Morgunblaðið - 23.03.1976, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976
Um Dalíur (I)
Nú er röðin komin að dalí-
unum!
Senn er kominn tími til
þess að huga að gömlu hnýð-
unum sem geymd hafa verið
vetrarlangt og einnig til
kaupa á nýjum, — ef til vill
eru þeir áhugasömustu þeg-
ar byrjaðir að hugsa fyrir
þessu. „Blóm vikunnar" mun
í næstu þrem þáttum fjalla
um þessa áhugaverðu hnýð-
isjurt. Einar Ólafsson kennari
og forstöðumaður Náms-
flokka Kópavogs — en ein-
mitt þar hefur almenningi
verið gefinn kostur á tilsögn I
garðrækt -— hefur dregið
saman nokkrar leiðbeiningar
og hollráð sem væntanlegum
dalíu-ræktendum mun vafa-
laust koma að góðu gagni,
— ekki sist byrjendum. Ein-
ar skiptir þessum leiðbeining-
l
um niður í 10 kafla sem eru á
þessa leið:
1: Dalíur eru mjög mis-
fljótar að blómstra og fer það
eftir afbrigðum. Þess vegna
verða hér i upphafi talin upp
nokkur afbrigði sem reynst
hafa vel hér á landi og nú
munu vera fáanleg: Arabian
night — Chinese Lantern —
Snowstorm — Deutschland
— Terpo Edinburgh — Gina
Lombaert — My Love —
Park Princess — Piquant —
Preference — Moor Place
— Majuba — Moonglow
— Amatrice — Jocondo
Early Bird — Rosella — Pio-
neer — Promise — Kochel-
see — Roquencourt.
2. Þegar dalíuhnýði eru
keypt þarf að gæta þess vel
að ekki sé rotnun eða
skemmd í þeim. Á rótarháls-
inum (við gamla stöngulinn)
ætti að votta fyrir smá brum-
um eða spirum ef hnýðið er í
lagi.
3 Gróðursetning: Ef hnýð-
in eru gróðursett í gróð-
urhúsum eða gróðurskýlum
er best að gera það einhvern
tima í marz, en séu þau gróð-
ursett i potta innanhúss (þ.e.
í stofuhita) ætti ekki að hefja
ræktunina fyrr en í apríl eða
mánuði seinna en i gróður
húsi. Hnýðin eru gróðursett
þannig að rótarhálsinn með
brumunum standi . aðeins
upp úr moldinni sem þarf að
vera góð gróðurmold. Ef
brum eru sitt hvorum megin
við gamla stöngulinn má
skera hnýðið sundur þvert í
gegnum stöngulinn og rótar-
hálsinn og er þannig hægt að
eignast tvær plöntur i stað
einnar. (Sbr. mynd 1) í
skurðsárið þarf að bera
sement áður en hnýðishlut-
arnir eru gróðursettir. Fyrir
gróðursetningu þarf að
hreinsa allar dauðar rætur og
skemmd og laus hnýði frá
aðalhnýðunum. Hægt er að
skera skemmda hluta úr
hnýðum en þá verður að
bera sement eða blöndu af
kalki og brennisteinsdufti í
sárið.
E.ÓI.
BANKASTRÆTI 11 SlMI 27150
Vesturbær
2ja herb. risíbúð.
3ja herb. risibúð.
3ja herb. risibúð við Mel-
gerði. Svalir. Sérhiti.
Hlíðar
snyrtileg 3ja herb. kjallara-
ibúð um 90 fm. Sérhiti.
Ennfremur 3ja herb. kjallara-
ibúð i Silfurtúni. Bilskúr
fylgir.
Breiðholt
nýtízkulegar 2ja, 3ja og 4ra
herb. ibúðir.
Háaleitisbraut
sérlega góð 3ja herb. ibúð á
2. hæð. Bilskúrsréttur.
Hraunbær
fallegar 2ja og 3ja herb.
íbúðir. Suður svalir. Lausar
fljótlega.
í Heimahverfi
rúmgóð 5 herb. íbúð á 9.
hæð.
Einbýlishús
í smíðum á góðum stöðum í
Mosfellssveit.
Ennfremur einbýlishúsaplata.
Fjársterkir kaupendur
á biðlista af t.d. 5 herb.
íbúðarhæð og 4ra herb. íbúð
við Arahóla.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
Sóley Jónsdóttir, Akureyri:
Sköpun, en ekki þróun
1 Morgunblaðinu, sunnudaginn
8. febr. sl., er hugvekja eftir sr.
Þóri Stephensen; ræðir hann þar
um sköpunarsöguna. Get ég ekki
betur séð en sr. Þórir trúi þró-
unarkenningunni betur en Biblí-
unni. Þykir mér það mikill skaði.
Eg held það hljóti nú að fara úr
tízku bráðlega að trúa þróunar-
kenningunni. Hún er algerlega
ósönnuð. En Biblíunni getum við
treyst og öllu sem þar stendur,
líka sköpunarsögunni. Það er
ókristilegt að ætla, að menn séu
apaættar. Hvernig er heldur hægt
að trúa einhverju í Biblíunni og
fordæma annað? Ef við trúum
ekki því sem stendur á fyrstu
síðum Biblíunnar, er þá nokkur
ástæða til að trúa þvi, sem á eftir
kemur? Efasemdar- og vantrúar-
menn vita mæta vel, að ef þeim
tekst að veikja trúna á sköpunar-
söguna, þá eru þeir raunverulega
búnir að veikja trúna á alla Biblí-
una. Ef við skiljum ekki eitthvað í
Biblíunni er það ekki vegna þess
að Bibtían hafi rangt fyrir sér,
heldur vegna þess að okkur skort-
ir skilning.
Sr. Þórir talar um þekkingu,
sem enginn mótmælir í dag. Hver
er sú þekking, sem enginn mót-
mælir í dag? Það er ekki hægt að
sjá annað í grein sr. Þóris en hann
eigi þar við þróunarkenninguna.
Þeir eru margir, sem mótmælt
hafa þróunarkenningunni, vís-
indamenn einnig, og nóg er til af
erlendum bókum sem fjalla um
hana.
1 Bandaríkjunum eru vísinda-
menn, sem ekki trúa þróunar-
kenningunni, búnir að stofna
félag. I Bretlandi eru og hafa
verið margir vísindamenn, sem
ekki trúa þróunarkenningunni.
Dr. Etheridge, steingervingafræð-
ingurinn frægi við „British
Museum“, segir: „Níu tíundu
hlutar þess, sem þróunarmenn-
irnir segja, er blátt áfram fásinna.
Safn þetta er fullt af hlutum, sem
sanna að skoðanir þeirra eru
rangar. I þessu mikla safni
finnast hvergi nokkur sönnunar-
gögn um breytingu einnar teg-
undar i aðra.“
H.H. Newman, prófessor,
kunnur málsvari þróunarkenn-
ingarinnar: „Þó að við séum
tregir til aö kannast við það,
neyðir sannleikurinn þann, sem
trúir þróunarkenningunni að|
kannast við, að það er hvergi nein
alger sönnun fyrir henni."
Beale, prófessör við King’s
College, London, liffræðingur:
„Það finnst hvergi sönnun þess,
að mennirnir séu komnir af
öðrum tegundum, eða að þeir séu
eða hafi verið tengdir þeim fyrir
þróun eða nokkra aðra aðferð.”
Virchow, prófessor í Berlín,
heimsfrægur náttúrufræðingur:
„Tilraunir til að sanna að breyt-
ing hafi orðið á dýrategundum,
unz þær urðu að mönnum, hefir
farið algerlega út um þúfur.
Þróunarkenningin er fásinna
Það er ekki hægt að sanna vís-
indalega, að maðurinn sé kominn
af öpum eða neinum öðru.n
dýrum. Milliliðurinn hefur aldre;
fundizt og verður aldrei fLnd-
inn.“
Fleirehman prófessor Er-
langen, sem fyrrum var fylgis-
maður Darwinskenningar, en
hafnaði henni eftir ýtarlega rann-
sókn, hefir þetta að segja: „Kenn-
ing Darwins um þróun verður
ekki staðfest með nokkurri stað-
reynd i náttúruríkinu. Hún er
ekki afleiðing vísindalegra rann-
sókna, heldur er hún einber heila-
spuni.“
Agassiz prófessor, einn af
hinum mestu vísindamönnum
allra tima segir þetta um þróunar-
kenninguna: „Kenningin um
breytingu tegunda er villa frá vís-
indalegu sjónarmiði, forsendur
hennar eru ósannar, aðferð
hennar óvísindaleg. Hún leiðir illt
af sér.“
Dr. W.H. Thomson, fyrrum for-
seti í Academy of Medicine, New
York: „Allur þorri líffræðinga nú
hafnar Darwinskenningunni.
Þeir álíta hana algerlega ófull-
nægjandi.” ,
Sir William Dawson, frægur
jarðfræðingur: „Saga sú, sem
klettarnir segja, ber vitni á móti
Darwinskenningunni . . Stein-
gervingafræði finnur enga
sönnun þess, að ein tegund hafi
breytzt í aðra. “
H.F. Osborn sagði um náttúru-
valið: „Lögmál Darwins um nátt-
úruvalið hefír misst álit sitt sem
eðlileg skýring upprunans.”
Eliot, prófessor í Harvard há-
skóla í Bandaríkjunum hefir
þetta að segja: „Þróunarkenn-
ingin er tilgáta, en alls ekki vís-
indi.“
Millikan prófessor: „Það er grát-
légt, að vísindamenn eru að reyna
að sanna þróunarkenninguna, en
það getur enginn vísindamaður
nokkurn tíma gert.“
Haleckel prófessor, sem áður
var hinn ákafasti talsmaður þess-
arar kenningar, hefur þetta að
segja: „Flestir sem stunda vis-
indarannsóknir nútímans, hafa
komizt að þeirri niðurstöðu, að
þróunarkenningin, nefnilega Dar-
winskenningin, sé villukenning,
sem verður ekki varin lengur.“
Huxley, prófessor: „Þróunar-
kenningin er ósönnuð og verður
ekki sönnuð.”
Dr. Keith L. Brooks segir meðal
annars þetta: „Biblían sýnir
glöggt, að geysilegt djúp er stað-
fest á milli æðsta dýrs og lægsta
manns. Níu sinnum lýsir hún því
yfir, að hið skapaða var gert hvert
eftir sinni tegund. Vísindin hafa
hvorki brúað þetta bil á milli dýrs
og manns, né heldur leitt í ljós
nokkra áþreifanlega sönnun þess,
að líf verði kveikt gagnstætt þeim
lögmálum sem Biblían birtir.
Kenning hennar er staðfest af
sjálfum Jesú Kristi. Biblían ein
er grundvöllur kristindómsins,
hvorki kirkja, þjóð, félag eða
heimili má bera „kristio” nafn
nema játaðar séu kenningar
heilagrar ritningar og framar öllu
öðru kannazt sé við Jesúm Krist
sem son Guðs, öllum kennurum
æðri.“
H.W. Pettit, Nýja Sjálandi: „Ef
þróunarlögmálið hefir verið að
verki í amöbunni um hundruð
milljónir ára, hvernig stendur þá
á því, að amaban er óbreytt enn
þá, — einfrymingur eins og í upp-
hafi? I klettunum finnast fjölda-
margir steingervingar af öpum og
margir steingervingar af mönn-
um. Hvernig stendur á því að eng-
inn steinrunninn apamaður hefur
fundizt? Hafi maðurinn þrnast út
af apalikum ættföður, hví eru
ekki milljónir apamanna lifandi
hér nú á dögum? Hví eru nokkrir
apar eftir? Sé þróun algilt lögmál,
hvi eru ekki allir apar orðnir að
mönnum?"
Þegar Darwin birti þróunar-
kenningu sína kom fram yfirlýs-
ing frá 117 leiðandi vísindamönn-
Framhald á bls. 33
SÉRHÆÐ
VIÐ MELABRAUT
Glæsileg ný 120 ferm. sérhæð
við Melabraut. íbúðin er m.a.
stofa, 3 herb. o.fl. Vandaðar inn-
réttingar, teppi, viðarklædd loft.
Bílskúr. Útb. 8,0 millj.
VIÐ ÁLFTAMÝRI
3ja herb. íbúð á 3. hæð. Stærð
um 90 fm. Útb. 5,0 millj.
ÍBÚÐIR í SMÍÐUM VIÐ
ENGJASEL U.TRÉVERK
OG MÁLNINGU
Stærð: 4 og 5 herb. íbúðir frá
105—137 ferm. íbúðirnar af-
hendast tilb. undir tréverk og
málningu fyrir lok apríl 1977.
Sameign verður fullfrág. m.a.
teppalagðir stigagangar. Bílskýli
fylgir hverri íbúð. Greiðslur fara
fram eftir byggingarstigi og
mega dreifast fram að afhend-
ingu. Beðið verður eftir hús-
næðismálastjórnarláni kr.
2.300.000. — . Verð 4ra herb.
íbúðar frá kr. 6.600.000.00 og
5 herb. ibúða frá kr.
7.600.000.00 Fast verð er
á ibúðunum. Teikn. og allar
28flfl0
Óskum eftir 2ja herb.
íbúðum
2ja herb. ibúðir
við Langaveg, Æsufell, Álfhóls-
veg, Víðimel.
Dvergabakki
3ja herb. ibúðir.
Mosgerði
3ja herb. góð kjallaraíbúð i tví-
býlishúsi
Ásvallagata
80 ferm. 3ja herb. kjallaraibúð
Hraunbær
4ra herb. 100 ferm. vönduð
íbúð á 1. hæð.
Holtsgata
3ja herb. ibúðir
Viðimelur
4ra herb. 100 ferm. ibúð ásamt
bílskúr.
Laugarnesvegur
4ra herb. 100 ferm. ibúð.
Silfurteigur
3ja herb. góð íbúð á efri hæð i
fjórbýlishúsi.
Dúfnahólar
3ja herb. ibúðir.
Þverbrekka
5 herb. góð ibúð i háhýsi.
Fellsmúli
5 herb. góð ibúð á 4. hæð í
blokk.
Digranesvegur
4ra herb. 100 ferm. íbúð í þrí-
býlishúsi.
Holtagerði
4ra herb. 90 ferm. efri hæð
ásamt bílskúr.
upplýsingar á skrifstofunni.
ATHUGIÐ AÐEINS
ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR.
VONARSTRÆTI 12
Simi 27711
Solustjóri Sverrir Kristinsson
Stór ibúð við Eskihlíð
Sólrík 6 herb. 140 fm samþykkt íbúð á jarð
hæð í blokk (suðurendi) neðarlega við Eskihlíð
til sölu. Gott eldhús, bað nýstandsett, hjóna-
herb., 3 barnaherb., 2 stofur, miklir skápar,
kælikerfi í íbúðinni, geymsla. íbúðin er teppa-
lögð. Sameiginlegt vélaþvottahús. Sameign í
góðu lagi. Uppl. í síma 25089.
Viðigrund
Fokhelt einbýlishús.
Fasteignasalan
Bankastræti 6
Flús og eignir
Simi28440.