Morgunblaðið - 23.03.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 23.03.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 13 eftir JÓN Þ. ÞÓR Tón- snillingar tefla Það er kunnara en frá þurfi að segja, að margir fremstu skákmenn sögunnar hafa einn- ig verið afburðamenn á sviði annarra greina yísinda og lista Má í þvi viðfangi minna á, að Botvinnik er mikils metinn raf- magnsverkfræðingur, Lasker var kallaður heimspekingur, Reubin í’ine sálfræðingur, Euwe prófessor í stærðfræði og þannig mætti lengi telja. Tveir af fremstu stórmeisturum heimsrns i dag hafa einnig getið sér gott fyrir tónlistarhæfni sína, þeir Smyslov og Taimanov. Allir þessir menn eru hrein andstæða við marga þá, sem í dag kallast atvinnu- skákmenn og hafa ekki annað fyrir stafni en að flakka á milli skákmóta. Geta fæstir þeirra nokkuð annað gert en tefla, og geta það þó margir tæplega, am.k. ekki svo nokkur mynd sé á. Það er hins vegar heldur sjaldgæft að okkur berist fregn- ir af því að afburðamenn á öðr- um sviðum tefli kapptefli sin á milli. Efni þessa þáttar er þó einmitt eitt slíkt kapptefli, nánar tiltekið einvígi, sem þeir tónsnillingarnir Davíð Oistrach og Sergei Prokoffieff tefldu í Moskvu árið 1937. Frásögn af þessu einvígi er að finna í 6. tbl. sovézka skáktímaritsins ,,64“, 1976 en þar sem undirritaður er illa læs á rússnesku er hon- um ókunnugt um úrslit ein- vigisins. Hér verða hins vegar birtar tvær einvigisskákanna, og þótt þær hafi ekki yfirbragð meistaraskáka munu þö fáir bera á móti því, að nokkuð hafa þeir snillingarnir kunnað fyrir sér. Og megi svo Guð varðveita alla þá, sem ekki hafa áhuga á öðru en skák. Hvítt: D. Oistrach Svart: S. Prokoffieff Móttekið drottningarbragð 1. d4 — d5, 2. c4 — dxc4, 3. Rf3 — Rf6, 4. Rc3 — c5, 5. e3 — e6, 6. Bxc4 — Rc6, 7. 0-0 — cxd4, 8. exd4 — Be7, 9. De2 — 0-0, 10. Hdl — a6, 11. d5 — exd5, 12. Rxd5 — Rxd5, 13. Bxd5 — Dc7, 14. Be3 — Bg4, 15. Dc4 — Bxf3, 16. Bxf3 — Bd6, 17. h3 — Re5, 18. Dxc7 — Rxf3, 19. gxf3 — Bxc7, 20. Hd7 — Be5, 21. Hxb7 — Hfb8, 22. Hxb8 — Hxb8, 23. f4 — Bxb2, 24. Hbl — Be5. 25. Hcl — Bb2, 26. Hc6 — Ha8, 27. Kg2 — h6, 28. a4 — Ba3, 29. Kf3 — f5, 30. Bd4 — Bb4, 31. Hc7 — Bf8, 32. Bc5 — He8, 33. Bxf8 — Hxf8, 34. Hc6 — Ha8, 35. Ke3 — He8, 36. Kf3 — Ha8, 37. Ke3 — He8, 38. Kf3 — Ha8, 39. a5 — Kf7, 40 h4 — Ha7, 41. h5 — Ha8, 42. Kg2 — IIa7, 43. f3 — Ha8, 44. Kf2 — Ha7 45. Ke3 — He7, 46. Kd4 — He6, 47. Kd5 — Hxc6, 48. Kxc6 jafn- tefli. Hvítt: S. Prokoffieff Svart: D. Oistrach Kóngsindversk vörn. 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. f3 — Bg7, 4. e4 — d6, 5. Rc3 — Rbd7, 6. Bg5 — e6, 7. d5 — a5, 8. Rh3 — Rc5, 9. Rf2 — Bd7, 10. Be2 — Dc8, 11. Dd2 — h6, 12. Be3 — b6, 13. 0-0 — Rh5. 14. f4 — Rxf4, 15. Bxf4 — exf4, 16. I>xf4 — Be5, 17. Dd2 — Bg7, 18. h3 — h5, 19. Hael — Dd8, 20. Rb5 — 0-0, 21. Rd4 — I)f6, 22. Hdl — Hae8, 23. Bf3 — Dxd4, 24. Dxd4 — Bxd4, 25. Hxd4 — He5 og hér sömdu keppendur um jafntefli. „Pétur og Rúna” í Stykkis- hólmi LEIKFÉLAGIÐ Grimnir í Stvkkishólmi hefur að undan- förnu sýnt leikritið „Pétur og Rúnu“ eftir Birgi Sigurðsson. Ætlunin er að sýna leikritið ekki aðeins í Stvkkishólmi heldur einnig í nágrannabvggðum. Myndin er úr leikritinu. Heimilistrygjging Samvinnutrygginga er: Tiygging á innbúi gegn tjóni af völdum eldsvoða og maigra annarra skaðvalda. Ábyrgðartrygging Bætur greiðast fyrir tjón, sem einhver úr fjölskyldunni veldur öðru fólki.sbr.nánari skilgreiningar i skilmálum tryggingarinnar. Örorku og/eða dánartrygging heimilisfólks við heimilisstörf. SAMVIINNljTRYGGINGAR GT. ÁRMÚLA3- SlMI 38500 SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉLAG.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.