úi* menntaskólanum, gagn- fræðaskólanum og iðnskólan- um á Akureyri. Leikar fóru svo að Guðmundur vann 22 skákir, tapaði einni og gerði eitt jafntefli. Óttar Armans- son, MA, vann skák sina við stórmeistarann og Einar Birgir Steinþórsson, MA, gerði jafn- Hafnargarður gaf sig í brimi Breiðdalsvík — 22. marz I MIKLU brimi hér aðfarar- nótt sunnudags brotnaði um 15 metra stykki framan af hafnargarðinum. Skemmdir hafa ekki verið kannaðar til neinnar hlítar og ekki hægt að segja fyrir um þær með neinni vissu fyrr en lægir. Þó er Ijóst að þarna hefur orðið tilfinnan- legt tjón og Ijóst að viðgerð á garðinum verður kostnaðar- söm. Ekki breytir þetta neinu um bryggjupláss í höfninni en mun ókyrrara verður í henni fyrir bragðið. — fréttaritari Ljósm. Friðþjófur. ÓK Á STAUR — Bifreið var ekið á staur í Lækjar- götu síðdegis í gær. Kona ók bifreiðinni og mun henni hafa fatazt vegna bilunar, sem varð í bifreið- inni. Konan meiddist lítið en bifreiðin er mikið skemmd eins og myndin ber með sér. Slökkviliðið var kallað á staðinn til að hreinsa upp olíu, sem lekið hafði á götuna.____________________ Ekið á tvo pilta og þeir stórslasaðir TVEIR ungir piltar, 15 og 16 ára, liggja stórslasaðir og I Iffshættu á gjörgæzludeild Borgarspftalans eftir að bifreið ók á þá ofarlega á Laugavegi aðfararnótt s.l. sunnudags. Bifreiðinni ók Svfi, sem er hér I viðskiptaerindum. Grunur leikur á að hann hafi verið undir áhrifum áfengis. Slysið varð klukkan 2,15 um nóttina. Bifreiðin, sem er Volks- wagen bflaleigubifreið, ók vestur Laugaveg en piltarnir tveir voru á gangi á Laugaveginum við Laugarnesveg. Voru þeir á miðri hægri akgrein Laugavegar þegar bifreiðin skall á þeim. Annar pilt- anna kastaðist í götuna en hinn dróst smáspöl með bifreiðinni. Piltarnir voru báðir fluttir á slysadeild Borgarspítalans en sfð- an á gjörgæzludeild sömu stofn- unar að lokinni aðgerð. Þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um líðan þeirra í gærkvöldi var annar piltanna alveg meðvitundarlaus og hinn með lítilli meðvitund. Sá piltanna, sem meira slasaðist, er höfuðkúpubrotinn, kjálkabrot- inn, viðbeinsbrotinn, fót- og hand- leggsbrotinn auk meiri meiðsla. Hinn er höfuðkúpubrotinn, kjálkabrotinn og mjaðmar- grindarbrotinn. Bifreiðin hafnaði á staur og er talsvert skemmd. ökumaðurinn skarst í andliti og farþegi í fram- sæti skaddaðist einnig nokkuð f andliti. Brennivínið hækkar mest MORGUNBLAÐIÐ hafði 1 gær samband við Afengis- og tóbaksverzlun rfkisins og spurðist fyrir um verð á einstökum áfengistegundum eftir hækkun. Kom f Ijós, að mest hækkun hefur orðið á fslenzku brenni- vfni, eða 19,8% hækkun, en minnst cr hækkunin á viskt, eða 11,8%. Að öllu jöfnu virðist sem verð „ódýru“ vfnanna hafi hækkað meira en verð á dýrum vínum. Flaskan af íslenzku brennivíni kostar eftir hækkun 2600 krónur en kostaði 2170 krónur. Hækkun- in er sem fyrr segir 19,8%. Islenzkt tindavodka hækkar úr 2730 krónum í 3200 krónur eða 17,2%. íslenzkur séniver hækkar Framhald á bls. 39 Sérfræðingar skoðuðu Þór: Laga þarf öryggisatriði áður en sldpið fer aftur FORSTÖÐUMAÐUR Siglingamálastofnunar rfkis- ins, Hjálmar Bárðarson, fór ásamt tæknifræðingi um borð f varðskipið Þór, sem kom til hafnar um helgina, og kannaði hann ásigkomulag varðskips- ins eftir tfðar ásiglingar brezkra verndarskipa á það á sfðustu mánuðum. Var þctta gert samkvæmt ósk dómsmálaráðherra. Sagði Hjálmar Bárðarson f samtali við Morgunblaðið f gær, að hann teldi Hjálmar sagði, að skipið hefði hvorki verið betur né verr farið en hann átti von á. Það væri heltí- ur ljótt á að líta, mikið dældað og skemmt, en við þær aðstæður sem nú riktu gætu menn naumast sett það fyrir sig heldur yrði að ein- beita sér að lagfæringum á þeim atriðum sem beinlinis vörðuðu ör- yggi skipsins og áhafnar þess. Hann kvað Þór t.d. töluvert skemmdan að framanverðu og einnig á brúarvæng og dekki stjórnborðsmegin, sem gert hefði Feit og falleg loðna á Skjálfandaflóa Húsavík — 22. nxarz GÓÐ loðnuveiði hefur verið á Skjálfanda sfðustu daga, en hún er hins vegar svo nærri landi, að aðeins smærri bátar geta stundað þessar veiðar. Loðnan sem þarna fæst er stór og falleg, og i dag hafa tveir bátar komið hingað með fullfermi — Svanur með 30 tonn og Fanney með 20 tonn. höfuðatriði að gert yrði við ýmislegt það f skipinu er beinlfnis varðar öryggi þess áður en það léti úr höfn að nýju til gæzlustarfa og að þá yrði sérstak- lega hugað að styrkleika þess og þéttleika, auk þess sem það yrði eins vel varið og við yrði komið. Taldi Hjálmar að ekki þyrfti að taka langan tfma að koma þessum atriðum f nægilega gott horf, ef vel væri unnið við viðgerðina. verið við til bráðabirgða. Bak- borðsmegin hefði farið fram fullnaðarviðgerð að hluta en aft- an til hefði pallurinn verið fjar- lægður eftir árekstur, en Hjálmar taldi til bóta að hann yrði settur upp að nýju vegna þess að hann gæti tekið högg af skipinu ef til frekari árekstra kæmi. Hann var spurður að því hvort hann teldi að mikinn tima tæki að lagfæra Þór svo að hann kæmist á ný til gæzlustarfa, en hann taldi svo ekki þurfa að vera, ef vel væri að verkinu unnið. Hjálmar tók fram, að skoðunin hefði farið fram í fullu samráði við eftirlits- menn Landhelgisgæzlunnar og væri ekki um neinn ágreining að ræða milli þessara tveggja stofn- ana um hvað gera þyrfti. Næst stærsta aðildarfélag BSRB hvetur til samkomulags STARFSMANNAFÉLAG Reykjavíkur, sem er næst stærsta aðildarfélag B.S.R.B., hefur hvatt til þess, að kjaradeila opinberra starfsmanna verði leyst með samkomu- lagi. Kemur þessi áskorun fram í ályktun, sem stjórn og samninganefnd félagsins sendi frásér í gær. Er ályktunin svohljóðandi: STJORN og samninganefnd St. Rv. skorar á ríkisstjórnina að leggja fram lokadrög í samnings- réttarmálinu nú þegar. Þess er vænzt að staðið verði við þær tillögur, sem þegar hafa verið lagðar fram í málinu af samninga- nefnd fjármálaráðuneytisins og að tekið Verði tillit til ábendinga samninganefndar B.S.R.B. varð- andi endurskoðunarrétt aðal- kjarasamnings. Stjórn og samninganefnd félagsins telur hagsmunum opin- berra starfsmanna og þjóðar- heildarinnar bezt borgið með því að samkomulag náist i samnings- réttarmálinu án tafar, og að þegar í stað verði gengið frá nýjum kjarasamningum. Takist hins vegar ekki að ljúka samningum fyrir n.k. mánaðar- mót, verða opinberir starfsmenn að meta þá, hvernig bregðast skuli við, þannig að bezt gagni málstað þeirra. 22. marz 1976 F.h. stjórnar og samninganefndar St.Rv. Þórhallur Halldórsson. Frestun á Siglufirði SIGLFIRÐINGAR hafa nú ákveðið frestun á sjómanna- verkfalli þvi sem boðað hafði verið til. Er frestunin um óákveðinn tíma en verkfallið átti að skella á á miðnætti i kvöld. Hefur nú öllum sjómannaverkföllum, sem boð- uð voru, verið frestað. Skuttogarinn Sigluvik kom inn til Siglufjarðar í gær með 70 tonn af nokkuð góðum fiski. Hafði Sigluvíkin aðeins verið úti í 6 daga þannig að þetta er ágæt veiði. M.J. Reykjanes- kjördæmi AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi verður haldinn i Festi i Grindavík n.k. laugardag kl. 10.00 árdegis. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa verða umræður um kjördæmaskipan og atkvæðisrétt, prófkjör og prófkjörsreglur og framvindu íslenzkra stjórnmála. Frummælendur verða: Ölafur G. Einarsson, alþm., Albert K. Sanders, bæjarfulltrúi og Matthías A. Mathiesen, fjármála- ráðherra. Frestast r Alfsnesupp- boðið enn? EINAR Ingimundarson sýslu- maður Kjósarsýslu tjáði Morgunblaðinu I gær að hann væri búinn að kveða upp úr- skurð um beiðni lögmanns Sig- urbjarnar Eiríkssonar veit- ingamanns um breytta upp- boðsskilmála vegna Alfsnes- uppboðsins. Hins vegar ætti eftir að birta lögmanninum úr- skurðinn og þvi gæti blaðið ekki birt hann nú. Sagði Einar að hann gæti nú ákveðið nýjan uppboðsdag, svo fremi sem lögmaðurinn kærði ekki úr- skurðinn til Hæstaréttar en það gæti enn tafið uppboðið. Morgunblaðið spurði sýslumann þvinæst að því fyrir hve háa skuld bjóða ætti upp Alfsnes og fyrir hverju hún Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.