Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 33 fclk í fréttum Okuþórinn Janet Guthrie tilbúin í slaginn Nú er fokið í flestskjól + „Þetta er greinilega eitt af siðustu vigjum karl- mannanna," segir fyrsta konan sem tekur þátt i Indianapolis- kappakstrinum i Bandarlkjun- um. Janet Guthrie heitir hún og er 38 ára gömui flugmanns- dóttir frá Miami. ,JÞað fer ekki á milli mála að starf kvenfreisishreyfingar- innar hefur auðveldað mér þátttöku f kappakstrinum,“ segir hún, „en þegar komið er út á brautina skiptir engu máii hvers kyns ökumaðurinn er. þar ráða hæfileikarnir úrslit- um.“ Búizt er við að önnur kona, Arlene Hiss, taki einnig þátt I keppninni að þessu sinni. Herrar mfnir og frúr, setjið vélarnar i gang!! Kitty Bruee BO BB & BO ERTU EKKÍ BOifV AÐ CERA VÍÐ .GRAÍURNAR 8bl? ÉG ER AÐ verba \ ofSbnn a barínn/ ■'!< BG ER AP STAGA 'I 5IÐASTA GATÍÐ BOB au / 1 \\ _ V-i V/AR ALVEG , GÖTUÓ- < GOÐ'lUJ I' I' V3L-2 -G 'TGtaaGsíd m Fetar í fótspor föður síns + Að undanförnu hefur Tóna- b!ó sýnt mynd um bandariska grfnistann og háðfuglinn Lenny Bruce sem lézt árið 1966. Nú hefur dóttirin, Kitty Bruce, sem ekki kom svo Iftið við sögu I myndinni, stigið sfn fyrstu skref á listabrautinni. Upp á sfðkastið hefur hún komið fram I næturklúbbi f New York þar sem margir ungir og óreyndir fistamenn hafa öðlazt sfna fyrstu reynslu. „Mér þykir gaman að vera dótt- ir föður mfns,“ segir Kitty, „en nú er kominn tfmi til fyrir mig að standa á eigin fótum og gera það sem ég get.“ Burton og Liz endanlega skilin + Hjónaband þeirra Elfsabetar Taylor og Richards Burton er nú endanlega fyrir bí. „En það gekk nú ekki sem verst. Við héldum það út f þrettán ár og tókst að skilja tvisvar,“ segir Burton f viðtali við Sunday Mirror. Burton segir að endurfund- irnir og giftingin f Afrfku á síðasta ári hafi verið stórkost- leg mistök. „Það var allt mjög rómantfskt en ákaflega óraun- hæft,“ segir Burton sem nú deifir borði og sæng með Ijósk- unni Susy Hunt. Um samband þeirra segir hann: „Þið getið verið vissir um að ég hef ekki tekið Susy frá manninum hennar. Hún hafði þegár kraf- izt skilnaðar þegar ég hitti hana f fyrsta sinn.“ r — Aætlun um Framhald af bls. 1 tíma, samkomulag að nást um að Rhódesía fái ekki sjálfstæði fyrr en meirihlutastjórn verður mynd- uð og eining að ríkja um að við- ræður um nýja stjórnarskrá megi ekki dragast á langinn. Ef þessi fyrirfram skilyrði verða samþykkt er gert ráð fyrir að i síðari áfanga geti hafizt við- ræður um áþreifanlegri ákvæði stjórnarskrár fullvalda rikis í Rhódesiu. Upphaf deilunnar var einhliða sjálfsstæðisyfirlýsing Smiths 11. nóvember 1965. I Salisbury vakti áætlun Callag- hans reiði. Formaður stjórnar- flokksins, Rhódesíufylkingar- innar Des Frost, sagði: „Hvað heldur hann að hann sé að bjóða okkur. Brezka stjórnin er gjald- þrota og virðist einnig sneydd hugmyndum.“ Hann spáði þvi að uppnám yrði i flokknum ef gengið yrði að skilyrðum Callag- hans. VIÐBÚNAÐUR Strangar öryggisráðstafanir voru gerðar þegar Gromyko, utan- ríkisráðherra, kom til London i dag til viðræðna við brezka ráða- menn um Rhódesíudeiluna og samskipti Breta og Rússa. Lögreglumenn voru á verði á húsaþökum og i flutstöðinni á Heathrow-flugvelli. Samtök kvenna, sem styðja sovézka Gyðinga, og samtök sem berjast fyrir pólitiska fanga í Ckrainu, efndu til mótmælaaðgerða við sovézka sendiráðið. Gert er ráð fyrir að James Callaghan utanríkisráðherra vari Gromyko yið því að leyfa beitingu sovézkra vopna eða kúbansks her- liðs í Rhodesíu. Hugsanlegt er að rætt verði um möguleika á því að Leonid Brezhnev flokksleiðtogi komi til Lundúna i heimsókn, en það getur farið eftir þeim við- tökum sem Gromyko fær. Þvi hefur verið lýst yfir að mótmæla- aðgerðum verði haldið áfram. — Harðir bardagar Framhald af bls. 1 aðgengilegar. Junblatt og aðrir vinstrisinnar hafa krafizt þess að Franjieh segi tafarlaust af sér. Bardagarnir um hótelin sýna að vinstrisinnar eru staðráðnir að beita valdi til að leggja áherzlu á pólitiskar kröfur sínar. Jafnframt hefur Aziz Al-Ahdab hershöfð- ingi, foringi byltingartilraunar- innar 11. marz, skipað 14 manna herráð til að „samræma væntan- legar hernaðaraðgerðir ef pólitisk lausn fer út um þúfur“. — Líbýskt tilræði Framhald af bls. 1 1974 fór út um þúfur. Bourguiba sagði þetta í viðtali við franska útvarpið. Libýumennirnir komu til Túnis snemma í þessum mánuði með vélbyssur, skammbyssur og hand- sprengjur í farangrinum sam- kvæmt frásögn túnisku öryggis- þjónustunnar. Einn þeirra, Mo- hamed Ben Abdelkaber, bar skil- riki Abdel Kacemomeur Sanussi, eins þriggja Araba sem voru dæmdir í sjö ára fangelsi i Róm á laugardag fyrir tilraun til að ræna Abdel Moneim A1 Honi fyrr- verandi utanríkisráðherra Libýu. Foringi tilræðismannanna var Mohamed Ali Nail, Lýbíumaður, sem var rekinn frá Túnis i fyrra og st arfsmaður leyniþjónustu- deildar Líbýuhers, „Saika“. Fé- lagar hans voru einnig úr Saika og þeir hafa allir undirritað játn- ingar þar sem þeir segja frá sam- særinu i smáatriðum að sögn tún- iskra embættismanna. Lýbíumennirnir komu vopnum sinum fyrir i libýska sendiráðinu meðan þeir kynntu sér staðhætti til undirbúnings samsærinu. Nail kveðst hafa átt að myrða Bour- guiba eða lífvörð Nouira, en hin- ir áttu að einheita sér aé fercaotic. ráðherranum. Þvi er haldið fram að Saika gegni aðallega þvi hlutverki að ræna menn eða myrða utan landa- mæra Libýu. Yfirmaður Saika er Abdallah Ijaazzi, einn „frjálsu liðsforingjanna," sem stóðu að byltingu Gaddafys 1969 og er að nafninu til yfirmaður lífvarðar hans. 5.000 túnískir verkamenn hafa verið reknir frá Lýbíu á undan- förnum þremur vikum en Túnis- stjórn hefur ekki gripið til gagn- ráðstafana. Rúmlega 25.ooo Egyptar hafa verið reknir frá Libýu samkvæmt egypzkum heimildum. Skrifstofa egypzku fréttastofunnar í Tripoli hefur verið lokað og starfsmönn- um þess skipað að fara úr landi. — ítalir Framhald af bls. 1 flokksins, Benigni Zaccagnihi, um að kljúfa flokkinn með þvi að friðmælast við kommúnista. Um það bil heilmingur þingfulltrúa virtist styðja Forlani og þvi virð- ast talsverðar líkur á því að hann taki við af Zaccagnini. Ef svo fer er líklegt að kosningar fari fram fljótlega. — Loðna Framhald af bls. 3 AsgeirRE 5179 Sæbjörg VE 5155 Flosi ÍS 4927 Reykjaborg RE 4830 Þórður Jónasson EA 4729 Helga II RE 4562 Þorsteinn RE 4478 HarpaRE 4434 Bjarni Ólafsson AK 4301 Isleifur VE 4279 Óskar Halldórsson RE 4226 AlbertGK 4206 SæbergSU 4013 Álftafell SU 3825 Hrafn Sveinbjarnarson GK 3729 HelgaRE 3712 SkírnirAK 3704 Keflvikingur KE 3551 SvanurRE 3524 Sveinn Sveinbjörnsson NK 3446 MagnúsNK 3440 Skógey SF 3325 Vörður ÞH 3252 HúnaröstAR 3025 KristbjörgVE 3014 Ársæll KE 2741 Lárus Sveinsson SH 2521 FaxiGK 2342 Höfrungur III AR 2236 Vonin KE 2157 Ólafur Magnússon EA 1921 ArnarnesHF 1821 BergurVE 1814 Arsæll Sigurðsson GK 1783 Snæfugl SU 1751 VíðirAK 1718 Sigurbjörg OF 1630 Gunnar Jónsson VE 1430 ÞórkatlalIGK 1418 Ljósfari ÞH 1364 BjarnareyVE 1108 — Sköpun Framhald af bls. 10 um samtíðar hans, sem einum rómi töldu þessa kenningu ranga. Darwin sjálfur sagði: „Mér til mikillar undrunar tóku menn þessi heilabrot mín afargeyst og gerðu sér trúarkerfi úr þeim.“ Þróunarkenningin var aldrei annað en getgáta hjá Darwin og sjálfur hélt hann henni ekki fram sem vísindalega sannaðri stað- reynd. Darwin sagði, er hann var spurður um hinar frægu kenn- ingar sínar á efri árum hans: „Eg var þá ungur maður með óþroskaðar hugmyndir. Eg kastaði fram spurningum og uppástungum, en var alla tíð í óvissu.“ Uppáhaldsrit Darwins á seinustu árum hans var Hebrea- bréfið, sem hann kallaði konung- legu bókina, en í Hebreabréfinu 11. 3. standa einmitt þessi orð: „Fyrir trú skiljum vér heimana gjörða vera með Guðs orði, á þann hátt að hið sýnilega hefir ekki orðið til af því, er séð varð.“ Himnarnir segja frá Guðs dýrð og festingin kunngerir verkin hans handa. (Sálm. 19. 2.) Fyrir Guði eru allir hlutir mögulegir. Hið minnsta fræ er vitni um sköp- "narmátt Drottins vaMooticm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.