Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 7 Aldrei mega ábyrgir menn síður gefast upp . . . f ieiðara timans fyrir skemmstu sagði Þórarinn Þórarinsson m.a.: „Núverandi stjórnar flokkar tóku höndum saman. þegar fyrirsjáan- legir voru miklir og vax- andi erfiðleikar I efna- hagsmálum þjóðarinnar. Þeir hafa lengi verið höf- uðandstaeðingar I Islenzk- um stjórnmálum og hafa á ýmsan hátt óllk sjónar- mið. Þeir skoruðust samt ekki undan þvl að axla sameiginlega byrðina, þegar sýnt var, að ekki gat orðið um aðra stjórn að ræða. og þjóð og land þörfnuðust þess, að reynt yrði að sameina kraftana gegn vaxandi erfiðleikum. Sllk eru eðlileg viðbrögð ábyrgra manna á hættu- stundu." „Óséð er enn, hvernig núverandi stjórn tekst að rækja það erfiða hlutverk. sem hún tókst á hendur fyrir rúmlega einu og hálfu ári. Segja má, að hún standi nú I miðjum bardaganum, bæði út á við og inn á við. Þess vegna er það furðuleg óskhyggja hjá stjórnar- andstæðingum, þegar þeir eru nú að gera sér vonir um að stjómin sé að gef- ast upp, stjórnarsamstarf- ið sé að rofna og kosning- ar standi fyrir dyrum. Aldrei mega ábyrgir menn slður gefast upp en þegar mest á reynir. Þjóðin ætl- ast llka áreiðanlega til annars af aðalflokkum slnum en að þeir bogni fyrir erfiðleikunum. Miklu frekar er það ósk hennar, að þeir taki nú traustlega á málum og beiti þing- meirihluta slnum I sam- ræmi við það. Óneitan- lega hefur stjórninni tek- izt að halda vel á landhelgismálinu. og þarf þar engu að kvlða, ef svo heldur fram sem horfir. f efnahagsmálunum er staðan erfiðari, og þó kannski einkum vegna þess. að þjóðin gerir sér tæplega Ijóst. hve alvar- leg staðan er. Þar þarf stjómin að upplýsa menn betur og grlpa til viðeig- andi úrræða, þótt ýmsum geti fundizt þau örðug I bili. En umfram allt má ekki láta óeiningu og sundrungu bætast við þá erfiðleika sem fyrir eru." Slðar I leiðaranum seg- ir: „Stjórnarandstæðingar skulu þvl leggja þá drauma á hilluna, að stjórnarsamstarfið sé að rofna. Þeir ættu jafnframt að láta stjórnast af meiri ábyrgðartilfinningu en óraunsærri óskhyggju. Það myndi auka veg þeirra mest, ef þeir legðu fram krafta slna sem ábyrg stjórnarandstaða til að greiða fyrir lausn hinna miklu vandamála. sem fengizt er við." Stríðandi og andstæð brotabrot Ástæða er til að vekja athygli á þessum leiðara- skrifum Tlmans. Stjórnar- andstaða hefur á hendi þýðingarmikið og nauð- synlegt hlutverk I lýðræð- isþjóðfélagi. Það aðhald, sem henni ber að veita rlkjandi stjórn hverju sinni. á að felast I sjálf- stæðri stefnumörkun I að- steðjandi viðfangsefnum og vandamálum samfé- lagsins, svo þjóðinni séu Ijósir þeir valkostir I hverju máli, sem fyrir hendi eru. Eðlileg gagn- rýni, málefnaleg og á rök- um byggð, þarf heldur ekki að stuðla að innbyrð- is átökum þegar og þar sem samstöðu og sam- takamáttar er þörf og þjóðarhagsmunir krefjast samátaks. eihs og I land- helgis- og efnahagsmálum okkar nú. Þessum meginþáttum hlutverks slns hefur stjórnarandstaðan gjör- samlega brugðizt. Hún hefur I engu mótað mark- tæka stefnu I vandamál- um þjóðarinnar, enda inn- byrðis strlðandi og sjálfri sér ósamþykk. Þau marg- skiptu brotabrot, sem stjórnarandstaðan saman- stendur af, ná aðeins saman I neikvæðu nöldri. án marktækrar stefnu- mörkunar eða samstæðr- ar tillögugerðar I þjóðmál- um. Hún er þvl lltt traust- vekjandi og hefur tak- markaða tiltrú hjá öllum almenningi. I miðju landhelgisstrlði og átökum við margslung- inn efnahagsvanda flutti hún vantraust á rlkis- stjórnina, án þess að hafa upp á að bjóða tiltæka forystu I þjóðmálum né nokkurs konar ábendingar um, hvern veg skyldi við vandamálunum snúast. Hið neikvæða nöldur og hið algjöra ábyrgðarleysi var hið eina, sem marg- skipt stjórnarandstaða gat sameinast um og hafði fram að færa. Sennilega þarf langt að leita til að finna lágkúru og lánleysi á borð við þá, sem eru ær og kýr stjórnarandstöðu á fslandi I dag. TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS □ UTSOLU- MARKAÐURINN sem hefur vakið verðskuldaða athygli er að L 66 □ Ennþá er hægt aö gera stórkostleg kaup á þessum markaði Látiö ekki happ úr hendi sleppa, því markaöurinn heldur áfram í stuttan tíma í viöbót Hreint út sagt ótrúleg verð fyrir 1. flokks vörur it KARNABÆR Útsölumarkaöurinn. Falleg íbúð á góðum stað (parhús) Höfum til sölu fallega íbúð á mjög góðum stað í austurborginni (parhús). Á efri hæð eru 4 — 5 svefnherbergi og bað. Á neðri hæð samliggjandi stofur, rúmgott hol og eldhús. í kjallara geymslur og geta verið 2 föndurherbergi. Allt sér. SKIP& FASTEIGNIR SKULAGÖTU 63 - S 21735 & 21955 heimasími 36361. 0STRATFORD E N S K I R PENINGASKÁPAR þjófheldir — eldtraustir heimsþekkt — viðurkennd framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919. VIO SKERUM SVAMRNN alveg eins og þér óskið. Stinnan svamp, mjúkan svamp, léttan svamp eða þungan. Við klœóum hann líka, ef þér óskið -og þér sparið stórfé. LYSTADÚNVERKSMKXIAN DUGGUVOGI 8 SÍMI 846 55 5 -----------------------—----------------- t ____________________________________________ Dansk-íslenzka Y/\,T félagið minnist nú 60 ára afmælis síns föstudaginn 26. marz n.k. með hátíðarfundi í NORRÆNA HÚSINU og hefst hann kl. 20.30. DAGSKRÁ: 1. Ávarp formanns. 2. SVEN AAGE NIELSEN, sendiherra Dana á íslandi flytur ávarp. 3. ERLING BLÖNDAL BEGNTSSON og ÁRNI KRISTJÁNSSON leika á selló og píanó. 4. Borðhald Undir borðum flytur BJÖRN TH. BJÖRNSSON, listfræðingur ræðu. Aðgöngumiðar seldir 22. — 25. marz í kaffi- teríu Norræna Hússins og Bókaverzlun Lárusar Blöndal. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Aliir Danmerkur vinir velkomnir. STJÓRNIN (Áður auglýst 20. febrúar s.l., en var þá frestað vegna verkfalls).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.